Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 10

Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 10
10 MORCVNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. Janúar 1957 usiirlðMfr Otg.: H.f. Árvakur, Reykjavik Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjami Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Ásmundsson. Lesbók: Ámi Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgrciðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Bæjarstjórnin og hásnæðismólin ÁSÍÐASTA bæjarstjórnar- fundi veir samþykkt tillaga Sjálfstæðismanna um aðgerðir í húsnæðismálunum og var hún svohljóðandi: „I>ar sem horfur eru á, að á- ætlun Reykjavíkurbæjar um íbúðabyggingar til útrýmingar herskálum og öðrum heilsuspill- andi íbúðum tefjist verulega, ef ekki er tryggt aukið fjármagn til þessara byggingaframkvæmda frá hinu almenna veðlánakerfi, svo sem í upphafi var ráðgert, skorar bæjarstjórn á Alþingi og ríkisstjórn að gera þegar nauð- synlegar ráðstafanir í þessu skyni. Sérstaklega telur bæjarstjórn- in óhjákvæmilegt að auka stór- lega framlög ríkissjóðs til út- rýmingar heilsuspillandi íbúða, skv. II. kafla 1. nr. 55/1955, jafn- framt því sem lánveitingar hús- næðismálastjórnar, samkv. I. kafla sömu laga séu framkvæmd- ar þannig, að þeir, sem íengið hafa ián vegna útrýmingar heilsu spillandi íbúða, fái engu að síð- ur nægjanleg A- og B-lán til þess að fullgera íbúðir sínar. Skorar bæjarstjómin sérstak- lega á þingménn Reykjavíkur að beita sér fyrir framgangi þess- ara mála og átelur harðlega að- gerðaleysi ríkisstjórnarinnar í þeim að undanförnu", Tilefni þess að Sjálfstæðis- menn báru fram þessa tillögu var það, að ríkisstjórnin hefur ekki enn, svo vitað sé, aðhafzt nokkuð í þá átt aS tryggja á- framhaldandi fjármagn til veð- lánakerfisins, sem stofnsett var með nýjum lagabálki um hús- næðismál á árinu 1955. Fyrrver- andi ríkisstjóm hafði samið við bankana um framlög til veðlána- kerfisins og var sá samningur útrunninn um síðustu áramót. Einn þátturinn í húsnæðismála- löggjöfinni var að Landsbanki íslands hefði forystu um að beina fjármagni annarra lánstofnana til húsbygginga og var einsætt að því yrði haldið áfram. En rikis- stjómin hefur ekkert aðhafzt til að endurnýja samkomulagið við lánstofnanirnar um fjárframlög og ekki heldur reynt að fá crlent lánsfé svo vitað sé. >egar Reykjavíkurbær gerði áætlun sína í byggingarmálum, sem miðar að því að útrýma heilsuspillandi íbúðum í bæn- um, var að sjálfsögðu byggt á því að veðlánakerfið skv. hinum nýju lögum yrði starfhæft, þann- ig að það væri fært um að lána út á nýbyggingar, skv. þeim reglum, sem lögin setja. En nú er útlit fyrir að ríkisstjómin hafi keyrt þetta mál í strand og ætli að gugna á að halda áfram fjáröflun í framhaldi af því, sem áður hafði verið gert. Formaður framkvæmdastjóraar húsnæðis- málastjórnar, eins og það er kall- að, lét í ljós að hann hefði tak- markaðan áhuga á lánveit ingum skv. lögunum og að bygg- ingar mættu vel stöðvast. Ef þcssi er afstaða ráðandi manna nú, er það stórkostlegt áfall fyr- ir þá, sem treyst hafa á lögin frá 1955 og þá lánmöguleika, sem þau feia i sér. >að er vegna þeirra, sem til- laga SjálfstæðismEinna var borin fram á fuixdi bæjarstjórnarinnar. Mikil byggingaþörf Eftir að rýmkað var um frelsi manna til bygginga hefur sú starfsemi tekið stórt stökk. Þörfin var orðin brýn fyrir bættan húsakost og þarf ekki að hafa um það mörg orð, svo alkunnugt, sem það er. Tala byggðra íbúða á seinustu árum ber vott um þetta. Þannig var lokið við 329 íbúð- ir árið 1952, 349 árið 1953, 4þ7 íbúðir árið 1954 og 564 íbúðir árið 1955. Er þá aukningin árið 1955, miðað við árin á undan, þessi: 16% miðað við 1954, 61% miðað við 1953, 70% miðað við 1952 og 100% miðað við 1951. Er aukningin langörust siðustu árin, eftir að fjárhagsráð var lagt niður og afnumdar fjárfestingar- mömlur á minni íbúðum, eða innan við 520 m3. En það hefur alltaf háð úr- lausn þessara mála mjög að skortur hefur verið á fjármagni og engin almenn veðlánastofnun til í