Morgunblaðið - 30.09.1955, Page 16

Morgunblaðið - 30.09.1955, Page 16
Yeðurúflif í dag: Hvasst N og skúrir eða slydduél. Lægir síðan. 222. tbl. — Föstudagur 30. september 1955 Almar ritar um útvarpið á bls. 9. Sigurður Thoroddsen fyrr- verandi yfirkennari láfinn SIGURÐUR THORODDSEN, fyrrverandi yfirkennari, andaðist í fyrrinótt 92 ára að aldri. Hann var fæddur að Leirá í Borgar- fjarðarsýslu 16. júlí árið 1863. Foreldrar hans voru Jón Thoroddsen ■fcýslumaður og skáld og kona hans, Kristín Þorvaldsdóttir frá Hrappsey. Sigurður Thoroddsen varð atúdent árið 1882 og lauk verk- fræðiprófi í Kaupmannahöfn ár- ið 1891. Var hann fyrsti lærður verkfræðingur hér á landi. Hann var landsverkfræðingur árin 1893 —1905. Stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík var hann frá 1904—1935. Yfirkenn- ari var hann frá 1921—1935. Þá fékk hann lausn frá störfum fyr- ir aldurs sakir. Sigurður Thoroddsen gegndi fjölmörgum öðrum störfum í þágu bæjar og ríkis. Hann var verkfræðingur Reykjavíkurbæj- ar um árabil og bæjarfulltrúi um skeið. Verkfræðingafélag íslands og Taflfélag Reykjavíkur gerðu hann að heiðursfélaga sín- um. Við lát hans á þjóðin á bak að sjá einum merkasta braut- ryðjandanum á sviði verkfræði «g verklegra framkvæmda. Sigurður Thoroddsen var kvæntur Maríu Claessen, kaup- manns og síðar landsféhirðis frá Sauðárkróki. Lifir hún mann sinn. Lokunarfími sölubúða breffisl LOKUNARTÍMI sölubúða í Reykjavík og HafnarfirSi breyt- ist þannig um naestu mánaðamót: Á föstudögum verður lokað kl. 6 síðdegis og á laugardögum kl. 4 síðdegis. í dag verður þó opiS til kl. 7 e. h., en laugardagirm 1. okt. verður opið til kL 4 e. h. (Frá Sambandi smásöluverzlana) Urðu undir mjölpokum í GÆR kl. 16.20 vildi það slys til í vöruskemmu Eimskípafélagsins 1 við höfnina, að hlaði af mjölpok- um féll ofan á verkamenn sem 1 við vinnu sína voru í skemmunni. Slösuðust tveir þeirra all alvar- lega. Var sjúkraliðið þegar kvatt á vettvang. Mennirnir voru fluttir á Slysavarðstofuna og þar gert að meiðslum þeirra, sem ekki munu hafa verið lífshættuleg. Ágœtur fundur Sjálf- stœðismanna í Kópavogi í GÆRKVÖLDI héldu stuðn- ingsmenn D listans í Kópavogi útbreiðslufund í barnaskólanum. Fundurinn var mjög fjölsóttur. Á fundinum voru mættir Ólafur Thors forsætisráðherra og Magn- úr Jónsson framkvstj. Sjálfstæð- isflokksins. Flutti forsætisráð- herra snjalla hvatningarræðu og óskaði Sjálfstæðismönnum í Kópavogi góðs gengis í kosning- unum. Margir fleiri tóku til máls á fundinum, sem var hinn bezti. Á fundinum ríkti mikill ein- hugur og sóknarhugur og mátti greinilega merkja, að Sjálfstæð- ismenn eiga miklu og vaxandi fylgi að fagna í voginum. SinfóníuhljómSeikar í Þjóðleikhúsinu í kvöld Stjórnandi er dr. Urbancic, en einsöngvari Krisfinn Halisson SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Ríkisútvarpsins efnir til tónleika í Þjóðleikhúsinu í kvðld kl. 8,30. Stjórnandi verður dr. Victor Urbancic, en einsöngvari með hljómsveitinni er Kristinn Hallsson, og er það í fyrsta sinn, sem hann syngur einsöng með henni. Bílslys á Suður- landsbrautinni í GÆR var umferðaslys á Suður- landsbrautinni. Tveir bílar rákust saman og skemmdust þeir báðir. Lítill drengur sem var í öðrum þeirra hlaut nokkur meiðsl en ekki svo mikil að þau væru talin alvarlegs eðlis. Síðasli úfhlufunar- dagur