Morgunblaðið - 13.11.1956, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 13.11.1956, Qupperneq 3
Þriðjudagur 13. nóv. 1956 M O R C Jl N R L A Ð 1Ð 3 Foroura logum Á HINUM fjölmenna aðal- fundi Sjálfstæðiskvenna- félagsins Hvatar í gær- kvöldi, flutti Bjarni Bene- diktsson ræðu, að loknum aðalfundarstörfum og gerði að umtalsefni ástandið í heimsmálunum og stjórn- málin hér á íslandi í dag. Fer ræðan hér á eftir: Bjarni Benediktsson gerði fyrst grein fyrir þróun. utanríkismál- anna að undanfömu, og sagði síðan: Menn hafa bundið of miklar vonir við veðrabrigðin í ITúss- landi. Deilt hefur verið um hvort þar væri um eiginlega eðlisbreyt- ingu að ræða eða aðeins nýja aðferð til að ná hinu sama, sem alltaf hefur verið stefnt að, al- heims-yfirráðum kommúnista. Úr þessu er nú skorið. Tilgangurinn er hinn sami og fyrr. Aðferðin nú er jafnvel harkalegri en nokkru sinni áður. Þess hefur ekki verið gætt sem skyldi, að vaidhafarnir í Moskvu hafa að vísu slakað nokkuð á einræði og ofsókn- um innan kommúnistaflokks- ins en eftir sem áður hafa ailir utan flokksins verið rétt- lausir. Þess vegna var í bili a. m. k. láíið gott heita, að kommún- istar í Póllandi skiptu um for- ystumenn, tii þess þannig að friða landslýðinn. En þegar Ungverjar reyndu að reka kommúnista aiveg af höndum sér var járntjaldið látið skella fyrir á ný og hin ógurlegustu múgmorð hafin á bak við það. SAMA AFLIÐ Því miður getum við íslend- ingar ekki látið svo sem þessir atburðir komi okkur ekki við. Sama aflið, sem er að verki í Ungverjalandi, hefur einnig mik- il áhrif í þjóðlífi okkar. Kommúnistar hér á landi hafa óneitanlega komið ár sinni vel fyrir borð. Þjóðin var komin vel á veg með að einangra kommúnista. Sú einangrun lék þá enn verr en allur almenningur gerði sér grein fyrir. Flokkurinn var að minnka stórlega og tapa áhrifum sínum. Margs konar aðferðir voru not- aðar til að rjúfa einangrunina. Nokkrar þeirra eru raktar í yfir- lýsingu MÍR, sem Þjóðviljinn birti á sunnudag. „Þó að aðfarir ráðstjórnar- innar í Ungverjalandi hryggi íslendinga, þá er ekki ástæða til að gleyma því á þessari stundu að ráðstjórnin hefur aldrei sýnt ísiendingum ókurt- eisi né yfirgang, öðru nær; að Ráðstjórnarríkin eru eitt helzta viðskiptaland vort; að vér höfum átt mörgum góðum gestum að fagna úr Ráðstjórn- arríkjunum, þar á meðal fá- gætum vísindamönnum og snillingum; og að íslendingar af öllum stéttum hafa notið gistivináttu og fyrirgreiðslu svo í menningarlegum og við- skiptalegum erindum i Ráð- stjórnarríkjunum, og eignazt þar vini.“ LJÓTASTA SETNINGIN Mætur maður sagði við mig í dag, að þetta, að íslendingar ættu að sýna umburðarlyndi yfir meðferð Rússa á Ungverjum af því, að þeir hefðu „aldrei sýnt íslendingum ókurteisi eða yfir- gang“ væri ljótasta setningin, sem hann hefði lesið. ððrum frá ör- Ungverjalands Bæða Bjiirna Benedikíssonar ó oðoifundi Hvatar í gær Én af þessu sjáum við hver til- gangurinn hefur verið með þeim aðgerðum, sem MÍR telur upp. Þjóðina hefur átt að múlbinda og koma í veg fyrir, að hún léti upp andstyggð sína á slíku at- hæfi, sem nú hefur verið framið í Ungverjalandi. En á fleira hefur verið treyst en hið rússneska gull eitt og vin- áttuna, sem það megnaði að kaupa. Metnaður einstakra ís- lenzkra stjórnmálamanna hefur og verið misnotaður í þessu skyni. FÉLL FYRIR FREISTINGUNNI Fáir íslendingar hafa farið harðari orðum um kommúnista en Hannibal Valdimarsson. En þegar hann hrökklaðist úr for- mennsku í Alþýðuflokknum sáu kommúnistar sér leik á borði og hagnýttu sér sárindi hans og buðust til að gera hann að for- seta Alþýðusambands íslands. Hannibal stóðst ekki freist- inguna og hefur síðan verið bandingi kommúnista. Fyrst fannst þeim betra að halda honum innan Alþýðu- flokksins. Þar gerði hann þeim mest gagn. En þegar