Morgunblaðið - 14.10.1956, Side 14
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 14. okt. 1958
M
Kommúnistar stórtapa
í Finnlandi
Bændaflokkurinn vinnur á — og fékk yfir 50%
greiddra afkvæOa
Helsingfors.
SVEITA- og héraðsstjórnakosningarnar í Finnlandi hafa
vakið mikla athygli. Ástæðan er sú að þetta er í fyrsía
skipti á tveimur áratugum sem andkommúnistaflokkarnir
hafa aukið fylgi sitt að mun. Hinir sigruðu í kosningunum
eru kommúnistar. Þykir það tíðindum sæta.
Jafnaðarmenn unnu dálítið á,
en þeir sem koma einkum með
sigur af hólmi eru Bændaflokks-
menn. Fengu þeir ásamt öðrum
borgaralegum öflum í landinu
6.210 fulltrúa kosna (52.0%
greiddra atkvæða). Jafnaðar-
menn fengu 2,540 fulltrúa
(26,2%) og kommúnistar 2,116 —
eða 21,6%, en höfðu yfir 23%.
Kommúnistar misstu höfuðvígi
sín í landinu. T. d. töpuðu þeir
meirihluta sínum í borginni
Kemí í norðurhluta landsins, þar
sem fylgi flokksins er mest, og
auk þess misstu þeir meirihlut-
ann í Kolari-héraði.
AKRANESI, 13 okt. — Tveir
reknetabátar voru úti i nótt og
fengu báðir síld, Reynir 106
tunnur og Guðmundur Þorlákur
66 tunnur.
í dag fara 10—11 bátar héðan
á reknetaveiðar. — Oddur.
N'ma Tryggvadóftlr
sýnir glermyndir
DÓMKIRKJURNAR miklu víðs
vegar um Evrópu, sem reistar
eru fyrir hundruðum ára, eiga
sérstaklega eitt sameiginlegt ein-
kenni: þ. e. gluggaskreytingar,
þótt oft séu þær gerðar í mjög
mismunandi stíl, eftir því hve
nær verkið er unnið. Eitt af því
mikilfenglegasta, sem til er í þess
um efnum, eru gluggaskreytingar
í dómkirkjunni í Chartres, svo
að eitthvað sé nefnt.
Nú á seinustu árum hefur átt
sér stað mikil endurvakning hjá
listamönnum, hvað þessa list-
grein snertir. Það hefur komið
í ljós, að nútímalist á sér mikil
og mörg tækifæri, einmitt í þess-
ari alda gömlu tækni glerskreyt-
inganna. Margir þekktustu lista-
menn samtíðarinnar hafa ein-
beitt sér við þessa grein myndlist
arinnar og náð sérlega góðum
árangri, sem er nátengdur nú-
tímasniði sjálfs byggingarstílsins.
Enda má fullyrða, að nútímalist
sé ekki óskyld, einmitt mörgu af
því, sem gert hefur verið í gler-
skreytingum fyrri tíma.
Nína Tryggvadóttir er einn
þeirra listamanna, er lagt hefur
fyrir sig glermyndagerð, og held
ur sýningu á verkum sínum þessa
dagana. Það er óþarft að kynna
Nínu sem listakonu fyrir íslend-
ingum. Hún hefur fyrir löngu
skapað sér nafn sem slík og telst
í flokki okkar beztu listamanna.
Stíll Nínu Tryggvadóttur í mynd
list virðist mjög vel fallinn til
þess að fella hann inn í gler-
skreytingar, og er árangur Nínu
eftir því. Verk hennar á þessu
sviði hafa ótrúlega svipaðan
blæ og málverk hennar. Það
hvarflar að manni, að hún sé
þegar búin að ná sama valdi yfir
þessari tækni og fyrri aðferðum
sinum, a.m.k., er hægt að full-
yrða, að glerskreytingar hennar
sverja sig algerlega í ætt við
önnur verk, er hún hefur látið
frá sér fara.
Eins og allir vita, er Nína
Tryggvadóttir þroskaður og um-
svifamikill málari, sem óefað á
eftir að vinna mikið og merkilegt
starf í glerskreytingu, ef dæma
má eftir þeim verkum, er hún
hefur þegar gert. Það vekur held
ur ekki furðu, að einmitt þessi
verk hafa vakið verðskuldaða
eftirtekt erlendis, og t. d. hafa
söfn í Þýzkalandi þegar eignazt
sum þeirra, og er það nokkur
heiður fyrir listakonuna. . fallið að skapa helgisvip innan
Þegar maður sér slík listaverk, veggja í kirkju og einmitt það
eftir íslending, hlýtur sú spurn- andrúmsloft, er ljósbrigði gler-
ing að vakna, hvort þjóðkirkjan myndar orsaka. Á fyrri öldum
geti ekki tekið þessa listgrein j vissu kirkjunnar menn vel hvað
betur í þjónustu sína en verið: þeir voru að gera, er þeir tóku
hefur. Fátt er eins vel til þess l þessa listgrein í þjónustu sína.
