Morgunblaðið - 02.11.1956, Qupperneq 12
J2
MORCUNBLAÐIÐ
Föstudagur 2. móv. 1&5«
mtMflfrife
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjami Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands.
X lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Mættuásiand
ÞAÐ getur naumast valdið á-
greiningu, að í dag er heims-
friðurinn e.t.v. í meiri hættu en
nokkru sinni síðan Kóreustyrj-
öldinni lauk. Ber þar einkum
tvennt til.
í fyrsta lagi það ástand, sem
skapazt hefur í leppríkjum Rússa
í Austur-Evrópu. Þjóðir þeirra
ríkja eru nú orðnar langþreytt-
ar á hinni vægðarlausu kúgun,
einræði og ofbeldi, sem þær hafa
orðið að búa við af hálfu Rússa.
Jafnvel leiðtogar kommúnista í
þessum löndum og utan þeirra
hafa neyðzt til þess að játa, að
þar hafi svívirðilegum kúgunar-
aðgerðum verið beitt af hálfu
Sovétríkjanna. Þjóðirnar hafi
bókstaflega verið rændar öllu
frelsi, afkoma þeirra hafi stór-
versnað, verkamönnum hafi ver-
ið haldið í svelti og hinir komm-
únísku valdhafar hafi misnotað
aðstöðu sína á alla lund.
Gegn þessu ástandi eru þjóðir
Austur-Evrópu nú að rísa upp.
Pólverjar hafa rekið Rokossov-
sky, hinn rússneska hermálaráð-
herra heim og fólkið hefur kraf-
izt raunverulegs lýðræðis í land-
inu. Kommúnistar halda að vísu
ennþá völdum. En þeir hafa
neyðzt til þess að lýsa yfir and-
stöðu við yfirdrottnan Rússa og
„einsflokksskipulag" þeirra.
í Ungverjalandi kom hins
vegar til blóðugrar uppreisn-
ar. Er ennþá óséð, hver ár-
angur hennar verður. En
kommúnistar hafa neyðzt til
þess að kref jast þess að Rauði
hcr Rússa hverfi þaðan og
lýðræðislegt stjórnarfar verði
upp tekið.
Hvað gera Rússar?
í bili hafa Rússar látið svo,
sem þeir mundu verða við kröf-
um Ungverja, flytja her sinn
burtu úr Ungverjalandi og láta
af íhlutun um ungversk innan-
ríkismál. En hver treystir þeim
loforðum?
Vitað er að stórkostleg ólga
er í öðrum leppríkjum Rússa.
Einnig þar getur brotizt út blóð-
ug bylting gegn kommúnisman-
um og kúgunarstjórn Rússa á
hverri stundu. Treysta hinar
kúguðu þjóðir mjög á stuðning
vestrænna lýðræðisþjóða í frels-
isbaráttu sinni.
Þegar á allt þetta er litið
verður auðsætt að friðurinn
í Evrópu er ákaflega ótryggur
um þessar mundir. Kúgunar-
og útþenslustefna kommún-
ista hefur teflt honum í voða.
Undirokun frjálsra þjóða hef-
ur ævinlega i för með sér
ófriðarhættu. Fyrr eða síðar
kemur að því að hinar kúg-
uðu þjóðir hrista af sér okið.
Og þau átök kosta oftast blóð-
fórnir.
Einræðisstefna Rússa er
þannig frumorsök hins mikla
hættuástands í Evrópu í dag.
Austur við Súez.
Austur við botn Miðjarðarhafs
hafa horfur stöðugt orðið ugg-
vænlegri undanfarna mánuði.
Síðan Nasser einræðisherra
Egypta braut alla samninga um
Súezskurðinn og tók stjórn hans
einhliða 1 sínar hendur hefur í
raun og veru ríkt hættuástand á
þessum slóðum. Enníremur hafa
Egyptar og fleiri Arabaþjóðir átt
í stöðugum illdeilum við hið
unga Ísraelsríki.
UTAN UR HEIMI
JL„, ue^nct re
^Qóraeíómenn
'Éuót
^egn
?
Nú hafa fsraelsmenn hafið
árás á Egypta. Má nú segja að
styrjöld sé hafin milli þessara
þjóða. Með því var allri um-
ferð um Súez-skurð ógnað.
Töldu þá Bretar og Frakkar að
þeir yrðu að grípa í taumana.
Settu þeir báðum aðiljum,
ísraeXsmönnum og Egypbum
úrslitakosti. Voru þeir í því
fólgnir að deiluaðiljar skyldu
halda herjum sínum í tiltek-
inni fjarlægð frá Súez-skurð-
inum.
ísraelsmenn gengu að þessum
kostum en Egyptar höfnuðu þeim.
Bretar og Frakkar hófu þá hern-
aðaraðgerðir gegn Egyptum með
það takmark fyrir augum, að því
er virðist, að taka Súez-skurð á
sitt- vald.
Hættuleg valdbeiting.
Þeir atburðir, sem gerzt hafa
við austanvert Miðjarðarhaf
síðustu daga eiga sjálfsagt eft-
ir að skýrast betur. En á þessu
stigi málsins er þó ástæða til
þess að harma það, að tvær
af forystuþjóðum vestræns
lýðræðis, Bretar og Frakkar
skuli hafa gerzt berir að vopn-
aðri valdbeitingu til þess að
skera úr deilu sinni við aðrar
þjóðir. Nasser Egyptalandsfor-
seti hefur að vísu komið mjög
dólgslega fram. Hann hefur
rofið samninga og beitt hótun-
um og ofbeldi. Engu að síður
er það stórhættulegt, að Bret-
ar og Frakkar skuli hafa hafið
hernaðaraðgerðir gegn Egypt-
um. Ofbeldið er fordæman
legt hver sem í hlut á.
Að sinni verður ekki fjölyrt
um horfurnar á þessum slóðum.
En ókleift er að spá nokkru um
það, hvaða afleiðingar þau hern
aðarátök kunna að hafa, sem nú
eru hafin við Súez. Aðeins eitt
er víst og augljóst: Engin trygg-
ing er fyrir því að þessi átök
breiðist ekki út og geti orðið stór-
um víðtækari en þau eru í dag.
Ofbeldið ógnar
heimsfriðinum
Þegar litazt er um í alþjóða-
málum í dag verður það ljósara
en nokkru sinni fyrr að ofbeldi
og einræði felur ævinlega í sér
mestu hættuna fyrir heimsfrið-
inn. Einræði og kúgun Rússa og
kommúnista hefur valdið upp-
reisnum og blóðfórnum í Evrópu.
Samningsrof og nú ofbeldisað-
gerðir fyrir botni Miðjarðarhafs
kunna að hafa ófyrirsjáanlegar
afleiðingar.
Til þess er vissulega rík
ástæða að vera mjög uggandi
um horfur í alþjóðámálum um
þessar mundir. Dimmir skýja-
flókar eru þar á lofti. Vand-
séð er, hvernig úr þeim kann
að greiðast.
kJkammt er nú stórtíð-
indanna á milli. í fyrri viku
vakti frélsisbarátta ungversku
þjóðarinnar athygli alheims, en
nú tala menn vart um annað
meira en atburðina fyrir botni
Miðjarðarhafsins. Aðdragandi
þess, sem þar er nú að gerast, er
orðinn langur. Alltaf var vitað,
að fyrr eða síðar skærist í odda
með ísraelsmönnum og Egyptum,
en hins vegar kom mönnum það
á óvart, að ísraelsmenn skyldu
eiga frumkvæðið að skipulagðri
innrás. Að vísu hafa verið stöð-
ugar smáskærur á landamærum
ísraels og Arabaríkjanna — og
hafa þá hvorir kennt öðrum um
upptökin. Nú sögðust ísraels-
menn hins vegar ekki þola órétt-
inn öllu lengur — og létu til
skarar skríða. Tilgangurinn er
sá einn, segja þeir, að eyða
egypzkum herstöðvum á Sinai-
skaganum, sem undanfarið hafa
verið notaðar til árása á ísraels-
E,
n hvernig stendur á
því, að Israelsmenn þora að
leggja út á svo hálan ís? Gæti
þetta ekki kostað þá það, að Ar-
abaríkin risu öll upp sem einn
og rækju Israelsmenn í sjóinn ef
svo mætti segja? Israelsmenn eru
tæpar tvær milljónir, en Arabar
35 milljónir. Er ekki við algert
ofurefli að etja?
/aður en við komum að
svari þessarra spurninga skulum
við athuga málavexti lítið eitt.
Löngum hefur þótt hætta á að
„púðurtunnan" fyrir botni Mið-
jarðarhafsins springi. Arabar
hafa lýst það köllun sína að
reka Israelsmenn úr álfunni —
og þeir hafa búið sig dyggilega
undir það. Egyptar hafa tekið
forustu í Arabaheiminum og
kommúnistar hafa látið Egypta
hafa ógrynni vopna. Vesturveldin
bundust hins vegar samtökum
um það, að láta hvorugán að-
ílann, Israelsmenn eða Araba,
hafa vopn — til þess að auka
ekki á ófriðarhættuna í þessum
heimshluta. En vopn'frá komm-
únistum héldu áfram að streyma
til Egyptalands, Israelsmenn fóru
að óttast um hag sinn — og leit
uðu þráfaldlega eftir vopnum
hjá Vesturveldunum. Þrátt fyrir
þetta fengusL Vesturveldin ekki
tU þess að selja þeim vopn-------
nema mjög lítið.
ð úez-deilan kom til sög-
unnar. Öllum eru þeir atburðir
kunnari en svo, að atburðarásina
þurfi að rekja nákvæmlega hér.
Með þjóðnýtingaráformum Eg-
ypta komust Vesturveldin — og
þá sérlega Frakkland og England
í mikinn vanda. Segja má, að
efnahagslíf þessara þjóða sé
grundvallað á hráefnaflutningum
frá Austurlöndum — og ótryggar
siglingar um Súez-skurðinn gætu
haft í för með sér alvarlega rösk-
un á efnahagslífi þessara þjóða.
