Morgunblaðið - 05.01.1956, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 05.01.1956, Qupperneq 5
Fimmtudagur 5. janúar 1956 MORGUNBLAÐIÐ I Hannibol Signrðsson málorameístarí Minningarorð Fæddur 31. júlí 1887. Dáinn 28. desember 1955 í DAG verður borinn til hinnstu ihvílu hér í Reykjavík einn af ágætum borgurum þessa bæar, Hannibal Sigurðsson málara- meistari, Eiríksgötu 8. Hann var fæddur að Garðsvík S Svalbarðsstrandarhreppi og voru foreldrar hans Sigurður Jónsson og Anna Jóhanna Gríms- dóttir, og höfðu þau gengið i Jhjónaband 1877. Foreldrar Sig- urðar voru Jón Ásmundsson Ibóndi á Syðri Tungu á Tjörnesi (d. 29. júní 1857) og kona hans Ása Jónsdóttir (d. 5. júní 1868) En foreldrar Önnu voru Grímur Jóhannesson bóndi í Garðsvík, ættaður úr Fjörðum (d. 9 júlí 1873) ok kona hans Sæunn Jóns- dóttir bónda á Látrum Jónsson- ar; (hún var fædd 1827 og dó 26. marz 1920). Þau Sigurður og Anna bjuggu fyrst í Garðsvík, en fluttust seinna að Sigluvík í sömu sveit. Þeim varð sex barna auðið. Tvö þeirra dóu þegar í æsku, Ásgrím- ur og Ásrún, en upp komust Pálína, Grímur Jóhannes, Hannibal og Ásrún yngri. Eru þau ]iú tvö á lífi Grímur og Ásrún og bæði búsett í Reykja- vík. Skömmu eftir að þau hjónin fluttust til Sigluvíkur missti Sigurður Önnu konu sína frá íjórum börnum, því elzta á 14. ári. Hún andaðist 1. september 1893. Bjó Sigurður síðan enn rúmt ár í Sigluvík með ráðs- konu. Höfðu þá að undanförnu verið harðindaár nyrðra og hélt Siguröur að stórum betra mundi að vera á Suðurlandi, því að þar væri árgæzka meiri. Varð það því úr að þeir tóku sig saman hann og Gunnlaugur Friðgeirs- Kon bóndi í Fjósatungu í Fnjóska- dal og afréðu að flytjast búferl- um suður í Borgarfjörð. Keyptu þeir af Thor Jensen jarðirnar Ánabrekku og Einarsnes og flutt- ust suður vorið 1895, Gunnlaug- ur að Einarsnesi og Sigurður að Ánabrekku. En Sigurður naut þess lítt að vera kominn í betra tiérað, því að hann andaðist árið 1899. Þá var Hannibal 12 ára að aldri. Fór hann þá að Einarsnesi til Gunnlaugs bónda og dvaldist þar fram til tvítugsaldurs. Tókst þá órofa vinátta með honum og Bonum Gunnlaugs, þeim Birni lækni og Geir bónda sem oftast er kenndur við Eskihbð í Reykja- vík. Tvítugur að aldri fór Hannibal ftil Ísí' ijarðar að nema þar roálara iðn og mun það meðfram hafa verið vegna þess, að Grímur bróðir hans var þá búsettur þar. Lauk Hannibal þar iðnnámi og Btundaði síðan málaraiðn þar og I ýmsum stöðum. Á ísafirði kynntist hann Guð- rúnu Jónasdóttur frá Björgum í Möðiuvaliasókn við Eyafjörð, föðu) systur Þorsteins Hannesson- ar óperusöngvara. Þau Guðrún og Eannibal felldu hugi saman Og giftust 2. marz 1913. Guðrún var in gjörfulegasta kona og mesti skörungur, gáfuð vel og réttsýn í hvívetna. Árið 1920 sigldu þau hjónin til Danmerkur og dvöldust þar eitt ár. Varði Hannibal þeim tíma til þess að fullkomna sig í iðn sinni, því að þá voru Danir enn íslendingum fremri á því sviði. Þegar heim til íslands kom aft- tir, settust þau að í Reykjavík og áttu hér heimili siðan. Voru þau samhend og samhuga um flest og fell aldrei neinn skuggi á sambúð þeirra. Húsbóndinn Btundaði atvinnu sína af kost- gæfni og trúmennsku og ávann pér fljótt hylli allra þeirra er hann starfaði fyrir, en húsfreyj- an bjó þeim gott og hlýlegt heimili. Þangað var gott að koma. Hjónin voru glöð og reif við gesíi sína, allt var þar með snyrtibrag og andrúmsloftið var þrungið af samúð og hlýu hug- arfari. Árið 1951 varð Hannibal fyrir því þunga áfalli að missa heils- una og varð upp frá þvíJítt fær til vinnu, en honum hafði starfið altaf verið lif og lífið starf. Hafði hann ekki verið hvellisjúkur um ævina og eru það mikil viðbrigði að vera alit í einu sviftur fullu starfsþreki. Ofan á þetta bættist svo sú mikla sorg, að hann missti konu sína, inn trygga lífsföru- naut. Guðrún andaðist 6. febrúar 1952. Varð Hannibal það þung- bær söknuður, þótt hann talaði þar fátt um. Og nú varð lífið tómlegra en áður þar sem hann var orðinn einn, því að þeim hjónunum hafði ekki orðið barna auðið. En ást hans og hlýhugur beindist þá að ungbömunum þar í húsinu. Urðu þau sem sólar- geislar í rökkvaðri ævi hans, og hann varð þeim eins og ástkær afi. Læknar höfðu ráðlagt Hannibal að reyna ekkert á sig, enda var hann oft sárþjáður. En hvenær sem af bráði gat hann ekki setið auðum höndum, og má vera að hann hafi ekki hlíft sér svo sem skyldi. Um seinustu jól virtist þó heilsan sæmileg. En aðfara- nótt ins 28. desember yfirþyrmdi sjúkdómurinn hann allt í einu (það var blóðstífla) og var hann látinn áður en nýr dagur risi úr djúpi nætur. Hannibal var maður í meðal- lagi hár, en þrekinn og svaraði sér vel, • dökkur á hár og stað- festulegur, enda enginn veifi- skati. Hann barst ekki á og hafði sig hvergi í frammi opinberlega. Hann var seintekinn og valdi sér vini eftir reynslu. Og sá sem einu sinni hafði öðlast vináttu hans mátti eiga hana vísa upp frá því. Var hann trygglyndur og vin- fastur og varð aldrei fyrri að flaumslitum. Hann var trúaður og því vandur að virðingu sinni og dagfari öliu, greindur vel, hjálpsamur og raungóður. Var hann búinn flestum þeim mann- kostum, er góðan Ísíending mega prýða, og er því sannarlega skarð fyrir skildi, er slikir menn falla í valinn. Á. Ó. •JJa Utsala: BÓKABÚÐ KRON Bankastræti 2. Sími 5225. ZETA ferða-ritvélin hefir dálkastilli og sjálfvirka setningu á spássíu. 44 ryklar. Er jafnsterk og vanaleg skrifstofu-ritvél, en vegur aðeíns 6 kg. — Tilvalin jólagjöf. Einka-umboð: MARS TRADtNG COMPANY Bankastræti 2. Sími 5325. Alls konar vélar til að nota við grjótnám, svo sem: griótnniln- ingsvélar, flokkimarvélar og margar fleiri gerðir Útflytjendur: NIKEX Hungnrian Trading Company for Products of thc Heavy Industry Budapest 4, POB 103, Hungary — Cables: NníEXPORT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.