Morgunblaðið - 09.12.1956, Síða 11
Sunaudagur 9. des. 1956.
MORCVNBLAÐ1Ð
11
«m félagsins, eins og eg sagðij
ykkur áðan, rakst eg á margt
fleira merkilegt í eignaskránni
Auk „marskálka-bandanna", sem
•einast fréttist til í prestaskólan-
um, og merkisstangarinnar,
átti félagið nefnilega ýmis-
leg hergögn. Hinn 1. október
1893 eru þessir munir upp taldir:
„Ræðustóll, Salón pístóla að
hálfu. Salon riffill.“ Við þetta
gera endurskoðendur þá athuga-
semd, að það sé „til athugunar
framvegis, að félagið mun eiga
að öllu leyti salon-pístóluna“, —
svo að enn sannast hið forn-
kveðna, að margur er ríkari en
hann hyggur.
Sex árum síðar, I október
1899, hefur bætzt í vopnabúrið
„1 skotspónn, 1 púlt með læsingu,
1 blekbytta".
Nú vil eg spyrja stjóm félags-
ins: Hvar em öll þessi vopn nið-
ur kominn i dag? Við getum
hæglega þurft á þeim að halda.
Skotspæni veit eg að við höfum
Bæga ,svo að ekki þarf að leita
að þeim. En pístólan og riffill-
inn? Púltið með læsingu, blek-
byttan, merkisstöngin án fána og
ræðustóllinn- Ubi sunt?
Eg tel mér það skylt, þótt það
kunni að koma stofnun þeirri,
sem eg starfa við í nokkurn
vanda, að láta þess getið, að
eg get gefið nokkrar upplýsing-
ar um samastað ræðustólsins. í
rvörum formanns til endurskoð-
enda hinn 26. nóvember 1898
segir nefnilega, að „hinn fornfá-
legi ræðustóU“ sé „geymdur með
„þjóðnátíðar“-timbri í hinu
trausta geymsluhúsi (Lands)-
bankans við bæj arbryggj una“.
En líklega verðum við að hefja
leitina með því að reyna að hafa
upp á hinu trausta geymsluhúsi
bankans.
★ ★ ★
Við stúdentar eigum ekki að
vera feimnir við að halda áfram
á þeirri braut, sem ávallt hefir
verið braut þessa félags, að taka
höndum saman við almenning
þessa lands — og almenning og
stúdenta allra landa — í bar-
áttunni fyrir sannleika og frelsi,
Oft var þörf, en nú er nauðsyn.
Árni Pálsson sagði í ræðu á
fimmtugsafmæli félagsins:
„Kröfur tímans til íslenzkra
menntamanna eru miklar og
margvíslegar. En eitt er nauð-
synlegt, — að við allir í einum
hóp berjumst á móti makt
myrkranna.“ Og enn segir harm:
„Síúdentafélaginu hvílir fyrst og
fremst sú skylda á herðum að
annast um það af fremsta megni,
að hið unga íslenzka ríki verði
aldrei að andlegu myrkraríki".
Þetta er jafnsatt nú og það
var fyrir 35 árum, þegar Ami
Pálsson brýndi félagsmenn. Fé-
lagsskapur, sem kennir sig við
menningu, hefir nýlega látið það
boð út ganga, að Islendingar
megi ekki vera of vondir við til-
tekna erlenda þjóð, því að ráða-
menn hennar hafi „aldi'ei sýnt
íslendingum ókurteisi, öðru nær“,
þetta er orðrétt úr ávarpinu —.
„íslendingar af öllum stéttum
hafa notið gisíivináttu og fyrir-
greiðslu“.
Gistivinimir mega sannarlega
taka undir með því, sem segir
í gömlu skopkvæði:
Fús eg heim feta,
fekk eg að éta.
Nú er vissulega tími til kominn
fyrir alla góða drengi að fara í
vopnabúr félagsins. Hvað sem
salonrifflinum og salon-pístól-
unni líður, þá eigum við ekki
lengur að láta fánastöng félags-
ins vera „merkisstöng án fána“,
heldur að draga fána sannleika
og réttlætis við hún. Við eigum
ekki að vera feimnir að stíga í
hinn „fomfálega ræðustól", því
að úr honum var frá fyrsta degi
frelsisorð flutt íslenzkri þjóð, og
þriðja vopnið, blekbyttuna, skul-
um við ekki spara.
Minnumst þess, hvemig Mar-
teinn Lúter notaði blekbyttuna
gegn sjálfum höfðingja myrkr-
anna og verum þess fullvissir, að
blekbyttan er ennþá gott vopn
i baráttunni gegn makt myrkr-
aima.
Ágæl skemmtun
Finnlandsvinafél.
