Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 20

Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 20
Veðrið SV-kaldi, éljagangur. Reykjavíkurbréf er á bls. 11. 16. tbl. — Sunnudagur 20. janúar 1957. Fulltrúa- og trúnaðarmannaráðsfundur Sjálfstæðisfélaganna kl. 2 i dag Rætt um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum Frummælendur: Björn Ólafsson aljxn. og Ólafur Björnsson alþm. KLUKKAN 2 e. h. í dag hefst fundur í Fulltrúaráði ©g Trúnaðar- mannaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í Sjálfstæðishús- inu. Frummælendur verða alþingismennirnir Björn Ólafsson og Óiafur Björnsson prófessor, en utnræðuefni fundarins er: Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálunum. Fátt er nú meira rætt manna á meðal en hinar gengdarlausu skattaálögur á almenning, sem ríkisstjórnin knúði í gegn á Al- þingi rétt fyrir jólahátíðina. Sið- aa þessi illa þokkuðu lög voru samþykkt, hafa ýmsir þættir þeirra skýrzt verulega og liggja nú fyrir ýmsar nýjar upplýsing- ar um hversu miklar álögur þau hafa í för með sér á allan al- menning og um þá kjaraskerð- ingu, sem þau óhjákvæmilega hljóta að leiða af sér fyrir hinar vinnandi stéttir í landinu. Stjórn Fulltrúaráðsins hefur því ákveð- ið að efna til fundar um þessi mál í Sjálfstæðishúsinu í dag kl. 2 e. h. fyrir meðlimi Fulltrúa- ráðsins og Trúnaðarmannaráðs- ins. Frummælendur verða alþingis- mennimir Björn Ólafsson og ólafur Björnsson, prófessor, en báðir tóku þeir mikinn þátt í umræðunum um þessi mál er þau lágu fyrir Alþingi, enda gagn- kunnugir þessum málum. Full- trúaráðsmeðlimir og trúnaðar- ráðsmenn eru hvattir til að mæta stundvíslega kl. 2 e. h. og sýna skírteini við innganginn. Björn Ólafsson. Ólafur Björnsson. Talsimasambands- laust við Vest- firðina THUFLANIR hafa verið tíðar á talsímasambandinu við Vestfirði og í gærkvöldi var símasambands laust þangað. Hafði það þá verið í lagi í nokkrar klukkustundir og hægt að koma raest áriðand-i sím- tölum sem fyrir lágu vestur. —• Var bilunin á línunni milli bæj- anna Skámadals og Brekku í Barðastrandasýslu. Vestur við Djúp brotnuðu 6 staurar og bilun varð á símalínunni austan og vestan Arngerðar. í gær var ó- fært veður vestra, svo að ekki var hægt að fást við lagfæringar. Strax og veðrinu slotar og hægt ver'ður að lagfæra þessar skemmd ir, verður tekið til óspilltra mál- anna. Þá er þess að geta að noröur I Húnavatnssýslu hafa orðið tals- verðar bilanir á sveitasímum. Háskóli íslands hefur kjörið 56 doktora 20 þeirra hafa varió doktorsritgerð H ÁSKÓLI ÍSLANDS hefur frá upphafi útnefnt 56 doktora. Hafa 20 þeirra varið doktorsritgerð. Fyrsti maðurinn, sem varði doktorsritgerð við háskólann var dr. phil Páll Eggert Ólason árið 1919. Sá er síðastur varði doktorsritgerð þar er dr. phil. Kristján Eldjárn, sem var kjörinn doktor í gær. Þrjátíu og sex af doktorum háskólans eru doktorar honoris causa eða heiðursdoktorar. Þessar upplýsingar um doktorspróf við Háskóla fslands fékk Mbl. í gær hjá skrifstofu háskólans. Jökulsá á Breiðamerkur- sandi líkist nú