Morgunblaðið - 11.12.1956, Qupperneq 1
24 siðut
44. árgangur
295. tbl. — Þriðjudagur 11. desember 1956
Prentsmiðja MorgunbiaðsÍM
ÓTTAZT, AÐ EKKI VERÐI KOMIZT HJÁ
N'ÍJU BLÓÐBAÐI I UNGVERJALANDI
Sendisíöð frelsissveitanna: „Ef nauðsynlegt er að grípa aftur til vopna til þess að verja
frelsi Ungverjalands, þá gerum við það óhikað.
Kommúnistar halda áfram að handtaka verkamenn
Búdapest, 10. des. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
pÚSSNESKIR hermenn og útsendarar Kadarstjórnarinnar hófu í kvöld víðtæka leit að
vopnum í Búdapest, skömmu áður en allsherjarverkfallið átti að hefjast. — Her-
mennirnir settu upp götuvirki í verkamannahverfum borgarinnar og stöðvuðu sérhvern
•em á ferli var, — Fréttir sem náð hafa til Belgrads bera með sér að skæruliðar hafi ráð-
izt á Rússa í vestur-héruðum Ungverjalands eftir að frétzt hafði að Kadarstjórnin hefði
leyst verkamannaráðin upp, — Þá hefur heyrzt í sendistöð frelsissveitanna og endurtók
hún margsinnis í kvöld: „Við óttumst engan. Ef það er nauðsynlegt að grípa aftur til vopna
til þess að verja frelsi Ungverjalands, þá geriun við það óhikað. Við gerum það jafnvel
þótt það sé vonlaust. Við höfum að minnsta kosti gefið öðrum fordæmi. Lengi lifi verka-
menn og bændur Ungverjalands“.
SKOTNIR!
tJtvarp kvislingsstjórnarinn
ar í Búdapest tilkynnti í
kvöld að allir þeir sem vopn
fyndust hjá eftir morgundag-
inn yrðu leiddir fyrir herrétt
og skotnir.
FORMAÐUR „MÍR‘<
Þá hefur verið minnzt á Fer-
ence Erdei, formann Sovétvina-
félagsins (MÍR) í Búdapest, sem
væntanlegan forsætisréðherra í
nýrri kvislingsstjórn. Sagt er að
sólarhring og þykir það ekki
ómerkileg sönnun fyrir því að
stór hluti þjóðarinnar sé enn
vopnaður.
Á þingi S.jb.:
Ofbeldi Rússa í Uiigverjalandi
Hver er aístaba Islands ?
New York, 10. des. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
FIMMTÁN aðildarríki að S.Þ. hafa lagt fram ályktunar-
tillögu þess efnis.að Ráðstjórnin beri ábyrgð á hörm-
ungunum í Ungverjalandi. — í ályktunartiliögunni er þess
einnig krafizt að Rússaher hverfi á brott úr Ungverjalandi
hið bráöasta og hætti að skipta sér af innanlandsmálum
landsins. — Er þetta harðorðasta ályktunartillaga sem flutt
hefur verið á þingl S. Þ. um Ungverjalandsmál.
Þau ríki sem vitað er að styðja tillöguna eru: Bandaríkin,
Belgia, Ítalía, Argentína, Ástralía, Chile, Danmörk, E1 Salva-
dor, írland, Holland, Noregur, Pakistan, Perú, Filippseyjax,
Svíþjóð og Thailand.
Þá má loks geta þess að í ályktunartillögunni er gert ráð
fyrir að Kadarstjórninni verði ekki heimilað að fara með
umboð ungversku þjóðarinnar á vettvangi S. Þ.
Fréttir í stutiu máli
Er Olympíufararnir komu til landsins á sunnudaginn var þeim sérstaklega fagnað. Menntamálaráð-
herra flutti ræðu, afhentl þeim blómvendl og Vilhjálmi Einarssyni einnig bikar frá ríkisstjórninni.
Myndin sýnir er ráðherrann afhendir Vilhjálmi bikarmn. Á blaðsíðu þrjú er sagt frá móttökunni, en
i iþróttasiðu i bls. 14 er viðtal við Olympíufarana og segir Vilhjálmur þar frá þrístökkskeppnhmi.
Lundúnum, 10. des. — Einkaskeyti til Mbl. frá Rewte*.
★ FYRSTA skrefið í þá átt að jafna deilumál Bieta og
Frakka annars vegar og Bandaríkjanna hins vegar vegna
Súez-máIsins var stigið í dag. Dulles, ufanríkisráðherra
Bandarikjanna, i-æddi við fulltrúa Breta og Frakka í Paris
í dag, en þangað er hann kominn til að sitja ráúivti'rafund
Atlantshafsbandalagsins.
★ Eisenhower, Bandarikjaforseti, sagði í dag í tílefnl af
mannréttindadegi S.Þ., að Rússar hefðu brotið allar grtúnar
mannréttindasáttmála S.Þ. með framfwði sinu í Ungverju-
landi.
