Morgunblaðið - 23.09.1956, Blaðsíða 20
færa Nancy hann á morgun“.
„Nei, það verðúr nú ekkert af
því“. Lije reyndi að gera sig
mannalégan. „Þetta er mín gjöf
— til mömmu“.
Skyndilega fann hann til ein-
hverrar vaxandi reiði — andúðar
á þessum manni, sem hélt svo
sterku taki í handlegg hans.
„Þetta eru silkisokkar og þú
gerir svo vel, að halda krumlum
þínum frá þeim. Mömmu geðjast
alls ekki vel að þér — ekki frek-
ar en mér sjálfum. Hvorugt okk-
ar er gift þér — þér, að því er ég
be-bezt vei-veit“.
„Æ, reyndu nú bara að koma
þér heim“.
Dink stjakaði honum gremju-
lega út á fjala-gangstéttina. „Þú
ert draugfullur. . og segðu Nancy,
að ég muni líta inn til hennar á
morgun, eins og ég sagði“.
„Farðu til fjandans“. Lije stóð
og rambaði til, stundarkorn, ó-
ákveðinn á svip, en svo rann
mesti sljóleikinn af honum, úti í
rökum svala næturloftsins.
Hann gekk reikulum skrefum
út á miðja akbrautina, skotraði
augunum reiðilega til fornvinar
síns og kallaði á eftir honum fúk-
yrði og skæting.
Einni klukkustund síðar nam
Lije staðar úti fyrir dyrum heim-
ilis síns, því sem næst allsgáður
eftir gönguna, en nokkuð farinn
að þreytast.
í ljósskímunni gegnum rifuna
ur.dir glugganum, sá hann að
móðir hans var enn ekki gengin
til náða. Og hann saug ósjálfrátt
upp i nefið hina óvæntu lykt,
sem flæddi á móti honum í þykk-
um mekki hins innibyrgða lofts,
er hann gekk inn.
Móti venju sinni, sat móðir
hans hin rólegasta framan við
snarkandi viðareldinn, i kyrrlátri
ró og dansandi skuggar og flökt-
ar.di bjarmi frá eldstæðinu
UTVARPIÐ
Sutmudagur 23. september:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í Fríkirkjunni (Prest
ur: Séra Þorsteinn Björnsson. —
Organleikari: Sigurður ísólfsspn).
14,50 Útvarp frá íþróttavellinum í
Reykjavík: Sigurður Sigurðsson
lýsir síðari helmingi úrsiitaleiks
íslandsmótsins í knattspyrnu
1956, fyrstu deild; K.R. og Valur
keppa. 15,45 Miðdegistónleikar
(plötur). 16,15 Fréttaútvarp til
íslendinga erlendis. 18,30 Barna-
tími (Baldur Pálmason). 19,30
Tónleikar (plötur). 20,20 Tónleik-
ar (plötur). 20,40 Göngur og rétt-
ir; samfelld dagskrá. — Hallfreð-
ur öm Eiríksson og Sveinn Skorri
Höskuldsson búa til flutnings. —
22,05 Danslög (plötur). — 23,30
Dagskrárlok.
mýktu hinar djúpu raunarúnir á
andliti gömlu konunnar.
Um leið og hún sneri sér að
kertaljósinu á borði við hlið
hennar, var því líkast sem dauf-
ur geislabaugur svifi eitt andar-
tak yfir hinum bliknaða eirlit
hárs hennar og Lije nam snögg-
lega staðar, með hálf-uppgerðar-
og hálf-ekta-undrun í svipnum.
Móðir hans starði með einhvers
konar sektarsvip á hann, en önn-
ur hönd hennar hvarf í slcyndi
inn undir svuntuna.
„Hvað hefur þú verið að gera,
mamma?“ spurði hann í gamni.
„Kannske að hyggja að Sankti-
Kláusi? Norðurríkjamennirnir
drápu hann í stríðinu“.
Móðir hans brosti við honum:
„Nei, ekki gerðu þeir það nú.
Ég hef svo margoft séð hann síð-
an“.
