Morgunblaðið - 14.10.1956, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 14.10.1956, Blaðsíða 13
Sunnudagur 14. okt. 1956 M OK CTllVBL AÐIÐ 13 Reykjavíkurbréf : Laugardagur 13. október Að falsa kosningar - Virðingarleysið fyrir lýðræðimi - Eru mannréftindi nokkurs virðil -Hermann og fjár- málasukkið - Framkvæmir sfjórnin sósíaiismann! - Aiþýðubandalagshneykslið og landhelgismáiið. Tveir sögulegir atburðir TVEXR hafa þeir atburðir gerzt á síðustu dögum, sem báðir varpa ískyggilegu ljósi á athafnir nú- verandi ríkisstjórnar og verða mönnum tilefni til sökstudds grun ar um að sú stjórn setji í störf- um sínum og stefnu annað ofar en landslög og lýðræði. Hinn fyrri eru Iðjukosningarnar. — Landsmönnum eru nú orðnar þær vel kunnar og allir atburðir sem í sambandi við þær gerðust. Þar var hvorki um meira né minna að ræða en beina tilraun þeirra manna sem undanfarin ár hafa haft meirihluta í félaginu til þess að halda þessum meiri- hluta hvað sem það kostaði og var þar einskis svifizt til þeSs að ná markinu. Framkvæmd kosn- inganna öll var með slíkum end- emum að minnt gæti á lönd Asíu sem aldrei hafa þekkt frjálsar kosningar. Yfir hálft þúsund félagsmanna voru strikaðir út af kjörskrá og tveir af þremur kjörstjórnar- mönnum voru á framboðslis’ta kommúnista. Slíkar aðferðir myndu ekki þekkjast í nokkru lýðræðisríki og gefa ófögur fyrir- heit um framtíð íslenzkrar verk- lýðshreyfingar og félagsmála- starfsemi hennar. Hinn atburðurinn er tilraun Hræðslubandalagsflokkanna á Alþingi þessa dagana til þess að fá kjörbréf uppbótarþingmanna Alþýðuflokksins tekin gild. Það er kannski að bera í bakka- fullan lækinn að gera frekari grein fyrir því máli, svo mikið hefur verið um það ritað. Þessi tilraun Hræðslubandalagsins á sér ekkert fordæmi í íslenzkri stjórnmálasögu. Flokkarnir hafa verið að reyna að líkja þessu við það kosningabandalag sem Sjálfstæðisflokkurinn myndaði með Bændaflokknum 1937. Hér er alls engu saman að jafna. — Hræðslubandalagsflokkarnir koma fram sem aðeins einn flokk ur „í algjöru kosningabandalagi í öllum sýslum" eins og þeir hafa sjálfir orðað það í yfirlýsingum sínum. Því ber að líta á þá sem einn flokk að því er kosningun- um við kemur en alls ekki tvo, og leyfa þeim aðeins einn landslista en ekki tvo. Afleiðingin af því yrði auðvitað sú að kjörbréf Al- þýðuflokksþingmannanna yrðu ekki tekin gild. Kosningabandalag Sjálfstæðis- flokksins 1937 var allt annars eðlis og ekki sambærilegt. Þar var aðeins um stuðning í nokkr- um kjördæmum að ræða en fjarri því algjört kosningabandalag um land allt sem hér. Vlrðingin fyrlr mannréttindum Það framferði Hræðslubanda- lagsins að reyna hér að notfæra sér það að íslenzku kosningalög- in hafa engan bókstaf um þetta atriði og fljóta þannig inn á þingið með þingfylgi sem þeir raunverulega hafa aldrei fengið er ekki annað en hrópleg misnotkun á þeim lýðræðislegu hugmyndum og frjálsu stjórnar- háttum sem við íslendingar höf- um tamið okkur til þessa. Meiri hluti landskjörstjórnar taldi þetta athæfi Hræðslubandalagsins og framboðin svo sem þau voru úr garði gerð ólögleg. Þjóðviljinn kallaði þetta athæfi kosningasvik, lagakróka og refjar 29. maí s. 1. og tveir fyrrverandi prófessorar