Morgunblaðið - 02.02.1956, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐl#
Vegir að komasi
í eð?!!®gl hcrf
AKUREYRI, 1. febr.: — Snjó
hefir tekið mjög upp hér í hlák-
unní, sem verið hefir undanfarna
daga. Þó er enn ekki fært til
Dalvíkur nema kraftmiklum bíl-
um. Búið er að hreinsa veginn
til Grenivíkur, og inn Eyjafjörð
beggja vegna er fært öllum bíl-
um. Þá er færið sæmilegt um
Öxnadal; að vísu sterkum bílum.
Mjólkurflutningar eru komnir
í eðlilegt horf hér. Líklegt er nú,
að fært sé yfir Öxnadalsheiði,
a. m. k. öllum tveggja drifa bíl-
um.
- Sfokkhóbmbréf
Frh. at bls. 9.
ur, sem nefndin hefur safnað um
mótstöðukraft hinna ýmsu ald-
ursflokka gegn áfengi. Af 1000
manns, sem teknir voru fyrir
ölvun í nóvember, var meðal-
aldur 42 ár. Það er nokkuð hærri
tala en áður, en meðalaldur síð-
ustu ára, var 39 ár og fjórir mán-
uðir. Sýnir þessi tala glöggt, að
mótstöðukraftur eldri kynslóðar-
innar virðist minni en hinnar
yngri. Átakanlegt dæmi um þetta
er blaðafrásögn, sem birtist fyrir
skömmu. Þar segir frá því, að á
elliheimili nokkru hér í borg
sagði meiri hluti starfsfólksins
upp starfi sínu, vegna drykkju-
skapar vistmanna. Fyrirkomulag
var þannig, að á karladeild heim-
ilisins var ekki sérstakur vakt-
maður, heldur skiptust gömlu
mennirnir á um að taka þetta að
sér. En eftir að vínið var gefið
frjálst, fóru karlarnir að drekka
ósleitilega. Sá, sem var á vakt
það og það kvöldið, réði ekki við
neitt, ef hann var þá ekki með-
sekur. Gerðust öldungarnir há-
vaðasamir og miklir fyrir sér,
vöktu forstöðukonuna um miðj-
ar nætur og öðru vistfólki varð
ekki svefnsamt. Vegna stöðugrar
ölvunar, þurftu þeir einnig meiri
umhirðu en endranær, og þvi sá
starfsfólkið þann kost vænstan
að segja upp, eins og fyrr getur.
SAGT UPP, SÉ MÆTT Á
VINNUSTAÐ
UNDIR ÁHRIPUM ÁFENGIS
Ennfremur lætur Hellgren þess
getið, að hjálparbeiðnir til nefnd-
arinnar hafi aukizt um 80% eftir
1. október. Hin frjálsa vínsala
veldur því, að nú er erfiðara en
áður að koma drykkjumönnum
á réttan kjöl, en þó tekst nefnd-
inni það í flestum tilfellum. Um
100 drykkjumenn hafa fimm-
faldað afbrotaafköst sín, en að
öðru leyti gerum við ráð fyrir,
að ástandið batni, þegar nýja-
brumið er farið af, segir Hell-
gren að lokum.
Atvinnurekendur hafa nýlega
birt skýrslur um ástandið á vinnu
stöðum eftir að hin nýju lög öðl-
uðust gildi. Er það yfirleitt gott,
en sums staðar hefur orðið að
grípa til þess ráðs að segja mönn-
um upp vinnu svo sem vikutíma,
ef þeir hafa mætt slælega. Þá
hefur líka fljótt breytzt til batn-
aðar, því hér er kaup ekki hærra
en svo, að mönnum kemur betur
að vinna flesta daga. Annars
gildtr það hér í öllum stöðum,
háum sem lágum, að vanræki
menn störf vegna drykkjuskapar
eða mæti á vinnustað undir áhrif-
jutn „áfengis, er þeim sagt upp
fyrirvaralaust. Vafalaust á það
sirrri ríka þátt í því, að ástandið
eb ekki verra en raun ber vitni.
SÍokkhólmi, 28. jan. 1956.
,Jón Hnefill Aðalsteinsson.
- ðr daglðiis lífbw
Frarnh. af bls. 8
fram Öðru sinni, kvað hann ætíð
hafa ^varað því til — að það
ivær.i enn ekki ákveðið. í Banda- I
j'íkjuraim — og reyndar víðar — '
i?r beðið eftir því með mikilli
eftirvæntingu — hver ákvörðun
dr. Whítés verður. Menn varpa
þeirri spurningu fram: Verður
það Eisenhower? En doktorinn
dregur þá á svarinu.
Fimmtudagur 2. febrúar ’56
! Lögregniélag Beykjavíkiu
| iitiiinisl 20 óra aímælis síns
HINN 24. jan. s.l. var árshátíð
Lögreglufélags Reykjavíkur
haldin að Hótel Borg og jafn-
framt 20 ára afmæli félagsins, en
það var stofnað hinn 16. desem-
ber 1935.
