Morgunblaðið - 20.01.1957, Page 2
2
M/tvzrrnrnr 4nrÐ
— Gagnrýni
Framh. af bls. 1
urlanda. Þetta sýnir að vísu góðan
vilja, sagði Acheson, en forsetinn
hefur þegar fulla heimild til
þessa. Þetta er þegar samþykKt
með lögum og báðir flokkar eru
fullkomlega samþykkir þvL Ein-,
föld þingsályktun gæti styrkt
þennan tilgang stjórnarinnar.
EKKI VITAÐ UM
ÁRÁSARHÆTTU
í öðrum kafla á að heimila for-
setanum að veita þjóðum ná-
lægra Austurlanda hernaðarað-
stoð. Þetta vald hefur hann þeg-
ar. En þarna er líka farið fram
á meira, sagði Acheson. Þar er
ætlazt til að Eisenhower forseta
verði veitt vald til að beita
bandarísku herliði, þar sem að
hann telur nauðsynlegt, til að
hjálpa einhverri þjóð nálægra
Austurlanda, sem biður um að-
stoð, vegna árásar frá einhverri
þjóð, sem kommúnistar ráða.
Þetta ákvæði gagnrýnir
Acheson harðlega. Hann segir
að eftir því sem það sé at-
hugað betur, komi æ skýrar í
ljós, að þetta er óljóst, óvisst
og allsendis ófullnægjandi sem
stefnuyfirlýsing. Ekki sé vitað
um neina hættu á beinni árás
af Rússa hálfu á þessu svæði,
né heldur af hálfu annarra
kommúnískra ríkja.
ÁBYRGÐARLAUST TAL
Óþarfi sé því að fela for-
aetanum svo mikið vald, nema
hér sé í rauninni átt við hvort
ieggja eigi i sjálfdæmi forset-
ans að svara takmarkaðri árás
t kommúnista með allsherjarár-
ás á Sovétríkin. Sé svo, þá
telur Acheson að áætlun Eisen
howers feli í sér ábyrgðarlaust
tal um að Bandaríkjamenn
muni svara jafnvel smáárásnm
með kjarnorkustríði.
Acheson telur viturlegra að
samþykkt verði ályktun þess efn-
is að deildir úr varnarstyrk
Bandaríkjanna verði við öllu bún
ar, ef þeirra þurfi með.
ÞURFUM BANDAMENN
Og hann bætti við: — Það er
einnig galli á þessari áætlun að
það virðist gert ráð fyrir ein-
hliða beitingu herafla Banáarikj-
anna. En slíkur varðgæzluher
þarf bækistöðvar og hann þarf
líka bandamenn. Þess vegna er
það frumskilyrði, áður en frekar
er aðhafst að bindast samtökum
— Pólland
Framh. af bls 1
landi og þeir muni þá ekki verða
aðgerðalausir.
EKKI VON UM BETRA
Flestum stjórnmálamönnum
ber nú kvöldið fyrir kosningarnar
saman um að ekki sé hætta á að
margir sitji heima. Jafnvel kjós-
endur sem ekki eru kommúnist-
ar munu veita Gomulka stuðning,
vegna þess að þeir sjá ekki von
um neitt betra.
Af frambjóðendum á listunum
er helmingurinn eða um 360, með
limir í kommúnistaflokknum. —
Fjórðungurinn eða 180, eru úr
hinum svonefnda bændaflokki,
sem enn hefur lítið sem ekkert
pólitískt sjáifstæði. 22 frqmbjóð-
endur eru fulltrúar kaþólsku
kirkjunnar.
ÚTSTRIKANIR
Það < talið vist, að kjós-
endur muni nú mikið gera að
því að strika frambjóðendnr
út. Bæði er að útstrikanir
hafa verið útilokaðar í fyrri
kosningum, svo að nú brýzt
út löngun kjósenda til að láta
vilja sinn í fyrsta skipti í ljós.