FINNLANDSVINAFÉLAGIÐ
Suomi hélt mjög fjölmennan
kvöldfagnað í Tjarnarcafé á þjóð-
hátíðardag Finna 6. des. s. 1.
Jens Guðbjörnsson, form. fél.,
setti skemmtunina og ávarpaði
Finna, sem hér dvelja, í tilefni
dagsins.
Kai Saanila, finnski stúdent-
inn, sem hér dvelur við Háskóla-
nám, flutti fjörlegt og fróðlegt
erindi um Finnland og sýndi jafn-
framt litskuggamyndir.
10 manna flokkur Finna og
Ármenninga í þjóðbúningum
sýridi finnska þjóðdansa við mikla
hrifningu. Skúli Halldórsson, tón-
skáld, lék á píanó.
Tvær ungar stúlkur úr Ár-
manni sýndu akrobatik, síðan
skemmti Karl Guðmundsson, leik
ari, af sinni alkunnu list.
Að lokum var svo stiginn dans
af miklu fjöri. Auk allra Finna,
sem búsettir eru í Reykjavík og
nágrenni, var meðal gesta hin
þekkta blaðakona, ritstjórinn
Kirstí Jaantila, sem er á heimleið
til Finnlands frá Bandaríkjun-
um og dvelur hér á landi tæpa
viku. Mun hún safna hér efni í
greinar um ísland í blað sitt og
skrifa, er heim kemur.
Skemmtunin fór hið bezta
fram.
Lækningastofa
mín í Apóteki Vesturbæjar verður fyrst um sinn
opin á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum
klukkan 4,30—5,30.
Viðtalstími á lækningastofunni Skólavörðustíg 1 A
verðui' óbreyttur.
VÍKINGUR H. ARNÓRSSON,
læknir.
Hljóðfærahappdrættið
Vinningar 5 Píanó og Radiófónn með segul-
bandstæki. — Vinningarnir eru til sýnis í
glugga Morgunblaðsins og Verzlunar
Kristjáns Siggeirssonar, Laugavegi 13.
IVlunið
Hljóðf ærahappd rættið
Tugþúsmidir téku undir Úlym-
píulofsönginn við slit leikunnu
T GÆR, LAUGARDAG, lauk í Melboume 16. Olympíuleikum nútímans. Var leikumun
slitið með virðulegri og hátíðlegri athöfn að vanda. íþróttamennirnir eru allflestir
farnir heim, en síðustu keppninni lauk rétt fyrir lokahástíðina. Var það úrslitakeppni
í knattspyrnu. Rússar sigruðu Júgóslafa með 1 marki gegn 0 og unnu þar nieð 37. gull-
peninginn er Rússar hljóta á leikum þessum. Leikvangurinn var þéttskipaður
Olympíufararnir: Hilmar, Ólafur og Viihjálmuc.
Velkomnir heim
Ólympíufarar íslands
¥¥VER heimsfréttitt- á fætur annari hefir borizt hingað síð-
★■■■ ustu vikurnar, sem flestir hugsandi menn láta sig nokkru
skipta. Ein er sú frétt, sem vakið hefir heimsathygli, og um
leið svipaðan þjóðarmetnað hér á landi, og þá er Halldór
K. Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í fyrra. En þessi heimsfrétt
var að íslendingurinn Vilhjálmur Einarsson, hefði sett Olym-
píumet í þrístökki 16,25 stikur, 27. nóv. s.l. á Olympíuleik-
unum. Það má segja að þjóðin öll hafi fagnað þessari góðu og
glæsilegu frétt. Því nú hafa íslendingar eignast glæsilega full-
teúa í heimi andans og orkunnar, sem alheimur hefir tekið
eftir. — Mönnum er að verða það ljósara en áður, að menning
og manndómur fer eigi eftir mannfjölda, heldur eftir afreki
og ágæti hvers og eins. Að andleg og líkamleg menning á ávalt
að haldast í hendur í uppeldi æskulýðsins.
Þessi heimsfrétt er mesta landkynning íslands á þessu
ári, þessu Olympíuári, sem nú er að líða í aldanna skaut. Og
hefir orðið þess valdandi að alheimur horfir til íslands; og fær
að vita að hér býr manndóms og menningarþjóð, þótt fámenn
sé; og að aðalatvinnuvegur landsmanna sé fiskiveiðar, sem
sævíkingar vorir afla.
Það er sagt að Olympíuleikarnir séu mesta friðarhátíð mann-
kynsins. Og með þátttöku vorri í leikunum, sýnum vér að við
viljum taka virkan þátt í þessu friðarstarfi. Vér viljum efla
þetta friðarstarf í verki, og láta vorn fagra fána, blakta þar
á Olympíuvöllunum, meðal fána annara fullvalda þjóða.
