Morgunblaðið - 22.09.1955, Síða 2

Morgunblaðið - 22.09.1955, Síða 2
\ I MORGUNBLADIB Fimmtudagur 22. sept. ’55 ] Súðavíkurhréf: . f ' - - v ’ Sæmileg heyyerkim — Súðvíkingar ió rafmagn í haust — Vegogerð kringum Áiitalförð Súðavík í ágúst. I»RÁTT fyrir eindæma snjóléttan vetur, var vorið í seinna lagi á ferð hér um slóðir. Því ollu kuldar í maí og júní. Öll vorstörf, bænda urðu því nokkru seinna en í meðal ári. Grasvöxtur á tún- um var þó yfirleitt orðinn sæmi- legur í byrjun júlí og hófst þá túnasláttur almennt. Nokkrir, sem áttu sérlega velj hirt tún eða litla bletti, höfðu J)ó byrjað fyrr eða um 20. júní. Með byrjun júlímánaðar skipti alveg ura vcðurlag. Gerði þá eunnan og suðaustan átt með regn ekúrum og skýjuðum himni, svo að sjaldan naut sólar. Hélzt svo allan júlímánuð. Þeir, sem fyrstir höfðu byrjað slátt, náðu nokkru af töðum sínum með góðri verk- un, en þfcir sem síðbúnari urðu, lentu í hrakningi með allt heyl eitt. Lítið var þó um stórrign- irtgar, en sjaldan var heill dag-l ur þurr. í byrjun ágúst gerði j þj-já allgóða þurrkdaga, og náðu! þá menn almennt inn öllum töð- um sínum. SÆMILEGUR HEYFENGUR Votheysverkun er hér nokkur hjá öllum þorra bænda og búa-! liðs, en þó eigi svo að neinu verulega bjargi, ef um langvar- ahdi óþurrka er að ræða. Hafa! fáir meira rými í votheystóttum en það, að nægjanlegt er fyrir séinni slátt, en lítið þar umframj Súgþurrkun er hér hjá einum hónda, Ágúst Hálfdánarsyni á Eyri í Seyðisfirði. Hjá allmörgum bændum í öðrum byggðum Djúps ins er og súrþurrkun. Ekki erj þar um að ræða blástur með heitu lofti, enda gerist þess þörf, því að mjög sjaldan munu þeir óþurrkar koma hér við Djúp, að loftraki sé það mikill að eigi nægi svonefndur „kaldur blást- ur“. Eftir hina þfjá þurrkadaga í égústbyrjun brá aftur til suð- og suðvestan áttar og úrkomu. Einn og einn þurrkadagur kom þó svo að hey náðust upp í sæti án þess að hrekjast mjög mikið. Er því ekki hægt að segja, að hér sé neinn voði fyrir dyrum af völd- um óþurrkanna, þó að töður manna séu að vísu mun hraktari en venjulega. Enda er ísfjarðar- djúp með þurrkasömustu sveit- um landsins af hvaða átt, sem vindurinn blæs. Eins og venjulega á vorin Btunduðu trillur héðan frá Súða- vík og öðrum þorpum Djúpsins fiskveiðar á grunnmiðum í maí og júní. Afli var oftast fremur tregur og lítill sem enginn eftir að júlímánuður kom. Nokkur vinna var þó í frystihúsunum við vinnslu á karfa úr togurum, eem lönduðu á ísafirði. XiAGNING HÁSPENNULÍNU í júlí hófust framkvæmdir við lagningu háspennulínu frá raf- veitu ísafjarðarbæjar á Fossum í Engidal þvert yfir Kirkjubóls- fjall og niður Sauradal til Súða- víkur. Er sú leið allmiklu ekemmri en út fyrir fjallið, svo að verulegu munar. Er mælt að lína þessi sé öðrum þræði lögð I tilrauna skyni, þar sem eigi mun hér á landi fyrr hafa verið lögð háspennulína um því líka óvegu. Kirkjubólsfjall er snarbratt báðum megin, með kletta mikla i brúnum og um 400 m hátt. Sagt er að strengja eigi þráðinn í löng- um bilum upp og niður af fjalls- brúnunum og búa þar um ram- lega. Talað er og um nýjan út- búnað og áður óþekktan hérlend- is, sem setja skuli á línuna til varnar því, að ísing slíti hann. Kvað sá útbúnaður vera kunnur i Noregi og hafa gefist þar vel við svipuð skilyrði. Er áætlað að hleypa straumi á línu þessa I haust. Verða byggðar þrjár spennistöðvar í Súðavik til dreifingar á orkunni meðal fólks og til frystihúsanna, þegar næg orka er fyrir hendi, sem ekki er nú. Hinsvegar er það í ráði, að kaupa 900 hestafla dísilrafstöð