Morgunblaðið - 14.10.1956, Síða 19
Sunnudagur 14. olit 195fr
MORCVNBLAÐIÐ
19
Sænska símaverksmiðjan trics-
gerð taisíma
. „
MARGIR eru þeirrar skoðunar
að straumlínulöguð símatEeki séu
eitthvert fyrirbrigði sem tilheyri
kvikmyndum. Verður þá mörgum
hugsað til símatækjanna okkar,
sem bera nafn sænsku talsíma-
verksmiðjunnar L. M. Ericsson.
Skyldu þeir eiga svona fallag
símtæki?
L. M. Ericsson er meðal kunn-
ustu verksmiðjanna á þessu sviði,
nafn fyrirtækisins þekkt um
víða veröld, allt norður úr heim-
skauíhéruðum suður fyrir mið-
baug. Þar er stöðugt að því unnið
að gera enaurbætur og finna nýj-
ar leiöir á sviði talsímatækninn-
ar.
Þegar Landssími íslands minnt
ist hins merka afmælis, kom
hingað til lands einn af verk-
fræðingum L. M. Ericsson, Berg-
lund, að nafni. — Hingað kom
hann beint frá Kairo, þar sem
verksmiðjan er að setja upp
mikla símastöð. Hann var ekki
fyrr kominn hingað, en hann var I
kominn út í sjálfvirku stöðina
gömlu, til þess að skoða hana og
ræða við verkfræðingana um
ýmis tæknileg atriði viðvíkjandi
starfrækslunni, en sem kunnugt
er, þá er álag á stöðina alveg gíf-
urlegt.
*
í stuttu samtali við tíðinda-
mann Mbl., sagði Berglund frá
iiiílll
Berglund í skrifstofu póst- og
símamálastjórnarlnnar með
„Kobrasímann", sem er fislétíur.
því, að hjá hinu mikla fyrirtæki
störfuðu þúsundir manna. Hann
sagðist hafa komið hingað með
og fært Landssímanum að gjöf,
nýja gerð talsímatækja, sem ■
verksmiðjan væri nú að undirbúa
fjöldaframleiðslu á. Eru þessi
símatæki mjög frábrugðin þeim
sem nú eru alment notuð um
heimallan — dálítið „abstrakt",
að útliti til. Þetta símatæki er í
einu lagi, talfærið og símatækið
sjálft. Á botni tækisins er íúm-
eraskífan til að velja númer.
Sambandið rofnar, þegar tækið er
lagt á borðið að samtali loknu.
— Að lagi til minnir áhaldið
á Kobraslönguna, enda kallaði
Berglund símann eftir henni —
„Kobrasími". — Hann kvaðst
vera vongóður um að þessi nýja
símagerð myndi fljótt ryðja sér
til rúms um heim allan, því svo
mikla athygli vekti hún alls stað-
ar, þar sem hennar hefði verið
getið. Við erum vissulega ánægðir
því hér liggur að baki langt og
mikið starf margra sérfræðinga.
Hver veit nema að svona sima-
tæki komi innan margrá ára einn-
ig til íslands, sagði hann.
Berglund sagði, að Ericsson-
verksmiðjurnar væru nú að vinna
mikið verk fyrir íslendinga, en
það eru vélar í hinar nýju sjálf-
virku símastöðvar hér í Réykja-
vík, í Landssímahúsinu og síma-
húsinu við Suðurlandsbrautina.
Kvaðst hann vona, að með þess-
um tveim stöðvum myndi takast
að fullnægja í bili símaþörf
Reykvíkinga.
Berglund sagði að lokum, að
þessi ferð hefði í alla staði verið
hin ánægjulegasta og fór lofsam-
legum orðum um kynni sin af
starfsbræðrum hér og forráða-
mönnum Landssímans. Kvaðst
hann vona, að hann fengi brátt
tækiíæri á ný til að koma hingað
aftur.
hrærivélin og
sjálfhita-
stiilta Pani,a"
HEIMSÞEKKT HEIMILIST ÆKI HENTA
HAGSÝNUM HÚSM ÆÐRUM
SUNBEAM Mixmaster hrærivélin.
Fáar hrserivélar hafa náð jafn almennri
útbreiðslu hér á landi og hin handhæga
SUNBEAM Mixmaster hrærivél. Það er stað-
reynd að góð hrærivél auðveldar húsmóður-
inni heimilisstörfin. Máltíðirnar verða fjöl-
breyttari og betri. Baksturinn verður hrein-
legri, kökurnar ljúffengari og bragðbetri.
