Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 1

Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 1
20 síður 44. árgangur 16. tbl. — Sunnndagur 20. janúar 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins Fyrstu „spennandi“ kosn- ingarnar í -ár Sidney Taylor, fréttaritari Reuters í Varsjá, símaöi semt í gærkvöldi, að póisku kosninga- baráttunni væri lokið. í öUum blöðum, sem kommúnistar ráða yfir er aðalslagorðið: STRIKIB ENGAN ÚT. ★ Aðein® einn listi er i fram- boði i öltum kjördæmum lands- Listkynning Morgunblnðs- ins MORGUNBI AÐIÐ hefur ákveðið að efna á næstunni til kynningar á verkum ísleuzkra myndiistar manna. Er það áform blaðsins að bjóða allmörgum myndlistar mönnum, listmálurum og mynd höggvurum að sýna nokkrar myndir sínar í stærsta sýningar glugga Morgunblaðshússins, þeim að kostnaðarlausu. Listamennimir ráða að sjálf- sögðu vali verka sinna á þes gluggasýningu, sem gert er ráð fyrir að standi I 7 daga á verk- um hvers einstaks listamanns. Rætt hefur verið um að verkin yrðu yfirleitt til sölu. llm framkvæmd og fyrirkomu lag sýninga þessara væntir blað ið góðrar samvinnu við lista- mennina, sem þátt taka í þeim. Það er tilgangur MW. með þessari nýbreytni, að gefa al menningi í senn kost á að kynn- ast verkum íslenzkra myndlist- armanna og listamönnunum bætt tækifæri til þess að kynna list sína. Mun þessi listkynning blaðs ins hef jast á sýningu verka nokk urra eldri myndlistarmanna. Asgrímur Jónsson Asgrímur Jónsson málari er nú kominn á níræðisaldur. Hann býr í svipinn á Heilsuverndar stöðinni við Barónsstíg, og hefur verið mjög þungt haldinn um tíma, en er að ná sér aftur eftir illkynjaða lungnabólgu. Vafa- laust á hann enn eftir að ferðast um landið sitt í mörg ár og mála það. Á síðastliðnu sumri gerði hann margar nýj ar myndir. Mátti oft sjá hann á góðviðrisdögum hlaupa út úr Heilsuverndarstöð inni klukkan. tæplega átta á morgnana og út í bílinn, sem átti að þjóta með hann upp á Kalda dal eða austur að Heklu. Hann var þá léttur í spori og leiftrandi af tilhlökkun eins og smali sem er að leggja upp í fjallgöngu. Lífskrafturinn og löngunin til að vinna, mála, er enn algerlega ólamaður. Þó að Ásgrímur sé ekki fyrsti íslenzki málarinn, er hann samt um mjög margt forgöngumaður í okkar ungu myndlist. Hann er elzti núlifandi málarinn. Myndir þær eftir Ásgrím sem sýndar eru í útstillingarglugga Morgunblaðsins eru frá ýmsum tímum. Sú elzta frá 1931 (Hafn- arfjarðarvegur) og sú yngsta frá síðasta ári (frá Hellu). Telja for- ráðamenn blaðsins sér það mik- inn heiður og ánægju að hafa verk þessa mikla og vinsæla listamanns fyrst til sýnis í húsa- kynnum sínum. Málverk Ásgrims eru ekki til sölu. ns. Standa samtals 720 nöfn á istamim, en kjósa á 459 falltrúa á „sejm“, löggjafarþingið. Þótt kosningarnar séu eftir rússneskri fyrwmynd, eru þær þó frjálsari en eUa hefur tíðkazt, því að at- kvæðagreiðsla verður leynileg menn geta strikað út af listunum og síðast skal nefna, að slíkt i’rjálsræði er nú komið á í Pól landi, að menn þera að sitja heima. RÚSSAR VOFA YFIR Fyrir nokkrum dögum lét Gom ulka, forsætisráðherra, í ljós sér- stakan ótta við að menn myndu sitja heima. Því að slíkt yrði hið mesta vantraust á stjórn hans. Hann hefur því látið kjósendurna vita það, að ef kosningaþátttaka verður ekki nóg sé hætta á að Rússar telji stjórnleysi vera í Pól- Framh. á bls. 2 Krúsjetf tlaug í skyndi til Peking að leita liðsinnis Munaði fáum atkvæðum að hann væri felldur frá stjórn kommúnistaflokksins ÞAÐ MUNAÐI aðeins fáum atkvæðum að Nikita Krúsjeff væri felldur úr sæti sínu sem framkvæmdastjóri rússneska komm- únistaflokksins. Skýrir Varsjár-fréttaritari bandaríska stórblaðsins New York Times frá því að fréttir af þessum atburði hafi nú um síðir borizt til Póllands. En atkvæðagreiðsla um þetta fór frawv á miðstjórnarfundi kommúnistaflokksins, sem haldinn var í Moskvu rétt fyrir jól. Malenkov .Tekur hann völdin? FARRA ATKV. MUNUR Á fundinum var borin fram tillaga um að Malenkov tæki við af Krúsjeff sem fram- kvæmdastjóri kommúnista- flokksins. Munaði aðeins fá- um atkvæðum á honum og Krúsjeff. Munu stalinistar i Acheson gagnrýnir harðlega áætlun Eisenhowers um nálæg Austurlönd flokknum hafa staðið fyrir þessu, þótt Malenkov tilheyri ekki þeim armi flokksins. SKYNDIFERÐIN Þá er það einnig upplýst, að snemma í nóvember fór Krúsjeff í leynilega skyndiför til Pekmg höfuðborgar Kína. Þetta var