Morgunblaðið - 11.12.1956, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 11.12.1956, Qupperneq 6
6 MORGVNBLAÐIÐ ÞriSjuðagur 11. des. 1958 Kristmann Guðmundsson skriíar um BÓKMENNTIR og fallegt, svo sem: „Ég syng til þín“, „í rökkrinu", „Til Guðs“, „Við skerið", „Gréta“, „Stjaman mín“, og „Klara". En bezta ljóðið ea- ef til vill „Kvöld“: ..Aftanroðabliki brá á saeinn, bláhvit rökkurslæða fjarri lá; sveipað hafði sólarheitan daginn sseluþrungin, fögur ágústbrá. Fjarri vogi festarsvanur renndi, á fjarðarmynni björtum roða sló, og unaðssælu unga hjartað kenndi, því æðri máttur gullna fegurS bjó.“ Ef höfundurinn er innan við tvítugt, þá bendir kverið til þesa, að hann gaeti orðið skáld. Saga og sex lesendur. Eftir Claude Haugthon. Sveinn Víkingur þýddi. Bókaútgáfan Fróði, SAGA þessi sýnir m.a. hvílíkt ábyrgðarstarf það er að rita bækur. — Höfundur hennar fær- ist mikið í fang og enda þótt tæknikunnáttu hans sé nokkuð ábótavant, er bókin ákaflega at- hyglisverð. Sálfræðileg rannsókn er það sem gefur henni mest gildi. Höf. er mikill sálfræðing- ur og hann framkvæmir sálkönn- un sína á heilbrigðum grundvelli. Hann er og dulspakur vel og honum lætur ágætlega að gefa boðun sinni táknrænt form, sem jafnframt er heillandi dulrænt. Sagan fjallar um sögu og áhrif hennar á nokkra lesendur, en höf. fléttar saman persónum beggja sagnanna á mjög skemmtilegan hátt. Að vísu er hann talsvert stirður á svelli tækninnar og nær ekki alltaf æskilegum tökum á efni sínu. En hin dulræna móða, sem dregin er yfir allt saman, hylur gallana að nokkur leyti, svo að þeir verða lesendanum skki eins mikill þyrnir í augum -g annars hefði orðið. Margar af persónulýsingum jókarinnar eru aðeins skírt dreg- ð riss, en lýsingar kvennanna þó miklu betri en karla. Bezt er frú Purvis, þó Mitzi festist kannski fullt eins vel í minni lesandans. Karlmennirnir eru fremur teg- undatákn en lifandi persónur, og ef litið er á t.d. Fingleton frá því sjónarmiði, er hann listavel gerð- ur. Eýsingin á „Manninum með hendurnar“ er snjöll — þangað til höf. fer að skíra hann sál- fræðilega, þá bregst bogalistin. Höf. skortir kunnáttu til að skilja, að persónur, sem gerðar eru á þennan hátt, þola ekki „sálgreiningu“, þá leysast þær upp og verða að engu, eins og draugarnir. — „Maðurinn, sem aldrei fékk herbergi" í gistihús- inu dularfulla, er einnig mis- heppnaður hjá höf. — Loks er sagan nokkuð margorð og lang- dregin. — En kostir hennar eru margir, og meira en vega á móti göllunum. Hún er hreinleg, já- kvæð og nýstárleg, geðfelld, og spennandi afle§trar. — Bók- menntir af þessu tagi eru nú að ryðja sér til rúms í heiminum. Lesendur allra landa eru á hnot- skóg eftir heilbrigðara, hressara og fegurra lestrarefni en því sem fyllt hefur bókamarkaði veraldar nú um langt skeið. Þýðing Sveins Víkings er vel gerð, án áberandi snilli. Ormar. Eftir Jökul Jakobsson. Helgafeil. EFTIH að Jökull gaf út fyrstu skáldsögu sína, er var skrambi léleg, birti hann smásögu, sem teljast verður ágáet, eftir svo ungan höfund. Og enda þótt „Ormar" sé ekkert listaverk, er þó um framför áð ræða, og margt er það í þessari sögu, sem bendir til að höfundur hennar geti orðið skáld. Hann virðist hafa fullan huga