Morgunblaðið - 20.11.1955, Side 7
Sunnudagur 20. nóv. 1955
MORGUNBLAÐIÐ
7
andi Emirapn í
i 71
SfgríSur
sjölug
Veglegf samsæfi í GT-húsinu í því filefnl í kvöid
IDAG fagna tvær stúkur, Verðandi nr. 9 og Einingin nr. 14, í
Reykjavík, 70 ára afmælum sínum. Verður í því tilefni sam-
ciginlegt samsæti í Góðtemplarahúsinu í Reykjavík, þar sem mætt-
ir verða auk stúkumeðlima fulltrúar rikis og bæjar. Þá verður
dagskrá útvarpsins síðdegis á sunnudaginn einnig helguð afmæli
þessu og einnig bætist þar við stúkan Morgunstjarnan nr. 11 í
Hafnarfirði, sem átti 70 ára aímæli s. 1. sumar. Ræddu fréttamenn
í fyrradag við þá Þorstein J. Sigurðsson, fyrrv. æðsta templar,
fyrir hönd Verðandi og Freymóð Jóhannesson, æðsta templar,
fyrir hönd Einingarinnar, í þessu tilefni.
STÚKAN VERÐANDI I
STOFNUÐ 1885
Skýrði Þorsteinn J. Sigurðsson
svo frá, að 3. júlí 1885 sé stofn- i
dagur Verðandi. Var aðalhvata-
maður þeirrar stofnunar og
stofnandi, Björn Pálsson. Einn af
fyrstu félögum stúkunnar var
Björn Jónsson, ráðherra og rit-
stjóri, og vann hann ósleitilega
fyrir málefni hennar. Sömuleiðis
Jón Ólafsscn, alþingismaður, og
nokkru síðar en ekki sízt Jakob
Möller, sem nú er nýlátinn.
Sameiginlega hafa stúkurnar!
í Reykjavík beitt sér fyrir ýmis
konar velferðarmálum auk áfeng t
ismála, .svo sem tryggingarmál-
um, sjúkrasamlagsmálum, leik-
listarmálum, íþróttamálum og
fleira mætti telja. Höfuðstefna
reglunnar er að vara fólk við
áfengisnautn, og hefur hún gert
að kjörorði sínu: „Drekkið aldrei
fyrsta staupið“.
Stjórn Verðandi skipa þessir
menn; Gunnar Jónsson æðsti
templar, Runólfur Runólfsson
ritari, Þóranna R. Símonardóttir
varatemplar, Sigriður Sigurðar-
dóttir fjármálaritari, Jóhannes
Jóhannesson gjaldkeri, og Þor-
steinn J. Sigurðsson fyrrv. æðsti
templar. Umboðsmaður stór-
templars er Róbert Þorbjörnsson.
EININGIN NR. 14
Freymóður Jóhánnesson skýrði
frá stofnun Einingarinnar, en hún
var stofnuð 17. nóv. 1885, af 14
félögum stúkunnar Framtíðin.
Var aðalstofnandi hennar Jón
Olafsson, alþingismaður og rit-
stjóri. Voru fyrstu fundir stúk-
unnar haldnir í húsi Þorláks
Johnsonar í Lækjargötu 4
Það var Einingin sem var frum
kvöðull að byggingu Góðtempl-
arahússins í Reykjavík og voru
byggingaframkvæmdir hafnar
veturinn 1887, eftir að stúkunni
hafði verið úthlutað lóð fyrir hús
ið á svellinu á Tjörninni. Gerð-
ust félagar stúkunnar sjálfboða-
liðar við bygginguna og var á
þann hátt fyllt upp tjörnin þar
sem húsið nú stendur. Um vorið
gekk stúkan Verðandi í lið með
Einingunni og var þaðcn af sam-
eiginlegt átak beggja stúknanna
að koma húsinu upp, sem var
vígt 2. cktóber 1887. Var Góð-
templarahúsið þá veglegasta og
stærsta samkomuhús landsins.
Um þessar mundir var mikill
drykkjuskapur í Reykjavík, og
víða selt áfengi í verzlunum. Jón
Ólafsson, sem þá var þingmaður,
flutti um það lagafrumvarp á
Alþingi sem samþykkt varð, að
banna að unglingum væri selt
áfengi á samkomustöðum og að
vínveitingaleyfi væri ekki, nema
með samþykki kjósenda.
Freymóður Jóhannesson kvaðst
álíta, að eitt af þýðingármesta
starfi stúknanna væri það, að
vera öðrum félögum á landinu til
fyrirmyndar um starfshætti. —-
Hefði það og tekizt vel og flest
félög hefðu tileinkað sér starfs-
hætti stúknanna og jafnvel á
sjálfu Alþingi gætti áhrifa frá
þeim.
Framkvæmdanefnd Einingar-
innar sltipa þessir menn: Æðsti
templar Frevmóður Jóhannesson,
varatemplar Ingibjörg ísakr-dótt-
ir, fjármálaritari Örnólfúr Valdi-
marsson, fyrrverandi æðsti templ
ar Einar Valdimarsson, umboðs-
maður stórtemplara í stúkunni
er Marías Ólafsson.