Og svo er hitt að kommúnistar
eru að jafnaði efstir á fram-
boðslistum, svo að þeir komast
frekar að. Verða þeir vægðar-
laust strikaðir út af lýðræðis-
sinnum, einkuin þó stalinist-
arnir.
Achesons
við aðrar þjóðir sem hafa sömu
stefnumið.
EIGA S.Þ. AÐ FORMA
STEFNU USA?
Það er rangt að ætla að Sam-
einuðu þjóðirnar ákveði stefnuna,
taki ákvarðanir og framfylgi
þeim. Sameinuðu þjóðirnar eru
þjóðasamkunda og frá þeim kem-
ur ekkert annað en til þeirra er
lagt.
Ef stórþjóð eins og Bandaríkja-
menn á nú að fara að leita til
Sameinuðu þjóðanna til þess að
þær formi bandaríska stefnu, í
stað þess að bandaríska stjórnin
berjist innan samtakanna fyrir
þeirri stefnu sem hún telur rétta,
þá hefur nú farið íram mesta
og furðulegasta afsal ábyrgðar
og valds, sem um getur.
BANDAMENN
NIÐURLÆGÐIR
Að lokum gagnrýndi Ache-
son harðlega framkomu stjórn
ar Eisenhowers gagnvart
Bretum, Frökkum og ísraels-
mönnum. Hann sagði m.a.: —
Ég verð að segja að mér finnst
eitthvað bogið við utanríkis-
stefnu stjórnar Eisenhowers,
þegar hún fyrst beygir og
niðurlægir nánustu banda-
Dettifoss kom í gærmorgun frá Rússlandi og Þýzkalandi. Var skip-
ið með flutning á þilfari, og voru það rússneskir bílar, fólksbílar
og jeppar. Munu hafa konnð um 110 bílar þaðan að austan í þessari
ferð. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Flóðskemmdír ó Álftonesi
menn OKKar og vim meo þvi
að ganga í lið með einmitt
því valdi, sem hún nú segist
ætla að snúast gegn með þess-
ari Iagasetningu.
VEITA ÞARF fSRAEL
ÖRTGGI
Og að lokum sagði Acheson um
ísrael: — Við Bandaríkjamenn
sem áttum nokkurn hlut að máli
að Ísraels-ríki var stofnað getum
ekki yfirgefið það, svo að það
verði sigrað með árás Araba og
þjóðinni dreift. Það er því ekki
nóg þegar Bandaríkjastjórn
kveðst ætla að veita Arabaþjóð-
unum öryggi gegn árás. Það ríki
sem mest þarf á slíku öryggi að
halda er einmitt fsrael, sem er
umkringt af óvinum.
Togarar Bæjar-
útgerðarinnar
AÐ gefnu tilefni er hér með upp-
lýst um veiðar skipa Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur að undan-
fömu:
B.v. „Þorkell Máni“ losaði
saltfiskfarm í Reykjavík í gær.
B.v. „Þorsteinn Ingólfsson" fór
á saltfiskveiðar til heimalönd-
unar s.l. fimmtudag.
B.v. „Pétur Halldórsson“ er á
leið heim frá Þýzkalandi með
saltfarm til vertiðarinnar.
B.v. „Jón Þorláksson“ er á ís-
fiskveiðum fyrir heimalöndun.
B.v. „Skúla Magnússon" er á
ísfiskveiðum fyrir heimalöndun.
B.v. „Ingólfur Amarson" selur
í Þýzkalandi næstkomandi þriðju
dag. Tekur saltfarm til vertíðar-
innar.
B.v. „Hallveig Fróðadóttir"
kemur úr flokkxinaraðgerð í
næstu viku, fer þá á ísfiskveiðar
fyrir heimalöndun.
Stöðug ótíð og fiskleysi hefur
verið um langan tíma, bæði hjá
vélbátum og togurum, en af því
stafar fyrst og fremst fiskvöntim
hjá fiskiðjuverum.
