Morgunblaðið - 04.10.1955, Page 1

Morgunblaðið - 04.10.1955, Page 1
16 síður 42. árgangur 225. tbl. — Þriðjudagur 4. október 1955 Prentsmiðja Morgunblaðsins 10 þús, mílna kappakstur sýndi feifu Kaupmannahöfn, 3. okt. frá fréttaritara Mbl. FORYSTUGREIN danska blaðs- ins Information fjallar í dag um brottför Frakka af þingi S. Þ. er ákveðið var þar að ræða Algier- málið. t greininni er einnig vik- ið að því að ísland greiddí ekki atkvæði. Segir blaðið að íslenzki fulltrúinn hafi í Algier- Fyrir nokkru var haldin í Ástralíu ein erfiðasta keppni í bifreiða- akstri sem um geíur. Var það hringferð um álfuna 10 þús. mílur mestpart um eyðimerkur eða frumskóga. Mörg hundruð bifreiðar lögðu af stað, en fæstar komust alla leið. Myndin sýnir hvernig fyrir þeim fór. Mænusóttar verður vart í Reykjavík Ráðleggingar trá skrifstofu borgarlæknis MÆNUSÓTTAR hefur orðið vart hér í Reykjavík undanfarna daga og hafa átta sjúklingar með lamanir verið skráðir. Eiriti sjúklinganna, átta ára gamall drengur, hefur látizt. — Heilbrigðis- stjórnin hefur af þessum sökum ákveðið að barnaskólum skuli frestað til 15. þ.m., eða þar til er í ljós kemur, hvort um áframhald- andi faraldur verður að ræða. Blaðinu barst í gær eftirfarandi til- kynning frá skrifstofu borgarlæknis: málinu sýnt meiri festu en fulltrúar hinna Norð- urlandanna ísland er hið eina Norðurlandanna, segir Waðið, sem sýnt hefur þann siðíerðilega þroska, sem íbúar Norð- urlanda krefjast að ráða- menn þjóðanna sýni er um pólitísk mál er að ræða á alþjóðavettvangi.^ Afstaða íslands sýnir og að það er þvættingur (nonsens) að samstarfs- þjóðir Bandaríkianna — og einkum þær sem hafaj leyft Bandaríkjunum að hafa herstöð í landi sínu — geti ekki haft sína sjálfstæðu skoðun og staðið við hana. —Páll. FrjálsSyndi flokkurínn brezki fordæmir löndunarbannið FULLTRÚARÁÐ Frjálslynda flokksins í Bretlandi, sem er þriðji stærsti flokkur þarlendis samþykkti nýlega ályktun þar sem fordæmt er löndunarbann það, sem brezkir tegaraeigendur hafa lagt á íslendinga. Það var einn af forustumönnum flokksins Deryck Abel sem bar ályktunartillöguna fram og var hún samþykkt ein- róma. Líðan Eisenhowers eðlileg DENVER 3. okt. — Læknar Eis- enhowers forseta hafa nú til- kynnt, að þeir séu ánægðir með bata forsetans og telji að allt sé með felldu. nefndina til rannsóknar. 4) krefst þess að 10% verðtoll- urinn á innfluttum fiski, sem settur var á 1932, verði þegar afnuminn. í gærkvöldi hafði verið til- kynnt að forsetinn hefði kvartað um magnleysi og þreytu og verri líðan yfirleiitt en undanfarna Ályktunin er á þessa leið: Fulltrúaráð Frjálslynda flokksins 1) harmar mjög hinar fljótfærn- islegu og vanhugsuðu refsi- aðgerðir brezkra togaraeig- enda, er þeir lögðu bann við löndun íslenzks fisks í brezk- um höfnum, í þeim tilgangi að styrkja einokunaraðstöðu sína. 2) fordæmirlöndunarbannið sem óviðurkvæmilegt brot á forn- um lögum varðandi viðskip.'a- höft og skaðlegt bæði hags- munum neytenda og hús- mæðra og vinsamlegri sam- búð Bretlands og lýðveldisins íslands, sem er samherji í At- lantshafsbandalaginu. 