Þegar þér veljið yður hrærivél er yður
nauðsynlegt að vita þrennt: 1. að hún sé betri
en allar aðrar fáanlegar hrærivélar, 2. að
verðið sé engu að siður sambærilegt, 3. að út-
lit vélarinnar sé samkvæmt nýjustu kröfum.
Alla þessa kosti sameinar SUNBEAM Mix-
master hrærivélin.
Vélinni fylgir: 1. stór og lítil skál, 2. Þevtar-
ar, 3. Sitrónu-pressa. Hægt er að fá aukalega:
1. Grænmetiskvörn, 2. Hakkavél, 3. Drykkj-
arblandara, 4. Afhýðara.
SUWBEAÍIÆ Si^isnIBistæSiin
SUNBEAM sjáif-liitastillta pannan.
í þann stutta tíma, sem hin þekkta
SUNBEAM sjálf-hitastillta panna hefur
verið á markaðnum hér á landi, hefur
hún sannað húsmæðrum hið yfirgrips-
mikla notagildi sitt.
Panna þessi er allt annað en venjuleg
steikarapanna. Með aðstoð hennar þurf-
ið þér ekki lengur að óttast misheppn-
aðar máltíðir. Allt, sem þér þurfið að
gera, er að setja pönnuna í samband
við rafmagn — stilla hitastillinn og hún
matreiðir sjálf og til fullnustu.
Hægt er' að fá með pönnunni sérstakt
lok úr eldföstu gleri eða stáli.
fást uiyi land allt
Bólusetning
gegn mænusótt
á börnum 1—6 ára hefst í Heilsuverndarstöð-
inni við Barnónsstíg mánudaginn 15. otk. nk.
Kostnaður við bólusetningu hvers barns er ákveðinn
kr. 20.00, fyrir öll þrjú skiptin, og verða aðstandendur
að greiða þann kostnað við fyrstu inndælingu. Miðar þeir,
sem seldir voru í april—maí 1955, gilda sem greiðsla nú,
og eru þeir ekki bundnir við nafn barnsins. Fólk er vin-
samlegast bcðið að hafa með sér rétta fjárupphæð, til að
auðvelda afgreiðslu. Inndælingin er gerð í framhandlegg,
og eru aðstandendur bconir að búa svo um klæðnað barn-
anna, að auðvelt sé að bretta upp ermarnar báðum megin.
Barnadeild Heilsuverndarstöðvarinnar veTður lokuð
vikuna 15.—20. október, fyrir alla afgreiðslu aðra en
mænusóttarbólusctningu.
Gengið er inn frá Barónsstíg, norðurdyr.
Bólusett verður eftirtalda daga kl. 9—12 f. h. og 1—5 e.h.:
Mánudag 15. okt. Fyrir hádegi: Börn, sem eiga heima við Að-
alstræti, Alcurgerði, Amtmannsstíg, Aragötu, Ásvalla-
götu, Arnargötu, Ásveg, Auðarstræti, Austurbrún,
Austurstræti, Bakkagerði, Bakkastíg, Baldursgötu,
Bankastræti, Barðavog, Barmahlíð, Baldursgötu,
Eftir hádegi: Börn sem eiga heima við Bárugötu, Bás-
enda, Baugsveg, Bergstaðastræti, Bergþórugötu,
Birkimel, Bjargarstíg, Bjarkargötu, Bjarnarstíg,
Blesugróf, Blómvallagötu, Blönduhlíð, Bogahlið, Bók-
hlöðustíg, Bollagötu, Bólstaðarhlið, Borgartún, Borg-
argerði, Bragagötu, Bröttugötu, Brautarholt, Brávalla
götu, Breiðagerði, Breiðholtsveg, Brekkustíg og
Brunnstíg.
Þriðjudag 16. okt. :Fyrir hádegi: Börn, sem eiga heima við
Bræðraborgarstíg, Bústaðaveg, Drafnarstíg, Drápu-
hlíð, Drekavog, Dyngjuveg, Efstasund, Eggjaveg, Egils
götu, Eikjuvog, Einholt og Eiríksgötu.
Eftir hádegi: Börn sem eiga heima við Elliðaveg,
Engihlíð, Engjaveg, Eskihlíð, Fálkagötu, Faxaskjól,
Ferjuvog, Fjallhaga, Fjólugötu, Fjölnisveg, Flókagötu,
Flugvallarveg, Fornhaga, Fossagötu, Fossvogsveg,
Frakkastíg, Framnesveg, Freyjugötu, Fríkirkjuveg,
Garðastræti, Garðsenda, Granaskjól, Grandaveg,
Grenimel, Grensásveg og Grettisgötu.
Stjórn Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur.