Morgunblaðið - 05.05.1956, Page 9

Morgunblaðið - 05.05.1956, Page 9
Laugardagur 5. maí 1950 MORGUNBLAÐIÐ fi' Hornsteinn Skálkoltskirkju lagður á kirkjuhátíðinni mikiu 2. júlí AHINNI veglegu Skálholtshátíð hinn 2. júlí næstkomandi verður lagður hornsteinn nýju dómkirkjunnar í Skálholti, en þá verður lokið við að steypa grunn kirkjunnar. Hún mun rísa af grunni á þeim sama stað og Skál- holtskirkjur stóðu forðum og verður kirkjuhátiðinnl hringt inn með kirkjuklukkum, sem Svíar munu gefa og gert er ráð fyrir, að komnar verði upp í klukkna- port fyrir hátíðisdaginn. — Búist er við þúsundum gesta á hátíðina. í gær átti Skálholtsneínd fund með blaðamönnum, til þess að skýra þeim frá störfum hennar, en þar voru einnig þeir Hörður Bjarnason, húsameistarí ríkisins, sem hefur haft með höndum það vandasama stárf að gera teikning ar allar að hinni nýju kirkju og öðrum mannvirkjum staðarins, iog skipulagsstjóri ríkisins, Zóp- honías Páisson, en hann er vara- formaður Skálholtsnefndar. Formaður nefndarinnar, Hilm- ar Stefánsson, bankastjóri, ávarp- aði blaðamennina í upphafi fundarins og gat þess meðal ann- ars, að endurreisn Skálholtsstað- ar væri slíkt stórvirki, að ekki mætti ætla því of knappan tíma, því að kirkjan og önnur mann- virki eiga þar að standa um aldir. Þessu næst gerði fraxnkvæmda- stjóri Skálholtsnefndar, próf. Magnús Már Lárusson, grein fyr- ir störfum nefndarinnar og komst hann m.a. svo að orði: BISKUP EÐA VÍGSLUBISKUP Skáinousneind var skipuð hinn 1. apríl 1954. Hlutverk hennar hefir verið að gera tillögur um endurreisn staðarins og sjá um framkvæmd þeirra, sem hlutu sampyKkt stjórnvalda. í starfi smu neiur neindin ætíð haft hlið- sjon aí því, að í framtíðinni gæti biSAup eða vigslubiskup sezt að í SiiaJholti, þott Skáiholt sé nú prestsetur, samkvæmt gildandi logum. Nefndinni hefur verið leyft að reisa íbúðarhús á staðn- um, sem nu er að verða fokhelt og er þriðjungi stærra en önnur prestsetur iandsins. Alþingi getur eitt sett þau lög, sem ákveða hvers konar embættissetur Skál- holt eig'i að vera, sagði próf. Magnús Már. In samræmis við þessa skoðun sína, að Skálholt eigi að verða biskupssetur, hefur nefndin einnig lagt til að á staðnum verði reist það stór kirkja, að hana mætti gera að dómkirkju. Og ætlun nefndarinnar er, að hún geti verið miðdepill staðarins, tengt saman nútíma og sögu. Af þeim ástæðum er kirkjan óþarf- lega stór miðað við f jölda sóknar- manna. Kirkjan á að rúma um 250 manns í sæti. Við staðsetningu mannvirkj- anna var meðal annars leitað um- sagnar og ábendingar þjóðminjá- varðar, skipulagsstjóra og húsa- meistara. MENNTASKÓLI? Nefndinni er það hins vegar einnig ljóst, að endurreisn Skál- holts verður að fela í sér meira «n þetta. Því var leitað til menntamálaráðherra með bréfi dags. 21. sept. síðastliðinn, að at- hugað væri af hálfu yfirstjórnar kennslumála, hvort leið fyndist til að flytja menntaskólann, er starfar að Laugarvatni, til Skál- holts. Mál þetta er stórmál. Eigi er vitað enn, hvort úr flutningi þeim geti orðið, enda mundi þá einnig þurfa að koma til kasta Alþingis. Meðan nefndin hefur haft þessi ofangreindu stórmál til athugun- ar, hafa verið reist fjós, Jhlaða, verkfærahús og íbúðarhús bónda, sem í framtíðinni er ætlað að gegna hlutverki ráðsmannshúss. Ennfremur hefur verið starfað Danir og Sviar gefa stórgjafir - Skál- holtsnefnd á fnndi með blaðamönnum Ræða Dulles um eflingu 'A-bandalagsins