Morgunblaðið - 02.11.1956, Qupperneq 24
Veðrið
SV og S kaldi. Dáiítil rigaing
eða súld.
0í’ðMÍ#fa®>ÍÍÍ>
252. tfol. — Föstudagur 2. nóvemfoer 1956.
Frá Búdapesf
Sjá MaðsíSu R
SICRAR ALÞÝÐAN KÚCARANA?
„FreSsssbamttan austan
járntýaldls" rœéd á sam-
komu HesnuSaSSar í kvöld
IKVÖLD ld. 8,30 hefst í Sjálfstæðishúsinu samkoma, sem
Heimdallur, F.U.S., gengst fyrir til að minnast átakanna
fyrir austan járntjald, þar sem hinar kúguðu þjóðir eru að
reyna að brjótast undan oki kommúnismans.
Pétur Benediktsson, bankastjóri, sem lengi var sendiherra
íslendinga í járntjaldslöndunum og er gjörkunnugur högum
þeirra, flytur erindið: „Frelsisbaráttan austan járntjalds“.
Sr. Sigurður Einarsson, skáld í Holti, flytur stutt erindi:
„Gef oss vort land“.
Guðmundur Jónsson, píanóleikari leikur einleik. Lokaorð
flytur Geir Hallgrímsson, lögfræðingur.
Pétur Sæmundsen, formaður Heimdallar, setur samkom-
una og stjórnar henni.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur að samkomunni meðan
húsrúm leyfir, en tekið verður á móti fjárframlögum frá
þeim, sem kynnu að vilja styrkja bágstadda Ungverja.
Þeir, sem í kvöld koma í Sjálfstæðishúsið, sýna með því
samhug íslendinga með þjóðum þeim, sem búa við áþján,
en um leið gefst þeim færi á að kynnast betur þeim atburð-
um, sem kunna að valda tímamótum í mannkynssögunni og
aðdraganda þeirra.
Sr. Sigturður Einarsson
Geir Hallgrímsson
Fétur Benediktsson
Matgir aðilar sameinast um
byggingu stórhýsis til sýn-
inga og íþrótta
Valinn staður v/ð Suðurlandsbraut
Borgarstjári gerir grein fyrir málinu
ABÆJARSTJÓRNARFUNDI i gær kom til umræðu bygging
sýningar- og íþróttahúss við Suðurlandsbraut.
Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, fylgdi málinu úr hlaði. Hann
sagði að undanfarið hefði verið ljóst að þörf væri á allmörgum
stórbyggingum til sýninga fyrir vörur og í sambandi við íþróttir,
listir o. s. frv. Ýmsir aðilar, svo sem iðnrekendur og íþróttasam-
tök hafa haft uppi ráðagerðir í þessu efni.
f því sambandi má benda á
ráðagerðir Bandalags æskulýðs-
félags Reykjavíkur (BÆR) og
íþróttabandalags Reykjavíkur
(ÍBR) um byggingu æskulýðs-
hallar og íþróttahúss og hefur
verið veitt fé til þessa og staður
ákveðinn. Myndlistaskálinn við
Kirkjustræti er ekki til fram-
búðar og hafa listamenn hugsað
til byggingar sýningarhúss.
Einnig er mikil þörf á stórum
húsakynnum til fundahalda,
hljómleika, hvers konar sýninga
1 sambandi við landbúnað og
garðyrkju, þing samtaka o. s.
frv. Það hefur komið í ljós að
þarfirnar eru brýnar og kom sú
hugsun upp að rétt væri að sam-
eina alla þá aðila, sem hlut eiga
að máli og fá þá til að vinna
saman að framkvæmdum.
Hefði Jónas B. Jónsson fræðslu-
stjóri Reýkjavíkur gert um þetta
ýtarlegar tillögur.
Vegna þess kvaðst borgar-
stjóri hafa skipað 5 manna
nefnd þar sem sæti áttu full-
trúar frá Reykjavíkurbæ,
BÆR, ÍBR, Félagi ísl. iðnrek-
enda. — Fræðslustjóri var
formaður nefndarinnar og
skyldi nefndin gera tillögur í
málinu.
