Morgunblaðið - 13.11.1956, Page 17

Morgunblaðið - 13.11.1956, Page 17
Þriðjudagur 13. nóv. 1956 MORCUWRL.4ÐIL 17 Mynd þessi var tekin af Öryggisráði S. Þ., er það ræddi niðings- verk Rússa í Ungverjalandi. bónda í Borgarlandi í Helgafells- sveit. Dágott skáld er Helga Halldórsdóttir, húsfreyja á Dag- verðará í Breiðuvík og hefur líklega einhvern tíma verið efni í stórskáld. Kvæði hennar „Vetr arkvöld á Snæfellsnesi“ og „Harpa“ eru meðal þess hezta í bókinni, einkum hið síðara, en það endar svo: „Skáld er ég eigi, þótt óði unni mitt hjarta. Ómar frá ástvinum Braga anda minn gleðja, sorgina sveipa í dróma, sólgeisla hlýja láta með tónunum ljúfu líða til hugans.“ Ingólfur Kristjánsson er kunn- ur rithöfundur, en ekki eru beztu kvæðin hans þarna, þótt „Veður fregn“ og „Kaupmannahöfn“ séu allsnotur. Falleg vísa er „Sólsýn“ eftir Ingveldi Ólafsdóttur hús- freyju í Hraunsfirði í Helgafells- sveit, og „Xogarinn Gyllir" eftir Jóhann Pétur Jónsson Hraun- fjörð er sterkt og vel gert kvæði. Jóhann Magnús Kristjánsson bóndi á Lágafelli syðra í Mikla- holtshreppi birtir tvö athyglis- verð kvæði og eina góða fer- skeytlu. Fallegt ljóð er „Vöggu- vísa mÖDinra" eftir Jóhannes Ól- af Þorgrímsson, og Jón Ólafsson bóndi í Einarslóni í Breiðuvík birtir vel gert trúarljóð, sem nefnist: „Dásemdarverkin". Jón Gunnlaugsson Sigurðsson bóndi í Hofgörðum í Staðarsveit var um langt skeið eitt kunnasta skáld Snæfellinga. Hann hefir ort fjölda kvæða, en aðeins fá þeirra birtast þarna, að vonum. En hér er þó hið snjalla ljóð: „Andvarp“, eitt bezta kvæðið í bók þessari, og mundu margir vilja hafa kveðið það. Skulu til- færð úr því tvö erindi: „Styrjöldum lífs í ströngum stóðstu við hlið mér löngum. Hjartans úr þráðum þínum þú snertir boga mínum streng þann, er aldrei uggði, í ölíu stríði að dugði, hverjum sem voða verjast var eða gegn að berjast. Þú hefur lífið látið. Látið þitt hef ég grátið, grátið þig tregatárum, tárum, er valda sárum, sárum, er blæða og svíða. Sár hlýt ég þreyja og bíða. Syrgjandi ég sit í leynum. Segir oft fátt af einum.“ — Jón Þórðarson frá Borgarholti á þarna nokkur allgóð kvæði og er: „Þú vakir æ í minni“ þeirra bezt. Skemmtilega skáldmælt er Kristín Benjamínsdóttir frá Haukatungu í Kolbeinsstaðar- hreppi. Hér er ein vísyn hennar: „Lifað hef ég langa ævi laus við hroka, í lítinn skaufa látin moka, ég loftaði aldrei stórum poka'*. Þá er Kristján H. Breiðdal áð- ur bóndi á Jörva, nú verzlunar- stjóri á Vegamótum í Miklaholts- hreppi, snilldarhagyrðingur, öll- um kunnur á nesinu og víðar Ein vísan hans er svona: „Þó yfir fenni ævislóð, yndi ég mínum kjörum, gæti ég kveðið lítið ljóð, sem lifði á þjóðarvörum“. — Honum hefur tekizt það. Bezta kvæðið hans þarna er: „Minning Borða“, eftirmæli eftir hest Kristján Eggertsson, áður bóndi í Dalsmynni, var allvel skáld- mæltur, og nafni hans, Elíasson, bóndi