Morgunblaðið - 02.11.1956, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.11.1956, Blaðsíða 15
Föstudagur 22. nóv. 1956 M ORGVMiLAÐlÐ 15 Danslagakeppni S.K.T. HÉR með fylgir atkvæðaseðill Danslagakeppni S.K.T. 1956, er nú stendur yfir. Væntanlegir þátttakendur í at- kvæðagreiðslunni eru kvattir til að varðveita blaðið og atkvæða- seðilinn þangað til útvarpað verð ur frá keppninni. En það verðui væntanlega fljótlega, og þá til kynnt með fyrirvara. Til verðlauna er að vinna, meu þátttöku í atkvæðagreiðslunni. Þeir, sem merkja við þau þrjú lög í hvorum flokki, — gömlu dönsunum og nýju dönsunum, sem flest atkvæði hljóta að lok- um, geta fengið að verðlaunum: Gítar, um 500,— kr. virði, sem hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga- dóttur í Reykjavík gefa keppn- inni í nýju dönsunum, — og óperu, á plötum, eftir eigin vali, sem hljóðfæraverzlunin Fálkinn í Reykjavík gefur keppninni í gömlu dönsunum. Verði fleiri en einn í hvorum flokki með rétta atkvæðagreiðslu, verður varpað hlutkesti. Nafn: Höfundur þess lags, sem fær flest atkvæði samanlagt, hlýtur,' að verðlaunum flugfar til Kaup- mannahafnar og heim aftur, sem Flugfélag íslands gefur sigur- vegaranum, — og vikudvcí í Höfn, er ferðaskrifstofan Orlof í Reykjavík gefur sigurvegaran- um. Mun hún einnig koma lag- inu og höfundi þess á framfæri á helzta skemmtistað Kaup- mannahafnar. Ennfremur gefur Sameinaða fargjald til Kaupmannahafnar og heim aftur þeim, sem verður efstur í hinum flokknum. Hver þátttakandi í atkvæða- greiðslunni á að merkja við þrjú lög í hvorum flokki. Það má hvorki merkja við fleiri né færri en þrjú lög í hvor- um flokki, því þá er atkvæða- seðillinn ógildur. Atkvæðin verða talin og birt viku eftir að útvarpað hefur ver- ið. Utanáskriftin er: Pósthólf 88, Reykjavík. Bréf. „Exersexes" Hr. ritstjóri! FYRIR skömmu hlýddi ég á barnatíma Ríkisútvarpsins. Stjórnandinn er námsstjóri. Hann tók að fræða börnin um Grikki og samskipti þeirra við Xerxes. Birtist þá þrjátíu ára gamall kunningi minn frá skólaárunum, sem sé „Exersexes". Árni Pálsson hafði tekið nú- verandi héraðslækni einn upp í þessum kafla fornsögunnar. Ný- sveinninn féll í sömu gröf og námsstjórinn á dögunum, hann íslenzkaði nafn þessa forna pers- neska heiðursmanns, kallaði hann „Exersexes“. Það þurfti minna til, að ásjóna Árna Páls- sonar formyrkvaðist og það í fyrsta tíma á mánudegi. Segja mætti, að slysni náms- stjórans væri varla umtalsins verð og sambærileg gati sveins- ins hjá Árna Pálssyni. Svo er þó ekki. Annars vegar er nýsveinn í skóla, tekinn óvænt upp, lítt lesinn á mánudagsmorgni, haf- andi takmarkaðan áhuga á efn- inu og aðeins hraðfleyga helgi til undirbúnings. Hins vegar er námsstjóri heils landsfjórðungs, sem af innri köllun og frjálsum vilja fer að „fræða“ gjörvöll landsins börn. Umbununin er líka misjöfn. Vinur minn, lækn- irinn, uppskar aðeins háð og spé og olli vinsælum kennara sárrar hryggðar. Námsstjórinn þiggur fé úr almanna sjóði, þakklæti allrar þjóðarinnar og von bráðar riddarakross. J. Á. G. RACNAR JÓNSSON hæstaréltarlögmaður. Laugavegi 8. — Sími 7752. Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla. LÖGIN VIÐ GÖMLU DANSANA: Nóttin og þú .............................. eftir B-6. Akranes-skórnir .................... eftir Þórð skóara. Heim vil ég ............................ eftir Tvíbein. Greikkum spor ............................. eftir Nóa. Sonarkveðja ............................. eftir Es-dur. Þú gafst mér allt ............... eftir Mörlanda. Á gömlu dönsunum (Hæll og tá> . ...... eftir Jóa. ^GIN VIÐ NÝJU DANSANA Bláu augun ............................. eftir Baldursbrá. Hvítir svanir ............................... eftir Ómar. Kveðja förusveins ............................ eftir Jónas. f maí.......................................... eftir E. S. Þú ert vagga mín, haf ....................... eftir Háseta. Viltu koma? ............................... eftir Glettinn. Við gluggann ................................ eftir Donna. ' 'jrið svo vel að setja kross (X) framan við nöfn þriggja laga, .ivorum flokki, — þeirra sem yður þykja bezt. T rétex Höfum fyrirliggjandi trétex í stærðunum 4X8 og 4X9 fe*. Texið er geymt í upphitaðri geymslu. Sendum heim kaupendum að kostnaðarlausu. Hagstætt verð. ftfarpa hf. Einholti 8 Sendiferðahíll Tilboð óskast í Fordson sendiferðabíl. Verður til sýnis í dag eftir klukkan 1. ÞVOTTAHÚSIÐ GRÝTA Laufásveg 9. Til sölu Fasteignin Linnetstígur 6, Hafnarfirði, er til sölu. Verður til sýnis laugardaginn 3/11 kl. 2—6. — Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Fasteign — 3173“. Fulltrúastaða er laus til umsóknar. — Upplýsingar hjá undirrituðum eða dómsmálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur er-til 15. nóv. nk. Bæjarfógetinn á Isafirði. Heimilisfang: ..................... — Grein R. Becks Fxh. af bls 10 ; . anna, er hann lýsir, á úrslita- . , indunum í lífi þeirra. Hér koma ;.rgir og ólíkir við sögu, en öll- um er þeim, hvort sem þeir leika mikið eða lítið hlutverk á leik- sviði sögunnar, lýst af svo næm- um skilningi og brugðið yfir þá svo björtu ljósi raunveruleikans, r.ð þeir standa lesandanum lifandi íyrir sjónum að loknum lestri. Blindum augum leitar þetta fólk hamingjunnar, auðugra og æðra lífs, með ýmsum hætti; uppreisn þess gegn umhverf sínu finnur sér, með öðrum orðum, framrás í mismunandi myndum, og fer það eftir aðstöðu þess og lífsviðhorfi. Minnisstæðust allra, sem bar- áttu sína heyja á þessu sögu- sviði, verður lesandanum þó vafa laust Birna Þorbrandsdóttir, um- komulaus stúlka, sem hefur sig upp úr niðurlægingu og þræl- dómi; hlotnast það æðra líf, sem hún leitar eftir, og lyftir jafn- framt manninum, sem hún elsk- ar, Torfa Loftssyni, með sér upp úr djúpi örvilnunar inn í heim nýrra vona og framtíðartrúar. Ástin er því mikill örlaga- og máttarvaldur í þessari sögu. Og það er einmitt í hinni djúpu og fórnfúsu ást, sem Birna finnur það æðra líf, sem hún hefir ver- ið að leita eftir, eða eins og hún skilgreinir það fyrir Jóni blinda, sem niðurlægt hafði hana og lítilsvirt: „Æðra líf er að vera fær um að hlusta á þig og hafa þig fyrir augunum án þess að fyrirlíta þig og fyllast viðbjóði, og að láta þig ósjálfbjarga ekki gjalda þess í dag að þú spýttir á mig heil- brigður í gær. Já, ég held, að ég hafi fundið æðra líf, Jón minn“. Birna er komin út úr myrkri nótt ömurleikans inn í glaðbjart an dag, eða eins og hún orðar það nær sögulokum: „Mér finnst ég hafa verið með ykkur í blindingsleik, þar sem allir höfðu bundið íyrir augun og enginn sá hvað hann var að eltast við. En nú tökum við ekki lengur þátt í þeim leik, Torfi — er það?“ „Nei,“ svarar hann lágt. „Ég held þú sért í þann veginn að leysa bindið frá augunum á mér, Birna. Mér hefur alltaf fundizt ég einbúi í dimmum köldum skugga, og einskis virði allt sem ég hef gert, en þessi tilfinning þjakar mig ekki núna. Það er eins og að hafa verið mikið veik- ur, en finna allt í einu ekki leng ur til.“ Síðan kveðjast þau ástúðlega og halda hvort sína leið, „þangað sem þau vissu aö þörfin fyrir þau var brýnust.“ En menn verða sjálfir að lesa þessa sögu gaumgæfilega, eins og hún á skilið, til þess að njóta hennar til fulls, þeirrar snilldar I frásögn og djúpsæju túlkunar sálarlífsins og mikilla örlaga, sem hún hefir að geyma. Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergs son), sem sjálfur er einhver mesti snillingur núlifandi í íslenzkri smásagnagerð, segir, að Blind- ingsleikur sé „alveg vafalaust meistaraverk“. Hann hefir rétt að mæla, og eins í þessum viðbót- j arorðum: „Saga þessi stendur tví j mælalaust í röð bezt rituðu skáld- j sagna nú á tímum. Þorpið og 1 fólkið, sem hún íjallar um,' gleymist ekki þeim, er söguna lesa. Þrátt fyrir hið alvöru- þrungna efni er sagan mjög skemmtileg aflestrar, vegna hins mikla hraða, lifandi stíls og við- burðaríks efnis.“ (Eimreiðin, janúar-marz 1956). Með þessari efnismiklu og snilldarlegu skáldsögu sinni og með beztu smásögum sínum hef- ir Guðmundur Daníelsson unnið sér sess innarlega á bekk fremstu samtíðarskálda í sagnagerð. FRÁ TÉKKÓSLÓVAKÍU : FaUeg snið úr frábæru efni. REGNFRAKKAR úr ull og gabardine. Umboðsmenn: O. 31. Albertsson Laugavegi 27 A — Sími: 1802. i s i í í I \ ! I í I ; \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.