á því og viljinn dregur hálft hlassið, í þessu efni sem flestum öðrum. — Fyrsti kafli „Ormars", með lýsingu söguhetj- unnar á barnsaldri, er nokkuð vel gerður og margar atburða- lýsingar, víðs vegar um bókina, eru góðar. Samtöl eru og víða eðlileg og umhverfislýsingar gerð ar af mestu prýði. Þá er bygging sögunnar sæmileg. Og höfundur- inn apar ekki eftir neinum, þótt hann sé að læra af ýmsum. Allt bendir til að hann muni verða sjálfbjarga vel og sækja ekki til annarra, umfram það sem allir gera. „Ormar“ sýnir allmarga kosti, sem vekja vonir um að hér sé skáldefni á ferð, er láti til sln taka, þegar árum fjölgar og fisk- ur vex um hrygg. — Gallar bók- arinnar eru að vonum margir, og nenni ég ekki að eltast við þá, að þessu sinni. Þetta er allt ung- æðislegt, enda ekki við öðru að búast hjá vart tvítugum unglingi. En það, sem máli skiptir, er að hér virðist vera efniviður, sem er aðgæzluverður. Aungull í tímann. Eftir Jóhann Hjálmarsson. ÞETTA er allra snotrasti öngull, enda þótt eigandinn skrifi hann með a»! Það hafa aðrir haft fyrir unglingnum — og ýmislegt fleira, sem vonandi skaðar hann ekki í lengdinni. — Ef þessi pilt- ur öðlast þann þroska, þá mennt- un og víðsýni, sem skáldum er nauðsynleg, þá er liklegt að hann verði mikið og gott ljóðskáld. — í þessu kveri hans er hvert smá- Ijóðið öðru betra, t.d. „Við“, „Ljóð“, „Hve oft“, „Þrá“, „í leit ég gekk“, „Söknuður", „Hvert“ og „Bláa land“: „Ó bláa land sveipað rauðri móðu ég hef leitað þín Rektu ekki barn þitt út í auðnina þegar það kemur aftur eftir langa fjarveru því það er þreytt og þráir að hvíla við brjóst þín og teyga ilm þíns unga blóðs Ó bláa land sveipað rauðri móðu ég hef leitað þín“. „Vor“ er líka falleg: „Sólrauðir fuglar svífa yfir blátærri lind Og litið barn kemur gangandi eftir veginum með vorið í höndunum“. Hann er undir ýmsum álirifum, en naumast til skaða. List hóf- seminnar kann hann, hina örðug- lærðu, sem fæstir nema til hlít- ar! Það er óvíða ofaukið orðum hjá þessu unga skáldi, og það er forkunnar góður kostur á bók hans. Annar kostur göður er Ijóð- ræn fegurð og mýkt, galdur í með ferð einfaldra orða: mikil með- feedd skáldgáfa. í föSurgarði fyrrtim. Þulur eftir GoSrdnu AuSunsdóttur. Myudskreytt efiir Halldór Pétursson. Norðri. SIGU'RÐUR Einarsson skáld og prestur í Holti, fylgir þessu litla kveri úr hlaði með eftirmála. Ræðir hann um. þúluna sem list- grein og kynnir Guðrúnu Auð- unsdóttur, höfund kversins. En hún. er húsfreyja á stóru og anna- sömu búi, og skáldskapurinn henni tómstundagaman. Eigi að síður hefur henni vel tekist og líklegt að þulurnar hennar verði vinsælar og eigi fyrir sér langlífi í landinu. Þær eru ljúft og lipurt kveðnar, hressar og lifandi. Bezt er ef til vill: „í föðurgarði fyrr- um“ og „Sofðu litli Ijúíurinn”. Myndir Halldórs Péturssonar eiga einkar vel við textann. HÓFATAK Eftir Bjöm Braga. Höfundur þessa litla ljóðakvers segir sig sextán ára gamlan og gætu mörg kvæðanna bent til þess þroskastigs. En ekki kæmi mér á óvart þótt pilturinn reynd- ist nokkru eldri. Um það skal ekki þrætt, en þess getið, að ýmislegt er þarna lipurt kveðið 1 Model og myndaauglýs- ingar — nýtf fyrirtœki NÝLEGA tók til starfa hér í Reykjavík, fyrirtæki, er