í bréfi borgarstjóra til for-
nanns nefndarinnar dags. 9. jan.
s. L segir m. a. svo:
„Nú hafa komið fram tillögur
«m að reisa í stað æskulýðshall-
ar byggingu, sem mundi bæta úr
brýnni þörf íþróttafélaganna,
vera hæf til skautaiðkana, leysa
húsnæðisþörf atvinnuveganna
fyrir stórar sýningar, vera hentug
til hljómleika, sýninga og skemmt
ana, enn fremur aðsetur fjöl-
mennra fundahalda.
Það sýnist óhjákvæmilegt að
reisa nú þegar íþróttahús fyrir
fjölmennar sýningar. Mundi það
að mestu leyti kostað af bæ og
ríki (íþróttasjóði). Áður en að
slíku er horfið, virðist eðlilegt
að athugaðir séu til hlítar mögu-
leikar á að sameina þarfir margra
aðila fyrir slíka byggingu, er að
framan greinir. Er þá og komið
í veg fyrir, að þeir' sömu aðilar
freisti þess að byggja hver fyrir
sig, aðeins með eigin þarfir að
takmarki.“
Nefndin átti viðræður við
marga aðila, sem svipað höfðu
á prjónunum og niðurstaðan var
sú að samin var tillaga um sam-
komulag að byggingu sýninga og
íþróttahúss og eru aðalatriði
hennar eftírfarandi:
Framlög aðila til byggingar-
framkvæmda, ábyrgð á skuld-
bindingum vegna þeirra og síðar
eignarhlutdeild aðila skiptist
þannig: Bæjarsjóður Reykjavíkur
51%, BÆR og ÍBR 8% eða sam-
tals rúml. 7/12, samtök atvinnu-
vega o. fl. 41% eða tæpl. 5/12.
Byggingarnefnd skal skipuð
fimm mönnum og fimm vara-
mönnum. Bæjarstjórn kýs tvo
nefndarmenn, borgarstjóri skipar
einn mann að fenginm tillögu
BÆR og ÍBR, en aðrir aðilar
kjósa tvo. Borgarstjóri skipar for-
mann nefndarinnar. Varamenn
skulu tilnefndir á sama hátt.
Byggingarnefndin sér um bygg-
ingu hússins að öllu leyti og fer
með stjórn þess, þar til smíði
hússins er lokið og sérstök hús-
stjórn hefur verið kosin.
Byggingin skal reist við Suð-
urlandsbraut neðanverða, sunn-
an fyrirhugaðs Þvottalaugavegar.
Bæjarráð hefur heitið því að ráð-
stafa ekki fyrst um sinn svæði
austur af fyrirhugaðri byggingu.
Byggingin skal vera 3—4000
fermetrar að gólffleti. Þar á
að vera einn stór sýningarsal-
ur, þay sem iðka má íþróttir.
Auk þess á að vera í bygg-
ingunni aðstaða til veitinga,
fundarherbergi, íbúð húsvarð-
ar og annað, er byggingar-
nefndin telur nauðsynlegt
vegna þess hlutverks) sem hús-
inu er ætlað.
Aðilar eru sammála um, að
notkun hússins skuli í rnegin-
atriðum hagað þannig: A) 1. maí
—30. sept. skal rekstur hússins
vera í höndum samtaka atvinnu-
veganna. B) 1. okt.—30. apríl fer
um reksturinn eftir reglum, er
bæjarráð setur að fengnum til-
lögum ÍBR og BÆR“.
Bæjarstjórn heimilaði borgar-
stjóra að gera samning á grund-
velli þeirrar tillögu, sem fyrir lá.
Fé á Fjöllum sjaldan
vænna en í haust
Meðaíþungi sláturfjár 16—18 kíló og þar yfír
Grundarhóli, Fjöllum, 29. október.
'Ú UM VETURNÆTUR, er lokið bæði skemmtilegasta og leiðin-
legasta tíma ársins, göngunum og sláturtíðinni. Tíðarfar var
heldur rysjótt um göngumar og gaf heldur illa til smölunar. Heimt-
ur voru þó sæmilegar að telja má eftir aðstæðum.