einangrunin blasti við kommúnistum í vor vegna Stalins-afhjúpananna, var Hannibal notaður til þess að gefa kommúnistaflokknum nýtt naín og reyna þannig að fela hans sanna eðli. Með svipuðum hætti hefur sú sannfæring Hermanns Jón- assonar, að ísland hlyti að glatast, ef hann væri ekki sjálfur forsætisráðherra, verið notuð til þess að koma komm- únistum inn í rikisstjórnina. Til þess að svo mætti verða, þurfti að visu að ganga á bak hátíðlegra heita, sem voru gefin fyrir kosningar. Þau voru höfð að engu, þegar Hermann Jónasson sá, að hann gæti ekki náð völdunum með öðrum hætti en samvinnu við kommúnista. Þeir þurftu að vísu að aíneita mörgu, sem þeir höfðu áður sagt um efnahagsmálin til þess að komast í stjórnina. Kaup- bindingin er t. d. alger afneitun þess, sem kommúnistar hingað til hafa sagt um ástæður verð- bólgunnar. urinn samvinnu við Sjálfstæðis- menn um utanríkismálin og kusu heldur að leysa þau með komm- únistum. Núverandi ríkisstjórn mun og ekki lifa degi lengur en kommúnistum líkar stefna henn- ar í utanríkismálum. í AUGSÝN HEIMSINS Allir hafa þessir atburðir orðið íslandi til lítillar sæmdar út á við. Hermann Jónásson sagði í sumar í útvarpinu að nú greiddu íslendingar atkvæði um varnar- málin í augsýn heimsins. Þetta reyndist rétt. ísland hef- ur aldrei, hvorki fyrr né síðar, orðið svo umtalað víðs vegar um heim. Framsóknarmönnum hefur ekki líkað sá dómur, sem upp hefur verið kveðinn og kennt okkur Sjálfstæðismönnum um. Allt er þetta alger misskilningur. Sjálf- stæðismenn ráða engu um skrif erlendra blaða. Það eru atburðirnir sjálfir, samþykktin frá 28. marz og þátt- taka kommúnista í ríkisstjórn, sem hefur vakið ugg og kvíða hvarvetna meðai frjálshuga manna. Á sama hátt er það furðuleg- ur barnaskapur, þegar Tíminn nú kennir Morgimblaðinu um tíð- indi utan úr heimi. Morgunblaðið kemst vitan- lega ekki hjá því að segja frá helztu heimsviðburðum, þótt Hermanni Jónassyni þyki þeir óþægilegir, bæði vegna samstarfsins við kommúnista og stefnunnar í utanríkismál- um, sem haan hefur markað. VERBUR STEFNUBREYTING? Allir íslendingar spyrja nú: Hver áhrif hafa þessir atburðir á utanríkisstefnu íslands? Við Sjálfstæðismenn höfum af okkar hálfu svarað með þeim tveimur þingsályktunartillögum, sem við lögðum fram á Alþingi á föstudaginn. Kommúnistar hafa svarað með því að herða á því að ísland verði gert varnarlaust og að Atlantshafsbandalags- samningurinn sé „í raun réttri úr gildi fallinn.“ Lýðræðissinnar í stjórnarliðinu segja enn ekki neitt. Bæði Tím- inn og Alþýðublaðið reyna þó að taka upp glens í sambandi við þessar tillögur og er slíkt hugar- ástand þó fjarlægast öllum skyni bornum mönnum, er þeir hugsa nú um þessi mál. En þessum stjórnarliðum er sá sérstaki vandi á höndum, að við Sjálfstæðis- menn höguðum tillögugerð okkar og rökstuðningi hennar svo, að vitna sérstaklega til lýsinga og ummæla Alþýðublaðsins og Tím- ans um þessi má’ síðustu vik- urnar. SKÝR SVÖR HEIMTUÐ Við vissum, hvílíkum fjandskap orð og athafnir Sjálfstæðismanna eiga að mæta af hálfu ýmissa úr þessum herbúðum og kusum því heldur að vitna til þeirra eigin orða. Hrópyrði og skammir þess- ara manna um okkur skipta engu máli. Spurningin, sem allt á vélt- ur, er þessi: Hverjir eru þeir, sem vilja gera Island varnarlaust, eins og nú horfir í heiminum og hverjir eru hinir, sem með nauðsynlegum vörnum á íslandi vilja tryggja öryggi íslands og efla heimsfrið- inn, svo að öðrum þjóðum verði forðað frá hinum ömurlegu örlög- um Ungverjalands? At fjölum Þjóðleikhússins : Töfrafiautan frumsýnd um jólin jþJÓÐLEIKHÚSIÐ situr ekki auðum höndum þessa dag- ana. Þar er svo mikil önn að skortur á húsrými og öðru æfingarsviði er tilfinnanleg- ur. Þjóðleikhússtjóri skýrði blað- inu svo frá í gær, að nú væri unnið af kappi að æfingum á þremur