Morgunblaðið - 13.11.1956, Side 10

Morgunblaðið - 13.11.1956, Side 10
10 MORGUWBLAÐIÐ Þriðjudagwr T3. nóv. 1956 í HAUST var í Morgunblaðinu sagt frá kornrækt bændanna í Miklaholtshelli í Flóa. Sagt er nú, að þetta sé eina búið á Suður- landsundirlendinu, sem sinnir kornrækt, að nokkru ráði, þegar frá er talið tilraunabúið á Sáms- stöðum, í höndum Klemensar Krist j ánssonar. Um nokkur ár var töluverð kornrækt í Birtingaholti, síðar á Blesastöðum á Skeiðum, og víðar hafa bændur borið niður með kornrækt, en horfið frá henni fljótt aftur. Margir telja þetta fullgildia sönnun þess, að kornræktin eigi ekki rétt á sér, og að „árangurs- laust“ brautryðjandastarf Klem- ensar sé hver mest sönnunin. Er þetta rétt — að það sé vonlaust um kornræktina? Það getur ver- ið rétt á tvennan hátt. Það getur verið rétt á þann veg, að skii- yrði til kornræktar séu svo léleg frá náttúrunnar hendi, að hún sé óréttmæt og ótiltækileg venju- legum bændum, þó að einn til- ráunastjóri geti framkvæmt hana. En þó að þessu sé ekki til að dreifa, getur kornræktin verið meira eða minna vonlaus, eins og nú standa sakir, sökum þess að bændur vilji ekki sinna henni, hafi ekki trú á henni, og þar af leiðandi sé hún þeim um megn. Ef hið fyrra væri sannanlega rétt, ber að leggja niður allar kornræktartilraunir og hætta öllu skrafi um þær. En það er sannanlega misskiln- ingur, að skortur á sæmilegum skilyrðum geri kornrækt von- lausa í höndum dugandi bænda. Klemens gerir engin kraftaverk, til þess að fá korn þroskað. Hann vinnur föstum tökum að ræktuninni, gerir hlutina á rétt- um tíma og á réttan hátt, eftir því sem reynsían hcfir kennt hon- um. Ekkert er yfirnáttúrlegt við þetta, ekkert sem hver verkmennt aður bóndi getur ekki gert auð- veldlega, ef hann vill. Við þetta bætist, að Klemens (og aðrir) hefir mestmegnis ræktað korn á óræktuðu landi, og þó hefir korn- j uppskera á Sámstöðum aldrei brugðizt að fullu á undanförnum j 30 árum, þótt hún hafi stundum j verið léleg. Sveiflurnar á kornræktinni i hafa sízt verið meiri, en á kart- öflurækt og íoðufeng. Of lítið hefir verið á það bent hver munur er, og hlýtur að vera, á því að rækta korn, og auðvitað einnig annan gróður, á óræktuðu landi eða ræktuðu landi. Það seg- ir sig sjálft, að öll ræktun er auðveldari vissari, ódýrari og á- litlegri á ræktuðu landi. Þó að einhver ræktun sé affallasöm á óræktuðu landi, getur hún veiið sæmilega örugg á landi sem er í góðri rækt. Öll rök hníga þannig að því að náttúruskilyrðin skeri ekki möguleika kornræktarinnar svo við nögl, að hún sé vafasöm, eða jafnvel ótiltækileg þess vegna, það er fjarri því. Þá kemur að hinu atriðinu, trúleysi bænda, viljaleysi og getu leysi, að fást við kornrækt. Vér skulum ekkert vera að klípa ut- an af því, að þetta er allt fyrir hendi. En þetta eru ekki óyfir- stíganlegar náttúruhindranir. Það er verkefni tilraunastarfsemi og búnaðarfræðslu að breyta trú- leysi í trú, viljaleysi í áhuga og getuleysi í framkvæmd. Þetta er hægt að gera, þetta verður að gera og þetta verður gert. Athugum nú hvað er framund- an