nefnist Model & Mynda-auglýsingar. Er þar um að ræða algjöra nýjung Rúna Brynjólfsdóítir. hér á landi. Eigandi og fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er ungfrú Rúna Brynjólfsdóttir og er starf þess í því fólgið, að út- vega fyrirmyndir (model) til ljósmyndatöku fyrir auglýsingar. Model & Mynda-auglýsingar hafa aðsetur sitt ^ð Birkimel 8 B, síma 6970. Morgunblaðið ræddi við Rúnu Brynjólfsdóttur í gær í til- efni þessa. shrifar úr daglega lífinu ÞÁ hafa blöðin flutt þær gleði- fregnir að Stina Britta Mel- ander sé væntanleg hingað til landsins aftur innan skamms og muni um jólin syngja hlutverk Næturdrottningarninnar í hinni unaðsfögru óperu Mozarts „Töfra flautunni". Mikill aufúswgestur EG segi gleðifregnir, því tví- mælalaust er Stina Britta ís- lenzku leikhús- og óperulífi mik- ill aufúsugestur. Allir þeir sem séð hafa hana á óperusviði munu ljúka upp einum munni um, að þar er snilldarsöngkona á ferð, sem hefir þann fremur sjaldgæfa hæfileika góðra söngkvenna, að vera mjög sýnt um leik og alla sviðstækni. Hún er í einu orði sagt fáguð og heillandi listakona, sem hefir sungið sig inn í hjörtu allra Reykvíkinga. Hlutverk Næturdrottningarinn ar er álitið mjög erfitt og ekki á færi nema allra beztu söngkvenna að fara með það. Stina Britta hefir sungið það í Stokkhólmi og fengið ágæta dóma fyrir. Því hefir heyrzt fleygt að ástæðulaust væri að flytja inn er- lent listafólk eða óperusöngvara þar sem við værum sjálfir birgir af góðum söngvurum. Það sjónar- mið er fjarri öllu lagi og ef við ættum að aðhýllast það íslend- ingar, myndum við sýna einstæð- an molbúa- og hjárænuhátt. Jafn- vel stórþjóðimar með fremstu söngvara í veröldinni innan landa mæra sinna telja sér jafnan feng í því að fá erlenda óperusöngvara á svið sín, sem góða gesti. Þeir koma jafnan með nýjan andblæ og af þeim niá einatt margt læra. íslenzk söngmennt og erlend UM okkar ungu óperu gildir þetía sjónarmið miklu frem- ur, og hún verður aldrei hyggð upp til neinnar hlítar nema við ■njóti bæði góðrar stjórnar og söngvara og söngmenntunar er- lendis frá, enda er það Teynsla allra þjóða í þeim efnum. ís- lenzkir söngvarar fá örugglega nóg tækifæri til þess að láta ljós sitt skina þrátt fýrir það, enda verður og að hafa það í huga, að almenningur verður leiður á sama listamanninum, ef hann á kost á að hlýða á list hans í tima og ótíma. Því er full ástæða til þess að gleðjast yfir komu sænsku söngkonunnar sem hefir getið sér slíkan orðstír á íslenzku óperusviði, og óska þess að aðrir erlendir söngvarar í fremstu röð sæki okkur einnig heim er tímar liða fram. . Jólin í nánd. IMORGUN í birtingu þegar ég var á leið til vinnu hitti ég tvo skólapilta sem gengu út með sekki sína og mal og voru á leið- inni út á flugvöll, til framhalds- ferðar norður í land í jólaleyfi. Þá varð mér skyndilega ljóst að jólin eru i nánd, meira að segjr. rétt að koma. Auðvitað vissi ég, eins og aðrir, að almanakið lýgur ekki, en ein- hvern veginn er það svo að mað- ur þarf slíka viðburði eða öllu heldur smáatvik í næsta um- hverfi sínu til þess að skilja hve skammt lifir eftir jólaföstu. Hver dagurinn er öðrum svo líkur, og tíðarfarið hefir verið slíkt, að minnsta kosti