firði Sjávarfalla gætir allt upp að jökli Kirkjubæjarklaustri 19. jan.1 að 50 metra djúpt lón, sem í DAG fóru menn frá Svínafelli í Nesjum með vörubtl austur yf- ir Skeiðarársand. Gekk þeim ágætlega austur í Öræfi, enda er færi nú eins og bezt verður á kosið. Þeir ætla með bílinn all» leið austur í Hornafjörð, en óvíst er hvernig þeim gengur yfir Jök- ulsá á Breiðamerkursandi, þvi að sem stendur er talsvert flóð á ánni. Komst Sigurður Arason á Fagurhólsmýri svo að orði, að hún mætti nú frekar kall- ast fjörður heldur en fljót. Uppi við jökulröndina er allt FLESTIR DOKTORAR VH) HEIMSPEKIDEILD Þeir 20 menn, sem tekið hafa doktorspróf, skiptast þannig eftir deildum, að 11 eru dr. phil., 6 dr. med., 2 dr. juris og 1 dr. íheol. Allir eru þessir menn íslending- ar. Hinir 36 menn, sem sæmdir hafa verið heiðursdoktorsnafnbót skiptast þannig eftir háskóla- deildum, að 19 eru dr. phil., 6 dr. theol, 4 dr. juris, 4 dr. litt. isl. (sérstakur heiðurstitill fyrir út- lendinga, sem skarað hafa fram úr í íslenzkum fræðum), 2 dr. med. og 1 dr. oecon. Af heiðursdoktorunum eru 20 Islendingar, 8 Vestur-íslending- ar og 8 útlendingar. NÝR DOKTOR Eins og áður er sagt var nýr doktor kjörinn við hátíðlega at- höfn í Háskólanum í gær. Er frá þeirri athöfn skýrt á öðrum stað í blaðinu. Æskulýðsvika á Akranesi Á MORGUN, sunnudag, hefst æskuiýðsvika í kirkjunni á Akranesi. Verða þar samkcm- ur á hverju kvöldi alla vik- una, og munu ýmsir ræðu- menn tala. Almennur söngur verður mikill og auk þess einsöngur eða tvísöngur á hverju kvöldi. Á fyrstu samkomunni, sem verður annað kvöld, talar Sverrir Sverrisson, skólastjóri. — Allir eru velkomnir á sam- komur þessar. Þróttarfélogar, vinnið oð sigri A.-listans Stjórnarkjöri lýkur i kvöld STJÓRNARKOSNINGIN í Vörubilstjórafélaginu Þrótti heldiur áfram í dag og hefst kl. 1 e.h. og stendur til kl. 9 e.h. og er þá lokið. Tveir listar eru kjöri: A-listi, sem borinn er fram af andstæðingum kommúnista félaginu og skipaður er mönn um er um árabil hafa haft for- ustu í málefnum Þróttarfélaga. Aftur á móti er B-Iistinn, sem skipaður er kommúnistum og studdur af þeim, saman setúur af mönnum sem enga reynslu eða þekkingu hafa á málefnum fél agsins og formannsefni kommún- ista hefur fallið í kosningum ár eftir ár við lííinn orðstír. Er greinilegt, að jafnvel Þjóð- viljamenn skammast sin fyrir þessa flokksbræður sína í Þrótti, þvi að í gær minntust þeir ekki á lista sinn í félaginu, sem er þó skipaður tryggum fylgismönnum kommúnistaflokksins. Er þetta vissulega athyglisvert, því að sjaldan hefur það komið fyrir i stjórnarkosningium í verkalýðs félögunum að Þjóðviljinn hafi sparað illyrðin um andstæðing- anna, en hafið sina menn til skýja. Er greinilegt, að Þjóðvilja- menn telja málstað sinn svo aum an i Þrótti, að þeir trev*"1® sér alls ekki til að minnast á kosn- ingarnar í félaginu, en reyna að þcgja ávirðingar sinar í hel. En það mun þeim ekki takast, til þess þekkja Þróttarfélagar alit of vel starfsemi kommúnista í félaginu, sem miðast hefur við það eitt, að gera Þrótt