- A hl» 13
að meta góðar !>æ
Ævisaga Schweitzers, ,,Kristín Lafransdótt-
ir“, Ævintýri H. C. Andersens. Ævisaga
Geirs Sigurðssonar skipstjóra, ferðabók
til Ástralíu o. fl.
GERIÐ PENNA YÐAR
ENDINGARRFTRI
ELNA BLLKID
SEM INNIHELDUR
solv-x
1,|J, IÖ OZ. K1
'■ Igj tyr |
■ðsmáður: Sig. H k>>
<etur evði-
iwnna Það
'turlegt að
Qumk. Að
inniheldur
■t> hreinsar
’arnar tær-
"■•nnan
Kr. 28,85.
ifcV Rvlk
6016-1
SJOTUG er á morgun Sigríður
Snæland, Haðarstíg 2 hér í bæ
Hún er fædd að Hafsteinsstöðum
í Skagafirði, dóttir Jóns Jóns-
sonar hreppstjóra og Steinunnar
Árnadóttur konu hans, og þar ólst
hún upp. Sigríður var þegar á
barnsaldri mjög tópmikil, og æv-
intýraþrá og eirðarleysi æskunn-
ar og aldamótaáranna hlaut hún
í ríkum mæli. Hugur hennar stóð
| snemma til annarra hluta en
þeirra, sem gerðust í fábreyttu
sveitalífi. Hún lagði leið sína í
skóla og tók gagnfræða- og kenn-
arapróf. Síðar var hún einn vetur
í hússtjórnardeild Kvennaskól-
ans. Um tveggja ára skeið var
hún barnakennari í Skagafirði.
Ekki kaus hún þó að gera
kenrtslu sér að ævistarfi, heldur
: sigldi hún utan til náms í nudd-
lækningum og lauk þar prófi í
þeirri grein. Að náminu loknu
settist hún að í Hafnarfirði, þar
sem hún hafði lækningastofu í
nærfellt 20 ár.
J Sigríður giftist árið 1924 manni
j sinum Pétri Snæland, sem hafði
■ misst fyrri konu sína, og gekk
hún börnum hans í móður stað.
Þau ár, sem Sigríður átti heima
í Hafnarfirði hafði hún ærið að
starfa. Sjúklingar hennar voru
að jafnaði margir og vinnudag-
urinn langur. En jafnframt því
að annast sjúklinga síná var hún
sköruleg húsfreyja ú stóru og
gestkvæmu heimili. Hún kunni
vel að sinna mörgu án þess að
vanrækia neitt.
Árið 1940 íluttust þau Pétur
og Sigríður norður í Skagafjörð
og áttu þar heima næstu 5 ár,
en vendu svo suður aftur og
settust að í Reykjavík. Tók þá
Sigríður aftur upp sín fyrri störf
og hefur gegnt þeim síðan.
Segja má, að Sigríður hafi að
staðaldri stundað nuddlækning-
ar síðan hún byrjaði þær i Hafn-
arfirði fyrir 34 árum. Mörgum
mundi fmnast það ærið dagsverk,
en ekki er það á Sigríði að sjá
eða heyra að hún sé hvíldar þurfi
enn um sinn.
Sigríður er ekki íhlutunarsöm
um máléfni annarra, samt kem-
ur henni fleira yið en almennt
gerist. Hún á ekki til það tóm-
læti um annarra hag og líf, sem
nokkuð hefur einkennt yngri
kynslóð.'r, og vonbrigði aldarinn-
ar hefur hún staðið betur af sér
en flestir jafnaldrar hennar, án
þess að brynja sig með tómlæti
og afskiptaleysi. Sigriöur er að
eðlisfari rómantisk og sveim-
hugul og stundum kann að sýn-
ast sem viðhorf hennar séu
næsta óraunhæf. En þessir eðlis-
þættir hennar hafa þó kannski
framar öðrum gert hana að þeim
bjargfasta veruleika sem hún er
öllum þeim sem henni hafa
kynnst.
Heimili Sigríðar og Péturs hef-
ur orðið atnvarf fleiri einstakl-
inga en almennt gerist. Þó að
beim hiónum hafi ekki orðið
f virna auðið var hús þeirra jafn-
>n fullt af börnum og unglingum,
’estum úr Skagafirði, sem stund
uðu nám í Flonsborgavskóla, og
nutu handleiðslu þeirra hjóna
sem yæru þau í foreldrahúsum.
Árni Hafstað.
— ÞVÍ HEFIR mjög verið haldið
fram, að alltof mikið sé gefið hér
út af ómerkilegu lesefni, en
slík rit fæðast aðeins og eiga sér
ekkert líf, sagði Arnbjörn Krist-
insson, framkvæmdastjóri Bóka-
útgáfunnar Setbergs, er hann
ræddi við blaðamenn í gær. Ég er
cindregið þeirrar skoðunar, sagði
Arnbjörn, að íslendingar kunni
enn að meta góðar bækur.