hér sunnanlands, að manni verður miklu fremur hugs að til annarra tíma en jólanna. En tíminn stöðvast ei og dagarn ir láta aldrei bíða eítir sér heldur renna hljóðlaust í skaut tímans. Börnin eru fyrir löngu farin að hlakka til hátíðarinnar, konur norðanlands farnar að hnoða laufabrauðið sitt og jólaþvottur- inn byrjaður til sveita. Tvenn jól. F?G var í gær að lesa í Þjóð- háttum Jónasar á Hrafnagili um jólin í tið afa okkar og ömmu og undrast yfir því hví- líkar stökkbreytingar þjóðin og siðir hennar allir hafa tekið síð- an þá. — Þar voru jólin í sinni aldagömlu íslenzku mynd, með leikum sínum, helgihaldi og há- tíðleik. Nú liggur við að jólin séu orðin eins og einn hagmæltur kunningi mixm sagði: Fagnaðar- hátíð Frelsarans er féþúfa í túni mangarans. Jólin hér í höfuðborginni hafa fengið á sig geysilegan kaup- mennskusvip. Það er eins og fólk hugsi ekki um annað en gjafir og peninga, í stað Frelsarans stendur manni fyrh hugskots- sjónum kaupahéðinn með heil- mikla peningagloríu kringum höfuðið. Það er illt og við skulum öll reyna að forðast það eftir megni að láta hughrif og tilætlan jólanna hverfa í gjörningaveðri kauptíðarinnar. BLAÐA- KVIKMYNDA- OG GÖTUAUGLÝSINGAR Þrjár stúlkur starfa nú þegar við fyrirtækið, auk Rúnu Brya- jólfsdóttur. _Eru það fegurðar- dísirnar, Ágústa Guðmunda- dóttir, Ásdís Steindórsdóttá og Ester Garðarsdóttir. Stúlk- ur þessar starfa sem fyrirmynd- ir. Starfið er aðallega í því fólgið, að fyrirtækið útvegar þeim sem vilja auglýsa, ljósmynd eða myndamót, þar sem einhver af fyrirmyndum þess auglýsir hlut- inn af smekkvísi og kunnáttu. Nær þetta til blaða-, kvikmynda- og götuauglýsinga. Þeir sem vilja auglýsa vörur sínar á þennan hátt, geta snúið sér nú þegar til fyrirtækisins, sem veitir allar upplýsingar. Þótt ennþá séu að- eins stúlkur starfandi sem fyrir- myndir hjá fyrirtækinu, verða innan skamms ráðin til þess einnig hörn og karlmenn, til þesa að þjónustan við viðskiptavinina geti orðið sem fullkomnust AUGLÝSINGATEIKNARl — TÍZKUSÝNINGAR Rúna Brynjólfsdóttir, skýrðl svo frá, að ef allt gengi að ósk- um, væri það ætlun sín, að ráða að fyrirtækinu auglýsingateikn- ara, eða að öðrum kosti stofna til samstarfs við einhvern slíkan. Þá er og í ráði að fyrirtækið taki að sér að standa fyrir tízkusýn- ingum og einnig að útvega tíma- ritum forsíðumyndir og aðrar myndir. Með tilliti til tízkusýninga, hef- ur Rúna Brynjólfsdóttir valið til samstarfs með sér, stúlkur, er vanar eru slíkum störfum. Sjálf hefur hún allmikla reynslu i Ásdís Steinþórsdótttir, ein af fyrirmyndunum, sem starfar vi* Model & Mynda-auglýsingar. Hún varð nr. 2 í fegurðarsam- keppninni í sumar. slíkum starfa, þar sem hún hefur tekið þátt í fjölmörgum tízku- sýningum undanfarið og er auk þess sveinn að menntun í hatla- saumi. ÆTLAR A» KYNNA SER STARFIÐ TIL HLÍTAR Fyrirtæki slík sem þetta em mjög algeng erlendis og hafa t.d. á Norðurlöndum borið mjög góð- an árangur. Rúna hefur þegar kynnt sér nokkuð starf slíkm fyrirtækja í Kaupmannahöfn en ætlar í janúar næstkomandi að fara til Kaupmannahafnar og ef til vill fleiri Norðurlanda til þess að kynna sér störf slíkra fyrir- tækja til hlítar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.