í stjórnlagafræði við Háskóla fs- lands hafa báðir fordæmt þetta atferli opinberlega sem brjóti al- gjörlega í bága við anda og til- gang kosningalaganna og stjórn- arskrár. Þótt Alþingi nú samt leggi blessun sína yfir athæfið er það aðeins vegna þess, að það er pólitísk samkunda sem Hinir nýju þingmenn Sjálfstæðisfl., þm., frú Ragnhildur Helgadóttir, 8, talið frá vinstri: Prófessor Ólafur Björnsson, 9. landskjörinn þm. Reykjavíkur, og Friðjón Þórðarson, sýslumaður, 11. lands- kjörinn þm. — Myndin er tekin í forsal Alþingishússins. Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. Hræðslubandalagsflokkarnir eiga nú meirihluta á og fyrir þá sök að kommúnistar hafa nú gleypt allar sínar fyrri fullyrðingar um að hér hafi lögleysa verið framin og samþykkja nú það athæti sem þeir áður fordæmdu svo harð- lega. Bæði heyra þessi mál nú brált fortíðinni og stjórnmálasögunni til. En þar með eru þau ekki öll. Fjarri fer því. Hér hefir komið í ljós að til er sú ríkisstjórn á íslandi sem kveinkar sér ekki við því að teygja kosningalög og önnur ákvæði eftir því sem heani sjálfri sýnist. Og höfuðstuðnings- menn stjórnarinnar, kommúnist- ar, gera á sama tíma tilraun til þess að falsa kosningar í einu stærsta verkalýðsfélagi landsins. Hér er sannarlega ástæða til þess að staldra við og spyrja: Er þessi virðing þeirra manna sem nú fara með völd á íslandi fyrir þeim mannrétt- indum sem íslenzka lýðveld- ið er byggt á? Metur ríkis- stjórnin og stuðningsflokkar hennar ekki frjálsar kosning- ar og lýðræðislega úthlutun þingsæta meir en svo sem at- burðir síðustu daga sýna? Það hlýtur því að vera áhyggju- efni öllum góðum íslendingum að slíkar aðfarir skuli vera tíðk- aðar í landi voru, svo furðulegar sem þær eru. Og enn uggvæn- í legra er það að enginn veit til j hvaða nýrra ráða vinstri flokk- arnir geta gripið til þess að | tryggja fylgi sitt, eða hve langtj kommúnistar telja sér fært að j fara til að halda völdum sínum í| verklýðshreyfingunni með und- irferli og gerræði svo sem í Iðju- kosningunum. Það er skylda þjóðarinnar allrar að vera hér vel á verði og fylgjast með öllum slíkum gjörræðistilraunum því ef þær takast enn um skeið óátalið er ekki lengur unnt að tala um sjálfstæða þjóð í frjálsu landi. Tvær ræður FYRIR fáum dögum fluttu bæði Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson miklar ræður um þjóð- málin. Það sem sérstaklega ein- kenndi þær báðar var gleðin yfir því að hafa nú fengið völdin í hendurnar og einkum þó ræðu Hermanns. Minnti hún furðumikið á hina gagnmerku grein bandaríska tímaritsins Harpers Magazine, sem Tíminn birti í ýtarlegri þýð- ingu en sleppti þó einu atriðinu úr, því þar sem Hermanni er lýst sem hinum valdasjúkasta stjórn- málamanni. Aðrir hlutar ræðu Hermanns voru að mestu helgaðir því að mála dökkum litum fjár- málaástandið í landinu eins og það hafi verið þegar stjórn hans tók við völdum í sumar. Þessi afstaða framsóknarráð- herranna þykir almenningi í land inu þegar minna óþægilega mik- ið á þegar Krúsjeff og samstarfs- menn hans skamma félaga Stalin látinn blóðugum skömmum og telja flestar þær stjórnarathafnir sem framkvæmdar voru í Rúss- landi á valdaferli hans hafi verið hinar verstu og skaðvænlegustu. Það sýnist aldrei hafa hvarflað að Krúsjeff að hann var Stalin í flestu meðsekur þar sem hann var hægri hönd hans síðasta ára- tuginn sem Stalin lifði. Ekki frekar sýnist Hermann gera sér það ljóst í hinni „skarp- skyggnu" gagnrýnisræðu sinni á fyrrverandi stjórn að vera mætti að Framsókn hefði þar líka ein- hvers staðar nærri komið. Það skyldi þó aldrei vera að forsætisráðherra höggvi ískyggi- lega nálægt einkavini sínum og félaga Eysteini Jónssyni, er hann talar um vandræðaástand í fjár- málunum. Hver skyldi það vera sem með stjórn þeirra hefir farið síðustu árin? Hann skyldi þó aldrei heita Eysteinn Jónsson og vera Framsóknarmaður? Það voru ekki Sjálfstæðismenn sem hækkuðu fjárlög ríkisins á síðasta ári um 100 millj. króna. Það var fjármálaráðherrann Ey- steinn Jónsson og þegar Hermann Jónasson ræðir um gjaldeyris- sóun þá virðist hann ekki muna eftir því, að fjárfestingin er að mjög miklu leyti undir gjörðum og ákvörðunum fjármálaráðherra og þar að auki lýtur Fram- kvæmdabankinn stjórn hans. Það er því þangað sem hann á fyrst og fremst að beina örvum sínum ef hann telur ástæðu til að ræða um sukk og óreiðu í éfnahags- málum þjóðarinnar. Hvað meinar Hermann? En hefir Hermann nokkuð fyr- ir sér er hann málar ástandið svo dökkum litum? Tíminn hefur sjálfur nýlega skýrt frá því að heildarfram- leiðsla íslenzku þjóðarinnar hafi vaxið um 28% á síðustu þremur árum. Allir vita að bezti mæli- kvarðinn á hag og hagsæld hverr- ar þjóðar felst ekki í krónutölu verkalaunanna heldur í því hve mikil og vaxandi þjóðarfram- leiðslan er. Það mun nær einsdæmi að framleiðsla nokkurrar þjóðar hafi vaxið svo mikið á svo fáum ár- um, og það ber vott um að ís- lenzka þjóðin er langt frá því að vera á flæðiskeri stödd. Þessi staðreynd sýnir að atvinnuvegir þjóðarinnar eru dugmiklir, öflug* ir og vaxan'di, en það er sá mæli- kvarði sem einn segir til um lífs- kjör þjóðarinnar og framfarir all- ar. Slík þjóð sem eykur svo mjög þjóðarframleiðslu sína er langt frá því að vera svo illa á vegi stödd sem Hermann Jónas- son reynir allt hvað af tekur að sannfæra hana sjálfa um. Hvernig hugsar Hermann Jónasson sér að samræma 28% aukningu þjóðarframleiðslunn ar þeirri fullyrðingu sinni að íslendingar búi við helsjúkt fjármálakerfi og við liggi að þeir fari allir á vonarvöl? Við þeirri spurningu væri fróðlegt að fá svar og það fyrr en seinna. Annað atriði var það í ræð- unni sem einnig krefst skýr- ingar, svo barnalegt var það eins og Tíminn skýrði frá því. Þar lýsir Hermann þvi yfir að til lækninga á ástandinu þurfi ýmsar skurðaðgerðir í efnahagsmálum til þess að koma þeim á réttan kjöl. En sé rétt á haldið þá þurfi hér ekki að vera um ráðstafanir að ræða, sem hafi í för með sér kjaraskerðingu sem neinu nemi eins og hann orðar það. Fróð- legt væri að fá upplýsingar hvaða ráðstafanir formaður Framsókn- arflokksins hefur í huga. Ef ástandið er jafndapurlegt og augu forsætisráðherra sjá það, skyldi maður halda að hér dygði ekki lítið til. Og hagfræðinni mun ekki vera kunnugt um neina þá lækningu á efnahagsvandræðum illa stæðrar þjóðar sem ekki hef- ur nokkra kjaraskerðingu í för með sér fyrir almenning a. m. k. til að byrja með. En nú bíður þjóðin