Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 4

Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 4
4 M ORCTIVni 4Ð1Ð Þriðjudagur 13. nðv. 1956 — Dagbók — Stjörnubíó sýnir um þessar mundir frönsk-ítölsku kvikmyndina „Aðeins einu sinni“. Aðalhlutverkin leika Alida Valli og Jean Marais og sjást þau á myndinni hér að ofan. í dag er 318. dagur ársins. Þöðjudagur 13. nóvember: Árdegisflæði kl. 1,32. Siðdegisflæði kl. 14,00. Slysavarðstofa Reykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni er opin all- an sólarhringinn. Læknavörður L. R. (fyrir vitjanir), er á sama stað kl. 18—8. Sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs-apó- teki, sími 1330. — Ennfremur eru Holts-apótek, Apótek Austur- bæjar og Vesturbæjar-apótek, op- in daglega til kl. 8, nema á laug- ardögum til kl. 4. Holts-apótek er opið á sunnudögum milli kl. 1 og 4. Garðs-apótek er opið daglega frá kl. 9—19, nema á laugardög- um, 9—16 og á sunnudögum 13— 16. Sími 82006. Hafnarfjörður: — Næturlæknir er Ólafur Einarsson, síroi 4583. Akureyri: — Næturvörður er í Akureyrar-apóteki, sími 1032. — Næturlæknir er Sigurður Ólason. □ EDDA 595611137 = 2. I.O.O.F. Rb. 1 == 10611138% — 9. II. III. RMR — Föstud. 16. 11. — Fund inum frestað til 23. 11. • Brúðkaup • S.l. föstudag voi-u gefin saman í hjónaband af séra Jóni Thoraren sen, ungfrú Selma Samúelsdóttir frá ísafirði og Ketill Jensson óperusöngvari. — Heimiii þeirra er að Laugateigi 5. Gefin voru saman í hjónaband s.l. laugardag Sigurdís Skúladótt- ir, bankaritari, Flókagötu 67 og Jóhann Sigmundsson, prentari, — Kjartansgötu 3. Heimili þeirra er á Nesvegi 9. • Afmæli * Frú Kristín Hjálmsdóttir, Ból- staðahlíð 13, er 85 ára í dag. Hún er stödd á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, að Laugateigi 42. • Skipafrétíir • Fimskipafélag íslands h.f.: Brúarfoss fór frá Vestmanna- eyjum 7. þ.m. til Rostock. Ðetti- foss fer frá Gdynia í dag til Ham- borgar og Reykjavíkur. Fjallfoss er í Reykjavík. Goðafoss fór frá Kotka 9. þ.m. til Reykjavíkur. — Gullfoss fór frá Hamborg í gær- kveldi til Kaupmannahafnar. — Lagarfoss er í Reykjavík. Reykja fc«s fór frá Iíamborg 11. þ.m. til Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá Reykjavík 7. þ.m. til New York. Tungufoss fór væntanlega frá Húsavík í gærkveldi til Svalbarðs- eyrar. Straumey lestar í Hull til Reykjavíkur. Vatnajökull lestar í Hamborg um 14. þ.m. til Rvíkur. Skipantgerð ríkisins: Hekla er á Austf jörðum á suð- urleið. Herðubreið fer frá Reykja vík á morgun austur um land til Bakkafjarðar. Þyrill var væntan- legur til Reýkjavíkur seint í nótt frá Þýzkalandi. Baldur fór frá Reykjavík í gærkveldi til Snæfells nesshafna og Flateyjar. Ásúlfur var á Hornafirði í gær á suðurleið. Eimskipafélag Rvíknr h.f.: Katla er í Reykjavík. • Flugíerðix • Flugfélag íslands h.f.: Millilandaflug: Sólfaxi fer til London kl. 08,30 í dag. Væntanleg aftur til Reykjavíkur kl. 23,00 í kvöld. Flugvélin fer til Osló, Kaup mannahafnar og Hamborgar kl. 08,00 í fyrramálið. — Innanlands flug: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Blöndu- óss, Egilsstaða, Flateyrar, Sauð- árkróks, Vestmannaeyja og Þing- eyrar. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, ísafjarðar, Sands og Vestmannaeyja. Pan American-flugvél kom til Keflavikur í morgun frá New York og heldur áleiðis til Oslo, Stokkhólms og Helsinki. Til baka er fluvélin væntanleg annað kvöld og fer þá til New York. Danska félagið heldur fund í kvöld kl. 20,00 í Tjarnarkaffi. Vinningar í happdrætti Hringsins Brúðurúm nr. 240; silkidúnteppi nr. 1702; bíll nr. 3178; skeiðasett nr. 4904; skíðaföt nr. 1908; vöru- bíll nr. 4522; bollasett nr. 216; sínii nr. 3443; traktor nr. 4652; brúða nr. 3393. — Vinninganna má vitja í Verzlun Andrésar Andréssonar, Laugavegi 3. (Birt án ábyrgðar). Blómsveigasjóður Þorbjargar Sveinsdóttur Minningaspjöld fást í Hljóðfæra verzlun Sigríðar Helgadóttur, — Lækjarg. 2, hjá Emilíu Sighvats- dóttur, Teigagerði 17, Guðfinnu Jónsdóttur, Mýrarholti við Bakka stíg, Ólöfu Björnsdóttur, Túngötu 38 og Áslaugu Ágústsdóttur, Lækj argötu 12B. Óhuggandi 2ja ára telpa 1 gær var hringt til Dagbókar- innar, frá Hvammsgerði 4 í Smá- íbúðahverfinu. — Tveggja ára telpa í heimilinu þar er óhuggandi síðan hún týndi tuskukisunni sinni, mjög falleg gul, loðin, með rautt band um hálsinn og merki í eyranu. Amma hennar hafði gefið henni kisuna, og litla telpan hefur alltaf sofið með kisuna sína hjá sér. — Nú eru það vinsamleg tilmæli til þeirra, er kynnu að hafa séð slíka tuskukisu, að þeir geri viðvart í Hvammsgerði 4, svo litla telpan geti tekið gleði sína á ný. — Slysavarnadeiidin Hraunprýði Fundur í kvöld kl. 8,30. Kvenfélagið Keðjan Skemmtifundur í kvöld kl. 8,30 í Golfskájanum. Happdrættið á hlutaveltu K. R. Þessi vinningsnúmer komu upp í happdrættinu áhlutveltu K.R. s.I. sunnudag: Nr. 7095, kr. 3.000,00. Nr. 2656, hringferðin. Nr. 14376, mályerkið. Nr. 2791, matarforðinn og nr. 6868, 1 tunna ljósaolía. — Vinningarnir sækist til Sigurðar Halldórssonar, Ingólfsstræti 5. — Sími 5583. (Birt án ábyrgðar). LEIÐRGTTING Vegna greinar í blsðinu, hefur verið beðið fyrir eftirfarandi leið- réttingu: Á þriðjudaginn var, 6. þ.m., bil- aði fólkslyftan á Hótel Borg, rétt eftir hádsgi. Voru þá strax fengn ir fagmenn til að athuga þetta. — Kom þá í ljós, að ásinn í lyftu- tromlunní var brotinn. Tók þá Hamar h.f. að sér að smíða nýjan ás, sem mun vera nokkurt verk og verður hann ekki til fyrr en eftir þesea helgi. Jóhannes Jósefsson. Orð lífsins: Og ekki er hjóApræóió í neinum öörum, þvi að eigi er heldur ann- að nafn undir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hóipnum að verða. (Post. 4, 12). Sniðgangið þá, er freista yðar með áfengum dryjtkjum, og vafa- sömum og oft hættulegmn félags- skap í því sambandi. — Umdæmisstúkan. Tveir pennavinir Fimmtán ára dönsk stúlka, Inger Christensen, Stateansvej 63, Shalborg, Jylland, Danmark, ósk- ar eftir að komast í bréfaviðskipti við pilt eða stúlku á aldri við hana sjálfa. Hún hefur áhuga á ýmsu, t. d. klassískum tónverkum, mál- aralist, kvikmyndum og mörg þekkileg hugðarefni á hún fleiri. Bréf bennar liggur hjá Dagbók Morgunblaðsins. David nokkur skrifar á ensku frá Hong Kong og langar ákaf- lega mikið til að kynnast, með bréfaskriftum, íslenzku æskufólki. Einnig bans bréf er bjá Dagbók Morgunblaðsins, ef æskufólk vill