Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 3

Morgunblaðið - 20.01.1957, Side 3
Surinudagur 20. janúar 1957 MOKCTJVTtr *T>1 f> 3 Ör verinu Togaramir Tíð hefur verið óhagstæð hjá togurunum síðustu viku eins og raunar í allt haust, umhleypinga- samt og oft mjög hörð veður. Skipin hafa oft legið í landvari, en þótt gefið hafi, hefur afli ver- ið sáratregur. Skipin eru dreifð á svæðinu allt frá Horni og suður undir Látrabjarg. Eftir tímanum á að fara að verða ýsu vart 1 trollið út af Jökli, en ekki er vitað, að reynt hafi verið þar enn, enda tíðin hamlað. Flestir togaranna stunda veiðar fyrir erlendan markað, 3 togarar Kletts, Karlsefni og tveir bæjar- togarar veiða nú einnig fyrir frystihúsin. Þorsteinn Ingólfsson veiðir nú í salt. Þorkell Máni, sem verið hefur „á salti“ er nú í þann veginn að hefja veiðar í ís. SÖLUR Ágúst 175 lestir RM 115.000 Júlí 2475 kít £ 13.380 Egill Skallagrímsson 181 lest RM 110.800 Pétur Halldórsson 203 lestir RM 105.800 Sléttbakur 2969 kít £ 15.329 ísborg 2560 kít £ 11.209 Gylfi 2419 kít £ 8.343 FISKLANDANIR Hvalfell 191 lest. Askur 135 lestir. Karlsefni 169 lestir. Bótarnir Nokkuð var róið framan af vik- unni og þá nær eingöngu á grunn- mið á smærri og stærri bátum, því að á marga stærri bátana hefur nú einnig verið sett upp ýsulína að hætti þeirra Keflvík- inganna, og er nú róið með lóð- irnar þorsk og ýsu á víxl eftir sjóveðrinu þann og þann daginn. Dregið hefur úr ýsuveiðinni í netin í þessari viku. Það er reynsla manna, að ýsan fer frá botninum í vestanátt — vestan- átt er vond fyrir alla fiskveiði, a. m. k. hér sunnan og vestan- lands, og hefur su ýsa, sem feng- izt hefur í netin, öll veiið upp við efri teininn — kúluteininn. Gæti það verið ráð að leugja í steinalykkjunum í stöðugri vest- anátt? Líklega er það of nukil vinna, en hvað skal gera, þogar ekki fæst bein? Það hefur verið óhemjuýsu- gengd í Flóanum í haust, oft mælzt 5 faðma — 10 metra’ þykk- ar torfur af ýsu á stóru svæði. Þótt enn hafi lítið aflazt, halda menn, að fiskur sé eitthvað genginn á hin dýpri mið. Þannig hafa fengizt góðar lagnir hjá úti- legubátum á svonefndum Tung- um út af miðjum Faxaflóa norð- an til, en vegna brims og storms hefur fiskurinn reytzt af línunni. Annars virðast þessi miklu hlý- Indi ekki eiga alls kostar vel við fiskinn, a. m. k. þorskinn. Fiskur á að vera genginn töluvert, úr því þessi tími er kominn, fyrir vestur og suðvesturlandinu. En einhvern tíma breytir til, ®g er ekki ótrúlegt eftir hinar langvarandi hafáttir, að Þorrinn og Góan gætu orðið eitthvað kald ari og hærri átt. Þorrinn byrjar á föstudaginn. Keflavík Tíð hefur verið umhleypinga- söm þessa síðustu viku, regluleg rosatíð. Aðeins einu sinni var farið á venjuleg mið — djúpmið — og var afli mjög lélegur, enda ekki fiskiveður, stórsjór og talsverður vindur. Vill þá stór fiskur reyt- ast af, en það er eingöngu stór- fiskur, sem fæst. Aflinn var þenn- an dag aðeins 3—5 lestir. Það má heita, að daglega sé róið á ýsumiðin út í Leirinn, þó var ekki farið á fimmtudaginn fyrir vestanroki. Ýsuaflinn er 3—5 lestir á dag, er farið tvisv- ar með helminginn af línunni í hvort skipti. Um miðjan mánuðinn losaði heildaraflinn 1000 lestir. Eru 43 af stærri bátunum byrjaðir, sum- ir aðeins búnir að fara 1—2 róðra. Auk þessara báta eru alltaf að staðaldri 5 minni bátar, sem stunda ýsuveiði eingöngu. Af þessu fiskmagni eru þeir með samanlagt 150 lestir. Tveir til þrír hæstu bátarnir eru búnir að fá við 50 lestir, flestir róðrar eru 10. Hjá þeim, sem róið hafa ein- göngu út, eru ekki nema 6 róðrar. Akraneu Aðeins einn bátur fór á sjó alla vikuna. 15 bátar flúðu til Reykjavíkur fyrir helgina vegna veðurs. Rúmar 150 lestir af fiski eru komnar í land frá áramótum í 35 róðrum eða um 4 lestir að meðaltali í róðri. Hainorfjörður Róið var aðeins 2 daga í vik- unni og enginn afli, ein og upp í þrjár lestir. Þrátt fyrir það að svo sem enginn afii er enn k' unnn á land og engar fisklandanir úr togurum, er alltaf talsverð vinna. M. a. er verið að lagfæra í fyrstihús- unum fyrir vertíðina, og unnið er að smíði og undirbúningi undir að koma fyrir vélum í hinu fyr- irhugaða frystihúsi bæjarins, en eitthvað af vélunum er þegar komið. Allir 6 togarar þeir, sem stað- settir eru í bænum, hafa undan- farið veitt í is fyrir erlendan markað, en nú er Röðull nýbyrj- aður „á salti“. í vestanveðrinu mikla í vik- unni fór reykháfurinn af Venusi, en brúin hangir enn. Vestmannaeyjor Suðvestanátt var flesta daga Ivikunnar og oft hvasst síðari hluta hennar. Á mánudag réru aðeins 2 bátar í vondu veðri, og var aflinn lítill, 2 lestir á bát. Á þriðjudag voru 15 bátar á sjó og þá sæmilegt veður; mestur afli 6 lestir, yfirleitt 3—4 lestir. Miðvikudaginn reru allir, sem tilbúnir eru, um 20 bátar, en afli var sem áður tregur, 2—3 lestir Þó fengu tveir bátar, sem reru suðvestur af Einidrang, 7 og 7% lest. Á föstudaginn komu Gullfoss og togarinn Neptunus með 70 fær eyska sjómenn. Eru þá komnir um 130 Færeyingar, og eru það sem svarar fullri skipshöfn á 14 báta. Hæsti báturinn er búinn að fá 28 lestir frá áramótum. Iðjufélagor MUNIÐ að tryggja ykkur full félagsréttindi í Iðju og sækið félagsskírteini ykkar á skrif- stofu félagsins, Þórsgötu 1. Skrifstofan er opin kl. 4—6 e. h. daglega. Daríus konungur í hásæti ásamt Xerxes krónprins (sem stendur fyrir aftan hann) og varðmönnum frá Persepolis. Þórir Þórðarson, dósent: SPEKIN VIÐ hirðir einvaldskonunga Aust urlanda gafst næði og skjól til íhugunar um ráðgátur lífsins. Þar næddu ekki stormar lífsins, og í hægu sæti við nægar vistir gafst tóm til andlegra starfa. Sú tegund bókmennta, sem spekirit eru nefnd, þróaðist því einkum við hirðirnar í öllum hin- um nálægari Austurlöndum. Spakmælum var safnað og söfn- in skráð. Bæði í Egyptalandi, Babýlóníu og Assýríu voru slík söfn skrifuð upp. f hinum forna ísrael var Salómon hetja spek- innar og við hann eru kenndir Orðskviðir Salómons, Prédikarinn og Speki Solómons. Síðast nefnda ritið er ekki í Biblíunni. Spekiritin bregða upp mynd af hinum hyggna manni, sem fer rétt að, er kænn og kann að um- gangast annað fólk, er fær um að sigla fleyi sínu milli skers og báru, kann sig meðal höfðingja, eins og segir í Orðskviðum Saló- mons með nokkurri kímni: „Þeg- ar þú situr til borðs með valds- herra, þá gæt þess vel, hvern þú hefir fyrir framan þig, og set þér hníf á barka, ef þú ert mikill matmaður". Höfundar spekiritanna eru eins konar heimsspekingar þeirra tíma. Þeir gera því skil, hvernig hinn hyggni maður á að fara að. En þeir láta sig yfirleitt ekki hinar torráðnari gátur skipta. Það er siðferðið, framkoman, hátt- erni mannsins, sem þeir fjaUa um. En raunar er til önnur teg- und spekirita, heimspekilegri að eðli vegna þess, að þau fjalla um spurninguna miklu: hvers vegna lifir maðurinn og til hvers, hvernig má maðurinn lifa sæll í heimi, sem merktur er þjáning- unni og tilgangsleysinu? Til fyrri flokksins teljast af bókmenntum hins forna fsraels Orðskviðirnir, Síraksbók og Speki Salómons, ©n til hins síðari Jobsbók og Prédik- arinn. Séu bornir saman Orðskviðirn- ir og Jobsbók kemur munurinn greinilega í ljós. í Orðskviðun- um liggur lausn lífsvandans opin fyrir .