Vestrænar þjóðir verða að vera árvakrar og varðveita styrk sinn Frjáisum þjéðum siafar mesl hætla af kommún- ismanum, þepr þær lelja hælluna álstaðna Á hlaðinu í Skálholti. Þetta er nýja húsið, bústaður biskups eða vígslubiskups, eftir því sem Alþingi mun ákveða. Mynd: Ól. K. M. að girðingu túns og stórfelldri ræktun og framræslu. Svo Skál- holt mun brátt komast í tölu stórbýlá þessa lands, að því er snertir ræktun. Hefur landnáms- stjóri gert allar áætlanir um þessa framkvæmd. Ennfremur hefur ný heimreið verið lögð og hitaveita verið undirbúin. Frumáætlun ,um hana gerði Gunnar Böðvarsson, verk- fræðingur, en Sigurður S. Thor- oddsen gerði heildaráætlun. Að mörgu leyti er það bagalegt að vita eigi, hvort úr flutningi menntaskólans geti orðið innan 10—15 ára, þar sem haganlegast væri að haga gerð hitaveitunnar nú samkvæmt væntanlegum þörf um. UMFERÐIN VANDAMÁL Er nefndin á sínurn tíma hafði heildarathugun Skálholtsmála með höndum sumarið 1954, skor- aði hún á stjórnvöld að flýta lagn ingu háspennulínu til Skálholts, og er það verk nú mjög langt á veg komið. Ennfremur skoraði hún á stjórnvöld, að brúin á Hvítá hjá Iðu væri fullgerð fyrra hluta sumars 1956 vegna hinnar miklu umferðar, er vænta má á Skálholtshátíðinni. Þetta hefur ekki tekizt og er mjög bagalegt vegna hátíðarinnar, þar sem um- ferðarmálin verða þann dag ákaf- lega örðug, en ógerlegt er að koma á ákveðnum einstéfnu- akstri. í þriðja lagi var skorað á stjórnvöld, að byrjað yrði að leggja nýjan þjóðveg hið bráð- asta milli brúnna á Hvitá og Brúará, og að hann lægi neðan við Skálholt að vestan. Það fer eftir fjárhagsgetu vegamála- stjórnarinnar, hvenær vegurinn verður lagður. Skálholtsnefnd hefur í starfi sínu stuðzt við tillögur og ráðlegg ingar trúnaðarmanna ríkisins svo sem landnámsstjóra, skipulags- stjóra, húsameistara, raforku- ' málastjóra og þjóðminjavarðar. j Ennfremur má og nefna, að biskup íslands hefur tekið drjúg- an þátt í málum þessum. Til þess að tryggja sem bezt stórframkvæmdirnar var gerður samningur við Almenna bygg- ingafélagið hf. siðastliðið haust. Tillitið til hátíðarinnar heimt- ar, að kirkjugrunnurinn verði til- | búinn fyrir hinn 1. júlí næstkom- andi og heimreiðin nýja, enda I verði þá lokið tilfærslu á mold og fyllingarefni í öllum megin- | atriðum. Ennfremur verða gömlu húsin og kirkjan litla horfin þá, nema ef til vill íbúðarhúsið, þar eð þeir mörgu, er vinna nú fyrir austan, verða að hafa einhverjar bækistöðvar. Hátíðardaginn ætti staðurinn að vera búinn að fá á sig þann heildarsvip í stórum dráttum, er hann mun bera í framtíðinni. Á SAMA STAÐ OG HINAR Hörður Bjarnason, húsameist- ari ríkisins, skýrði frá því að nokkrar breytingar hefði þurft að gera frá fyrri uppdráttum. — Upphaflega hefði verið gert ráð fyrir því, að nýja kirkjan stæði utan við grunn hinna fornu krosskirkna. Því verður ekki við- komið. Mun nýja kirkjan, sem verður líka krosskirkja, því rísa af grunni á sama stað og gömlu kirkjurnar og verða álíka stór og Brynjólfskirkja (um 30 metra löng). Húsameistarinn kvaðst vilja leggja á það sérstaka áherzlu, að er hann hafi tekið að sér þetta verkefni, hafi hann strax bent á þá staðreynd, að óhugsandi væri að ljúka kirkjunni á svo skömm- um tíma að hún væri risin af grunni fyrir kirkjuhátíðardaginn 1956. — GJÖF FRÁ DÖNUM OG SVÍUM Danir og Svíar hafa ákveðið að gefa Skálholtskirkju stórgjaf- ir. Danir gefa mjög vandað kirkjuorgel. Er