Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 18

Morgunblaðið - 13.11.1956, Síða 18
n MORCUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 13 nóv. 1956 Akranes f Hæð og ris með porti í steinhúsi í miðbænum er til sölu. Nánari uppl. veitir Yalgarður Kristjánsson, lögfr. Akranesi. Simi 398. SKARAR FRAMÚR JrtVAÐA BLEKI SEM ER Á meðan Quink nær því bezta úr Parker pennum, þá bætir það skrif- hæfni allra annarra penna. Hvers vegna? Vegna þess að Parker Quink er eina blekið, sem inniheldur Solv-x. Solv-x er hið frábæra nýja Parker blek, sem auk þess að veita yður klessulausa og áferðarfagra skrift, þá heldur það penna yðar ávallt hrein- um! Reynið hið nýja Royal Blue Washable Quink. Quink . . . eina blekið með solv-x . . . er fram- leitt af Parker, þektasta nafni heims, í fram- leiðslu skriffæra. Verð: 2 oz kr: 5,30, 16 oz kr: 19,80, 32 oz kr: 33.00. Umboð: Sigurður H. Egilsson, P.O.Box 283, Reykjavík. Nýung! f/yt/sYj mtfqtc »#£ HICK INIECTOR RAZOR Sjálfvirk skipting á rakblaði Síáifí/'^'ir miúkur rakstur Sjálfvirk hreinsun X-S-42E Sveinn Björnsson & Ásgeirsson Heildverzlun — Hafnarstræti 22. Hydro-magie askja inniheld- ur eina Eversharp „Hydro- magic Schick Injeetor" rak- vél 24 Hydro-magic rakblöð (þau bitbeztu sem fást) Ein plastik ferðaaskja. Helgi Björnsson írá Staðarhöfða Mirmingarorb: f GÆR fór fram í Reykjavík útför Helga Björnssonar frá Stað- arhöfða á Akranesi. Lézt hann í sjúkradeild Elliheimilisins Grundar í Reykjavík 1. þ.m. eftir langa vanheilsu. Helgi var fæddur 1. des. 1886. Foreldrar hans, Kristín Helga- dóttir og Björn Ólafsson, bóndi og sjómaður, áttu þá heima á Klembrum á Akranesi. Þar hófu þau búskap í þurrabúð, en voru þar skamma hríð. Lengst af síðan bjuggu þau hjónin Björn og Kristín í Staðar- höfða, og stundaði Björn þar jöfn um höndum landbúnað og sjó- mennsku, svo sem altítt var um bændur á þeim árum, einkum þá, er við sjávarsíðuna bjuggu. Var Björn faðir Helga, verkmaður góður að hverju sem hann gekk, harðduglegur og fylginn sér. En Kristín móðir Helga, sem var kona mjög vel gefin, naut skamma hrið í hjónabandinu hæfni sinnar sökum langvarandi veikinda. En ástríki og umhyggja eiginmanns hennar, sem aldrei brást, og umönnun og nærgætni barna þeirra, eftir að þau kom- ust á legg, létti henni krossburð veikindanna svo sem frekast var unnt. Helgi var efnismaður á upp- vaxtarárum sínum. Hann var góðum gáfum gæddur og mjög námfús. Var bókhneigð mjög rík- ur þáttur í skapgerð hans. En eigi voru fyrir hendi þær að- stæður, að greidd yrði gata hans til náms á þann veg, að hann gæti með þeim hætti fengið grund- völl fyrir lífsstarf sitt í framtíð- inni. En þau eru æði mörg dæmin fyrr og síðar, sem sýna það, að margan æskumannin hefir borið af leið sökum þess, að honum hefur ekki tekizt að afla sér þess veganestis, er með þurfti til þess að geta fylgt þeirri köllun í lífinu, sem hugur hans þráði. En engan vegin var því svo farið um Helga, að hann gæti ekki staðið hverjum sem var á sporði í önn hins daglega lífs, þótt menntabrautin í þeim skiln- ingi, sem hugur hans og þrá frá öndverðu beindist að, væri hon- um lokuð, ef þar hefði ekki annað komið til sögu. Helgi var efnis- maður til allra verka á sjó og landi. Hann var sérstaklega lag- virkur og hafði hneigð til smíða. En sú varð raunin á, að Helgi hafði naumast tekið út fullan líkamsþroska, er hann kenndi heilsubrests, er fór vaxandi eft- ir því sem aldurinn færðist yfir hann. Þetta varð þess valdandi, að hann átti upp frá því mjög óhægt með öll áreynslustörf. Þetta háði honum eðlilega mikið í þeirri lífsbaráttu, sem hann varð að heyja, og gerði allt líf hans daprara en ella hefði orðiði Að upplagi hafði Helgi létta lund, og glaðværð og gamansemi var honum þrátt fyrir allt lengst af til tæk. Þess varð ekki vart langt fram eftir ævi, að heilsubilunin hefði áhrif á sálargáfur hans. Hann las jafnan mikið og var bæði fróður og minnugur. Sú náðargjöf hafði fallið honum í skaut, að hann var hagyrðingur góður. Skemmti hann mörgum með kveðskap síp- um. Varð það og honum mikið til raunaléttis að iðka þessa gáfu sína. Og það var ekki einasta það, að rímið léki honum létt á tungu, þar risti hann dýpra, því skáldlegra tilþrifa gætir og í kvæðum hans. Helgi mun hafa verið á miðjum aldri eða rúmlega það, þegar gefin var út kvæða- bók eftir hann, er hann nefndi Örvar. Þá eru og birt nokkur kvæði eftir hann í Borgfirzkum ljóðum. Það mun hafa verið á sjó- mannsárum Helga á Akranesi, en þá var dagurinn oft tekinn snemma og löngum róið áður en dagsbrún var á lofti, sem Helgi kvað vísu þessa: Faðmar Skagann fögur nótt. Flýgur saga af veiði. Eggjar dagur æsku þrótt út á lagarheiði. Helgi hóf búskap í Staðarhöfða eftir lát föður síns og bjó þar lengst af ævi sinnar. Fyrir allmörgum árum brá hann búi og fluttist til Reykja- víkur til barna sinna, er þá voru orðin þar búsett. Tvær af systrum Helga eru á lífi; búsettar í Reykjavík: Hall- dóra, ekkja eftir Þórð Sigurðsson, prentara, og Guðrún, ekkja eftir Guðmund Guðmundsson, verka- mann. Kona Helga Ágústína Þór- arinsdóttir, góð kona og um- hyggjusöm, lifir mann sinn ásamt fjórum börnum þeirra, þremur dætrum: Unni, Áslaugu og Krist- ínu, sem allar eru búsettar í Reykjavík. Eru þær Unnur og Kristín giftar. En Björn sonur þeirra er sjúklingur á Vífilsstöð- um. Ágústína dvelst hjá dætr- um sínum. Með þessum fáu orðum kveð ég Helga vin minn og þakka hon- um tryggð og vináttu á langri samleið. y--------- Til leigu vélkrani á bíl með ámoksturskóflu og lyftibómu. Valdimar Þórðarson, sími 4480 og 3095 Skrifstofustúlka Eit af stærri fyrirtækjum bæjarins vantar skrifstofu- stúlku til símavörzlu strax. Þarf að kunna vélritun. Tilboð merkt: „3303“, sendist Morgunblaðinu fyrir miðvikudagskvöld. Pétur Ottesen.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.