Það er ekki að furða þótt að þeir, sem um áratugi hafa barizt
fyrir því, að vér íslendingar sendum keppændur á Olympíu-
leikina, séu glaðir þessa dagana, því afrek Vilhjálms markar
tímamót í íþróttasögu vorri. Málstaður þeirra og hugsjón
hefir sigrað, þrátt fyrir það, að alltaf, fyrir hverja Olympíu-
leiki, hafi verið deilt og þráttað um það, hve marga kepp-
Þar sem Olympíuelduriim
var tendraður með viðfaöfn og að
viðstöddum 100 þús. áhorfend-
um og tæpl. 5000 íþróttamönnum,
fyrir hálfum mánuði, var hana
nú slökktur. Á þessum tíma hef-
ur ýmislegt það gerzt á vellinum
sem greypt mun í hugi milljóna
manna — og aldrei gleymast Þar
hefur saga gerzt, atburðir sem
skráðir eru og varðveitast muau.
ic LOKAHÁTÍÐIN
Fánar 68 þáttökuríkjanna vortt
bornir inn á vöilinn við upphaf
setningarhátíðarinnar og nafn-
spjöld landanna borin fyrir þeim.
Fánaberar röðuðu sér upp við há-
svæðið, ræðupallinn. Fáni Grikk-
lands var að hún dreginn til að
minnast uppruna leikanna. Síðatt
voru km bornir fánar Ástralíu,
gestgjafanna og fáni Ítalíu, næst-u
gestgjafa og þjóðsöngvar land-
anna leiknir.
Formaður alþjóða Olympíunefnd-
arinnar gekk £ram og þakkaði
fyrir hönd nefndarinnar öllum
þeim, háum og lágum, som stuðl-
að hafa að framkvæmd þessara
Olympíuleilca. Síðan lýsti hamn
Olympíuleikunum 1956 lokið en
skoraði á æsku allra landa að
safnast saman að 4 árum 1-iðnum
í Rómaborg, til þess að halda há-
tíðlegt 17. Olympíutímabil vorra
tíma, svo að olympíueldurinn yrði
borinn fram við af æ meiri festu,
hugrekki og heiðri.
Að máli hans loknu var Olym-
píufáninn dreginn hægt niður og
lúðrar voru þeyttir. Olympíueld-
urinn, sem logað hefur meðan
leikarnir stóðu var slökktur. Fall-
byssuskot kváðu við — í kveðju-
skyni.
Fólksskarinn tók undir Olym-
píulofsönginn, fánaberarnir
gengu út. Mikilli hátíð var lokið.
★
Sumir sigurvegarar hafa eins
og í Grikklandi forðum unnið
sér æfilanga frægð. Seint munu
ýmis nöfn gleymast, ss. Richards
í stangarstökki, Kutz í langhlaup
um, Morrow í spretthlaupum og
lengi mætti telja.
Hver þjóð á sínar minninga*.
Og það ekki sízt við íslendingas.
Tímamót eru í íþróttasögu okkar
við þessa Olympíuleika. Við föga
um okkar Olympíuförum í dag
á annan hátt en öllum okkar
fyrri Olympíuförum. Einn þeirra
kemur heim með verðlaunapen-
ing og svo glæsilegt afrek, að enn
er það á vörum þúsunda manna
víða um heim. Island hefur með-
al stórþjóða hlotið viðurkenn-
ingu — og vakið athygU. Við hér
heima megum halda áfram starf-
inu að eflingu líkamsmenntar,
tvíelfd af þeim sóma og þeirii
viðurkenningu, sem Vilhjálmur
Einarsson hefur aflað landi sínu
og þjóð. Hann hefur sýnt okkur
og öðrum að við erum á réttrl
braut.
endur ætti að senda; en þáttakan hefir oftást farið eftir farar-
eyri; hve mikið væri í sjóði. Má nú hér eftir gera ráð fyrir að
landsmenn styrkji enn betur, en verið hefir framtíðar-þátttöku
vor íslendinga í Olympíuleikum. Næstu Olympíuleikar verða
háðir í Rómaborg 1960.
Vér bjóðum Olympíufarana — þremenningana: Hilmar Þor-
bjömsson, Ólaf Sveinsson og Vilhjálm Einarsson, hjartanlega
velkomna heim aftur, og þökkum þeim fyrir góða og glæsilega
Olympíuför.
8. desember, 1956.
Ben. G. Wáge,
fulltrúi íslands í alþjóða Olympíunefndinni.
íþrótfir í dag
í DAG kl. 2 fara fram að Há-
logalandi síðustu leikir i haná-
knattleiksmeistaramóti Reykja-
víkur.
Að leikum loknum ganga sig-
urvegarar í hverjum flokki í sal-
inn og Gísli Halldórsson form.
Í.B.R. afhendir verðlaun.
—★—
Kl. 8 I kvöld hefst körfuknatt-
leiksmót íslands að Hálogalandi.