nefnd starfandi í Danmörku, sem hefur með hönd- um fjársöfnun í þessu skyni og eru í þeirri nefnd m.a. kirkju- málaráðherra Dana, Bodil Koch, Mogens Múllers málaflutnings- maður og próf. Mogens Koch við listaakademíuna í Kaupmanna- höfn. Þá hafa Svíar ákveðið að gefa kirkjukiukkur og vonast þeir til þess að þær verði komnar svo timanlega hingað, að hægt verði að koma þeim fyrir í klukkna- porti fyrir 'Skálholtshátíðina, svo að hægt verði að hringja hátíðina inn með þeim. MINNISMERKI UM JÓN ARASON Að lokum gat svo nefndin þess, að fyrir allmörgum árum hafi Jónas Jónsson frá Hriflu í þing- mennskutíð sinni, fengið fram- gengt á Alþingi að reist skyldi í Skálholti minnismerki um Jón Arason og syni hans. Einar Jóns- son mvndhöggvari, hafði gert lauslega frumdrætti að minnis- merki þessTi. en hann féll frá áður en hann fengi lokið við frum- drætti sina. Fjárveitingin er fyrirliggjandi og minnismerkið mun rísa í Skálholti, en nær það verður og hvernig framkvæmdum verður hagað mun enn óráðið. Á 16. síðu blaðsins er stutt frétt um það, að byrjað sé að grafa fyrir Skálholtskirkju. í GÆR hófst í París tundur ut- anríkisráðherra Atlantshafs- bandalagsríkjanna — og verður þessi utanríkisráðiierrafundur einn sá mikilvægasti, sem hald- inn hefur verið, síðstn Atlants- hafsbandalagið var stofnað árið 1949. Ræða sú, sem John Foster ; Dulles flutti fyrir tæpum hálfum mánuði, fjallaði um eitt aðal- j málið, sem tekið verður fyrir á fundinum - - möguleikana á því, að færa út starfsemi Aiiantshafs- ' bandalagsins og láta hana ná inn á efnahagsleg, þjóðíélagsleg, stjórnmálaleg og memiingarleg svið. Þessi fundur mun því marka tímamót í sögu bandalagsins. í ræðu sinni benti Dulles á, að mikilsverðir atb irðir hefðu gerzt á alþjóðavettvangi, sem breyttu viðhorfinu ■ Vestur- Evrópu, löndunum fyrir botni Miiðjarðarhafs, Asíu og Rúss- landi. Þessir atburðir marka einnig nýtt tímabil i „kalda str,í,ðimi“ milli einræðisaflanna og hins frjálsa héims, sagðí út- anríkisráðherrann. ★ HÆTTAN VAR AUGLJÓS Fyrsta skeið „kalda stríðsins“ einkenndist af því, að heim- urinn skiptist í tvær, skýrt af- markaðar fylkingar. Heimsyfir- ráðastefna kommúnista á þessum árum leiddi til þess, að frjálsar þjóðir skipuðu sér í orofa fylk- ingu. Þær lögðu ágreiningsmál sín innbyrðis á hilluna, þar sem hættan á yfirgangi af hendi kom- múnista var augljos. Hinar frjálsu þjóðir höfðu íundið leið til að stöðva sókn kommúnista gegn frjálsum þjóðum. En það var ekki stefna hins frjálsa heims að takmarka samstari sítt Við öryggismálin eingöngu, sagðí ut- anríkisráðherrann. Arftökum Stalíns varð nú Ijóst, að gamla baráttuaðferðin dugði ekki lengur, og nauðsyn bar til að taka upp „nýja stoínu“ í inn- anríkis- og utanríkismálum. Þeir eru nú sáttfúsir á svip og tala mjúkmálir um „friðsamlega sam tilveru“. Það er mikilvægt aS gera sér grein fyrir því, hvað felst í þessari breyttv. stefnu. •— Breytingin sýnir, sagð, Dulles, að eining og styrkur frjálsra þjóða hefir sýnt sovézkum i áðamörm- um fram á, að gagnslaust var að halda heimsyfirráðastefnunni til streitu — opinberlega. ★ MARKMIÐ KOMMUNISTA ER EFTIR SEM ÁÐUR SIGUR KOMMÚNISMANS Sovézkir ráðamenn tala mik- ið og margt um stefnubreyt- inguna. Engu að síður leggja þeir eftir sem áður höfuð- áherzlu á eflingu hers síns og vopnaframleiðslu — eiiikum fram leiðslu kjarnorkuvopna. Austur Evrópuríkin eru enn undir jám- hæl kommúnista. í Aslu