Nl
MEÐ VÆNSTA FÉ Á
LANDINU
Fé var hér með vænsta móti í
haust og hefur meðalvikt slátur-
fjár sjaldan verið betri, eða 16—
18 kíló og þar yfir hjá bændum
yfirleitt. Er það talsvert annað
en í lágsveitunum. Þar var fé
með lakasta móti sem það verður
í haust. Þyngsti dilkurinn hér
sem var frá dánarbúi Sigurðar
Þorsteinssonar í Hólseli, var 26
kg. Var fé dánarbúsins flestöllu
slátrað í haust. Þyngsta lambærin
þaðan var 36 kg., en þyngsti sauð-
urinn, sem var tveggja vetra, vó
43 kg. Gefur þetta greinilega til
kynna, að þarna hefur verið lagt menn
að velli eitthvert bezta fé á land-
inu.
Segja má, að síðastliðið sumar,
hafi verið hagstætt til búskapar
hér. Það voraði vel og gróður
kom snemma. Kuldar voru samt
nokkrir, yfir sauðburðinn, en
komu þó ekki að sök hvað lamb-
ær snerti. Þurr og köld tíð hélzt
allt fram í miðjan júlí. Olli hún
því, að grasið spratt hægt, eink-
um úthagar og þurrengi. Þetta
hafði samt þann kost, að féð tók
gróðurskiptunum mun betur og
mun vænleiki þess í haust vera
fyrst og fremst þessu að þakka.
Verknlýðs- og Sjómannafélag
Keflavíkur segír upp somningum
Keflavík, 1. nóv.
4FUNDI hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur í gær-
kvöldi, var samningum um kaup og kjör sjómanna sagt upp.
Ganga þeir úr gildi 30. desember n.k.
GOTT TÖÐUFALL AF TÚNUM
Um miðjan júlí gerði hér ótíð
með bleytum og kulda svo að ekki
kom þurr dagur á annan mánuð.
Þau tún sem óslegin voru fyrir
þennan vætukafla tóku þá að
spretta og urðu ágæt og gott töðu-
fall var af þeim, er stytti upp
seinnihluta ágústmánaðar.
Um þetta leyti komu nokkrar
frostnætur og féll þá svo gras á
engjum, að þær máttu heita ó-
slægar. Hefur sjaldan verið minna
um útheyskap hér en í ár.
GÓÐ BÚBÓT
Yfir óþurrkakaflann stunduðu
hér nokkuð brúarvinnu,
en eins og fyrr hefur verið skýrt
frá, voru byggðar hér þrjár smá-
brýr í sumar. Þótti mönnum það
hin bezta búbót, enda er það
svo hér, sem víða annars staðar
í sveitum, að bændum þykir það
fundið fé, að komast í vega- eða
brúarvinnu, jafnvel þótt um há
sláttinn sé.
GÓÐ HAUSTTÍÐ
í haust hefur verið hér bezta
tíð. Enda þótt veðurstofan hafi
öðru hverju verið að spá hér
stórhríð,hefur aldrei orðið úr
henni. í dag er sól og sunnan-
vindur og jörð alauð og bílfært
£ allar áttir.
AFLEITT HEILSUFAR
Heilsufar hefur verið fremur
slæmt hér í hreppnum, undan-
farið. Hefur fjórði hver sjúkra-
samlagsmeðlimur legið á sjúkra-
húsi á þessu ári, lengur eða skem-
ur og sumir jafnvel svo mánuð-
um skiptir. Ekki eru þetta þó um-
ferðasjúkdómar, heldur tilfall-
andi sjúkdómar sem að fólkinu
ganga. —Víkingur.
BREYTTAR AÐSTÆÐUR
Samningunum er einkum sagt
upp vegna breyttra aðstæðna hér.
Á komandi vertíð mun taka til
staría hér afkastamikil flökunar-
stöð og skapast þá möguleikar á
að taka afla bátanna beint í stöð-
ina og gera að honum þar.
AÐEINS 45 BJÓÐ
Vegna þessa mun verða hægt
að fækka landmönnum um 1 og
verða þeir þá 6 í stað 7 áður.
Þá er ráðgert að rá hámark á
línulengd bátanna og verði það
miðað við 45 bjóð, en áður hafa
þeir farið með allt að 52 bjóð-
um í róður. — Ingvar.
Orðsending frá
Happdrœtti Sjálf-
stœ&isflokksins
ÞAR sem enn vantar uppgjör frá nokkrum aðilum, hefur
verið ákveðið að fresta drætti í Happdrætti Sjálfstæðis-
flokksins þar til 12. nóvember næstkomandi.