landinu, sem sinnti þörfum þeirra, sem byggja vildu íbúðar- hús. Veðdeild Landsbankans var, fyrir atburðana rás, orðin óvirk. Sjálfstæðismcnn lögðu á það sér- staka áherzlu í sajnningi sínum um stjórnarmyndun með Fram- sóknarflokknum árið 1953 að fjármagn yrði aukið til íbúða- bygginga og báru fram tillögur á Alþingi um nýskipan þeirra mála og fjárútvcgun. Síðan voru lögin um hið nýja veðmálakerfi sett á Alþingi 1955 en á undan var gengin lánadcild smáíbúða árið 1952. Það hefur komið í ljós að ekki hefur verið imnt að full- nægja lánsfjárþörfinni en lánveit ingar urðu miklu meiri frá veð- lánakerfinu árin 1955 og 1956 en áætlað hafði verið. Mjög hef- ur rýmkazt um lánsfé til íbúð- bygginga frá þvi, sem áðu- var og er talið að fastar lánveitingar í þessu skyni á s.l. ári hafi num- ið um 120 milljónum kr. Því hef- ur verið haldið fram af hálfu stjórnarflokkanna nú og síðast á bæjarstjómarfundinum á dög- unum að hið nýja veðlánakerfi sé „gjaldþrota“. Reynslan af þeim stutta tíma, sem það hefur fengið að starfa sýndi allt ann- að en ef það er hins vegar stefna þeirra, sem nú ráða að eyðileggja þessa stofnun, þá verður hún „gjaldþrota" fyrlr þeirra til- verknað og engra annarra. Reykjavíkurbær hefur nú und- ir forustu Sjálfstæðismanna hrundið af stað stórfelldu átaki til þess að útrýma heilsuspillandi íbúðum í bænum. Fjöldi fólks hefur tengt miklar vonir við að það gæti fengið lán í hinu al- menna veðmálakerfi en á lánsfé frá því ásamt byggingar- framkvæmdum bæjarins veltur það hvort imnt er að úxýma herskálunum og öðru ámóta lé- legu húsnæði á næstu árum. Samþykkt bæjarstjórnar var gerð til aó undirstrika þaS að Reykjavikurbær vill standa viff það, sem hann hefur lýst yfir að hann muni gera og til þess að herða á rikisstjórninni um að halda áfram þeirri stefnu í láns- fjármálum vegna íbúðabygginga, sem Alþingi staðfesti í löggjöf- inni um húsnæðismál. UTAN UR HEIMI JjJíucjJerá áty ttlót um 22 . Llót. JjJíocjiÉ / >Olli beint ifji r inn mt ann 24. febrúar n. k. | mun merkilegur atburður gerast í sögu flugsins, þegar fyrsta j áætlunarflugvél SAS leggur af stað til Tokyo höfuðborgar Japan. Það merkilega er, að flugvélin mun ekki fljúga hina venjulegu leið suður yfir Miðjarðarhaf og Indland, heldur flýgur hún yfir i Norðurpólinn og Alaska. Þessi I flugleið finnst mörgum spenn- andi og ævintýraleg. Það er þó ekki þess vegna sem hún er val- in, heldur vegna þess, að hún er stytzta leiðin til fjarlægra Aust- urlanda. Skandinaviska flugfélagið SAS er fremur lítið samanborið við hin voldugu flugfélög stórþjóð- anna. Það hefur samt unnið mik- ið brautryðjandastarf varðandi flugferðir yfir norður-heimskauls löndin. Stærri félög hafa síðan fetað í þeirra fótspor. M enn hafa að sjálf- sögðu tekið eftir því fyrir löngu að flugleiðin frá Evrópu til Vest- urstrandar Bandaríkjanna og Austur-Asíu er miklu styttri ef farið er yfir heimskautssvæðið, heldur en ef farin er hin venju- lega leið. Sá hefur aðeins verið gallinn, að aðstæður á þessari flugleið hafa verið miklu verri. Þar hefur þurft að glíma við hinn mikla heimskautskulda. Þó flug- vélarnar hafi orðið svo fullkomn- ar með tímanum, að kuldinn gerði þeim ekki mein, hefur vantað flugvelli og þær birgðir sem til hefur þurft. Áhættan hefur einnig verið talin mikil. SAS flugfélaginu hefur tekizt að sigrast á erfiðleikunum. — Bandaríski herinn og Kanada- menn hafa gert flugvelli víða í heimskautslöndum og hefur SAS fengið afnot af þeim til ferðanna. Farþegaflug yfir heimskauta- svæðið hófst dag einn í nóvem- ber 1952. Þá lagði Douglas-flug- vél SAS „Arild Viking" upp frá Los Angeles. Hún flaug fyrst gegnum sólskin og hita Kaliforníu síðan um nístandi vetrarkulda og myrkur heimskautslandanna. Og loks lenti hún eftir 28 klst. flug í hellirigningu á Kastrup-flug- velli. TVeimur árum síðar hóf SAS fastar áætlunarferðir með sömu flugvél milli Los Angeles og Kaupmannahafnar og öðlaðist félagið heimsfrægð fyrir það. Ferðum hefur stöðugt verið hald- ið upp á leiðinni og eftirspurn eftir fari mikil. önnur flugfélög eins og