og 'tönd- unum fyrir botni Miðjarðarhafs eru kommúnistar boðberar hat- urs og æsinga. Þó að núverandi sovézkir ráðamenn hafi viður- kennt réttarmorð þau, er framin voru á Stalíntímabilinu, hafa þeir ekki viðurkennt, að Stalín hafi farið mcð lygi, ei hann lýsti því yfir, að Suður-Kórea hafi átt upptökin í Kóreustyrjöldinni og að herjar SÞ hefðu í þeirri \Tiðureign beitt sv vriahemaði gegn kínverzkum kon múnistum, sagði Dulles Krjúsjeff sagði í desembermán uði sl.: „Við höfum aldrei og munum aldrei afneita hugsjón- um okkar, baráttunnj íyrir sigri kommúnismans.“ Það væri glap- ræði, ef frjálsar þjóðir álitu sig hafa efni á því, að sofa á verðó inum og gerast sundurbykkhr, svo lengi sem sigur korximínv- ismans er markmið sovézkra • i'4 'amanna og þeir stefna a<5' því marki með aukmngu bérs - síns og undirróðursstarfsemi ttml heim allan, sagði utanríkísráð- herrann. *■ TÍMABÆR AÐVÖRUN Dulles ítrekaði þá aðvönm eiúiáý- að hættan, sem hinum frjálsa' heimi stafar af kommúnismán- um, er mest, þegar þær telja"1- hættuna afstaðna, „Aldrei hefur sú aðvörun verið tímabærari i en' nú í dag.“ Benti Dulles á, að ótti sá, er greip hinn frjálsa hcim, þegar' kommúniskir skæruliðar sóttú' inn í Grikkland, Tékkóslóvakía var leidd undir hið kommún iska ok, einangra átti Berlín og kommúnistar réðust ir.n í Kóreu, er nú að fjara út. ★ ★ ★ Einmitt þess verður cnn erfið- ara að viðhalda einingu vest* rænna þjóða. Óttinn gerir þa'ð að verkum, að þjóðir fyikja sér sam an og leita trausts og halds :í samstarfi. Sovézkir ráðamenn og flugumenn þeirra eru ekki eins ógnþrungnir í „nýja gerfinu". Þess vegna geta þeir gert enn meiri usla. Ýmsir aðilar eru þeirrar skoðunar, að nú sé œáim* þörf á samstöðu um öryggismál- in en fyrir fimm árum, þegar vöpnuð árás virtist yfirvofandi, Nú hefur orðið breyting a, en eftir sem áður verða vest- rænar þjóðir að vera árvakar og verða að varðveita styrk sinn, þar sem Sovétríkin eru hernað- arlega mjög sterk, og stefna þeirra skipast eins skjótt og veð- ur í lofti. ★ VESTRÆNAR ÞJÓÐIR VERÐA AÐ EFLA SAMSTÖÐU SÍNA Hinn frjálsi heimur verður að efla einingu sína og þrótt með því að leggja meiri áherzlu á aukna samstöðu um sín málefra — ekki aðeins samstöðu gegp kommúnismanum. „Við skulúm hylla hugsjón frelsisint með því að sýna, hverju sú hugsjón get- ur áorkað,“ sagði utanríkisráð- herrann. Atlantshafsbandalagið er með- al þeirra alþjóða stofnana, sem veitir vestrænum þjóðum*miklo möguleika á að efla slika fram- þróun. Upphaflega var höfuð- markmið bandalagsins samstarf vestrænna þjóða um öryggismál sín, og sá þáttur verður einnig framvegis megintilgangur banda- lagsins. En aðildarríkm eiga svo margt sameiginlegt, að þau ættu að geta aðhafst meira í samein- ingu, sagði Dulles. ★ ★ ★ Eins og utanríkisráðherrann benti á í ræðu sinni er þessi hugmynd engan veginn ný, hún er eins gömul og Atlantshafs- bandalagið sjálft, og forráða- menn ýmissa aðildarríkjanna hafa þegar drepið á þetta mál á ráðstefnum bandalagsins — m.a. þeirra, sem fyrstir urðu til bess, má telja norska utanríkisráðherr- ann Halvard Lánge og kanadiska utanríkisráðherrann Lester Pear- son. Á fundi Atlantshafsráðsins í París í desembermánuði s.l. var skipuð nefnd í þessu augnamiði. ★ 2. GREIN ATLANTSHAFS- SÁTTMÁLANS Höfuðmarkmið bandalagsins var — og er — samstarf Norð- ur-Atlantshafsrikjanna urr* varn- Framh. af bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.