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Góð kjörsókn í Þrólti
FYRRI dagur kosninganna í
Þrótti var í gær, og greiddu þá
atkvæði 143 af 257 manns, sem
eru á kjörskrá. Er þetta meiri
kjörsókn fyrri dag kosninganna
en verið hefir undanfarin ár.
Kosning hefst aftur í dag kl.
1 e. h. og lýkur kl. 9 síðdegis.
MIKIÐ FLÓÐ gekk upp á Átftanesið í fyrrinótt og urðu af því
allmiklar skemmdir á nesinu bæði á varnargörðum, vegum
og ræktarlöndum. Björn Erlendsson bóndi á Breiðabólstað skýrir
blaðinu svo frá að Álftnesingar hafi fyrst orðið varir við að sjór
gekk upp aðfaranótt fimmtudagsins, en ekki svo að hættulegt
gæti talizt.
Aðfaranótt föstudags var ofsa-
rok og jafnframt háflæði og gekk
þá mikið flóð upp á nesið, en
menn urðu þess ekki varir fyrr
en á föstudagsmorgun. Var brim-
ið þá svo mikið við nesið að merm
muna ekki annað meira.
BESSASTAÐATJÖRN HÆKK-
AÐI UM 30 1M.
Meginhluti flóðsins mun hafa
runnið í Bessastaðatjörn, sem
eins og kunnugt er hefir verið
skilin frá sjó með stíflugarði.
Hefir vatnsborð tjarnarinnar
hækkað um 30 cm, og eru bakkar
þeir, sem að tjörninni eru, komn-
ir í kaf. í vetur hefir tjömin ver-
ið mun hærri en venjulega, þar
sem affallsrör það, sem liggur
frá henni til sjávar, hefir ekki
— Elvis Presleí
Framh. af bls. 1
fékk tilkynningu um kvaðningu,
ók hann á stórglæsilegum gulum
Kadilják-bíl sinum til nýliða-
stöðvarinnar í Memphis. Þar
varð hann að gangast undir
læknisskoðun, gáfnapr.óf o. fl.
Hann fór úr að ofan og læknxr-
inn lýsti því yfir að pilturinn
væri við góða heilsu, með hraust-
lega þkamsbyggingu. Og eftir
gáfnaprófið sagði Elvis: Þetta er
lauflétt, ég hlýt að fá 10.
ELVIS ——
VANDRÆHAGRIPUR.
En pósturinn til Pentagon
hefur aukizt iskyggilega upp
á síðkastið. Á hverjum degi
koma þangað þúsundir bréfa
og simskeyta frá stúlknm á
aldrinum 14—17 ára, sem
hóta og grátbiðja hermála-
ráðherrann að taka Elvis nú
ekki frá þeim. Þetta í sjálfu
sér hefur ekki áhrif á hers-
höfðingjana, en þeir hugsa til
þess mcð skelfingu, þegar
þessar þúsundir ungra stúlkna
taka að flykkjast utan um
Elvis, hvar sem hann er stadd-
nr að skyldustörfum í hern-
um. Þeir spyrja: — Verður þá
ekki hlegið að hemaðaryfir-
völdunum? Hvað verður úr
virðingu hersins? Væri ekki
bezt að vera laus við þennan
vandræðagrip?
haft undan að flytja burt það
vatn, sem safnazt hefur fyxir.
VARNARGARÐAR BROTNA
Fyrir framan Breiðabólstað er
grjótgarður, sem staðið hefir í
meira en 30 ár, sem þeir hlóðu á
sínum tíma Bjöm og bróðir hans.
Fyrr í vetur tók framan af garð-
inum, en nú hefir tekið enn meira
íraman af honum, og auk þess
hefir sjórinn brotið stórt skarð í
hann. Garður, sem hið opinbera
hefir látið gera frá Gestshúsum
að Tröð er talinn mjög illa far-
inn og hefir sópazt burtu aí hon-
um um 200 m kafli. Var garður
þessi gerður xír sandi. sem ýtt
var upp, en síðan hlaðið grjóti
utan á hann.