um það leyti, sem hann var harð- ast gagnrýndur fyrir þróun mála I leppríkjunum. í þessari för á Krúsjeff að hafa sagt Mao Tse- Framh. á bls. 2 JJEAN ACHESON sem var utanríkisráðherra Bandaríkj- anna í stjórn Trumans og frumkvöðull að stofnun Atlantshafsbandalagsins hefur harðlega gagnrýnt áætlun Eisenhowers í málefnum nálægra Austurlanda. Hann sagði að áætlunin væri bæði óljós, þýðingarlaus, þvælingsleg og hættuleg. Hann gagnrýndi einnig framkomu stjórnarinnar gegn nánustu bandamönnum. Vel má vera, að í áliti Achesons geti verið einhver hefni- girni síðan republikanar gagnrýndu störf hans. l»ess er þó að vænta að mikið tillit sé tekið til orða hans, sérstak- lega þar sem demokratar hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings. Virðast tillögur Eisenhowers nú vera í mikilli hættu. Hugsanlegt sé að demokratar neyti aflsmun- ar á þingi m. a. í þeim tilgangi að bola Dulles utanríkis- ráðherra frá. Álit sitt birti Acheson fyrir utanrikismálanefnd Bandaríkja- þings, en það er siður þingnefnda, að kalla ýmsa menn fyrir sig til að leita álits þeirra og skoðana, þegar um mikilvæg mál er að ræða. ER ENGIN STEFNA Strax og Acheson hóf mál sitt varð það ljóst að hann var kom- inn til að gagnrýna. Hann sagði: — Það hefur verið talað um að áætlun þessi sé ný stefna. Hún er engin stefna, heldur er hún fsroel hverfi á brott taforlaust New York, 19. jan. ALLSHERJARÞING S.Þ. sam- þykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða þingsálykt- un þess efnis að ísraelsmenn skuli flytja allt herlið sitt frá egypzku landssvæði. Er Dag Hammarskjöld falið að gefa Alls- herjarþinginu skýrslu eftir fimm daga um það, hvernig brottflutn- ingur gangi. Samtímis var lýst yfir óánægju með að ísrael hefði ekki enn hlýtt fyrri ályktun Allsherjar- þingsins um brottflutning her- liðsins. TVEIR A MÓTI Ályktunartillaga þessi var sam þykkt með 74 atkv. gegn 2. Voru það aðeins ísrael og Frakkland, sem greiddu atkvæði gegn henni, Framhald. á bls. 2. aðeins upphaf að því að stefna verði mörkuð. Allar niðurstöður vantar. Þkigið er beðið um að styðja Eisenhower. En þingið á heimtingu á að fá að vita hvernig málefnið er. Það á ekki aðeins að samþykkja að Bandaríkin skuli hafa stefnu í málefnurn nálægra Austurlanda, heldur á það að samþykkja, hvaða stefnu á að hafa. EKKERT NÝTT Síðan rakti Acheson einstök á- kvæði: — f fyrsta kafla eru ákvæði, sem heimila forsetanum að veita efnahagsaðstoð til nálægra Aust- 'm Framh. á bls. 2. Dean Acheson Elvis orhinn stærsta vandamát 1 Pentagon Washington 19. jan. BANDARÍKJAHER hefur feng- ið erfitt vandamál að glíma við. EIvis Presley húllum-hæ- songvarinn frægi er orðinn 21 árs og hefur verið kvaddur iil að gegna herþjónustu. Fyrir nokkru voru ýmsir æðstu for- ingjar i bandariska hernum kvaddir á fund í Pentagon til að ræða þetta ægilega vandamál. NAMSVEL FYRIR TOSSA FUNDIN UPP hagaö, að PARÍS, 19. jan. — Franski sálfræðing- urinn G e n e v a y skýrði í dag frá því að hann hefði fundið upp vél, sem kennir mönnum í svefni Með þessari vél verður hugræn fyrirhöfn við að 1 æ r a utanbókar minnkuð um 80%. Vélinni er þannig þegar menn eru sofnaðir fer hún að ganga og hvíslar í eyra manna klausu sem tekur þrjár mínútur að fara með. Þetta endurtekur hún alla nóttina án þess að vekja mann. En þegar maður- inn vaknar um morguninn k a n n hann þessa klausu utanbókar. Þetta er gott fyrir tornæma nemendur, f y r i r leikara eða fyrir þá sem ætla að halda ræðu. Uppfinninga- maðurinn g e tu r þess sérstaklega að vélin annist aðeins páfagaukslærdóm. — Hugsun sé ekki tengd slíku námi. Þeir óttast að enginn friður verði í hes igastöðvum og herbúð- um, þar sem þetta skurðgoð bandarískra stúikna dvelst. Ó- mögulegt verði einnig að hafa hersýningar og skrúðgöngur her- manna ef EIvis sé þar í hópi, því að þúsundir ungra stúHuia muni ryðjast fram og skerða þar með hátíðleikann og viróingu hersins. ALLIR JAFNIR Engin herkvaðning í Banda- ríkjunum hefur vakið svo mikla athygli, frá því að skjólstæðing- ur McCarthys sem hét Davið Schine reyndi að fá stjórnmála- menn til að beita áhrifum sín- um til að losa hann við her- skyldu. Slíkt var mikið hneyksli því að það er almenn siðgæðis- krafa í Bandaríkjunum, að her- skylda gangi jafnt yfir alla. Á KÁDILJÁK Elvis Presley er hins vegar á engan hátt að skorast undan her- skyldu. Nokkru eftir að hann Framhald. á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.