til orkuversins í Engidal í viðbót við þá orku, sem þar er fyrir. Vart mun sú stöð þó taka til starfa fyrr en síðari hluta næsta vetrar. Mun sú viðbót hugsuð sem toppstöð í framtíðinni fyrir Vestfjarðavirkjunina í heild. UPPHAF ARNARDALSVEGAR í kringum 1930 var byrjað á svo nefndum Arnaardalsvegi, úr botni Skutulsfjarðar um Kirkju- bólshlið til Aarnardals, sem er við mynni Skutulsfjarðar að aust- an gegnt Hnífsdal. Miðaði þeirri vegarlagningu seint lengi vel, enda um sýsluveg að ræða fram anaf og fjárframlög því smá og að mestu unnið með handverk- færum, að hætti þeirra tíma. Um 1940 eða litlu síðar er þó veg- urinn loks kominn út í Arnardal. Upp úr því krafsinu er hann tek- inn í þjóðvegatölu inn til Súða- víkur í Álftafirði. Skömmu eftir stríðslokin komast Vestfirðir í vegarsamband við aðalakvega- kerfi landsins með veginum um Þorskafjarðarheiði. Þá eru hin stórvirku vegagerð- artæki, vélýturnar, komnar til sögunnar, sem mjög vel eru fallnar til vegagerðar í fjalla- hlíðum, en af þeim eiga Vestfirðir ærið nóg, fannst mörgum sem all- ur vandi væri leystur og ný öld gæti hafist í vegamálum héraðs- ins. Það hefur og orðið svo. Er það þó að mjög miklu leyti því að þakka, hve þingmaður kjör- dæmisins hefur reynzt þar ötull forustumaður, langsýnni og á- hugameiri í þeim efnum, en flest- ir aðrir. Meðan vegagerð var unnin með handverkfærum mestmegnis, var lítt um það hugsað, að leggja þar akvegi. Hafði sú trú með nokkrum hætti fest þar rætur, að svo tafsamt og fjárfrekt væri að leggja akfæra vegi um grýtta hálsa og skriðuhlíðar þessa lands hluta, að litlu bæri til þess að kosta, en höfuðáherzlu skyldi leggja á hitt að efla og bæta sam- göngur á sjó. Var því árlega lagt verulegt fé til útgerðar Djúpbátsins, sem ann aðizt ferðir um ísafjarðarddjúp og á Strandir norður. Þetta álit manna var ekki með öllu óeðlilegt, þegar til þess er horft hve land er þar grýtt og strjálbýlt víðast hvar og munaði því lítt um hvern spottann, sem lagður var af handafli einu sam- an. Á hinn bóginn eru Vestfirð- ingar manna sjóvanastir, sem leið ir af tilhögun byggðarinnar, þar sem mestur hluti hennar er fast við sjó úti. AKVEGASAMBAND VIÐ DJÚP Þó er eigi því að leyna, að þeg- ar um 1930 voru ýmsir meðal sýslubúa farnir að huguas um verulega auknar samgöngur á landi. Voru þá ýmsar hugmyndir uppi, en þó engin er gekk jafn langt og það sem nú er fyrirhug- að í þeim efnum. Enginn var þá svo djarfur að leggja til, að þjóð- vegur yrði lagður út með Djúpi að vestan inn fyrir hvern fjarð- arbotn og út fyrir hvert nes. Á þeim árum beindist hugur manna fyrst og fremst að því, að akvegur kæmi vestur yfir Þorskafjarðarheiði að Djúpi. Síðan út Langadals- og Snæfjalla strönd, með endastöð á Mýri, í Bergseli eða jafnvel úti í Nausta- vík, með viðhlýtandi bryggju og sjóvarnargarði. Frá hverjum þeirra staða um sig eru ekki nema lVz—2 tíma sjóleið til ísa' fjarðar. En það hefur ávallt þótt helzti Ijóðurinn á núverandi land leið vestur að Djúpi, að sjóleiðin frá Arngerðareyri eða Melgras- eyri er nokkuð löng, a. m. k. 3—4 tíma ferð í góðu veðri. Þegar lengra leið fram og um það bil sem Þorskafjarðarheiðarvegurinn | var að verða að veruleika, og í sýnt var hverju hinar nýju ýtur fengu áorkað, voru uppi einstaka raddir um það, að gera akveg frá Þorskal'jarðarheiði eftir hálend- inu vestan Djúps niður í botn Álftafjarðar og koma ísafjarðar- bæ þann veg „í beint vegarsam- band við akvegakerfi landsins. — Hugmynd þessi fékk þó lítinn hljómgrunn í huga almennings, þar sem