á Lágafelli syðra í Mikla- holtshreppi, gat gert góðar vísur. Fallegt kvæði er þarna eftir Kristján Jónsson á Snorrastöð- um. Nefnist það: „Guðrún Ós- vífursdóttir". Snoturt kvæði er „Æskan“, og „Hamingjuleit“ snilldarljóð; hvorttveggja eftir Oddfríði Sæmundsdóttur frá Ell- iða í Staðarsveit. Ottó Árnason, bókari í Ólafsvík, á þarna prýði- legt kvæði, sem heitir: „Ljóð inn heimtumanns“. Ólöf Sveinbjarn- ardóttir, húsfreyja á Rauðamel ytra, birtir vel gerð erfiljóð eftir Halldór Bjarnason frá Gröf. Snotur er einnig Vorþulan henn- ar og ljóðið: „Gott eiga þeir“. Skáldmælt vel er Rangheiður Guðrún Kristjánsdóttir, hús- freyja í Straumfjarðartungu í Miklaholtshreppi. Öll kvæðin hennar, sem þarna birtast, eru athyglisverð. Prýðilega hagmælt ur og oft gamansamur í ljóði er Reinhold Richter. „Breiðasund“ hans er laglegt kvæði. Sigríður Sigurðardóttir frá Öxney er hag- mælt í bezta lagi, og Sigurborg Eyjólfsdóttir frá Dröngum á þarna "eitt skínandi fallegt kvæði: „Himinninn er blár“. Tryggvi Valdimar Kristófersson á vel kveðnar vísur, er nefnast: „Sum arkvöld á Hellnum“. Unnur Sig- fúsdóttir frá Hólmlátri á Skógar- strönd birtir tvö snotur kvæði. „Snæfellsjökull“, eftir Þórð Hall dórsson, er dável gert kvæði. Þor leifur Sigurðsson bóndi og hrepps stjóri á Þverá í Eyjarhreppi á þarna nokkrar góðar stökur. Og loks eru tvö snotur ljóð eftir sóknarprestinn í Söðulsholti í Eyjarhreppi, Þorsteinn Lúther Jónsson: „Skuld“ og „Guðs helgi máttur“. Ekki verður annað sagt en að það sé kostagóð bók, sem „vonda fólkið“ á Snæfellsnesi hefur lát- ið frá sér fara. Er hér aðeins nefnt það, sem höfundi þessarar umgetningar fellur bezt, en auð vitað er margt fleira gott i kvæðasafninu. GeÉsIavirJe e/ni tíl hfahhameias- lækningya SJÚKLINGAR, sem þjást af al- varlegu krabbameini á sjúkrahúsi einu í London, munu bráðlega ganga undir aðgerð, þar sem not- að verður nýtt efni, sem unnið hefur verið úr geislavirkum úr- gangi úr plútóníum-birgðunum hjá Windscale í Cumberland. Er hér um að ræða lítil plútóníum- hylki, sem fyllt eru með geisla- virku „cæsíum“ og senda frá sér kjarnageisla. Þeita efni, sem framleiðir marg- falt meira magn kjarnageisla en radíum, er íyrsta efnið sem framleitt er í sérstakri nýrri verk smiðju í Windscale. Tuttugu brezk sjúkrahús hafa þegar pant- að efnið, og mun það taka verk- smiðjuna 2 ár að fullnægja þess- um pöntunum. Áhugi manna á þessu efni bæði innan og utan Englands er svo mikill, að nú er verið að byggja aðra stærri verksmiðju til að vinna „cæsíum“ úr geislavirkum úrgangi. Þessi vinnsla er mjög erfið og hættuleg. Hún felst m. a. í því að framkvæma ýmsar efna- breytingar bah við þykka stein- veggi með fjarstýrðum tækjum. Lokastigið er að bræða „cæsíum“- saltið þangað til það er rauðgló- andi og renna því inn í plútón- iumhylkið. Þetta hylki er 7 sentimetra langt og þriggja