skömmtun- arseðla í dag SÍÐASTI úthlutunardagur skömmtunarseðla er í Góðtempl- arahúsinu í dag. Búið er að út- hluta 22 þús. seðlum með mjólk- urskömmtunarseðlum. Þeir, sem eiga enn ósótta skömmtunarseðla sína, ættu að ná í þá í dag. Skrifstofan er opin frá kl. 10 f.h. til kl. 5 e.h. Pilnik teílir fjöi skák i kvöld Kristinn Hallsson syngur aríur úr Sköpuninni eftir Haydn, úr Messías eftir Handel, úr Don Giovanni eftir Mozart, úr Igor prins eftir Borodin og úr Simon Boccanegra eftir Verdi. Auk þess verða leikin hljóm- * eveitarverk, sinfonietta eftir BruiiiíKeflavík KEFLAVÍK, 29. september: — Um kl. 8 kom upp eldur í bif- reiðaverkstæði Sumarliða Gunn- arssonar við Vatnsnesveg. Verk- stæðið er allstórt og gert úr járn- vörðu timbri. Slökkviliðið kom brátt á vettvang og réði niður- lögum eldsins á tiltölulega stutt- um tíma, en þá höfðu orðið nokkrar skemmdir á verkstæð- inu. Voru fimm bilar á verk- stæðinu, þar af ein vörubifreið. j Urðu litlar skemmdir á bílun- um, en verkfæra geymsla verk- stæðisins skemmdist að mestu og varahlutir ýmsir og verkfæri, er þar voru inni. Má án efa þakka snarræði slökkviliðsins, að ekki tókst verr og skemmdirnar urðu ekki meiri. —Ingvar. Wirén og hljómleikunum lýkur með dönsum frá Polovee úr óper- unni Igor prins. Efnisskrá hljómleikanna er létt, aðgengileg og fjölbreytt, en þeir verða aðeins í þetta eina sinn._____________________ Kosningar í Indónesíu JAKARTA: — Milljónir kjós- enda í Indonesíu fóru til kjör- staðar í dag í fyrstu þjóðkosning- um, sem haldnar eru þar í landi. Var kosningaþátttakan meiri en búizt hafði verið við. SKAKMEISTARINN Hermann Pilnik tefldi fjölskák við 52 tafl- menn úr Reykjavík í gærkvöldi, og fór skákin fram í Skátaheim- ilinu. Þar að auki tefldi Ingi R. Jóhannesson við 20 skákmenn. í kvöld kl. 8 verður samskonar fjöltefli í Skátaheimilinu, og tefl- ir þá Pilnik við þá sem ekki kom- ust að í gærkvöldi. Adenauer scgir góðar fréttir. BONN: — Adenauer kallaði fréttamenn á sinn fund. Skýrði þeim frá því að 5000 þýzkum föngum í Rússlandi yrði gefið frelsi í næstu viku. SCar! Kvaran opnar sýningu í Lisfamannaskálamsm í kvöld Á sýningunni verða um 40 málverk 1 KVÖLD opnar Karl Kvaran, list málari, sýningu í Listamannaskál anum. Á sýningunni verða um 40 listaverk — mestmegnis olíumál- verk, sem listamaðurinn hefir unn ið á síðustu 2—3 árum. — Sýning Karls verður opin í 10—15 daga. Hann hélt einkasýningu hér fyr ir þrem árum, en hefir síðan sýnt á samsýningum í Rómaborg og Kaupmannahöfn. Hann stundaði nám við Listaháskólann í Kaup- mannahöfn í fjögur ár, og hefir síðán málað hér heima. Mynd þessa tók Ijósmyndari Mbl., Ól. K. M. í gær af bílnum, sem valt á veginum við Þverárrétt. Skrásetningarnúmer bifreiðarinnar er M 37. — Eins og af myndinni má sjá, er óskiljanlegt með öllu, hvernig nokkur maður gat sloppið lifandi úr þessu hörmulega slysi, enda sópaðist yfirbyggingin burt af bílnum. Orsakir dauðaslyss- ins enn á huldu Þeir sem meiddust allir á batavegi BLAÐIÐ átti í gærkvöldi tal við sýslumanninn í Borgarnesi, Jón Steingrímsson, en prófanir varðandi hið hörmulega dauðaslys, sem varð í Borgarfirðinum í fyrradag, heyra undir embætti hans. Tjáði sýslumaður blaðinu að réttarpróf hefða farið fram í gær, en málið væri þó enn stutt komið. Voru þeir farþeganna yfirheyrðir í gær, sem sluppu ómeiddir úr