sinna því. Frá AJlianoe Francaise Fyrsti fundur félagsins á þess- um vetri var haldinn í Tjarnar- kaffi s. I. fimmtudagskvöld. Hinn nýi sendikennari ungfrú Made- leine Gagnaire flutti f:óðlegt og skemmtilegt erindi um efnið. AIli- ance Francaise í hitabeltinu, og tal aði um lífið á Jamaica, en við há skólann bar hefir ungfrúin stund- að kennslu næstliðin þrjú ár. Að Hér kemur reikningur ...cgr- unar- og snyrlistofunni, fyrir marga ntánuði, má ég spyrja, fyrir Kvað á ég eiginlega að greiða? erindinu loknu sýndi hún skugga- myndir frá þessu gróðursæla landi, voru þetta undurfagrar litmyndir, sena hún hafði sjálf tekið. — Var síðan stiginn dans til kl. 1. Voru fundarmenn mjög ánægðir með þetta fróðlega og skemmtilega kvöld. —■ Félag austfirzkra kvcuna munið fundinn í kvöld kl. 8,30 í Grófin 1. Gjafir til kirkjubyggingar Óháða safnaðarins Ónefnd kona, kr. 5 þús. B Þ 2 þús. Una kr. 500. Áheit frá Dóru kr. 100; Guðrún Vigfúsdóttir kr. 100. Jón Tómasson, Hvítanesi k». 100. — Með einlægu þakklæti, fyr- ir hönd kirkjunnar. — Safnaðar- prestur. Læknar fjarverandi Bjarni Jónsson, óákveðinn tíma. Staðgengill: Stefán Björnsson. Elías Eyvindsson læknir er hættur störfum fyrir Sjúkrasam- lagið. — Víkingur Arnórsson geg* ir sjúklingum hans til áramóta. Ezra Pétursson óákveðinn tíma. Staðgengill: Jón Hjaltalín Gunn- laugsson. Hjalti Þórarinsson verður fjar- verandi til nóvemberloka. Stað- gengill: Ólafur Jónsson, Háteigs- vegi 1. Heimasími 82708, stofu- Kristbjörn Tryggvason frá 11. október til 11. desember. — Stað- gengill: Árni Björnsson, Brött - götu 3A. Sími 82824. Viðtalstími kl. 5,30—6,30, laugard. kl. 3—4. sími 80380. • Gengið • Gullverð ísl. krónu: 100 gullkr. = 738,95 pappírskr. 1 Sterlingspund .. kr. 45,70 1 Bandaríkjadollar . — 16.32 1 Kanadadollar ... — 16.40 100 danskar kr. .... — 236.30 100 norskar kr.........— 228.50 100 sænskar kr.......— 315.50 100 finnsk mórk .... — 7.09 1000 franskir frankar . — 46.63 100 belgiskir frankar . — 32.90 100 svissneskir fr. .. — 376.00 100 Gyllini .......... — 431.10 100 tékkneskar kr. .. — 226.67 100 vestur-þýzk mörk — 391.30 1000 Lírur .'............— 26.02 Maður nokkur kom til sóknar- prestsins og sagði: — Faðir, er það rétt að hagnast ' á glappaskotum annarra? — Nei, sonur minn, svaraði presturinn. — Jæja, þá ætla ég að fara fram á það við þig, faðir, að þú \ endurgreiðir mér þennan dollara, | sem ég borgaði þér í fyrra fyrir að gifta mig. ★ Didda: — Eg er að hugsa um að slíta trúlofuninni við hann Sigga, hann er svo ruddalegur. Anna: — Hvað er að heyra þetta, bvað gerir hann? Didda: — Hann kann svo marg ar dónalegar vísur. Anna: — Syngur hann þær fyr- ir þig? Didda: — Nei, hann blístrar þær. FERÐINAIMD SíiiiÉðin góði mifiai ★ — Það lítur ekki út fyrir að þú gerir þér grein fyrir hver hlið brauðsneiðarinnar er smurð? — Það gerir engan mismun, ég borða báðar hliðarnar hvort eð er. ★ Vinnukonan: — Það hryggir mig, frú, en húsmóðirin bað mig að slcila til yðar að hún væri ekki heima. Vinkonan í heimsókn: — Það gerir ekkert til, skilið til hennar, stúlka mín, að það gleðji mig að ég skuli ekki hafa haft fyrir því að koma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.