með eftir- væntingu eftir því hvers konar undralækningu Hermann hyggst hrista fram úr erminni í einni svipan og stórbæta með því sam- stundis hag lands og þjóðar. Sjálf ur forðast hann vendilega að nefna úrræðin einu orði og var kannski ekki við öðru að búast. Rödd Alþýðublaðsins EN SVO VILL TIL að Alþýðu- blaðið birti um svipað leyti grein um það sem ríkísstjórnin hygð- ist gera, vilja hennar og áform. Og þar er að finna ráðin sem Hermann talar svo fagurlega um en nefndi ekki. Ríkisstjórnin verður, segir blað ið, að þjóðnýta togaraútgerðina, ríkið verður að reka bátana, og þjóðnýta ber frystihúsin þar sem eigendur þeirra græða nú alltof mikla peninga! Þá á ríkið og verð ur að taka verulegan hluta inn- flutningsins í sínar liendur, segir blaðið orðrétt, þannig að „ríkið og samvinnufélögin sjái um nær alla verzlunina“. Þar er stefna ríkisstjórnarinnar komin, og má segja að hún sé ekki vonum frumlegri. Algjör sósíalismi, þar sem ríkið hefur flestar greinar atvinnuveganna á sínum höndum en einstaklingun- um í landinu veitist sú náð að sækja til þess um brauð sitt og vinnu. En hvernig skyldi forystumönn um samvinnuhreyfingarinnar í landinu þykja þessi tíðindi. Hing- að til hefur samvinnuhreyfingin verið eindreginn andstæðingur ríkisverzlunar, sem og flestir ís- lendingar, sem hafa bitra rcynsln af slíkum opinberum afskiptum. En ekki er að efa að auðvelt reynist að framkvæma stefnumál in svo fögur sem þau eru, þTÍ trúlega láta kommúnistar ekkfl sitt eftir liggja að styðja þesafl hugsjónamál Alþýðuflokksins. fslendingum er öllum kunnugt að ríkisstjórn Ólafs Thors hafði forystuna um aðgerðirnár í land- helgismálinu og það var hún sem kom því í framkvæmd að land- helgin var færð út um eina mílu. Það er þegar orðin söguleg stað- reynd sem ekki tjáir um að efast. Það kemur því úr hörðustu átt þegar Alþýðublaðið gerir tilraun til þess í leiðara á föstudag að væna Morgunblaðið um að hafa rofið einingu í landhelgismálinu, og kveður það hafa borið stjórn- inni á brýn að hún eigi sök á löndunarbanninu. Slíka reginfirru hefir blaðið auðvitað aldrei nefnt á nafn, enda erfitt fyrir hvern sæmilega greindan mann að geta sér til um hvernig sú furðuhugsun að fárra mánaða gömul stjórn eigi sök á margra ára löndunarbanni get- ur fæðst í heila nokkurs manns. Það eina sem Mbl. hefur um löndunarbannið ritað er að lík- legt sé að það leysist á næstunni. Það er staðreynd, og það er einnig von allrar þjóðarinnar að svo megi verða. Hér hefur engin ein- ing verið rofin, öll þjóðin er sam- mála um hagsmuni okkar í land- helgismálinu og það er Alþýðu- blaðinu einu til vansæmdar að reyna að þyrla upp moðreyk á þeim vettvangi. Norski flotinn vex ÓSLÓ, 12. okt.: — Norðmenn juku skipastól sinn um 188.000 tonn á öðrum ársfjórðungi þessa árs, en á fyrsta ársfjórðungi jókst hann um 132.000 torm. í júnílok taldi kaupskipafloíinn 6.182 skip, sem samanlagt voru 8.097.000 tonn. Hér eru með talin öll skip yfir 25 tonn, þeirra á meðal fiski- skip, hval- og selveiðiskip. Ef þau eru undahskilin er norski kaupskipaflotinn nú 3.280 skip og samtals 7.700,000 tonn. í þess- um flota eru 467 tankskip, sem alls eru 4.552.000 tonn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.