Lije settist á hækjur sér fram-
an við stóna, rétti hendurnar að
eldinum, lagði frá sér pakkann.
sem nú var allur krypplaður og
vættur í víni, á gólfið við fætur
sína. Hann starði á móður sína
og það brá fyrir kátlegum ánægju
glampa í hinum hörðu, ungu aug-
um.
„Hvaða lykt er það, sem ég
finn hérna inni, mamma? Stöng-
ulberjagrautur eða kornkökur?"
„Það skalt þú fá að sjá á morg-
un, drengur minn. Sjón er sögu
ríkari".
Hún færði til hattinn hans,
laut fram og strauk með fingr-
unum í gegnum þykkt hár unga
mannsins.
„Þú hefur alveg eins hár og
pabbi þinn“.
Orðin komu eins og án vilja
og vitneskju hennar sjálfrar. Og
á eftir sat hún þögul og hreyf-
ingarlaus, eins og stirðnuð upp,
en hendur hennar urðu skyndi-
lega harðar eins og uppþornaðir
baðmullarstönglar.
KELVINATOR
— 8 rúmfet —
Hinir vinsælu 8 rúnifeta
Kelvinator kæliskápur
eru nú fyrirliggjandi.
_ Verð kr.: 7,450.00.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Tfekla
Austurstræti 14 — sími 1687.
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 23. sept. 1956
p,ANd
p <#
í HORNUNG & M0LLER
KGL. HOF-PIANOFABRIK
Mánudagur 24. september:
Fástir liðir eins og venjulega.
19,30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd
um (plötur). 20,30 Útvarpshljóm-
sveitin; Þórarinn Guðmundsson
stjórnai’. íslenzk þjóðlög; Karl O.
Runólfsson útsetti fyrir hljóm-
sveit. 20,50 Um daginn og veginn
(Bjarni Guðmundsson blaðafull-
trúi). 21,10 Einsöngur: Sigríður
Schiöth syngur; dr. Victor Ur-
bancic leikur undir á píanó. 21,30
Útvaipssagan: „Októberdagur",
eftir Sigui’d Hoel; VII. (Helgi
Hjörvar). 22,00 Fréttir og veður-
fregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10
Fræðsluþáttur Fiskifélagsins: Jón
Jónsson fiskifræðingur talar um
starfsaðferðir í fiskirannsóknum.
22,25 Kammertónleikar (plötur).
23,00 Dagskrárlok.
1) Fíllinn hefur í mikilli bræði i kastað Phil til jaríar. Þ5 birtlst| 2) Hún miðar byssu að fflnum.j 3) Og skotMt gelgar ekkl.
I Sirrí bak við trén.
Það er mesta úrvalið af ritföngum í Ritfangaverzlun
ísafoldar. — Þar getið þér valið um:
SHEAFFER’S
PARKER
PELIKAN
ESTERBROOK
PENOL-skólapenna
GEHA
og margar fleiri tegundir penna
Kennslubækur, skrif- og reikningsbækur
í miklu úrvali.
BANKASTRÆTI 8.
Húsmæður! Bólstruð liúsgögn
hreinsast auðveldlega með REI-
froðu og mjúkum bursta. Gólf-
teppi, dreglar og veggteppi hreins-
ast þannig: Ryksogið eða burstið
teppin fyrst vandlega; burstið
þau síðan með REI-frcðu. — Þetta
er svo auðvelt og kostar svo undirlítið. Aðeins 1 matskeið
af REI í 5 lítra af volgu vatni. Allt verður hreint, blettir
hverfa, litir skýrast.
Notið ávallí REI til fínþvotta, uppþvotta, hreingerninga.
M AKKÚS Eftir Ed Dodd
LOUIS COCHRAN:
SONUR HAMANS
Heimsfræg
vörumerki
Afborgunarskilmálar
Pantanir sækist strax
Ennfremur notað píanó kr.
10.800.00 og notaður stofu-flygill.
P
*
I
\
N
Ó
Sýnishorn
og verðlistar
í Vesturveri.
HLJÓÐFÆRAVERZLANIR
Sigribar Helgadótfur s.f.
Lækjargötu 2 og Vesturveri.