sýnt þótti, að sá vegur yrði ófær vegna snjóa 9—10 mán- uði á ári hverju. Auk þess sem hann hafði þann höfuð ókost að liggja hvergi í byggð fyrr en nálega vai komið á leiðarenda. í annan stað voru enn aðrir bundnir við hina fyrri hugmynd um Djúpbátinn, sem aðallausn á vegaspursmálinu. Var þeirra álit að fyrr nefndur vegur um Langa- dals og Snæfjallaströnd, með endastöð og smáhöfn þar, skyldi vera akbraut til ísafjarðar. Síðan skyldi koma akvegur um hverja sveit frá helztu viðkomustöðum bátsins. Frá Arngerðareyri um ísafjörð, frá Vatnsfirði ;im Þúfna dal og Mjóafjörð, frá Ögri um Laugardal og Skötufjörð, o. s. frv. En það er nú fyrst, sem almenningur vestur hér hefur vogað að hugsa svo hátt, að sam- felldur akvegur verði gerður um hverja sveit vestan Djúpsins, sem um leið kemur ísafj.bæ í beint vegarsamband við aðra lands- hluta. Utan til er þessi vegur nú nokkurn veginn fullgerður inn til Svarthamars í Álfafirði. en rudd- ur og fær „jeppum“ út fyrir Hattardal. ALT KOMIÐ f Þ JÓÐVFGATÖLU Er nú ýta að verki í Sjötúna- hlíð, sem er austan Álftafjarðar. Vinnist henni vel og verði tíðar- far sæmilegt má gera sér vonir um að hún ryðji langleiðina inn til Eyrar í Seyðisfirði i sumar og haust. S.l. sumar var ruddur veg- arspotti milli Eyrar og Uppsala, en þá var þar sýsluvegur. Nú er leiðin öll vestan Djúps komin í tölu þjóðvega. En vafa- laust tekur það allmörg ár enn, að sá vegur verði fullgerður, enda víða torleiði. Svarfhólsengjar, sem eru innst í Álftafirði, að vestan, eru einn slíkur þröskuldur. Þær eru blaut- ar mjög og þótti eigi tiltækilegt að leggja akveg yfir þær nema að skurðgrafa færi fyrir. Slíkt verkfæri hefur eigi fengizt fyrr en nú í sumar og hefur það all- mjög seinkað vegargerðinni hér. En nú er hún komin þar til verks og vinnur einnig að greftri skurða meðal bænda hér um fjörðinn. Jóhann. Mýs og menn sýnt aftur í Þórshöfu ÞÓRSHÖFN, Færeyjum — Sjón- leikafélagið í Þórshöfn hefur ákveðið að taka leikritið „Mýs og menn“, sem Erna Sigurleifs- dóttir leikkona setti á svið þar í vetur til sýninga nokkrum sinn- um í viðbót í haust. Hefur þetta verið ákveðið vegna þess, hve aðsókn var mikil síðast þegar leikritið var sýnt. —Fréttaritari. IMotkun stefnuljóss hefði hindrað árekstur ALVARLEGUR bifreiðaárekstur varð 1 gærdag á Keflavíkurn veginum, en mesta mildi að ekkert slys á mönnum varð af því. Aætlunarbifreið ók á minni fólksbifreið, er ætlaði að beygja út a| veginum. ÆTLADI AÐ BEYGJA Atvik þetta gerðist skammt frá Brunnastöðum. Áætlunarbifreið- in 0-108 var á leið suður veginn og skammt á undan fólksbifreiðin Ö-414. Sú síðarnefnda ætlaði að beygja inn á afleggjarann að Auðnum og Höfða. Bifreiðarstjóri áætlunarbifreið arinnar tók ekki eftir því fyrr en reiðin minni var ekki ökufær eft- ir. Slys sem þessi eru algeng hér á landi, en víðtækari notkun á stefnuljósum gæti nær algerlega komið í veg fyrir þau. TÓKST AÐ HÆGJA FERÐINA Fyrr um daginn varð smávegis árekstur hjá Smalaskála í Hraun- um, einnig á Keflavíkurvegi. — of seint og ók á fullri ferð inn í ^ Voru það bifreiðarnar Ö-364 og hina. Við þetta kastaðist áætlun- j R-4592, sem komu hvor á móti arbifreiðin af veginum, en stóð I annarri, en rákust á. Hafði þeim þó á réttum kili. Engin slys urðu i þó tekist að draga úr ferðinni á mönnum, en einn farþegi mun áður en árekstur varð og voru hafa fengið taugaáfall. Fólksbif- skemmdir smávægilegar. Rhugi fyrir að reisa Oddsvita við Grindavík ínRslilingðrvlfi þar fll aH anka oryggi vgiSiskipanna VAXANDI áhugi er nú fyrir því í Grindavík