Tiigangur félagsins er að efle
samvinnu meðal lögreglumanna
í Reykjavík og beita sér fyrir
öllum velferðarmálum þeirra,
sérstaklega launakjörum, trygg-
ingum, menntun, vinnutilhögun
og vinnuvernd.
Form. félagsins, Erlingur Páls-
' son, yfirlögregluþjónn, bauð gesti
velkomna og setti samkvæmið
og tilnefndi veizlustjóra Ingólf
Þorsteipsson, yfirvarðstjóra.
j Því næst tók form. til máls og
ræddi um helztu atriði í 20 ára
starfsemi félagsins.
Þá héldu ræður Bjarni Bene-
diktsson, dómsmálaráðherra, og
mælti fyrir minni íslands, Sigur-
jón Sigurðsson, lögreglustjórí,
fyrir minni lögreglunnar, Gunnar
Thoroddsen fyrir minni Reykja-
víkur. Færði hann Lögreglufélagi
Reykjavíkur að gjöf kr. 10.000,00
frá bæjarráði Reykjavíkur í
Slysa- og styrktarsjóð lögreglu-
félagsins. Form., Erlingur Páls-
son, þakkaði þessa höfðinglegu
gjöf.
Þá flutti Eysteinn Jónsson, fjár
málaráðherra, ræðu um viðhorf
sitt til lögreglunnar.
Form. B.S.R.B., prófessor Ólaf-
ur Björnsson, færði Lögreglufé-
laginu hamingjuóskir í tilefni af-
mælisins og þakkaði því fyrir
gott samstarf á liðnum árum.
Lárus Salómonsson, lögreglu-
þjónn, fJutti frumort kvæði.
Þá voru þeir heiðraðir fyrir
ánægjulegt samstarf við Lög-
reglufélagið og Vinsamlegan skiln
ing á hinu erfiða og ábyrgðar-
mikla starfi lögreglunnar: Bjarni
Benediktsson, Eysteinn Jónsson,
Gunnar Thoroddsen, Sigurjón
Sigurðsson og Valdimar Stefáns-
son. Voru þeim færðir að gjöf
haglega gerðir ermahnappar með
lögreglustjörnunni.
Þá voru einnig heiðraðir með
sams konar gjöfum Jakob Björns
son, fyrsti form. félagsins, og
Þórður Geirsson, fyrrv. lögreglu-
þjónn, hinn einasti núlifandi lög-
reglumanna, þeirra, sem gengu
í lögreglu Reykjavíkur um og
eftir síðustu aldamót.
Því næst voru borð upp tekin
og dansað fram eftir nóttu.
Lögreglukórinn söng í sam-
kvæminu og einnig skemmti
HjáJmar Gíslason með gamanvís-
um o. fl.
Lögreglufélag Reykjavíkur hef
ir beitt sér fyrir margs konar
menningarstarfsemi innan lög-
reglunnar, svo sem stofnun karla
kórs og söngkennslu, íþróttaæf-
ingum, svo sem sundi, leikfimi,
björgunaræfingum og frjálsum
íþróttum.
Félagsmenn hafa byggt handa
sér með frjálsum samtökum 45
íbúðir og í byggingarsamvinnu-
félagi 50 íbúðir, allt mjög vandað
og gott húsnæði.
Þá hefir Lögreglufélagið kom-
ið sér upp tveimur sjóðum. Lög-
reglusjóði, sem riú er orðinn rúm
lega kr. 105.000,00, og er varið til
ýmís konar mennta og menning-
arstarfsemi innan lögreglunnar,
og Slysa- og styrktarsjóði, sem
nú er nálægt kr. 11.500,00, eftir
afmælisgjöfina frá bæjarráði.
Þá hefir lögreglan komið sér
upp bókasafni með 1250 eintök-
um af úrvalsbókum, vel inn-
bundnum.
Þá hefir Lögreglufélagið tekið
sér 5 hektara land í Heiðmörk
til skógræktar og gróðursett þar
nú þegar um 9000 trjáplöntur
sem flestar dafna vel.
Lögreglufélag Reykjavíkur
hefir verið viðurkenndur sjálf-
stæður samningsaðili af ríki og
bæ um launamál sín og önnur
hagsmunamál, sem snerta sér-
stöðu lögreglunnar. Hefir félagið
staðið þar í fylkingarbrjósti fyrir
allri lögreglu landsins .
K.F.U.M. cg K.
í Hafnarfirði 45 ára
HAFNARFIRÐI: — Kristilegt
félag ungra manna og kvenna
hér í bæ, K.F.U.M. og K., eiga 45
ára afmæli um þessar mundir,
og verður þess hátíðlega minnzt
í húsi félaganna næstkomandi
laugardagskvöld. Fást aðgöngu-
miðar hjá Jóel Ingvarssyni,
Srandgötu 21. — Á sunnudags-
kvöldið verður svo almenn sam-
koma kl. 8,30, og talar séra Bjarni
Jónsson vígslubiskup. Eru allir
velkomnir.