Fimm bækur koma um bessar
mundir út hjá Setbergi og von er
á þremur öðrum á næstunni. Bæk
Sigrid Undset
H. C. Andersen
urnar, sem út eru komnar eru:
Ævisaga Alberts Schv/eitze>’s;
eftir prófessor Sigurbjörn Fmars
son, 1. bindi af „Kristínu Lafrans-
dóttur" eftir Sigrid Undset, „Hætt
an heillar", eftir Dód 0’“staorne
ig tvær ævintýrabækur eít.iv H.
C. Andersen.
ÆVISAGA SCHWEITZFRS
Eins og áður hefir verið skýrt
frá hér i blaðinu hefir próiessor
Sigurbjörn Einarsson ritaö ævi-
sögu þessa fjölhæfa snillings og
mannvinar. Var sá háttur hafður
á í samráði við Schweitzer sjálf-
an og einkaritara hans, en sjálfs-
ævisaga hans ekki þýdd. Hafði
prófessor Sigurbjörn aftur á móti
greiðan aðgang að öllum ritum
Schweitzers og ýmsum ritum'um
hann. Bókin er yfir 300 bls. að
stærð prýdd fjölda mynda.
KRISTÍN LAFRANSDÓTTIR
Skáldsaga Sigrid Undsot,
„Krisiin Lafransdóttir“, er eitt af
höfuðverkum í norrænni skáid-
sagnagerð. Kom bókin fy-rst út
í Noregi 1920 og vakti þá gífur-
lega athygli. Varð þetta skáld-
verk fyrst og fremst til þess að
ITndset hlaut Nobelsverðlaunin
1928. Það er fyrsta bindíð, „Krans
inn“, sem nú er komið út í þýö-
ingu Helga Hjörvars og Arrihcið-
ar Sigurðardóttur. Hjörvar flutti
söguna sem kunnugt er í útvarp-
ið fvrir allmörgum árum, en end-
ursagði þá suma kaflana og
sieppti öðrum. Hefir Arnheiður
fyllt upp í bær eyður, og kveður
Helgi það verk mjög vel af hendi
leyst. — Ég efast um að á nokkr-
um stað í verkum Undset sé að
finna eins mikla ritsnilld og í
síðasta hluta fyrsta bindis, sagði
Helgi Hjörvar við blaðamenn.
ÆVINTÝRI H. C. ANDERSEN
Þær tvær bækur með ævintýr-
um H. C. Andersen, sem Set.berg
gefur nú út, eru upphaf á 150 ára
afmælisútgáfu. Bækurnar eru
prentaðar í Óðinsvéum, fæðing-
arbæ Andersens, á alls 20 tungu-
málum. íslenzka þýðingin er
Steingríms Thorsteinssonar.
Ævintýrin eru prýdd hinum
skemmtilegustu teikningum eftir
Gustav Hjörtlund. í þessum
tveimur bókum eru sögurnar:
Næturgalinn, Litli Kláus og stóri
Kláus, Svínahirðirinn og Eldfær-
in. ,
SJÓFERÐABÓK
Sjóferðabækur eru vinsælar
hér, eða svo revndist að minnsta
kosti „Skipstjórinn k Girl Pat“
eftir Dod Orsborne. Nú er komin
út önnur bók eftir Orsborne, er
nefnist „Hættan heillar“. Segir
þar enn frá glæfraferðum þessa
sérstæða ævintýramanns. Her-
seinn Pálsson hefir íslenzkað bók
ina, og er hún prýdd fjölda
mynda.
ÆVISAGA GF.IRS SIGURÐS-
SONAR SKIPSTJÓRA O. FL.
Þær þrjár bækur, sem koma út
á næstunni hjá Setbergi, eru:
Ævisaga Geirs Sigurðssonar,
skipstjóra, sem Thorolf Smith
blaðamaður hefir skrásett. Ferða
bók eftir Vilberg Júlíusson, kenn-
ara, er nefnist „Austur til Astra-
líu“ og þýdd skáldsaga eftir
Slaughter, er nefnist „Læknir
vanda vafinn“.
Bókaútgáfan Setberg hefir
ekki áður gefið út jafnmargar
bækur og nxi — og sést af því,
sem hér að frnman er sagt, að
þær eru ekki að lakari endanum.
fullorðið fólk og gera sér þess
iulla grein hvern þétt þessi
heiðurskona hefur átt í þroska ;
þeirra sem þeir fá henni seint
fullþakkað.
Það eru engar ýkjur þó sagt
sé, að Sigriður hafi kosið mörg-
um örlög, og ég held að óhætt
sé að fullyrða að hún hafi ver-
ið góð örlagadís.
Á sjötugsafmæli sínu dvelur
Sigríður heima á æskustöðvun-
um, hjá Jóni bróður sínum á
Hafsteinsstöðum í Skagafirði.
Kaffi
Mýbrenni jg malað, i ioft
öéttum nellophanumbóðunr
Verzl. Halla l*órarin.\
Vi»stur8 1 y Bverfisi’
. Ht./.l t*i 4lK.LV* -
«<u« i vm izuv