Þegar er sýnt, að Egyptar ætla
að hafa í frammi hlutdrægni
gagnvart þeim, er sigla þurfa um
skipaskurðinn. Israelsmenn eru
algerlega ófriðhelgir þar — og
jafnframt þau skip, hverrar þjóð-
ar sem þau eru, sem sigla á veg-
um Israelsmanna.
L
Uppdráttur þessi er af Sinai-skaganum og næsta nágrenni. Skag-
inn er egypzkt landsvæði, en fsraelsríki liggur fyrir norðan skag-
ann. Súez-skurðurinn skilur skagann frá sjálfu Egyptalandi. Örv-
arnar á myndinni sýna staðiim, þar sem ísraelsmenn fóru yfir
landamærin — og benda þær í þá átt, sem þeir sóttu fram — í
áttina að Súez-skurðinum. Nú hafa hersveitir þeirra tekið sér
stöðu um 16 km. frá skurðinum.
sraelsmenn óttast mjög
hinn vaxandi herstyrk Araba-
ríkjanna — og vita, að sá dag-
ur kemur, að þeir láta verða
af hótunum sínum í þeirra garð
— og láta til skara skríða. Skoð-
un Israelsmanna er sú, að því
lengur, sem beðið er — því öfl-
ugri verði Arabar — og þeim
mun erfiðara við þá að eiga.
Framkoma Araba gagnvart þeim
þjóðum, sem hagsmuna eiga að
gæta í Súez, hefur einnig verið
með þeim hætti, að víst er, að
Israelsmönnum hefði verið veitt-
ur stuðningur, ef Egyptar hefðu
ráðizt á þá. Hins vegar sá enginn
það fyrir, að Bretar og Frakkar
mundu taka í taumana, ef Isra-
elsmenn gripu til vopna að fyrra
bragðL
f i ð spurðum í upphafi
— hvort það væri ekki mikil
áhætta fyrir Israel, að leggja út
í styrjöld við Araba. Staðreyndin
er þó sú, að Israelsmenn geta
með mjög stuttum fyrirvara
kvatt fleiri menn til vopna en
Arabar, ef á þarf að halda. Isra-
elsmenn hafa löngum búizt við
styrjöld. Þeir hafa verið vakandi
— og undirbúið sig eftir beztu
getu. Ef í nauðirnar rekur getur
herstjórn landsins kvatt meira en
helming þjóðarinnar til vígstöðv-
anna með nokkurra stunda fyrir-
vara. Jafnvel tólf ára piltum er
kenndur vopnaburður í Israel —
og nokkru eldri stúlkum. Isra-
elsmenn eru samtaka, ef á þarf að
halda — og þar mun öll þjóðin
berjast sem einn. Arabar hafa
hins vegar ekki nema Í4 milljón
undir vopnum, en þeir eru að
vísu mun betur vopnum búnir en
Israelsmenn — það gera vopna-
sendingar kommúnista. Varalið
Egypta er hins vegar ekki ýkja-
mikið miðað við varalið Israels-
manna. Arabar munu ekki
standa sem einn — á sama hátt
og Israelsmenn. Vafalaust mundu
Israelsmenn geta yarizt, ef til
allsherjarátaka kæmi, og engin
utanaðkomandi öfl kæmu þar til
greina.
Kjóllinn hennar Anitsi
ELÍSABET Englandsdrottning
hafði á mánudaginn boð inni
fyrir ýmsa fræga kvikmynda-
leikara í tilefni konunglegrar
kvikmyndahátíðar, sem stend-
ur yfir um þessar mundir þar
landi. Meðal gestanna voru
þær Marilyn Monroe og Anita
Ekberg. Var Marilyn klædd
mjög fögrum, flegnum, síðum
kjól, en kjóll Anitu var hins
vegar óvenjulega aðskorinn.
Allir gestirnir röðuðu sér í
eina röð — og gekk drottning
síðan fram — og heilsaði ein-
um af öðrum. Það, sem sér-
lega vakti athygli í samkvæmi
þcssu var tvennt: Marilyn virt
ist mjög feimin og ókyrrðist
jafnvel lítið eitt, er drottning-
in nálgaðist, en slíkt mun
aldrei hafa sézt á Marilyn í
opinberu lífi. Hitt var, að
Anita Ekberg var sú eina allra
gestanna, sem ekki hneigði sig
fyrir drottningu. Og hver
haldið þið að ástæðan hafi
verið? Jú, kjóllinn var of
þröngur. Blaðamenn í Eng-
landi, Bandaríkjunum og jafn-
vel Norðurlöndum gera sér
mikinn mat úr þessu ipeð kjól-
inn hennar Anitu — og má
ætla að hún uni vel öllu þessu
umtali — og láti ekki víkka
kjólinn.
E:
n með því að ráðast
inn á Súez-svæðið „tryggja**
Israelsmenn viðsjárvert ástand
við skipaskurðinn. Bretar og
Frakkar hafa áður gefið yfir-
lýsingar um að þeir myndu
umsvifalaust skerast i leilt-
inn, ef eðlilegum siglingum
um skurðinn yrði hætta búin —
og slík hefur reyndin einnig
orðið..