Morgunblaðið - 23.09.1956, Side 3

Morgunblaðið - 23.09.1956, Side 3
Laugardagur 22. sept. 1956 JtORGTJNBLAÐIB 3 i |jr verinu TOGARARNIR AFLA VEL FVRIR VESTAN GRÆNLAND Togarar, sem veiða fyrir heima markað, hafa ýmist verið á heima miðum eða fyrir vestan Græn- land. Úranus og Neptúnus hafa t.d. verið í Júlíanbugtinni, nokkru fyrir norðan Hvarf vestan við Grænland. Þar hefur verið sæmi- legur karfaafli. Úranus fékk þar fullfermi og var með 10 lestir á þilfari. Þarna er ekki ís nema einn og einn borgarísjaki a.m.k. allt fram að áramótum, og stund- um er íslaust allan veturinn. — Skipin' hafa venjulega hætt veið- um þarna fyrir áramót, vegna þess hve vont sjólag er fyrir Hvarf í hörðum veðrum. Á HEIMAMIÐUM hefur helzt verið afla að fá á Halanum og þá mest þorsk. Karfi er nú sáratregur á heimamiðum og eins fyrir austan Grænland. Um þetta leyti í fyrra var mok- afli af karfa. Svona getur þetta verið breytilegt. Skipin, sem hafa verið að veiða fyrir þýzkan markað, hafa flest verið á Hal- anum og fæst eða engin fengið fullfermi. FISKLANDANIR HEIMA hafa verið s.l. viku, sem hér segir: Askur .............. 97 lestir Hvalfell ......... 270 — Surprise ......... 237 — Úranus......... um 280 — Fylkir ....... — 20 — Samtal:s 904 lestir FÁ SKIP veiða nú fyrir heimamarkað, eða aðeins 5, skip Tryggva Ófeigs- sonar, sem eru 3, og skip Kletts, Hilmar Garðars héraðsdómslögmaður. Málflutningsskrifstofa Gamla-Bíó. Ingólfsstræti. sem eru nú aðeins 2 eftir að Ask hlekktist á. Það má ekki vænta mikils fisks af ekki fleiri skipum, og þegar svo afli er treg- ur í þokkabót eða langt sótt eins og hjá skipunum, sem fara alla leið vestur fyrir Grænland. — Dugar varla minna en Vz mán- uður í „túrinn“. Það bregður ein- hverjum við atvinnuna við höfn- ina og í frystihúsunum, eins og karfaveiðar togaranna hafa fært mikla björg í bú. FISKIÐJUVERIÐ OG TOGAR- ARNIR Togararnir í Reykjavík hafa sótt fast á að fá keypt Fiskiðju ver ríkisins, og er sagt, að ein- hverju sinni hafi þetta verið kom- ið svö langt, að Ólafur Thors, þáverandi sjávarútvegsmálaráð- herra, hafi verið búinn að leggja það til í ríkisstjórninni, en það hafi strandað á samstarfsflokkn- um, án þess að þeim, sem þetta ritar, sé kunnugt um það nema af sögusögnum. En hvað sem því líður, er Fiskiðjuverið enn í eigu ríkisins og rekstur þess ekki til neinnar sérstakrar fyrirmyndar. ÞAÖ ER TVENNT, sem mætti gera til þess að styðja að aukinni löndun á togarafiski í bænum. Og það væri að selja togurunum fiskiðjuverið, eða segjum gera það að almennu fé- lagi bæði fyrir togarana og bát- ana, og hitt að hækka verðið á karfanum með greiðslu úr fram- leiðslusjóði. Það er ekki hægt að una því lengur, að bæjarút- gerðin með 7 eða 8 togara, hafi ekki aðgang að frystihúsi. Og al- veg eins er með einkatogarana, sem ekki hafa þegar þessa að- stöðu. En það eru aðeins þau skip, sem nú veiða fyrir heima- markað. FISKSÖLUR f ÞÝZKALANDI hafa gengið vel upp á síðkastið. Hafa þau skip, sem veiða fyrir þýzkan markað, aðallega verið Listdansskóli Guðnýjar Pétursdóttur tekur til starfa 1. okt. nk. Upplýsingar og innritun í . síma 5 2 5 1 í dag, mánudag, þriðjudag og miðvikudag frá kl. 1—7 alla dagana. Ef yður vantar tækifærisgjöf handa vini yðar, sem er veiðimaður, eða á sumarbústað, þá sjáið hjá okkur hinn eðlilega mótaða og handmálaða silung (bleikja) sem við höfum til sölu. Leiklistarskóli Þjóðleikhússins Ismtökupróf fer fram mánudag 1. október klukkan 16 — og þriðjudag 2. okt. kl. 16 — í Æfingasal Þjóðleikhússins. Þjóðleikhússtjóri. á Halamiðum, en látið lítið yfir aflabrögðunum, fæst eða engin fengið fullfermi og það ekki svipað því sum hver. Þessi skip hafa selt afia sinn í Þýzkalandi í vikunni sem leið: Þorsteinn Ingólfsson RM 111.600 Goðanes ............. — 99 000 Jón forseti ......... — 119.600 Vöttur .............. — 92.000 Akurey .........r.. — 80.000 Jón Þorláksson .... — 87.000 FISKLEIT FYLKIS Fylkir kom úr fiskleitinni á fimmtudaginn var og þá aðeins með 20 lestir og hafði verið 9 daga úti. Þessi ferð varð því ekki eins happadrjúg og sú fyrri. Var einkum leitað norður og austur af Dohrn- og Jónsmiðum. Var því kennt um, að ekki fékkst karfi, að sjávarhitinn hafi ekki verið sá, er talinn er vera bezt við hæfi karfans, eða 4°C. Að vísu getur verið ágæt karfaveiði við 3—4°C botnhita og eins við um 5°C. Hitinn hafði aðallega reynzt um 2°C og neðan við það. yfir öllum aflabrögðum í vik- unni. Það umtalsverðasta í þessu efni var, að tveir bátar fengu einn daginn síld, annar 40 tunnur og hinn 15 tunnur. Fáir bátar eru enn með rek- net, aðeins 2—4. Á SMOKKFISKVEIÐAR Allmargir bátar hafa byrjað smokkfiskveiðar, en ekki hefur verið mikið að hafa þar frekar en í öðrum veiðiskap. Þó fengu bátarnir almennt góða veiði einn daginn, 13—20 tunnur, og voru einir 3 með 20 tunnur. Fengu þeir þetta á sólarhring, og má það heita ágætt. VEIÐI MEÐ ÞORSKANET Einir 5 bátar voru búnir að leggja þorskanet, og var sæmi- legur afli hjá þeim fyrrihluta vikunnar, t.d. fékk einn báturinn 7 lestir í 30 net. En nú hefur kippt úr veiðinni, og kenna rnenn um miklum straum. UFSAVEIÐI fengu þessir handfærabátar lítið sem ekkert. Fóru sumir þeirr* þá yfir í smokkfi^iuun. ...-- s var ágæt ufsaveiði á handfæri um þetta leyti í fyrra. Akranes EKKERT ÚR SJÓ AÐ HAFA Það má segja, að ekkert sé úr sjó að hafa. Aðeins tveir bátar urðu síldar varir í vikunni, svo orð sé á gerandi. Guðmundur Þorlákur fékk einn daginn 70 tunnur af síld og Ásbjörn 44 tunnur. Einir 9 bátar eru enn með net- in um borð. OF SEINIR FYRIR STORMINN Nokkrir bátar fóru á smokk- fiskveiðar vestur undir Jökul, en voru of seinir, því þeir fengu á sig austanstorminn. Afli varð því lítill. Heimaskagi fékk þó 23 tunnur yfir rúman sólarhring. REYNA f HVALFIRÐI OG KOLLAFIRÐI ÞÝZKIR TOGARAR eru mikið að veiðum hér við land og eins nokkuð við A ’st- ur-Grænland. Er haft eftir þeim, að þeir hafi það ekki annars- staðar betra. Einn kom inn í vik- unni. Er það eftirtektarvert, hve þýzku togararnir nýju eru glæsi- leg skip. Mega fslendingar vara sig á að dragast ekki um of aftur úr í þessum efnum, jafn mikið og þeir eiga undir, að unnt sé að moka viðstöðulaust verðmæt- um úr sjónum. Hvað eiga tog- ararnir lengi að vera settir skör lægra en bátarnir. Ef þeir hafa yfirburði, má það þá ekH koma í ljós, að í stað þess að halda eðli- legri þróun niðri með þvi að mis- muna skipunum eftir gerð þeirra. Það er ekki hollt þjóðarbúskapn- um. Keflavík DAUFT YFIR Það hefur verið mjög dauft Þá fóru nokkrir með handfæri, þegar tók alveg fyrir síldveið- ina, svo segja má, að allt hafi verið reynt nema þá lína. Helzt var hugsað til að veiða ufsa, en sá blái var ekki viðlátinn, og Guðmundur Þorlákur fór á föstudagskvöldið með net sín upp í Hvalfjörð og Kollafjörð, ef ske kynni, að síld væri komin þangaö eins og um árið. Lagði hanri 45 net í Hvalfirði og 15 í Kollafirði. OíK* útvegar vélina! GRAY-DIESEL GRA Y-BENSIN STUÁRT-DIESEL 9 HA STUART BENSIN WEATHERILL VÉLSKÓFLUR ALLSKONAR KRANAR OG TÆKI VEITI RÁÐLEGGINGAR Gísli Halldórsson VERKFRÆÐINGUR Hafnarstrti 8 — Sími 80083 Skrautkerti Jölakerti KRISTJÁN G. GÍSLASON HF.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.