Myndin er af rúðu i nútíma íbúðarhúsL
Ég er sannfærður um, að gler-
myndir nútímans eiga mikla
framtíð í þeim byggingum, er nú
risa um heim allan og byggðar
eru í þeim stíl, er nú tíðkast. Það
er því gleðiefni að vita til þess,
að íslenzkir listamenn eru þegar
farnir að leggja hönd á þessa
listgrein og að til þess hefur
valizt fyrst hæfileikamanneskja,
sem þegar hefur sýnt, hvers hún
er megnug á þessu sviði
3. okt. 1956.
Valtýr Pétiursson.
Fegurðardísirnar eiga stranga daga í Lundúnum
SVO SEM kunnugt er fer nú
fram í London fegurðarsam-
keppni um „Miss World“ titilinn.
Á morgun koma stúlkurnar fram
í Licium-danssalnum á Strand,
og verða þar valdar úr hópnum
þær sex, sem hljóta verðlaun.
Endanleg úrslit munu hins vegar
ekki verða kunn fyrr en eftir 2
— 3 daga.
íslenzka fegurðardrottningin,
Ágústa Guðmundsdóttir, flaug
til Englands fyrir röskri viku,
svo sem kunnugt er, og hefur
hún komið afar víða fram við
góðan orðstír. T. d. var hún
önnur tveggja fegurðardrottn-
Anita Ekberg og Anthony Steel
í doiiitiefiidinni
inga, er BBC óskaði eftir að
kæmu fram í sjónvarpi.
Er fegurðardrottningarnar
komu fyrst fram fyrir dómnefnd
ina — þar sém blaðamenn og ljós
myndarar fjölmenntu einnig
mjög — varð íslenzka fegurðar-
drottningin fyrir leiðu óhappi.
Þann dag var Ágústa ekki heil
heilsu, enda voru þetta erfiðar
stundir. Ljósmyndarar voru
mjög ágengir og mynduðu feg-
urðardrottningarnar í ýmsum
stellingum. M.a. var Ágústa látin
sitja fyrir uppi á stórri slaghörpu
— og þá skyndilega — féll Ág-
ústa í yfirlið — og féll niður af
slaghörpunni Þetta er þó ekkert
einsdæmi, því að tyrkneska feg-
urðardrottningin varð fyrir ná-
kvæmlega því sama daginn eftir,
og fulltrúi Grikklands datt niður
stiga, er fegurðardrottningarnar
voru í boði hjá borgarstjóra
Lundúnaborgar. Þið sjáið því, að
á ýmsu veltur í London þessa
dagana — og meðfylgjandi mynd
er af Ágústu, er hún datt út af
slaghörpunni — og var gripin af
nærstöddum. Er myndin tekin úr
Lundúnablaðinu „Daily Sketch“.
Enda þótt Ágústa hafi orðið
fyrir þessu óhappi, hefur það
ekki skyggt á hana hið minnsta,
því að hún er mjög vinsæl meðal
jfegurðardrottninganna — og
einnig meðal blaðamanna og ijós-
myndara.
★
Dómnefndina skipa þau hjón
Anita Ekberg oð Anthony Steel,
auk Stirling Moss, sem er víð-
fræg kappaksturshetja — og
sjónvarpsmannsins Val Parnell.
Verðlaun sú, er „Miss World“
hlýtur, er Triumph sport-bíll af
nýjustu gerð. Fimm næstu hljóta
peningaverðlaun — og eru hæstu
verðlaun 150 sterlingspund.
Morgunblaðið hefur það
fyrir satt, að undirbúningur for-
ráðamanna keppninnar hér
heima að utanför Ágústu, hafi
verið mjög ófullnægjandi. Feg-
urðardrottningarnar þurfa að
koma fram við margvísleg tæki-
færi og verða þar af leiðandi að
hafa margs konar fatnað með-
ferðis. Mun þessi keppni frekar
líkjast tízkusýningu en fegurðar-
samkeppni í þeirri mynd er við
þekkjum til.
Allflestar hafa fegurðar-
drottningarnar snyrtidömu með
sér — og fararstjóra, en Ágústa
mun hins vegar hafa farið ein síns
liðs. Talið er, að aðdragandi
sjálfrar keppninnar, boð, sýning-
ar og ferðalög, er keppendurnir
taka þátt í, hafi mikið að segja
hvað viðvíkur endanlegum úr-
slitum, því að dómnefndin hefur
nánar gætur á öllum hreyfingum
stúlknanna. Þess vegna mun góð-
ur undirbúningur ekki hvað sízt
hafa áhrif á árangur keppend-
anna.