Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 12

Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 12
12 MORGVNBTAÐtÐ Sunnudagur 20. janúar 1957 Vilhjólmur Einursson kjörinn „Iþröttumuður úrsins" 1956 24 korlor og konur fengu utkvæði í vuli íþróttufrétturituru ú„10 beztu“íþróttumönnum úrsins l/TLHJÁLMUR EINARSSON var kjörinn íþróttamaður ársins 1956 af þeim mönnum er * skrifa um íþróttir í dagblöð og íþróttablöð. Hans kjör var einróma, hans nafn var efst á lista allra þeirra 10 manna er félagar eru í samtökum íþróttafréttamanna, sem stofnað var til fyrir nál. ári síðan af þeim er um íþróttir skrifa. í öðru sæti var bin unga en bráðefnilega sundkona Ágústa Þorsteinsdóttir og í 3. sæti Hilmar Þorbjörnsson, spretthlauparL ★ „10BEZXU" Slíkar atkvæðagreiðslur meðal íþróttafréttamanna eru algengar erlendis og sjálfsagð- ur og skeramtilegur liður í skrifum um íþróttaraál. Hér var spurt að því á kjörseðlin- um), hverjir eru „10 beztu íþróttamenn ársins" sem leið. Gefin voru stig þannig að 1. maður á listanum hlaut 11 stig, annar maður 9, þriðji 8 stig o.s.frv. 10. maður 1 stig. Og útkoman var þannig: Stig 1. Vilhjálmur Einarsson ÍR 110 2. Ágústa Þorsteinsdóttir Á 78 3. Hilmar Þorbjörnsson Á 75 4. Valbjörn Þorláksson ÍR 59 5. Eysteinn Þórðarson ÍR 55 6. Svavar Markússon KR 45 7. Ríkharður Jónsson ÍA 30 8. Einar Halldórsson Val 19 9. Karl Jóhannsson KR 17 10. Hallgrímur Jónsson Á 12 ★ EKKI ÓVÆNT ÚRSLIT Þannig lítur úrslitaseðillinn út yfir „10 beztu íþróttamenn árs- ins“, og má segja að niðurstaðan komi ekki á óvart. Enginn efast um að Vilhjálmur eigi 1. sætið skilið. Ágústa, 14 ára göm- Hl, sem sett hefur 11 isl. met á árinu og náð árangri, sem Island getur verið stolt af, skipar annað sætið. Hilmar Þorbjörnsson, Ólympíufari og jafnsterkasti spretthlaupari sem ísland hefur étt, skipar 3. sætið. Valbjörn með sinn framúrskarandi árangur í stangarstökki 4. sætið og Eysteinn Þórðarson, er beztum árangi ís- lendinga hefur náð á stærstu skíðamótum, 5. sætið. Síðan kem- ur Svavar, hlauparinn með flest íslandsmet íslenzkra frjálsíþrótta manna á árinu og síðan flokka- ftjróttamennirnir (sem oft vilja verða útundan nokkuð í skoðana- könnun sem þessari). Ríkharður og Einar í knattspyrnunni og Karl Jóhannsson í handknattleik og Hallgrímur Jónsson, annar tveggja íslendinga á Evrópuskrá fyrir frjálsíþróttaafrek, skipar 10. sætið. ★ HINIR 14 En margir. fleiri hlutu stig, eða alls 24 karlar og konur. Sé haldið áfram lítur áframhaldið þannig út: Ágústa Þorsteinsdóttir. Stig 11. Daníel Halldórsson ÍR 11 12. Björgvin Hermannsson Val Þórður Þórðarson ÍA 7 14. Ágúst Bjartmarz Snæf. 6 15. Jakobína Jakobsd. ísaf. Pétur Kristjánsson Á Sigríður Lúthersd. Á 5 18. Sigurður Sigurðsson ÍA 4 .19. Guðjón Finnbogason ÍA 3 ÍÍ0. Jóel Sigurðsson ÍR Guðm. Hermannsson KR 2 il. Albert Guðmundss. ÍBH Birgir Björnsson FH Ól. Ág. Ólafss. GR (golf) 1 Alls 24 íþróttamenn og konur: 8 frjálsíþróttamenn, 6 knatt- spyrnumenn, 3 úr sundi, 3 úh handknattleik, 2 í skíðaíþróttum, 1 badmintonmaður og 1 golfmað- ur. — ★ MÖRG SJÓNARMIÐ Þegar velja á „10 beztu“ geta mörg sjónarmið komið til greina. Einn kjósandinn horfir ef til vill á hvernig íslenzkir íþrótta menn myndu standa sig í keppni á alþjóðamótum, annar lætur það ráða mestu, hverjum