Pan American og Luft- hansa eru einnig að hefja áætl- unarferðir á sömu leið. SAS lét sér þó ekki þetta nægja. Vart voru ferðirnar til Los Angeles hafnar, fyrr en byrj- að var að skipuleggja flugferðir til Tokyo. Hin venjulega flugleið þangað, suður um Indland er 20 þúsund km. En sé farið yfir heim- skautið er leiðin aðeins 13 þús. km. Með því að fljúga hana spar- ast því mikið fé t. d. í benzíni. Og enn þýðingarmeira er e. t. v. að flugtíminn verður aðeins 28 Heimskautssvæðið verður fjölfarið, enda stytzt að fljúga um það milli heimsálfa. Áætlunarleiðir SAS eru markaðar inn á þetta landakort. klst. en hefur verið 50 klst. Vel má vera, að ákvörðun SAS um að hefja flugferðir þessa leið til Tokyo valdi gerbyltingu í flug- málum milli Evrópu og Asíu. Við skulum nú líta á kortið. Flugíeiðin til Los Angeles er í sjálfu sér ekki pólflug, því að farið er aðeins rétt norður fyrir heimskautsbaug, komið við í Syðri Straumfirði í Grænlandi. En leiðin til Tokyo er sannkallað pólflug. Það er flogið norður með Noregi, yfir Svalbarða, beint yfir heimskautið og til Anchorage í Alaska, sem verður að jafnaði eini viðkomustaðurinn. Síðan er Aleútaeyjunum fylgt til Japan. Flugvélar SAS hafa 10 sinn- um flogið þessa leið. M. a. fóru þær þessa leið með íþróttamenn Norðurlanda á Olympíuleikana í Ástralíu. En margs er að gæta i þessu sambandi t. d. að veður eru oft válynd í Alaska, þokur miklar og rigningar. Það verður að sjá um að varaflugvellir séu fyrir hendi, ef flugvöllurinn í Anchorage er lokaður. T il að prófa allar að- stæður hefur SAS farið þessa flugleið margsinnis „á pappírn- um“ eins og það er kallað. Það er framkvæmt þannig, að engin raunveruleg flugvél fer af stað, en tilkynning er send um það frá Kaupmannahöfn að farþegaflug- vél sé lögð af stað. Radióstöðv- arnar í Bodö, á Svalbarða, á ís- jaka við Norðurpól, Fairbanks, Anchorage, Aleútaeyjum fylgjast allar með hinni ímynduðu ferð. Veðurskeyti eru send og þá kem- ur fyrir að flugvélinni er sagt að setjast á óvæntum stað og bíða af sér fárviðri. Vindar eru mæld- ir til að íhuga, hvort þeir tefji flugið, hvort benzinbirgðirnar séu nægar o. s. frv. Við þessa rannsókn hefur það komið í ljós, segir stjórn SAS, að flugferðir yfir heimskautið til Tokyo munu verða öruggar og tímavissar. Þjófaför á sfolnum vörubjl AÐFARANÓTT fimmtudagsins var vörubílnum R-5724 stolið þar sem hann stóð við Rauðarárstíg- inn. Um nóttina lentu þjófamir í árekstri, óku á mannlausan bíl vestur á Bræðraborgarstíg. Mað- ur nokkur er var þarna skammt frá á bíl, sá þetta og að bílnum var ekið í burtu. Veitti hann bílnum eftirför niður Rán- argötuna og á bílastæðið við Garðastræti, en þar sá hann mennina, sem báðir virtust ung- ir, stökkva úr bílrnun og yfir grindverk og hurfu þeir honum í Grjótaþorpinu. Maðurinn lét lögregluna strax vita tun þetta. Ekki fundust þó mennirnir. En það kom í ljós, að þeir höfðu farið í þjófaleiðangur á bílnum suður á Reykjavíkurflugvöll og stolið þar úr geymsluskemmu trétexi og masonitplötum. ,, Fjölbreytt hefti af Nýju Helgafelli : DESEMBERHEFTH) af Nýju Helgafelli er komið út. Er það að vanda f jölbreytt að efni og frágangur allur hinn prýðilegasti. Meðal efnis er nýtt kvæði eftir Stein Stein- arr, sem nefnist: Formáli á jörðu. Er óhætt að segja, að þetta kvæði Steins hafi vakið mikla athygli, enda kveður við talsvert nýjan tón í því. Þá er Faustþýðing eftir Magnús heitinn Ásgeirsson, sem hann ,ét eftir sig í hand- riti, sagan Far veröld, far vel, eftir Gunnar Gunnarsson, kvæðið Tossagerpla eftir Jó- hann Hannesson, Ef skrifaðar hefðu verið dagbækur eftir Þórberg Þórðarson. Pétur Benediktsson skrifar um Millibð allra milUliða og Jó- hannes Nordal ræðir um Hvað er framundan? — Þá eru tvö bréf um andlegt frelsi, sem þeir skrifa Friðrik A, Friðriksson og Níels Dungal. Loks eru í þessu fjölbreytta heftt Nýs Hdgalells tvö bréf frá Matthíasi Jochumssyni til H. G. Andersens, þættir um bókmennttr leiklist og mynd- list og tvær myndár efttr Braga Ásgeirsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.