á Suðurlandsundirlendinu. f Árnessýslu er nýræktin um 1 ha á ári á býli. Er hægt að halda þannig áfram og er það rétt- mætt? Eg tel það meira en vafasamt. Enn þurfa að sönnu margir bænd- ur að auka ræktun sína til þess að koma búunum í hagkvæma stærð. Nýbýlastofnun grípur einnig inn í og raskar meðaltals- tölum. En þrátt fyrir það fjölg- ar nú ört býlum, sem komin eru að því marki, eða komast það bráðlega, að það er meira en vafa- samt fyrir bóndann að stækka við sig ræktun og bú, sérstaklega Komrækt á ræktuðu landi í eðlilegu hlutfalli v/ð bústærð er næsta sporið fyrir bændur a urlandi lega votheysverkun, og með því að rækta bygg og hafra til kol- vetnafóðurs. Hið þriðja bætist svo við, heymjöl af innlendri framleiðslu til kjarnfóðursbóta. Mönnum virðist yfirleitt veita mikið léttara að átta sig á hinni þjóðhagslegu hlið slíkra mála, heldur en því sem veit að ein- staklingnum. Þjóðinni þykir það borga sig, sem von er, að fram- leiða köfnunarefnisáburð innan- athuga hvað bóndinn, sem rækt- lands Bændur eru líka ánægðir eftir Árna G. Eylands Árni G. Eylands. ræktunina. Bústærðin er víða orð in heppileg, með tilliti til vinnu- afls, vélanota og annara búshátta. Slíkir bændur verða nú að fara að líta í kringum sig eftir mann- bætandi og búbætandi verkeín- um. Það er með öllu óvíst að það sé ávalt eftirsóknarvert fyrir bónda sem hefir t.d. 30—50 ha af ræktuðu túni og byggingar og búfé í hlutfalli við það, að vera endilega að sperrast við að auka ræktunina og stækka búið á þann hátt, nema þá með það beint fyrir augum að skipta jörð sinni í tvö býli, t.d. á milli barna sinna. Hitt er miklu líklegra að þeir tímar séu nú framundan, að mörgum bónda, sem þannig er settur, sé fyrir beztu að fara sér hægt með nýræktina, en bæta í þess stað ræktunina og auka þannig afrakstur búsins og bæta haginn. Þá, en ekki fyrr, er raunveru- lega komið að því, að bóndinn getur á eðlilegan hátt tekið upp nýja og breytta ræktunarhætti. Hann byltir túninu sínu, og þá getur hann um leið fléttað veru- lega kornrækt á ræktuðu landi inn í búskapinn, svo sem 3—5 ha árlega. Það er höfuðatriði, að menn geri sér ljóst hver regin- munur er á því að búa þannig ræktunarbúskap og flétta korn- rækt inn í hann, og hinu sem enn er víðast að verið er að keppast við, að auka ræktun, oft meira um víðáttu en gæði. Þó kornrækt geti lánast í því sambandi, í hönd- um snjallra manna eins og Klem- ensar á Sámsstöðum, er slíkt eigi eðlilegir ræktunarhættir. Korn- rækt hér í álfu, er hvergi um hönd höfð nema á ræktuðu landi. Svo virðist nú horfa um fram- leiðslu búsafurða og markað, að ekki verði hjá því komizt fyrir bændur,' í þeim sveitum landsins, þar sem ræktun er komin bezt á veg, að fara að athuga aðra og fleiri möguleika en þá að gera hlutina hvað' sem það kostar, í trausti þess að hægt sé að setja verð afurðanna eftir tilkostnaði, án verulegs tillits til þess hvort tilkostnaðurinn við framleiðsluna hefir verið eðlilegur og hóflegur eður eigi, eins og nú á sér stað mjög verulega. Athugun bónd- ans á því hvort hinn heimafengni baggi sé ekki hollari heldur en meiri kaup og útborgaður tilkostn aður, og verðsperringur, sem því fylgir, hlýtur að koma til greina. Þá kemur kornræktin — korn- rækt á ræktuðu landi, í eðlilegu hlutfalli við bústærð og stærð hins ræktaða lands — alvarlega til greina, þá á hún rétt á sér, en fyrr ekki. En sem betur fer standa nú töluvert margir bænd- ur á Suðurlandi við þessi vega- mót og verða bráðlega að velja sér leið. Það val verður varla umflúið, nema með stórauknum þjóðnýtingarstyrkjabúskap. Kjósa bændur þá leið og kýs þjóðfélagið hana? Innflutningur fóðurbætis er orðinn geigvænlega mikill, og um leið eru kaup á fóðurbæti orðin ótrúlega frekur^ liður í búskap margra bænda. Eg held það hljóti að vera kominn tími til fyrir bændur og skipulagssamtök þeirra að athuga þetta, og hvort hér megi ekki breyta til batnaðar fyrir bændurna sjálfa. Um hitt þýðir ekki að tala né til þess ætlazt að bændur breyti um ein- göngu af þegnskap við þjóðiéiag- ið og verzlunarjöfnuðinn, en vissulega má hafa þá hlið málsins í huga í umræðum um það. Innflutt kjarnfóður nam á ár- unum 1952—,54, að meðaltali 13.669 smálestum að innflutnings- verðmæti nálægt 21 millj. króna á ári. Árið 1955 nam þessi innflutning ur 20.727 smálestum fyrir kr. 29.608.000,00. Að sjálfsögðu er verð kjarnafóðursins til bænda allmikið hærra, því að við bæt- ist uppskipun, hafnargjöld, toll- ar, álagning og flutningskostnað- ur innanlands. Mun láta nærri að reikna smálestina af útlendu kjarnfóðri á um kr. 2100,00 heima í garði hjá bændum. Auk hins innflutta kjarnfóðurs, voru fardagaárin 1953—’54 og 1954—’55, notaðar að méðaltali 4814 smálestir af innlendu kjarn- fóðri, þ.e. síldarmjöli og fiski- mjöli. Eg hefi ekki í höndum gögn, er sýni hve miklu kjarnfóður nemur á meðalbúi á Suðurlandi, en eigi mun fjarri sanni að áætla kjarnfóðurkaup á 30 kúa búi um 13.500 kíló, að vermæti um kr. 34.500,00, víða eru þau mikið meiri. Hér skal ekki dvalið við drauma um það, hvað eðlilegt og réttmætt væri að framleiða mikið af korni á búum bænda á Suðurlandsundirlendinu, eða um suðvesturland, og hve mikinn innflutning mætti spara á þann hátt. Hitt er líka greinabetra að ar 3—5 ha kornakur getur spar- að sér í kjarnfóðurkaupum. Vér skulum ekki gera ráð fyr- ir meira en 18 tunnu uppskeru af ha. Það verða 54—90 tunnur af korni, eftir akurstærð 3—5 ha. Frá dregst útsæði til næsta árs 550—900 kg. Netto kjarnfóður í búið verður því 48,5—81 tunna. Tunnuna má eftir núverandi verði á kjarnfóðri meta á kr. ræktunina og stækka búið á 220,00 til hænsnafóðurs, en minna, sem nemur mölunarkostn- aði, í fóðurblöndu handa kúm. Kjarnfóðurverðmæti uppskerunn ar verður því allt að kr. 10.670,00 til 17.820,00 í búi bóndans, miðað við umrædda akurstærð. Um það má deila óendanlega hvort hægt sé að framleiða korn- ið fyrir þetta verð, en það sem að lokum sker úr um það er að- allega tvennt. Hvaða tækni og kunnáttu er hægt að beita við kornræktina, jafnvel umfram það sem gert hefir verið á Sámsstöðum og á þeim örfáu búum, sem fengizt hafa við kornrækt eitthvað að