3) hvetur forseta hinnar brezku viðskiptanefndar til að leggja þetta mál fyrir einokunar- KAIRÓ, 30. sept.: — Fulltrúar Vesturveldanna þriggja munu á morgun ræða við Gamel Abdel Nasser um samning Egyptalands við Tékkóslóvakíu um vopna- sölu. daga. Sú tilkynning hafði víðtæk áhrif í kauphöllinni í New York en þar varð almennt verðfall á hlutabréfum — einkum í iðn- fyrirtækjum. Er hin síðari til- kynning kom frá Denver, þá tóku hlutabréfin aftur að stíga í verði. — Reuter-NTB. 10 ára útivist — fá nú að koma heim Tveintur mönnum fulið uð uthugu ústæður um fóður og fénuð Blaðinu barst í gær eftirfar- -------------- andi tilkynning frá ríkis- stjórninni: ÍKISSTJÓRNIN hefir falið tveimur mönnum, þeim Árna G. Eylands, stjórnarráðsfulltrúa, og Páli Zophoníassvni, búnaðar- málastjóra, að athuga ástæður utn fóður og fénað á óþurrkasvæð inu og gera tillögur um á hveru hátt verði helzt hægt að greiða fyrir þeim bændum, er þess hafa mesta þörf, til þess að þeir þúrfi ekki að skerða bústofn sinn ó- hæfilega mikið í haust. Áríðandi er að oddvitar og sýslumenn á óþurrkasvæðinu hafi náið samband við þessa tvo menn og veiti þeim allar upplýsingar, er að gagni mega verða. Jafnframt vill ríkisstjórnin vekja athygli bænda og verzlana á því, hve afar nauðsynlegt er að þessir aðilar tryggi sér fóðurbæti í tæka tíð og láti slíkar aðgerðir eigi dragast úr hömlu. Birgðir af síldarmjöli og fiski- mjöli eru mjög takmarkaðar í landinu, og að sjálfsögðu verður að selja þessar vörur úr landi, ef ekki kemur fram eftirspurn eftir þeim innanlands. Faure í vanda PARÍS 3. okt. — Edgar Faure forsætisráðherra, sem þegar hef- ur nóg af vandamálum við að etja — ekki sízt eftir brottgöngu Frakka a ffundi S. Þ. — horfist nú í augu við enn eitt vandamál- ið. Nú er það hvernig hann á að öðlast traust þingsins, sem kem- ur saman í dag eftir su-marfrí. Ætla margir að hann og stjórn hans kunni að falla einkum út af aðgerðum í Afriku._ Hermdarverk CASABLANCA, 3. okt. — Fransk ar hersveitir hafa verið kallaðar út í skyndi í fjallahéruðum franska Marokkó. 100 manna hafa þar faliið fyrir uppreisnar- mönnum. Talið er fullvíst að upp reisnin hafi verið gerð að undir- lagi spanskra manna, sem leyn- ast þarna og æsa ^ólkið til mót- gerða við Frakka og espa það til hermdarverka og morða. Frakkar beita flugvélum og skriðdrekum við útrýmingu upp- , reisnarmannæ — Reuter-NTB Bonn, 3. október. — Frá Reuter-NTB. SOVETSTJÓRNIN hefur nú tilkynnt Vestur-Þýzkalandsstjórn að þeir 9626 þýzku stríðsfangar, sem sovétstjórnin hefur lofað að láta lausa, muni verða komnir til Þýzkalands í lok október- mánaðar. Fyrsti fangahópurinn kemur heim á sunnudaginn. ★ í FLÓTTAMANNABÆNUM | Oberlander, sá ráðherra þýzku stjórnarinnar sem fer með mál- efni flóttamála, tilkynnti í dag að við föngunum yrði tekið í flóttamannabænum Friedland á landamærum Austur- og Vestur- Þýzkalands. * 800 MENN Sagt er í Berlín, að fyrsti hópurinn muni telja um 800 menn. Til þess að reyna að fá upplýsingar um aðra fanga sem eftir eru eystra mun Rauði kross- inn eiga viðræður