að hand- bendi kommúnistaflokksins, en látið sig hagsmunamál félagsins engu skipta. Þróttarfélagar, eflið ykkar eig in hag og styrkið samtök ykkar með þvi að gera sigur A-listans sem glæsilegastan. Munið að hvert atkvæði sem fellur á lista kommúnista hrópar á auknar á- lögur og vaxandi atvinnuleysL MUNIÐ X A-LISTINN. stöðugt stækkar eftir því sem jökullinn gengur í sig. — Framan við lónið er allbreitt haft, en þar er nú orðið svo djúpt, að flóðs og fjöru gætir allt upp að jökli. Er oft mikill öldugangur á ánni svo að mikillar varúðar þarf að gæta, þegar verið er að ferja yfir hana. Lítið er um ferðir út í Öræfi austan yfir Breiðamerkursand, nema þegar prófasturinn á Kálfa- fellsstað kemur til að messa. — Fréttaritari. Akranes var rafmagns- laust nœr tvo sólarhringa AKRANESI, 19. jan. — f aftaka- veðrinu, sem geisaði víða sl. fimmtudag, urðu ekki miklar skemmdir á Akranesi. Var það lán, hve vindur var orðinn hátt stæður, því að svo mikið flóð gerði hér, að menn minnast ekki slíks. Vindur var norð-vestan. Trillubáta var búið að setja í vetrarskorður. Lá þó við að sjór- inn græfi undan þeim. Ekki sak- aði þá þó, að einum undantekn- um, Voninni, sem tók út og bar út yfir klettana og út að nýju steinkerunum, sem liggja efst við bátabryggjuna. Sökk báturinn þar en er óbrotinn. Háspennulínan út á Akranes tveim staurasamstæðum á Súl- eyri, á leiðinni yfir Leirárvoga og Ósana, og slítnuðu vírarnir. Raf- magnslaust var á Akranesi á annan sólarhring. Verkstæði urðu að láta vinnu falla niður, vegna rafmagnsbil- unarinnar, skólar urðu að fella nicur kennslu og hefði um róðra verið að ræða, hefði vinna stöðv- azt meira og minna í frystihús- unum. FLÓÐI YFIR VEGINN í Hvalfirði á móts við Katanes gekk sjórinn yfir veginn og skemmdi hann á nokkrum stöð- um. Svona flóð eru mjög sjald- gæf og koma aðeins á margra ára bilaði í veðrinu. Gróf undan fresti. — Oddur. Sjólfstæðismenn ó Akureyri ræðu fjúrhugsúætlun bæjurins OJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á Akureyri efna til fund- ar í fundarsal Landsbankans á mánudagskvöldið kl. 8.30. Fundarefni: Fjárhagsáætlun bæjarins. Frummælendur: Helgi Pálsson og Jón G. Sólnes. íslenzkir sjómenn dœmdir í Rotterdam FYRIR nokkrum vikum voru ís- lenzkir sjómenn dregnir fyrir rétt í hollenzku hafnarborginni Rotterdam. Stóð þetta í sambandi við feikna miklar áfengisbirgðir, sem tollverðir þar fundu i skip- inu, en þær höfðu ekki verið gefnar upp, er skipið kom þang- að til hafnar á leið til íslands. Var hér um að ræða eitt tonn af og spíritusbirgðir allar voru gerð hreinum vínanda (spiritus), 1000 lítrar og milii 50 og 700 flöskur af áfengi. Menn þessir voru, að því er fregnir hcrma, hver um sig dæmd ur í 2000 gyllina sekt, um kr. ar upptækar. Geta má þess að ef slíkt magn, sem hér um ræðir, hefði fundizt hér við tollskoðun í skipinu, þá hefðu þessir fjórir skipsmenn alls verið dæmdir í kringum 600,000 króna sekt. — Skip það 24.488 íslenzkar alls. Þessar vin- sem hér um ræðir er Reykjafosn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.