framförum íslenzkir íþróttamenn hafa náð á árinu, þriðji reynir að finna mann í sem flestum greinum í- þrótta og fleira og fleira getur mótað valið. Sem betur fer er úr stórum hóp að velja og margir Vilhjálmur Einarsson. koma til greina á lista yfir „10 beztu". ★ SAMTÖK ÍÞRÓTTA- FRÉTTAMANNA Samtök íþróttafréttamanna eru eins og í upphafi segir árs- gömul. Þau voru stofnuð með hliðsjón af sams konar klúbbum á öllum Norðurlöndunum 4 og haga starfi sínu á sama hátt og eiga samstarf við þau. Félags- menn eru ýmist aðalfélagar eða aukafélagar eftir starfi þeirra við blöðin. Aðalfélagar eru: Frímann Helgason, Þjóðviljanum; Hallur Símonarson, Tímanum; Sigurður Sigurðsson, íþróttaþáttur útvarps ins; Brynjólfur Ingólfsson, rit- stjóri íþróttablaðsins; og Atli Steinarsson, Morgunblaðinu. Aukafélagar eru: Örn Eiðsson og Einar Björnsson við Alþýðu- blaðið, Hannes Sigurðsson við Morgunblaðið og Axel Sigurðsson og Þórður Sigurðsson við Vísi. Stjórn þessara samtaka skipa: Atli Steinarsson og Frímann Helgason. Hiimar Þorbjörnsson. Reykjavik vann alla 3 leiki fyrra kvöldið BÆJAKEPPNIN í handknattleik milli Hafnarfjarðar og Reykja- vikur, sem hófst á laugardaginn bauð upp á skemmtilega leiki, vel leikna og hraða, en Reykjavíkurliðin fóru með sigra af hólmi > öllum 3 leikunum það kvökl. Þeir hafa því 6 stig er síðari hluti keppninnar hefst í kvöld en þá fara fram 3 leikir og geta Hafn- firðingar ekki náð nema jöfnum heildarúrslitum, en það munu þeir hafa fullan hug á. í KVÖLD er keppnin í m.fl. karla, þar sem úrvalslið HKRR leikur fyrir Rvík gegn úrvalsliði Hafnarfjarðar; í 1. fl. karla, þar sem Reykjavíkurmeistarar KR leika fyrir Reykja- vík; í 3. fl. karla þar sem Reykjavíkurmeistarar Ármanns leika fyrir Reykjavík. í fyrra sigruðu Hafnfirðingar í meist- ara- og 3. flokki. * 2. FLOKKVR KVENNA Bæjakeppnin hófst með leik í 2. flokki kvenna. Sá leikur var alltof ójafn til þess að hann gæti verið skemmtilegur. Reykvíking- ar sigruðu með 9 mörkum gegn 0. Þeir voru öruggir sigurvegarar allt frá byrjim. Hafnarfjarðar- stúlkurnar eru miklu minni að vexti og getu — að þessu sinni. ★ MEISTARAFLOKKUR KVENNA í Mfl. kvenna kepptu Reykjavík- urmeistarar Þróttar fyrir Reykja- vík nema markvörðurinn, sem • ekki mætti vegna veikinda og1 kom varamaður í hans stað og það út af fyrir sig jafnaði leikinn mjög. Úti á vellinum var lið Þróttar allsráðandi, með fallegum og hröðum skiptingum og nákvæmu spili — flokki ofar hafnfirzku stúlkunum. Og Reykja vík sigraði með 9 mörkum gegn 5 eftir 4:3 í hálfleik. ★ 2. FLOKKUR KARLA 2. flokks leikur karla, þar sem ÍR mætti fyrir Reykjavík var ákaflega harður leikur, skemmtilegur og tilþrifamikill á köflum. Það þarf ekki að örvænta um framtíð handknattleiksins meðan svona snjallir unglingar halda áfram að streyma í hand- knattleikssalina. Reykvíkingar tóku forystuna með 2 mörkum og náðu Hafnfirðingar aldrei nema að jafna leikinn og það ekki nema 3 sinnum í honum. Allan tímann voru Reykvíkingar yfir í mörkum enda lið þeirra jafnsterkara. Þó voru Hafnfirð- ingarnir áberandi betri í vörn. Ef Hafnfirðingum tókst að æsa hina ungu Reykvíkinga upp, koma miklum hraða í leikinn, þá var Reykjavíkurvörnin mjög götótt. Hafnfirðingar byggðu um of á einum manni, Ragnari. Út- hald þeirra bilaði fyrr en hinna, því