Morgunblaðið - 05.09.1956, Síða 11
Miðvikudagur 5. sept. 1956
MORCUNBLAÐIÐ
11
Hjálmar frá Hofi 70 ára
„Stundum hef ég kröpp við kjör
klifið brekkur fanna.
Sjást þó varla á mér ör
útilegumanna“.
H. Þ.
í DAG er Hjálmar Þorsteinsson,
bóndi og skáld frá Hofi, sjötugur.
Þeir, sem hitta afmælisbarnið
á förnum vegi, myndu vart trúa
því, að svo væri, því að enn er
hann léttur á fæti og beinn í baki
og tilbúinn að fara í eina brönd-
ótta, ef svo bæri undir. Það eru
helzt gráu hárin sem ljóstra upp
um EIli kerlingu.
Hjálmar Þorsteinsson hefur
verið bóndi í Kjalarneshreppi í
40 ár — frá 1916 að Hofi og á
Jörfa síðan 1944.
Hér í Kjalarneshreppi hafa
orðið stórstígar framkvæmdir í
búnaði. Jarðirnar hafa verið um-
bættar í ræktun og byggingúm.
Þar sem áður voru blautar fúa-
mýrar, eru nú kerfi uppþurrkun-
arskurða — sléttur miklar og ið-
græn tún, sem nytjuð eru með
vélknúnum tækjum og af tækni
nútímans. Byggingar hafa verið
reistar og með ári hverju bætast
við góð og vönduð húsakynni
fyrir menn og málleysingja.
Og þá skal ekki gleyma því,
sem ekki er sízt mikilvægt, það
er rafmagnið, sem komið er á alla
bæi til afnota.
Á þessu ræktunar-, bygginga-
og framfaratímabili hefur Hjálm-
ar verið athafnasamur bóndi hér
í hreppi og tekið öflugan þátt í
allri þeirri starfsemi. Hann hef-
ur alltaf verið góður stuðnings-
maður allra framfara og verið í
fararabroddi á mannfundum að
samþykkja tillögur um þau efni.
Um nær því 60 ár hef ég verið
í nágrenni við afmælisbarnið —
Minnist ég enn þegar Hjálmar og
fermingarsystkini hans, 12 að
tölu, gengu til spurninga til föður
míns. Var drengjahópurinn 6
piltar knálega vaxnir, enda var
óspart farið í glímu. Var Hjálm-
ar þeirra skæðastur og varð
mýkt hans og vel gerð brögð
flestum að falli. Síðar æfði Hjálm
ar unga pilta í glímu í Þinginu
og víðar og háði sjálfur harða
glímukeppni norðanlands.
Þá minnist ég samstarfs okkar
með Hafsteini Péturssyni, Gunn-
steinsstöðum, er við vorum kosn-
ir af ungmennasambandinu til að
endurbæta sundlaugina að Reykj
um á Reykjabraut og höfðum í
ráðum Jóhann Kristjánsson, hús-
byggingameistara, sem var þá við
byggingu íbúðarhúss að Holts-
stöðum. Var það fyrir atbeina
þessarar nefndar, að Ásgeir Jóns-
son, Gottorpi, kenndi ungu fólki
sund í Húnavatni hjá Akri, úti
tjörn í Þingeyrarsandi og Tjarn-
arbollum oían Blisakeldu. Allt
þetta gekk vel. Þar ríkti góður
samhugur meðal ungra æsku-
manna, góð framkoma og ásetn-
ingur að bera sem mest úr býtum.
Var Hjálmar góður félagi og í
fararbroddi.
Hjálmar Þorsteinsson er fædd-
ur að Reykjum í Hrútafirði 5.
sept. 1886 og kominn af bænda-
fólki. Foreldrar hans voru þau
hjónin Þorsteinn Ólafsson frá
Haga í Þingi og Guðrún Jóns-
dóttir frá Svalbarða í Miðfirði.
Bjuggu þau hjón að Reykjum en
fluttust suður í Garð í Gull-
bringusýslu.
Hjálmar varð eftir nyrðra og
ólst upp hjá fósturforeldrum sín-
um, Erlendi Hallgrímssyni, bróð-
ur Hallgríms í Hvammi í Vatns-
dal, og konu hans, Sigurlaugu
Hannesdóttur. — Þau voru mestu
sæmdarhjón.