K.F.U.M. og K. hér í Hafnar-
firði var stofnað 2. og 8. febr. af
séra Þorsteini Briem sem þá var
aðstoðarprestur séra Jens í Görð
um, og konu hans frú Valgerði.
— G. E.
— Iþréttir
Frh af hls 7
íslendingum gekk ekki sem
bezt. Þeir duttu allir nema
Stefán Kristjánsson. Hann
hafði þó versta rásnúmerið
eða nr. 100 og var brautin
þá orðin mjög slæm. Valde-
mar varð að hætta neðst í
brautinni (ekki talað um
hvers vegna) — 95 menn tóku
þátt í keppninni, sem fram fór
í góðu veðri — sólskini og
nókkurra gráðu frosti. 8
keppendanna voru dæmdir úr
leik og meðal þeirra var
Steinþór Júlíusson.
Fremstur fslendinganna var
Eysteinn Þórðarson eða nr.
56. og tími hans var 3:49.4.
Einar Valur Kristjánsson var
í 60. sæti á 3:53,4 og Stefán
Krlstjánsson í 62. sæti á tím-
anutn 3:59,1.
(Tími sigurvegarans Sailers
varð 3:00,1. Tími 10. manns var
3:12,3. Bezti Norðurlandabúinn
var Sollander Svíþjóð nr. 16 á
3:17,1. 29. maður varð Svíinn
Olle Dalmann á 3:24,9. Tveir
Norðmenn komust að marki,
urðu nr. 22 og nr. 50. Tveir voru
dæmdir úr leík).
Framhald af bls 2
Opelbíl, sem stóð á Bragagöt-
unni, — og að kvöldi þess 30. jan.
varð Chevrolet sendiferðabíJl,
sem stóð á bílastæðinu við Sjó-
mannaskólann fyrir barðinu á
einum þessara ökuníðinga
Æskilegt væri og reyndar von-
andi, að menn þeir, sem hér eiga
hlut að máli, og valdið hafa eig-
endum þessara bíla tjóni, sæju
sig um hönd og gæfu sig fram við
rannsóknarlögregluna. En hún
vill jafnframt heita á bílstjóra,
því enginn veit nær röðin kemur
að honum, að hjálpa lögreglunni
til þess að hafa hendur í hári
þessara manna. — Sama máli
gegnir um aðra borgara, að lög-
reglan væntir þess að þeir komi
einnig til liðs við sig.
A dansleiknum leikur Dixieland-hljómsveitin „ALLIR
EDRÚ”, ásamt söngvaranum Magnúsi Magnússyni.
Aðgöngumiðar á kr. 20 00 seldir frá kl. 8
Aðeins verður selt inn í neðri salinn og því vissara
að tryggja sér miða tímanlega. H.Á.Í.
...........................................
Múrarafélag Reykjavíkur:
|
l
■ 4
ARSHATIÐ
Múrarafélags Reykjavíkur verður í Sjálfstæðishúsinu
föstudaginn 3. febrúar klukkan 9 e. h.
Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu félagsins í dag, fimmtu
dag og á morgun kl. 5—7.
ATH. Skemmtiatriðin byrja kl. 10.
Skemmtinefndia.
■ ■r
Foreldrar
í næstu viku mun morgundeild taka til starfa í leikskól-
anum í Brákarborg. Uppl. á skrifstofu Sumargjafar.
Sími 6479 og í Brákarborg, sími 7748.
Forstöðukonan,
«■■<
Frá GolfskálamLm
3
Tökum árshátíðar, veizlur, fundi. Sendum út í bæ :
heitan og kaldan veizlumat, smurt brauð og snittur. |
Uppl. í síma 1066 og 4981.
Ingibjörg Karlsdóttir. Steíngrímur Karlsson. ;|
------ M A R K tJ S Eftir Ed Dodd
WAIT A MINUTE, SHERIFR..V' OKAV, MARK. BUT f|* I
I V/ANT TO SAY SOMETHINS JAINT GONNA DO YOU
BEFOP.S VOU DO ANYTHING// ANY GOOD...THAT OOS’S
v A. ^ A S.A A MURDERER AND HE’S
N-v GOT rry GO/ ._______
1) — Markús. Nú ætla ég enn
einu sinni í fullri vlnsemd að
biðja þig um að víkja til hliðar:'
Ég er vinur þinn og vll engar
deiiur við þig, en ég skal og verð
að drepa hundinn.
• 2) — Bíddu augnablik hrepp-
stjóri. Mig langar fyrst að segja
svolítið við þig.
3) — Jæja, Markús, en það er
alveg þýðingarlaust. Hundurinn
hefur valdið mannsláti og h;;ð
verður að lóga honum.