slysinu, svo og menn sem koma fyrstir á slysstaðinn. Orsakir eru ékunnar Farþegar bílsins munu hafa verið níu talsins. Komu tveir, sem ómeiddir sluppu fyrir réttinn í dag, ásamt þremur þeirra, sem að slysstaðnum komu. Fátt eitt hefir enn komið fram um orsakir slyssins. Ekkert er enn vitað um þær, hvort það var bilun í stýrisútbúnaði bílsins, eða eitthvað annað, sem þar réði um. Sýslumaður hefir ákveðið að láta fara fram athugun næstu daga á stýrisvél bíls- ins ef vera kynni að það gæti leitt eitthvað í ljós um orsak- irnar. Þá gat sýslumaður þess að það j hefði verið ranghermi í frétt Ríkisútvarpsins af slysinu, að mennirnir tveir sem fórust hefðu * staðið aftan á palli bílsins. Menn- irnir voru allir inni í húsi bíls- ins, en hann var það sem nefnt er hálfkassabíll. Þá var og rangt að um holu í veginum hafi verið að ræða þar sem slysið skeði. Enn hefir ekki verið unnt að prófa þá, sem meiddust í slys- inu, en vera má að þeir geti einhverjar frekari upplýsingar gefið um hvernig hinn hörmu- lega atburð bar að höndum. — Rannsókn málsins mun verða haldið áfram næstu daga. AHir á batavegi Þeir tveir, sem mest meiddust vorU fluttir í sjúkrahúsið á Akra nesi, þar eð enginn spítali er í Borgarnesi. En Guðmundur Thor oddsen fyrrv. próf. er nú settur yfirlæknir í sjúkrahúsi Akraness. Báðir þessir menn eru úr Borg arnesi; annar er aldraður maður, en hinn 13 ára piltur, sonur bif- reiðarstjórans. Heitir hann Gunn- ar Kristjánsson. Aldraði maður- inn fékk svöðusár á höfði, en Gunnar hefir verið þungt hald- inn undanfarið. Han ner nú kom- inn úr lífshættu *g er á bata- vegi. Þá lá bifreiðarstjórinn Kristján Gestsson í rúminu í gær, enda fékk hann þungt áfall. ★ SLYSIÐ varð á veginum frá Þverárrétt. Hann er mjög var< hugaverður, liggur eftir hárrl melbrún og í klif, þar sem veg- urinn er ekki breiðari en stófl bíll. Má því engu muna, að illa geti farið. í klifi þessu varð slys- ið, en ekki er vitað með hverj-i um hætti, eins og fyrr getur. — Bifreiðin valt niður 30 metra snarbratta grasbrekku og nam ekki staðar fyrr en á jafnsléttu mýrlendi. Umferð var þarna gífurleg og margt um manninn. Komu nokkrir menn þegar á slysstaðinn og veltu bifreiðinnl ofan af fólkinu, og segja sjón- arvottar, að óskiljanlegt sé, hvernig nokkru maður hafi kom- izt lífs af, eins og bíllinn var ú® lítandi. Var því mesta mildi, að þarna skyldi ekki verða meira slys en raun varð á. Mennirnir, sem dóu í þessu hörmulega bílslysi voru báðir um sjötugt. Þeir hétu Sveinn Skarphéðinsson og Einar Ólafs- son og voru báðir búsettir í Borg- arnesi. Kristján Gestsson bílstjóri hef- ur um langt skeið annast mjólkuB og áætlunarferðir um Borgar- fjörð og ætíð reynzt traustu® bílstjóri. Hann átti sjálfur bif- reiðina M-37. , ! ----T-------------- : JóhaiinKonráðs- ■ son syiig: Knii* - - U1 ÍSAFIRÐI, 29. sept.: — Nú um helgina heldur Jóhann Konráðs- son frá Akureyri söngskemmtan- ir hér á ísafirði og í nágrenninu, Söngskemmtanir þessar eru á vegum Tónlistarfélags ísafjarðar og verður fyrsta skemmtunin hér annað kvöld. Á laugardaginn syngur Jó- hann svo í félagsheimilinu í Bol- ungarvík, en á sunnudaginn á Suðureyri og Flateyri. Á söng- skránni verða eingöngu lög eftir íslenzk tónskáld. Undirleik á öllum söngskemmtununum ánn- ast Ragnar H. Ragnar. — Jón Páll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.