undir lok leiksins skoruðu Rvíkurmenn 5 mörk í röð, þó Hafnfirðingum tækist á síðustu mínútum að minnka markamun- inn í 18:15, sem urðu úrslit leiks- »s. Beztu menn Reykjavíkur voru Matthías, Hermann og Val- ur. Gunnlaugur er skotfastur, en of ör á skotin. Hjá Hafnfirðing- um bar langmest á Ragnari og markvörðurinn átti og góðan leik. — Reykjavíkurbréf Framh. af bls. 11 leitt, hefðu þeir hér tækifæri til að koma þeim áformum fram, — Nú er að sjá, hvort ofan á verð- ur, þörfin á að koma Haraldi Guðmundssyni úr landi eða tryggðin við gamlar sparnaðar- kröfur. Fulltrúar Framsóknar hjá Sameinuðu þjóðunum MESÐ svipuðum hætti héldu Framsóknarmenn því löngum á lofti, að óþarft væri að senda nema einn mann á þing Sam- einuðu þjóðanna. Á þessu varð breyting, þegar Framsóknarmað- ur varð utanríkisráðherra. Þá þótti meira við liggja að senda Vilhjálm Þór á þessa samkundu og síðan Þórarin Þórarinsson en að spara fé rikisins, eins og áður hafði sífellt verið tönnlast á. Ágengni Framsóknar í sendifarirnar var svo mikil í haust, að þótt Alþýðuflo'kur- inn með utanríkisráðherrann í sínum hópi sætti sig við að hafa engan sinn flokksmann sem full- trúa á þinginu, þá krafðist Framsókn að fá þar fulltrúa. — Fyrst var sendur þangað Þórar- inn Þórarinsson, en er hann þótti ekki geta verið þar leng- ur vegna starfa síns við Tím- ann, varð fyrir valinu Stein- grímur Hermannsson, maður bú- settur vestanhafs, en sonur sjálfs forsætisráðherrans, Hermanns Jónassonar. „Tíminn" hefur nú fundið þá frumlegu skýringu á þessu full- trúavali, að Sameinuðu þjóðirn- ar starfi svo mjög að tækniþróun, að þangað verði að senda tækni- fróðan mann. En þetta er nokk- uð seint séð. Af hverju var Steingrímur Hermannsson þá ekki útnefndur strax í haust, ef með þvi hefði mátt bjarga tækni- þróun íslands? Og mundu þó ekki ýmsir skólar henta betur í þessu efni en allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna? Um Steingrím Hermannsson má sjálfsagt margt gott segja og Morgunblaðið hefur ilia sízt löngun til að gera hlut hans lít- inn, en það vita allir, að eng- um hefði komið til hugar að gera hann að fulltrúa Islands hjá Sameinuðu þjóðunum, ef hann væri ekki sonur Hermanns Jón- assonar. Heimsatburðir í sama horfi Ún í HEIMI hefur lítið nýU gerzt. Minni breytingar urðu á brezku stjórninni en ýmsir höfðu búizt við. Tillögur Eisenhowers um ráðstafanir í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs eru nú til meðferðar á Bandarikjaþingi. — Þar eru andstæðingar hans í meiri hluta og munu áreiðanlega, eins og einn forystumaður þeirra sagði, taka þær til rækilegrar meðferðar áður en endanleg af- staða verður tekin. Sérstaka at- hygli hafa ummæli Achesons, fyrrverandi utanríkisráðherra, um þessar tillögur, vakið, en hann taldi þær vera um of óá- kveðnar og frekar lýsa löngun til að gera eitthvað heldur en ákveðið væri, hvað gera skyldi. Enn harðnar deilan um Kash- mir. Nehru, sem er óneitanlega einn af helztu forystumönnum heimsins, sýnir í því máli, að honum fer sem fleirum, að vilja láta aðrar reglur gilda um sjálf- an sig en aðra. Hann ræðir mik- ið um hlutleysi og andúð á vald- beitingu, en hefur ekki hingað til skirrzt við að láta valdið skera úr um þennan ágreining austur þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.