verkum sem frumsýna á öll fyrir jól. Ilið fyrsta er brezka leikritið „Tondeleyo“ eftir Leon Gordon, sem sýnt verður í tilefni af aldar- fjórðungsleikafmæli Jóns Aðils á fimmtudag. Þá eru daglega æfingar á leik- riti sr. Sigurðar Einarssonar í Holti, „Fyrir kóngsins mekt“. — Það er sagnfræðilegs eðlis, fjall- ar um frelsisafsal íslendinga á 17. öld, Kópavogsfundinn og fleiri válega atburði úr sögu þjóðar- innar. Dr. Páll ísólfsson hefur samið tónlist við þetta leikrit séra Sig- urðar. Er þar bæði um forleik að ræða, tónlist milli atriða og kór- söng í leikriiinu sjálfu. Mun menn fýsa mjög að hlýða á verk Dr. Páll Isólfssort semur tónlist v/ð /i/ð nýja leikrit séra Sigurðar Einarssonar Sr. Sigurður Einarsson. þessara tveggja þjóðkunnu manna en leikritið verður frum- sýnt 30. nóv. Þá sýnir leikhúsið og óperuna Dr. Páll Isólfsson. „Töfraflautan“ eftir Mozart nm jólin. Það er mikið verk og hug- -júft, og verður víst eitt vinsæl- asta viðfangsefni leikhússins á þessu ári. Með aðalhlutverk fara Ágœft mót ungra Sjálf- stœðismanna að Hellu Geysilegur mannfjöldi sótti það ALAUGARDAGSKVÖLDIÐ efndi Samband ungra Sjálfstæðis- manna til móts að Hellu á Rangárvöllum. Var þar saman kominn geysimikill mannfjöldi og fór mótið hiö bezta fram, enda var vel.vandað ti) dagskrár. Gunnar Thoroddsen borgarstjóri flutti ágæta ræðu um atburðina fyrir austan járntjald. EINANGRUNIN LÉK ÞÁ ILLA En hér var meira í húfi. Ein- angrunin hafði leikið kommún- ista svo illa, að þeir vildu allt til vinna að sleppa úr henni. Reynslan hefur nú sýnt, að um þetta hafa þeir séð rétt. Ef þeir nytu nú ekki þess skjóls að vera í stjórnarsamvinnu við tvo lýð- ræðisflokka, mundu kommúnist- ar hafa veslazt upp og eyðzt sem afl í íslenzkum stjórnmálum við atburði siðustu viku. Fyrirlitning almennings á þeim nú er mikil, en vissu- lega dregur það úr áhrifa- mætti hennar, að höfuð- stöðvar kommúnismans á ís- landi eru í sjálfri ríkisstjórn- inni, og að forsætisráðherra iandsins notar öll sín áhrif og völd til að bjarga þeim úr vandanum. Það er ekki einangrunin ein, sem kommúnistar hafa á þennan veg forðað sér úr. Þeir hafa og fengið úrslitaáhrif á utanríkis- stefnu stjórnarinnar. Með samþykktinni frá 28. marz slitu Framsókn og Alþýðuflokk- ÁRÁSARFERILL RÚSSA Ásgeir Pétursson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðis- manna, setti mótið með skörug- legu ávarpi, þar sem hann hvatti unga Sjálfstæðismenn að standa þétt saman um frelsi þjóðarinnar, sjálfstæði hennar og menningu. Gunnar Thoroddsen, borgar- stjóri rakti í ræðu sinni sögu þess hvernig Rússar hafa neytt færis að leggja undir sig grannþjóðir sínar, gat um samstarf þeirra við nazista fyrir heimsstyrjöldina og blóðugan landvinningaferil þeirra síðan sem hámarki sínu náði í hinni fólskulegu ofbeldis- árás Rauða hersins á Ungverja- land. SÖNGUR GUÐMUNDAR Þá söng Guðmundur Jónsson íslenzk lög með undirleik Weiss- happels, Hjálmar Gíslason skemmti og tvær ungar stúlkur sýndu akrobatik. þau Þuríður Pálsdóttir, Kristinn Hallsson og Þorsteinn Hannesson. Eftir nýjár verður tekið til við leikrit hins unga og efnilega höf- unar, Jóns Dan, fyrsta leikritið sem eftir hann er sýnt og nefnist það hinu rómantíska nafni „Brönugrasið rauða“. Mun það íjalla um ástir og raunir ungra skálda í Reykjavík á vorum tím- um. . Loks starfar svo ballettskólinn undir þaki Þjóðleikhússins og stjórna honum af festu og rögg- semi Erik Bidsted, ballettmeistar- inn ágæti, og kona. hans, sem kom hingað til lands í fyrradag írá' Bandaríkjunum. Eru í þeim skóla alls 350 nem- endur, svo mjög eykst nú leik- dansakunnátta vor með ári hverj::. Má v htóulega segja að Þjóð- leikhús vort sé hið bezta menn- ingarmusíeri, — alveg eins ®g þjóðieikhús eiga bezt að vera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.