★ f dag ræddi Pinfeau, utanríkisráðherra Frakka, við fufl-
ferúa frá stjdrn Túnis. Umræðurnar sem snerus-t um stjóm-
malasamband mi4U landanna voru einlægar og vinsamiegar
og þykir nú líklegt að stjórnmálasambandi milU ríkjanna
verði komið á að nýju hið fyrsta.
★ Þegar umræður fóru fram á Allsherjarþinginu í kvöld
um ályktunartillögu 15 ríkja (sjá aðra frétt á þessari siðiv)
sagði Menon fltr. Indlands að stjórn sín væri sannfærð lua
að Ungvei'jar vildu louua við Rússaher úr landi sinu hiS
bráðasta.
EKKI VISSIR
Leiðtogar Verkamannaráðsins
í Búdapest, sem tók ákvörðun
um allsherjarverkfallið vegna
þess að Kadarstjórnin þverskall-
aðist við kröfum verkamanna,
sögðu í dag að þeir væru ekki
vissir um að verkfallið yrði al-
gjört vegna þess að illt hefði ver-
ið að ná sambandi við verka-
menn úti á landsbyggðinni.
MEÐ KYRRUM KJÖRUM
Fréttamaður AFP í Búdapest
símaði í kvöld að allt væri með
kyrrum kjörum í borginni og
ekki væri að sjá að Rússar hefðu
fjölgað herliði sínu á þeim slóð-
»m. — Þá skýrir fréttaritarinn
frá því að hann hafi heyrt af
•rðspori
að Malenkov og Suslov væru
komnir til Ungver jalands í því
skyni að endurskipuleggja
kvislingsstjórn Kadars. Þá er
orðrómur um það að Kadar
sé fús að segja af sér forsætis-
ráðherraembætti gegn því að
hann haldi aðalritarastarfinu
í kommúnistafltíkkinum.
hann hafi verið handtekinn í
byltingunni vegna trúmennsku
við Nagy, en sleppt aftur, þegar
nægilegar sannanir lágu fyrir um
Rússaþjónkun hans.
HANDTAKA VERKAMENN
Á laugardag kom til átaka
milli Kadarsmanna og námu-
manna í Sargoterjan í nám-
unda við tékknesku landamær
in. Ástæðan var sú að nokkr-
ir verkamenn höfðu verið
handteknir fyrir að dreifa
flugritum. Um 10 þús. námu-
menn fóru þá í kröfugöngu til
lögreglustöðvarinnar og kröfð
ust þess að verkamennirnir
yrðu leystir úr haldi, en þeim
var svarað með skothríð. All-
margir námumenn féllu. —
Þá hefur útvarpið í Búdapest
skýrt svo frá að til átaka hafi
komið víða í landinu síðasta
Þau gerðu garðinn frægan
Viðtöl við 34 þjóðkunna íslendinga
í DAG kemur út hjá Bókfellsút-
gáfunni hin sérstæða og stór-
merka bók Valtýs Stefánssonar,
Þau gerðu garðinn frægan, við-
töl við 34 þjóðkunna íslendinga.
„Aldrei hvarflaði það að mér
hér á árum áður, um það leyti,
er ég festi á pappír í mesta flýti
viðtöl þau við mæta menn og
konur, að þau mundu þirtast á
prenti í annað sinn“, segir Valtýr
m.a. í formála að bókinni, „því ég
taldi, að þau mundu vera hið
mesta flaustursverk, er búast
mætti við að mundu fljótlega
lenda í pappírskörfum manna.
En eftir að þessum viðtölum
fjölgaði meira en ég hafði átt von
á í fyrstu, fóru ýmsir lesendur
að telja þau athyglisverð, jafnvel
fróðleg og skemmtileg, er svo
bar undir. Og að því kom að
nokkrir kunningjar mínir töldu
Bók Valtýs Stefánssonar kemur út í dag
sjálfsagt að gefa þau út á ný, er
tímar liðu. Birtist nú í þessu
hefti meginhluti af þeim viðtöl-
um, er hafa komið út í Lesbók
Morgunblaðsins á undanförnum
árum.
EFNI BÓKARINNAR
ER SEM HÉR SEGIR:
Á jólum hjá Jóni Sigurðssyni,
frásögn Indriða Einarssonar, Frá
heimili Gríms Thomsens, frásögn
frú Sigrúnar Bjarnason, Nokkrir
dagar úr lífi mínu, sr. Bjarni
Jónsson rifjar upp minningar,
Kvöldstund með Boga Ólafssyni
yfirkennara, um sjómennsku,
menntaþrá og kennslustörf,
Nokkrar endurminningar Ás-
gríms Jói»esonar málara: „Var
hugfanginn, þegar hann sá fjöll-
in“, Skáldið og heimilisfaðirinn —
Þorsteinn Erlingsson, frásögn frú
Guðrúnar J. Erlings, Gunnar B.
Framh. á bls. 2