Á æskuárum sínum stundaði
Hjálmar alla algenga vinnu og
þótti knár til allra verka. Góður
heyskaparmaður, ágætur fjármað
ur og eftirsóttur í samstarfi og
félagsskap.
Mun Hjálmar hafa notið bezta
uppeldis hjá fósturforeldrum sín-
um og hlotið glaða æsku í vega-
nesti út í sjálft ævistarfið. Var
það mikill og góður fengur sem
veitir hverjum þrótt til átaka og
áræðis.
Hjálmar giftist árið 1911 Önnu
Guðmundsdóttur frá Holti á Ás-
um. Er Anna bezta kona og hef-
ur verið manni sínum bezti lífs-
förunautur. Hún er greind kona
og hagmælt vel. Starf Önnu, sem
móðir fjölda barna og húsmóðir
á heimili, sem mjög gestkvæmt
var á, var oft erilsamt og erfitt,
en ætið tókst henni með sinni
alkunnu iðjusemi og hagsýni að
Innheimta
Iðnfyrirtæki vantar stúlku eða mann til innheimtu hálf-
an daginn frá 1. okt. n.k. Viðkomandi þarf að hafa bíl, og
verður greitt fyrir afnotin eftir samkomulagi. — Tilboð
sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 8. sept. n.k. merkt:
„Innheimta 4128“.
HATTAR
ný sending
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5
ráða fram úr aðsteðjandi erfið-
leikum.
Þau hjónin eignuðust 12 börn
og eru 4 þeirra látin. Eina dóttur
átti Hjálmar áður en hann gift-
ist. —
Þau hjónin byrjuðu búskap ár-
ið 1911 í Holti á Ásum og á Mána-
skál í Laxárdal árið 1912, en
fluttu að Hofi á Kjalarnesi 1916,
sem þau þá keyptu. — Á Hofi
byggði hann vandað steinhús og
bætti jörðina mikið. Á Jörfa hef-
ur hann byggt upp öll húsin og
ræktað mikið tún.
Fyrir sveit sína hefur Hjálmar
unnið allmikið. Hann sat lengi í
skólanefnd, stj órn búnaðarfélags-
ins og sóknarnefnd Brautarholts-
sóknar. Var Hjálmar góður sam-
starfsmaður, ósérhlífinn og til-
lögugóður.
Þá skal ekki gleyma að geta
þeirra verka Hjálmars, sem hann
hefur stundað nokkuð og aðal-
lega í hjáverkum, og það er að
yrkja kvæði og ferskeytlur, —
Hjálmar hefur gefið út Geisla-
brot, 1928, Kvöldskin, 1950, og
nokkur lcvæði í Húnvetninga-
ljóðum er út ltomu 1953. Hann
hefur hlotið skáldalaun frá Al-
þingi oftar en einu sinni. Hjálm-
ari er létt um að yrkja. Hann
kveður hlýtt og vingjarnlega —
Hann slær bezt á strengi fer-
hendunnar og er þá knár og brag-
fimur — eins og hann var í ís-
lenzku glímunni og gengur
drengilega til verks. Ég held að
hann njóti sín bezt á norðurljósa
síðkvöldum.
Þessi fáu orð mín eru skrifuð
í þeim tilgangi að minnast af-
mælisbarnsins lítið eitt og rifja
upp viðburðaríkan starísferil,
sem nær nú orðið yfir langa
mannsævi.
Hann flytur á brott úr átthög-
unum, þar sem slitið var barns-
og unglingsskónum, og konan
hans einnig, með 4 kornung börn
frá ættingjum og vinum, suður í
fjærliggjandi hérað og þar reisir
hann bú og festir, rætur við
mjög svo örðug skilyrði.
Þeir tímar voru þá, byrjun verð
bólgu, með ýmsum erfiðleikum
og hi'aðvaxandi tilkomu nýs tíma
með miklum möguléikum. — Þau
hjónin hafa hér lifað í gleði og
sorg og er það lífsins saga.
