Morgunblaðið - 07.11.1955, Blaðsíða 1
16 síður
U árgangn*
255. tbl. — Þriðjudagur 7. nóveinber 1955
PrentsnriSja Mergunblaðsin*
Hverju svara
Rússar?
A. GENF, 7. nóv.: — Utanríkis-
T ráðherrar Vesturveldanna
hafa lagt fram á Genfarfundin-
um tillögu þess efnis, að frjálsar
kosningar fari fram í öllu Þýzka-
lanði í september næsta ár. Að
öðru leyti eru tillögurnat að
mestu samhljóða fyrri tillögum
Vesturveldanna í Þýzkalandsmál-
um. — Búizt er við, að Molotw
svari því á morgun, hvort Rúss-
ar fallast á tillögur Vesturveld-
anna.
Mynd þessi var tekin af fulltrúum á 13. þingi Samb. ungra Sjálfstæðismanna á sunnudaginn. Sýnir hún vel hinn mikla fjölda Fundi utanríkisráðherranna
þingfulltrúa hvaðanæfa að af landinu sem þingið sótti. (Ljósm. Gunnar Rúnar). I verður haldið áfram á morgun.
i | — Reuter.
Wjöhaaemnu og ágætu
þingi S.U.S. iokiÖ
Ásgeir Pétarsson kjörimi íormaður
ÞRETTÁNDA Sambandsþingi ungra Sjálfstæðismanna lauk síð-
ari hluta dags á sunnudag, og tókst það með ágætum. Var
það fjölmennasta þing ungra Sjálfstæðismanna, sem ennþá hefir
verið haldið og ríkti mikill einhugur og sóknarvilji með öRum
þingfulltrúum. Fjölmargar samþykktir voru gerðar á þinginu og
verða þær birtar hér í blaðinu síðar. Magnús Jónsson lét nú af
formennsku SUS og var Ásgeir Pétursson lögfræðingur kjörinn
í hans stað.
LANGUR OG GÓÐUR
STARFSFERILL
Fundur hófst í Góðtemplara-
húsinu í Hafnarfirði kl. 2 e. h.
á sunnudaginn. Fundarstjóri var
séra Jónas Gíslason, Vík. “Var
þá gengið til stjórnarkosninga.
Formaður SUS hefir verið um
langt árabil Magnús Jónsson
alþm. og lét hann nú af störfum
fyrir aldurs sakir. Hefir hann
gegnt formannsstörfum af hinni
mestu prýði og hafa samtökin
vaxið og eflzt að miklum mun
undir stjórn hans. Eftirmaður
hans var kjörinn í einu hljóði
KAIRÓ, 7. nóv. — Tilkynnt var
í Kairó í dag, að Egyptar hafi
skotið á 4 orrustuflugvélar frá
ísrael. Segja Egyptar, að þær
hafi verið yfir egypzku landi.
varastjórn voru kjörnir: Mathias
Mathiesen, Hafnarfirði, Sveinn
Björnsson, Múlasýslu, Jón Þor-
gilsson, Matthías Johannessen,
Reykjavík og Bragi Hannesson,
Reykjavík.
Að kosningu lokinni þakkaði
Magnús Jónsson alþm. samstarfs-
mönnum sínum, gömlum og
nýjum, innan samtaka ungra
Sjálfstæðismanna og óskaði
samtökunum gæfu og gengis í
framtíðinni.
| Þá tók til máls Ásgeir Péturs-
son, hinn nýkjörni formaður og
þakkaði það traust sem sér hefði
verið sýnt. Hvatti hann unga j
Sjálfstæðismenn til mikilla
starfa í framtíðinni. Jónas G.
Rafnar alþm. þakkaði Magnúsi
Jónssyni prýðileg störf í þágu j
samtakanna, og Matthías Mathie- •
sen þakkaði þingfulltrúum kom-
una til Hafnarfjarðar fyrir hönd
Stefnis í Hafnarfirði.
I
ÞINGINU SLITIÐ
| Þá var tekið að ræða þau
nefndarálit, sem eftir voru frá
deginum áður og voru gerðar
samþykktir um ýmis mál, þar
á meðal atvinnu- og verzlunar-
mál.
i Umræðunum var lokið um kl.
18. Kvaddi Magnús Jónsson alþm.
sér þá hljóðs, þakkaði öllum
fulltrúum ágæta þingsetu, óskaði
þeim góðrar heimferðar og sagði
13. þingi ungra Sjálfstæðismanna
slitið.
Otea í Mi54síu
n
LUNDÚNUM, 7. nóv. — Afgan-
istan og Pakistan hafa eldað grátt
silfur undan farið og ríkir nú
ólga í báðum löndunum vegna
þess, að þau hafa slitið stjórn-
málasambandi hvort við annað.
Um helgina réðust um 3000 her-
menn frá Afganistan inn fyrir
landamæri Pakistans og hafa
slegið þar upp herbúðum. Er nú
óttazt, að nú slái í brýnu þarna
á landamærunum.
Rökin tyrir hœkkun
gjaldeyris voru til muna
verri hagur útvegsins
Ríkissl.iórnin var andvíg þeirri hækkun
eins og öðrum hækkunum, sem ýta
undir dýrtíðarskrúfu.
