Morgunblaðið - 11.12.1956, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.12.1956, Blaðsíða 18
fS MORCVNBLlÐtB Þriðjuclagur 11. des. 195$ Ur heiðnum sið á Islandi KRISTJÁN ELDJÁRN ÞJÖÐMINJAVÖRÐUR Kristján Ekljárn er löngu orðinn landskunnur sem fræðimaður, rithöfundur og fyrirlesari. Þetta er stærsta verk hans til þessa. Bókin er 464 blaðsíður í stóru broti, prentuð á myndapappír, sem sérstak- lega var fenginn fyrir þetta stórglæsilega verk. í bókinni eru 200 myndir til skýringar. í holtum og melum í námunda við bæi, liggja kuml fornmanna með þvi haugfé, sem í þau var lagt, áður en kristni kom til Islands, og skipan komst á kirkjugarða. Öðru hverju koma þessar fornu minjar fram í dagsljósið, annað hvort af völdum náttúruafla eða manaa. Um langan tíma hefur verið reynt að halda öllu slíku til haga, safna fornminjunum saman í Þjóðminjasafni íslands og bókfesta fundarvitneskju uai þá. í þessari bók gerir Kristján Eldjárn þjóðminjavörður heildaryfirlit um allar þessar minjar, sem kunnar eru. Hann skýrir frá hinum elztu merkjum mannabyggðar & íslandi og rekur síðan kumlfundi alla í hverri sýslunni á fætur annarri um landið allt. Þá er gerð grein fyrir þeim útfararsiðum, se*n tíðkuðust hér á landi í heiðni og öllum tegundum skartgripa, vopna og áhalda, sem fundizt hafa til þessa dags frá þeim tíma. í bókinni eru nær 200 myndir til skýr- ingar, og til samans birta lesmál og myndír eins fullkomna heildarsýn og nú er unnt að leiða í ljós af ytra menningargervi karla og kvenna á sögu- öld, þegar flestar íslendingasögurnar gerast. Þá reynir höfundur og jafnan að láta hvað eina bera við menningarsöguleg atriði erlendis á sama tima og draga aí þeim samanburði þær ályktanir, sem heimilar virðast á núverandi stigi rannsókna. Bók þessi á erindi tii allra; er unna iandi sínu, sögu forfeðra vorra og siðum. Hér eiga ísiendingar loksins kosl á að skyggnast inn í og kynnasl leynd- ardómi liðinnar tíðar og dularheimi haugbúans. Kristján leiðir lesendur sína á skemmliiegan háit sýslu úr sýslu frá einum söguslað til annars og lyftir hinni myrku hulu heiðninnar. KUML OG HAUGFE er bók, sem allir vilja eignast, ungir sem gamlir BÖKAÚTGÁFAN NORÐRI Tfím

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.