Nú er afmælisbarnið glatt í
anda, sáttur við alla og unir
mjög vel hag sínum. — í kvöld
munu kunningjar Hjálmars heilsa
upp á hann og þrýsta hönd hans
og þakka farinn vegarkafla.
í. B.
Loksins sumar
á Norðurlandi
ÁRNESI, 2. sept. — Miklar and-
stæður hafa verið í veðráttu síð-
ustu viku. Fyrri hluta vikunnar
voru spillt veður með hörku næt-
urfrostum, svo miklum, að vatns-
leiðslur sprungu er lágu ofan
jarðar og vatnskassar á bílum
sprungu einnig.
Seinni hluta vikunnar gerði
hlýja sunnanátt með ágætum
þurrki. Steig hitinn alla að 20
stigum. Hirtu bændur þá mikið
hey með góðri verkun. Virðist
nú hið langþráða sumar loksins
komið til Norðurlands.
—Hermóður.
Pífuglugga
fjaldaefni
Dacron — Nælon
Sforesefni
hvít og mislit
Sforeskögur
Kappakögur
Ódýrt
Damask
margir litir
Gardínubúðin
Laugavegi 18
LngBingspiltur
óskast til sendiferða allan daginn. Gott kaup. Umsækj-
endur sendi umsóknir sínar til skrifstofu blaðsins merkt-
ar: „Stundvísi — 4136“ með upplýsingum um aldur, fyrir
n.k. laugardag.
Afgreiðslustúlka ekki yngri en 18 ára óskast
háSfan cSaginn
Eiginhandarumsókn með upplýsingum um aldur og
fyrri störf, ásamt mynd, sem endursendist, sendist afgr.
Mbl. fyrir föstudagskvöld merkt: „Áhugasöm — 2323“.
10 bœkur fyrir 175 kr.
Á torgi lífsins, ævisaga Þórðar Þorsteinssonar, skráð af Haga-
lín, ein af hans allra skemmtilegustu ævisögum. Hershöfðing-
inn hennar, spennandi skáldsaga eftir Maurier, höfund „Re-
bekku“. Grænland, skemmtileg lýsing lands og þjóðar eftir
Guðmund Þorláksson magister, prýdd nálega 100 myndum.
Kæn er konan, bráðfyndin og skemmtileg skáldsaga um
kvennakænsku og ævintýri. Anna Boleyn, mjög skemmtilega
skrifuð ævisaga þessarar frægu Englandsdrottningar, prýdd
mörgum myndum. Frúin á Gammsstöðum, hádramatísk og
mjög spennandi skáldsaga. Kvæðasafn Guttorms J. Gutt-
ormssonar, heildarútgáfa á kvæðum þessa mikilhæfa vestur-
íslenzka skálds. Auðlegð og konur, efnismikil og skemmtileg
skáldsaga eftir Bromfield. Fjöll og firnindi, endurminningar
Stefáns Filippussonar, skráðar af Árna Óla, ritstj., prýddar
myndum. Gleðisögur, sögur um ástina og mannlegan breysk-
leika eftir snillinginn Balzac, prýddar fjölda mynda. —
Þessar bækur eru samtals nálega 3000 bls. samanlagt út-
söluverð þeirra var upphaflega kr. 371,00, en samkv. nú-
gildandi bókaverði mundi það vera a. m. k. tvöfalt hærra.
Bækur þessar eru seldar nú fyrir aðeins kr. 175,00, allar
saman. Átta þeirra.er hægt að fá innbundnar í gott band
fyrir aðeins 10 kr. aukagreiðslu fyrir hverja bók. Einnig
það eru sérstök kostakjör, miðað við verð á bókbandi. Hér
gefst slíkt tækifæri til að eignast góðar bækur fyrir sáralágt
verð, að firnum sætir. Notfærið yður það, áður en það verður
um seinan.
PÖNTUNARSEÐILL: Gerið svo vel og sendið mér gegn póst-
kröfu 10 bækur fyrir 175 kr. ib/ób. Samkv. augl. í Mbl.
(Nafn) ..........................................
(Heimili) ...........................
Útfyllið pöntunarseðilinn og sendið hann í bréfi. Skrifið
greinilega. Sendingarkostnað greiðir viðtakandi.
Bókamarkaðurinn, Pósthólf 561, Reykjavík.
1