ráði. Hvað er framundan í búskap bændanna og þjóðarinnar? Kem- ur það til að skipta máli, eða varð ar það ef til vill engu, hvort heima er tekið, eða inn- og að- flutt? Ég tel að nú sé óráðlega að staðið og að unnið, við marga framleiðslu. — Því miður er ég áreiðanlega ekki einn um þá skoðun, og því mið- ur á þetta víðar við og engu síð- annars staðar, en í búskapnum. Þetta getur gengið meðan ríkið borgar mismun þess, sem fram- leiðandinn þarf að fá með sínu núverandi háttalagi, og þess sem hann getur fengið við eðlilega sölu. En hve lengi gengur það? Hve hátt verður sá bogi spennt- ur án þess að hann bresti? Er óheilt að óska þess blátt áfram, að framleiðendur til lands og sjávar, í byggð og í borg verði að grípa til annarra ráða, að verulegu leyti? Meðal annars þess ráðs, að sjást betur fyrir og forð- ast allan óþarfa kostnað við fram- leiðsluna. Getur þá ekki orðið athugandi fyrir margan béndann aff fram leiffa sem mest af fóöurbæti og kjarnfóðri heima? Þaff er hægt meff tvennu móti, meff bættri heyverkun, sérstak- með þetta, sem betur fer, þó að áburðurinn sé sízt ódýrari en innfluttur áburður þyrfti að vera. Þetta er vafalaust rétt stefna fyr- ir þjóðfélagið. En er hún það þá líka fyrir hinn einstaka bónda? Á hann ekki, um leið og hann litast um eftir leiðum til að bæta búskap sinn, að líta til þess að framleiða meiri hluta fóðurs handa búfé sínu, heima. á bú- inu, heldur en hann gerir nú, með hinum ískyggilega miklu kjarnfóðurkaupum? Á þessu við- horfi bænda til málanna veltur mest, um skynsamlega kornrækt, eða enga kornrækt á Suðurlandi. Vilja bændur breyta búnaðarhátt um sínum sér og þjóðinni til hags og krefjast til þess sanngjarns stuðnings, frá hinu opinbera, eða kjósa þeir fremur að krefjast stuðnings frá ríkinu, sem nær út yfir það sem sanngjarnt er, en er þó ef til vill í samræmi við það sem aðrir gera. Bænd- um getur vel orðið það til stund- arhags að velja síðari leiðina, en hún er ekki leið batnandi bún- aðar. í næstu grein mun ég ræða möguleika þess að gera kornrækt- ina aðgengilegri um vinnubrögð og tilkostnað, heldur en nú er, það er hægt með aukinni og bættri tælcni og aukinni verk- kunnáttu. 18. október 1956. Árni G. Eylands. Bruninn á Öxará MORGUNBLAÐIÐ hefur átt tal við Þóri Ingjaldsson bónda að Öxará í Þingeyjarsýslu um brun ann, sem varð á bæ hans fyrir rúmri viku, og sagt hefur verið frá hér í blaðinu. Sagðist Þóri svo frá, að heim- ilisfólkið hafi verið -að mestu búið að slökkva eldinn, þegar menn frá næstu bæjum komu á vettvang. Eldurinn kom upp um miðja nótt og kviknaði út frá rafleiðslu. Skemmdir voru minni nn búizt var við. Brann yfir gangi í miðju húsinu eitthvað upp í súðina, en ekkert teljandi tjón varð af eldinum. Hafði hann verið slökktur innan klukkutímá frá því heimilisfólkið að Öxará varð hans vart. Sænska kvikmyndaleikkonan Anita Ekberg (t. h.) og maður henn- ar, enski kvikmyndaleikarinn Anthony Steel, sjást hér á mynd- inni ásamt Ingu Lindberg, systur Anitu, sem heimsótti þau i ^Lundúnum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.