og víðar, að reisa innsiglingarvita í Grindavík til minningar um sr. Odd V. Gísla- son, brautryðjandann mikla í slysavörnum. En mikil þörf er talin fyrir slíkan vita til öryggis bátum, sem stunda veiðar fyrir sunnan Reykjanes. TVÆR MINNINGAEGJAFIR Guðbjartur Ólafsson skýrði Mbl. svo frá, að nýléga hefðu tvær gjafir borizt til væntanlegs Oddsvita. Fyrri gjöfin er til minn ingar um Guðmund Jónsson frá Hópi í Grindavík — 1000 kr. — Géfendur eru ekkja Guðmundar og eftirlifandi systkini. Seinni gjöfin er frá Sæmundi Tómassyni, fyrrverandi formanni í Grindavík, 500 kr., til minning- ar um afa hans, Sæmund Jóns- son, sem látinn er fyrir 50 ár- um. En hann var formaður í Grindavík samtímis og sr. Oddur var prestur þar. Fjárhæðir þess- ar eru geymdar hjá Slysavarna- félaginu. NAUÐSYN ’ INNSIGLINGARVITA Innsigling í Grindavík er slæm, einkum í dimmviðri og hef ur það áður valdið slysum. Nú sækja bátar mjög á miðin undan Grindavík og er langt fyrir þá að leita hafnar, ef þeir geta ekki lent í Grindavík, annað hvort til Þorlákshafnar eða Vestmanna- eyja eða vestur fyrir Reykjanes. Málningu og viðgerð á Dómkirkjunni lokið En bráðabirgðalurn hefur verið á ber.nl í 100 ár! NÚ ER LOKIÐ viðgerðum og málningu á dómkirkjunni í Reykja- vík utan húss sem innan. Er ólíkt að sjá kirkjuna nú eða fyns í sumar, þegar málningin á henni var farin að flagna meira og minna af öllum útveggjum. Er kirkjan aftur orðin borgarprýði. FRANKFURT, 21. sept. — Aust- ur-Þýzkaland vann Noreg í landskeppni í frjálsum íþróttum, sem lauk hér í dag með 111 stig- um gegn 101. — NTB. VERKINU LOKIÐ Nærri 15 ár voru liðin frá því kirkjan var síðast máluð. Var verkið boðið út og ákveðið að ganga að tilboði „Harðar og Kjartans". í fyrrasumar máluðu þeir kirkjuna að innan, en í haust Iuku þeir á fáum dögum utanhússmálningu. Voru margir málarar starfandi við verkið, sem gekk prýðilega í alla staði. Það var mest verk að mála kirkjuna að innan. Hafa veggir og súlur verið hvít frá því á dögum Björns Jónssonar ritstjóra er hann var kirkjuhaldari. Hafði kirkjan fram til þess verið brún að innan og þótti breytingin, sem Björn ákvað, til mikilla bóta. „BRÁÐABIRGÐA“-TURN Fyrir nokkrum árum var sett koparþak á Dómkirkjuna, sem þarf lítið sem ekkert viðhald. Má því ætla að slíkar endurbætur hafi nú verið gerðar á kirkjunni, að ekki þurfi henni að hagga um langt skeið. f þessu sambandi ber þó að minnast þess að núverandi kirkjuturn var settur á kirkjuna aðeins til bráðabirgða, af því að fé skorti til að koma upp turni eins og teikning gerði ráð fyrir. í Reyndin varð sú, að turninn hef ur verið þarna í 100 ár. Er n<S ekki kominn tími til að ljúka smíði Dómkirkjunnar og gefa henni sinn eiginlega turn? ____________________ - • Sjóvín nabanka -mát- ið langi og sfrangf / ÞÓRSHÖFN, Færeyjum — Mána daginn 19. september átti hið merka Sjóvinnubankamál að koma fyrir rétt í Kaupmanna- höfn. Lógfræðingur að nafni Erik Jensen sækir málið fyrir hönð ákæruvaldsins. Þórsteinn Peter- sen, sem var bankastjóri Sjð- vinnubankans og Kristján Hólns Jacobsen, sem var formaðuu bankanefndar eru báðir í Höfn. Fyrir þá báða átti lögfræðing- urinn Gamborg að mæta, en sami Gamborg er sjálfur flækt- ur inn í sakamál í Danmörku, Kemur því annar ipálaflutninga- maður í hans stað fyrir Þórstelaj og heitir hann J. A. Melchior. Er talið fullvíst að Sjóvinna- banka-málið eigi eftir að eiga ség lengri sögu en orðið er og rétt- arhöldin eigi eftir að standa yfúj lengi. —Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.