Á grandann frá Landakoti að
Arnarkoti hefir sett upp sand,
grjót og möl. Sjórinn gekk upp
á svæðinu frá Landakoti norður
fyrir innsiglingarvörðu, sem er á
Breiðabólstaðaeyri. Vegui'inn að
Breiðabólstað er að heita má
ófær og tún, allstórt, sem til-
heyrir Breiðabólstað hefir
skemmzt af sandi og möl.
Fregnir af frekari skemmdum
hafði Björn ekki fengið í gær, en
hann taldi að með því að varnar-
garðurinn á Breiðabólstað væri
svo illa farinn væri mikil hætta
á frekari eyðileggingu landsins,
ef flóð skylli á að nýju og ekki
væri að gert.
— ísrael
Framh. af bls. 1
en Kúba og Kostarika sátu hjá.
24 Afríku- og Asíuríki höfðu bor-
ið tillöguna fram.
SKILYRÐI fSRAELS
Atkvæðagreiðslan fór fram
eftir tveggja daga heitar umræð-
ur, þar sem fulltrúi ísraels gerði
ítrekaða grein fyrir þeirri af-
stöðu ísraelsstjórnar, að hún gæti
ekki fallizt á að flytja herlið
brott frá Akaba-flóa og Gaza-
svæðinu fyrr en tryggt væri að
skip ísraels hefðu frjálsar sigl-
ingar um flóann og að Egyptar
gætu ekki notað Gaza-svæðið til
árásar á ísrael. En athugasemd-
ir hans voru ekki teknar til
greina.
tfijf Ort 1
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1
tung foringja kínverskra komm-
únista, að ef hann ekki íengi
tafarlausan stuðning Peking ætti
hann á hættu að missa völdin í
hendur stalinista undir forustu
Molotovs.
Er nú sagt að skyndileg stefnu-
breyting Kínverja, þar sem þeir
lýsa yfir fullum stuðningi við
aðgerðir Rússa í Ungverjalandi
stafi af þeirri yfirvofandi hættu,
að ella eflist stalinistum styrkur.
Orðrómur hefur gengið um
það að undanförnu, að manna
skipti séu ráðin innan skamms
í valdastöðum Sovét-Rúss-
lands. Er talið að Voroshilov
forseti vilji draga sig í hlé.
Þá myndi Bulganín núverandi
forsætisráðherra taka við for-
setaembasttinu, en Krúsjeff
gerast forsætisráöherra. Eru
þá miklar líkur til að Malen-
kov gerist framkvæmdastjóri
flokksins. Yrðu þessar breyt-
ingar gerðar í sátt og sam-
lyndi, og þess að vænta að
Malenkov teldist eftir þetta
valdamesti maður Rússlands.
EINS OG a3 undanförnu mun
Heimdallur F.U.S. efna til stjóni
málanámskeiðs fyrir félagsmenn
sína og er ákveðið að námskeiðið
hefjist þriðjudagixm 29. jan. n.k.
kL 20.30 í Valhöll, Suðurgötu 39,
Félagsheimili Sjálfstæðismanna.
Námskeiðhiu mun hagað á svip-
aðan hátt og á undanfömum ár-
um með málfundaæfingum og
erindaflutningi, en síðar mun
nánar verða skýrt frá tilhögun
námskeiðsins. Þeir Heimdelling-
ar, sem vllja taka þátt í þessu
stjómmálanámskeiði eru beðnir
xun að láta skrifstofu félagsins í
Valhöll, simi 7100, vita og mun
skrifstofan veita allar nánari
upplýsingar um námskeiðið.
Stjóm Heimdallar F.U.S.
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavik
(Ingi R. Jóhannsson)
20. e2—e4
2. BORB
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
abcdefgh
Hvitt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
1*........ Bg4xRf3
19. g2xBf3 Dc7—f4