við fangana. ★ EF RÚSSAR VILJA !! Adenauer forsætisráðherra hefur marg lýst því yfir að það sé skoðun þýzku stjórn- arinnar að Þjóðverjar sem eftir séu í Rússlandi frá því í striðslok séu samtals nálega 100 þúsund. Það er því aðeins lítið brot sem Rússar munu framselja. Adenauer hefur þrotlaust barizt fyrir heim- sendingu þeirra — og loks nú er Rússum þóknast, þá koma þeir heim. Handlekinn grunaður um niósnir KAUPMANNAHÖFN, 3. okt. — Danska lögreglan handtók í dag danskan mann, sem grunaður er um njósnastarf- semi fyrir erlent ríki. Maðurinn er skrifstofumað- ur við flugvöllinn hjá Vær- löse. Við yfirheyrslu hina fyrstu kom í ljós að hann þekkti nokkur af hernaðar- leyndarmálum Atlantshafs- bandalagsins. Danska lögreglan hefur all- lengi haft hann grunaðan. Á laugardaginn lét lögreglan taka mynd af honum á götu í Höfn, þar sem hann gekk með og ræddi við hernaðarsérfræð- ing rússneska sendiráðsins í Höfn. Síðar var hann hand- tekinn. Undanfarna 10 daga hefir orð- ið vart mænusóttar í Reykjavík og hafa 8 sjúklingar með lamanir verið skráðir, flestir nú um helg- ina. Einn hefir látizt. Ekki verður vitað fyrirfram, hvort áframhald verður á faraldrinum en ætla rhá að fleiri sýkist, einkum með tillíti til þess, að langt er liðið síðan meiri háttar mænusóttarfaraldur hefir gengið. Heilbrigðisyfirvöldin hafa gert ráðstafanir til að tryggja sjúkl- ingum sjúkrahúsvist og viðeig- andi læknishjálp og hjúkrun, ef svo skyldi fara að faraldurinn. breiddist út. Þegar mænusótt er á ferðinr.i taka sýkingu miklu fleiri en verða þess varir eða lamast. Smit hætta stafar því ekki eingöngu af sjúklingum, heldur einnig af fjölmörgum öðrum, þótt þeir hafi engin einkenni sjúkdómsins. Þótt talið sé, að smit berist oft- ast frá manni til manns við beina snertingu, mun það einnig geta borizt með dauðum hlutum, svo sem mat og borðbúnaði, ef ekki er gætt fyllsta hreinlætis við mat- reiðslu og framreiðslu. Reynslan sýnir, að mikil lík- amsáreynsla, vökur og kæling veldur því stundum, að lamanir verða meiri en ella. Ástæða þykir til að beina til- almennings eftirfarandi ráðlegg- ingum: 1. Þvoið yður oft um hendur, einkum á undan máltíðum og er þér hafið notað salerni. 2. Gætið þess, að flugur óhreinki ekki matvæli, og þvoið mat, sem ekki verður soðinn, svo sem grænmeti og ávexti. 3. Forðist nána snertingu við fjölskyldumeðlimi mænusóttar- sjúklings fyrstu þrjár vikurn- ar eftir að hann veikist (handa banda, sameiginlégan borðbún að og handþurrkur). 4. Gætið varúðar við hvern þann sjúkdóm, sem sótthiti fylgir, og gerið lækni þegar viðvart. Meðan á mænusóttarfaraldri stendur er ráðlegt að láta alla slíka sjúklinga vera í rúminu í vikutíma og forðast áreynslu. 5. Forðist mikla líkamlega áreynslu, kulda og vosbúð, einkum ef þér kennið einhvers lasleika. 6. Rétt er að ferðast ekki að nauð synjalausu til eða frá stað, þar sem mænusóttarfaraldur geng- ur. 7. Börnum og unglingum er ráð- lagt að sækja ekki skemmtan- ir eða aðra mannfundi, þar með taldir opinberir sundstað- ir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.