R'
Var hann sérfræð-
ingur Rússai
LUNDÚNUM — Brezka stór-
blaðið Daily Mail segir frá því,
að MacLean hafi verið aðalsér-
Úr ræðu Ólafs Thors á Alþingi í gær.
► ÍKISSTJÓRNIN var mótfallin hækkun bátagjaldeyrisálags-
ins, eins og hún er almennt mótfallin hvers konar hækkun-
um á kaupgjaldi og verðlagi, sem til einskis annars leiða en
dýrtíðarskrúfu. En þess ber að geta, að ríkisstjómin hafði
ekki aðstöðu til þess að hindra þessa hækkun, vegna
fyrri fyrirlieita til útvegsmanna, allt frá því bátagjaldeyris-
kerfið var tekið upp, um það að þeir mættu hækka álagið, ef
hagur útvegsins versnaði til muna.
E Útvegsmenn færðu fram ýmis rök fyrir máistað sínum og
þá fyrst og fremst, að vegna kaupgjaldshækkana á þessu ári
hefði allur rekstur þeirra orðið dýrari, heldur en gert var
ráð fyrir um áramótin, þegar rætt var um álagið á fram-
leiðslu þessa árs.
0 Þannig var meginefnið í ræðu Ólafs Thors forsætisráðherra
á þingi í gær, er rætt var um hækkun bátagjaldeyrisins. Voru
umræðurnar utan dagskrár.
Þrír þingmenn stjórnarand- HVERS KONAR HÆKKANIR
fræðingur Rússa, þegar Genfar- stöðuflokkánna, þeir Einar 01- ÓHEPPILEGAR
ráðstefnan var í undirbúningi. geirsson, Hannibal Valdimarsson
Eins og kunnugt er, flúði Mac og Gils Guðmundsson, báru fram
Lean til Rússlands ásamt Guy fyrirspurnir um það á hverju
Burgesse. Þeir vo<ru báðir í hækkun álagsins væri byggð.
brezku utanríkisþjónustunni, en Lýsti forseti Alþýðusambandsins
flúðu fyrir skömmu áður en upp því m. a. yfir að þetta gæti haft
komst um njósnir þeirra í þágu alvarlegar afleiðingar í för með
Rússa. i sér.
Ásgeir Pétursson
Asgeir Pétursson lögfræðingur.
Hann hefir lengi starfað ötullega
að málefnum ungra Sjálfstæðis-
manna og var hann m. a. for-
maður Heimdallar um skeið.
STJÓRNARKJÖR
Þá var kjörin stjórn og vara-
stjórn SUS næstu tvö árin. —
Kosningu hlutu í aðalstjórn
Friðjón Þórðarson, Búðardal,
Gunnar G. Schram, Akureyri,
Jón ísberg, Blönduósi, Sverrir
Hermannsson, ísafirði, Þór Vil-
hjálmsson, Reykjavík og Pétur
Sæmundsen, Reykjavík. — í
Nýjar viðræður um
landhelgismálið
FISHING NEWS skýrir frá
því, að þrátt fyrir hina hvítu
bók íslenzku ríkisstjórnarinn-
ar um landhelgismálið, sé of
snemmt, eins og blaðið kemst
að orði, að segja, að samninga-
umleitanir hafi farið út um
þúfur, því að nú sé verið að
undirbúa frekari viðræður
milli íslendinga og Breta. Er
gert ráð fyrir, að þær fari
fram í þessum eða næsta mán-
uði.
Nú hafa 12 þúsund manns séð Kjarvalssýninguna. Á sunnudaginn
skoðuðu hana 2200 manns. Sýningin, sem er í Þjóðminjasaíninu,
verður ekki nema þessa viku og fara því að verða síðustu forvöð
fyrir fólk að sjá hana. Hún er opin frá kl. 1—10 síðd. og er
aðgangur ókeypis.
Forsætisráðherra, Ólafur
Thors, vísaði í svari sínu að
nokkru til greinargerðar
þeirrar, er hann gaf í samtali
við Morgunblaðið á sunnudag-
inn, en þar skýrði hann frá því
að ríkisstjórnin hefði verið
andvíg hækkuninni, en hefði
talið rétt að málið biði nánari
rannsóknar. Ríkisstjórnin var
andvíg þessari hækkun eins og
hún hefur almennt verið and-
víg hækkunum á kaupgjaldi
og verðlagi, sem leiða aðeins
til verðbólgu, en þess er
skemmzt að minnast að stór
hagsmunasamtök hlíttu ekki
viðvörunarorðum ríkisstjórn-
arinnar á s.l. vori.
HAGUR UTVEGSINS
Þrátt fyrir það hafði ríkisstjórn.
in ekki aðstöðu til að hindra
þessa hækkun. f fyrsta lagi vegna
fyrirheita allt frá því bátagjald-
eyriskerfið var tekið upp, um það
að álagið mætti hækka, ef hagur
útvegsins versnaði að mun. Og
fyrir því að svo væri báru út-
vegsmenn fram rök, sem óneitan-
lega voru þung á metunum.
IIELZTU RÖK
ÚTVEGSMANNA
Rök útvegsmanna voru m. a.
Frh. á bls. 12.