sentimetra breitt og því er komið fyrir í þar til gerðu tæki, sem byggt var af Krabbarannsóknastofnuninni í London i samvinnu við kunna brezka verksmiðju. Þetta er þykkt ílát úr blýi og úranium, sem vegur nálega eitt tonn, og ver það menn gegn geisluninni. Sérstok loka hleypir út sterkum gamma-geislum, sem beint er að hinum sýktu líkamshlutum. Kost- urinn við að nota gamma-geisla í krabbalækningum er sá, að hægt er að beina þeim að öllum hlut- um líkamans án þess að skemma nokkra vefi. Þetta tæki hefur mikla yfir- burði yfir venjuleg röntgengeisla- tæki. Það þarfnast ekki rafmagns til að framleiða kjarnageislunina. Það þarf ekki að kæla tækið, og yfirleitt er lítil hætta á bilunum eða mistökum. Kjarnageislunin í „radíó-cæsíum“ minnkar svo hægt, að nota má sama efnið í 20 ár. f Bandaríkjunum hafa verið gerðar tilraunir með „cæsíum“ um nokkurt skeið, en Bretland er eina landið, sem á fullkomna verksmiðju til að framleiða efnið. Það er gleðilegt til þess að vita, að þau efni sem ella hefðu orðið einna vandmeðförnust allra úrgangsefna í kjarnorkuverum, hafa nú reynzt nytsamlegust þeirra allra. „Radíó-cæsíum“ tiltölulega algengt í kjarnorku- framleiðslu, og hefði nytsemi þes: ekki verið uppgötvuð, hefði orðið að geyma það á öruggum stöð um með miklum tilkostnaði, þar til kjarnageislun þess væri að mestu horfin. Nú eru ekki aðeins horfur á, að nota megi efnið til lækninga, heldur eru miklar lík- ur til að það geti einnig komið að góðum notum í alls konar iðnaði. BKZT AÐ AUGL'fSA t M.ORGUNBLAÐINU Vegna veikindlaforfalla vantar afgreiðslustúlku strax. Verzlunin Stella, Bankastræti 3 Húsgagnasmiður eða lagtækur maður, vanur verkstæðisvinnu, getur fengið vinnu við smíðar. Akkorðsvinna kemur til greina. Tilboð með upplýsingum um fyrri störf sendist Mbl. fyrir föstu- dagskvöld merkt: „Smíði —3298“. Takið eftir Af sérstökum ástæðum verða seldir næstu daga mjög ódýrir K J Ó L A R □ DYRI M A R KAÐU R I NN Tetnplarasundi 3 Eldhúsinnréttingar Smíða eldhús- og svefnherbergisinnréttingar við hagstæðu verði. Trésmiðja Óskars Jónss»nar, Itauðalæk 21 — sími 82228. Verzlunarhúsnæði óskast til kaups eða leigu, má vera fokhelt. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir hádegi á fimmtudag merkt: Verzlun —3301. H úsgagnasmi&ir óskast s t r a x Cj. SCltúfaíon. oa ^Álldera hi. Tilboð óskast í nokkrar Pick-up og Cariol-bifreiðar, er verða til sýnis að Skúlatúni 4, miðvikudaginn 14. þ. m. kl. 1—3 síðd. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, Laugavegi 13, sama dag, kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. ms. Sœíeíl . fer tvisvar í viku til Eyja eins og áður. Þannig: ' Frá Reykjavík, sunnudag kl. 14 og miðvikudag kl. 18. Afgreiðsla Akraborgar annast afgreiðslu í Reykjavík. Símar: 1420—80966. Vörumóttaka daglega. Guðni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.