Þeim sem gefur gætur að umhverfi sínu, mönnum og dýr- um, sér hversu þeim farnast, reyn ist það kleift að finna færan veg, finna tilgang og farsæld lífsins. Hinn mjói vegur, sem liggur til lífsins, er ekki ofar manninum en svo, að hann er í seilingarhæð. Með nokkurri varkárni og með athygli, sjálfsaga og sjálfsstjórn getur maðurinn fetað hann. í Jobsbók er aftur á móti annað uppi á teningnum. Þar er tilgang- ur lífsins ekki í augum uppi. Til- gangsleysið er langtum auðsærra. Réttlátum manni, sem í öllu er grandvar, gengur illa, hann er lostinn til jarðar í lífsbaráttunni. Hvað er þá réttlætið? Hvað er þá alveldi Guðs, sem góður er, úr því hann leyfir slíkt? Er ógreiningur innan stjórnar- liða um skilning ó lögum um útflutningssjóð? Það virðist svo sem æðstu ráðamenn séu ekki sammála um hvernig beri að skilja ýms á- kvæði varðandi hinar nýju álög- ur ríkisstjórnarinnar og er þá ekki að furða þó óbreyttum borgurum finnist þar margt flók ið og torskilið. Dæmi um þetta er að þann 22. des. sl. hélt „Tím- inn“ því fram að eigendur „Hamrafellsins“ yrðu að greiða 9 milljón kr. í „yfirfærslugjald á kaupverði skipsins“. En nú er „Tíminn“ sýnilega farinn að gera sér vonir um að „Hamra- fellið" muni sleppa við þetta gjald og efast um að borga þurfi 16% yfirfærslugjaldið vegna skipakaupanna. „Tíminn“ prentar í fyrradag upp ummæli for- stjóra skipadeildar S.Í.S., sem blaðið hafði áður birt á þessa leið: „Ef lög um Útflutningssjóð, sem samþykkt voru í desember, ber að skilja svo, að 16% skatt eigi að greiða af þeim kaupskip- um íslenzkum, sem komið hafa til landsins á seinustu árum og erlend lán hvíla á að einhverju eða öllu leyti er það mjög alvar- legt áfall fyrir rekstur íslenzkra kaupskipa". Þama er „Tíminn" farinn að efast um hvernig skilja beri lög- in um Útflutningssjóð og álög- urnar miklu, þegar „Hamrafell- ið“ á hlut að máli. Hins vegar segir Lúðvík Jósepsson ráðh., í Þjóðviljanum í gær, að ríkis- stjórnin hafi „gert ráðstafanir til að skattleggja kaup þess (þ.e. Hamrafellsins) um 9 millj. kr. með 16% yfirfærslugjaldinu nýja“ og bætir því við, að segja megi að Hamrafellið hafi „verið látið greiða 9 milljónir í sérstak- an skatt af kaupverði skipsins". Auðvitað er þetta rangt, því að skatturinn leggst á alla sem á sama hátt hafa efnt til skulda. Hér ber sýnilega býsna mikið á milli. En úr því farið er að minnast á skrif Lúðvíks Jósefssonar, má benda á að hann reynir nú að skella allri skuldinni vegna ok- urleigunnar á Hamrafellinu á Hannibal Valdimarsson, sem fer með verðlagsmál. En þetta kem- ur í bága við það, að Lúðvík hef- ur marglýst því yfir við olíufé- lögin að það sé hann, sem fari með allt sem lýtur að verðlagn- ingu olíu og skipaleigur vegna hennar. Fer nú margt að verða óskýrt. Stjórnarherrarnir koma sér ekki saman um hvað felist í þeim lög- um, sem nýlokið er við að setja og svo virðist heldur ekki vera á hreinu hvaða ráðherra beri að framkvæma tilteknar stjórnar- ráðstafanir. Speki Orðskviðanna byggist á athugun og ekki á opinberun. Með því að gefa gaum að lífinu i kringum sig, lærir maðurinn lífs- listina. Hinum lata og athafna- litla manni er bent á hátterni maursins: „Far þú til maursins, letingi, skoða háttu hans og verð hygginn. Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra, þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðu sína um uppskeru- tímann". Hófsemi í hvívetna gerir mann- inn hamingjusaman, jafnvægið er hin gullna regla: „Gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð“, segir sá, sem þekkir bæði tál auðæfanna og bölvun örbirgðarinnar. En jafn- vægi í skapi og í orðum er ekki síður þýðingarmikið: „Mjúklegt andsvar stöðvar bræði, en meið- andi orð vekur reiði“. Sá sem vill komast áfram í lífinu og hljóta vinsældir manna, stillir orðum sínum og dómum í hóf. Og allt þras er leiðigjarnt, „konu- þras er sífelldur þakleki“. Langt- um farsælla er að vera ávallt létt- ur í skapi, hvort sem vel gengur eða illa, því að „hinn volaði sér aldrei glaðan dag, en sá sem vel liggur á, er sífellt í veizlu“. Orðskviðirnir leggja mikla áherzlu á uppeldið. Strangur agi, þó ekki of strangur, er hollur hverjum manni. Og sá, sem ekki þekkir agann, er ekki undir lífs- baráttuna búinn: „Sá sem aga hafnar, fyrirlítur sjálfan sig, en sá sem hlýðir á umvöndun, aflar sér hygginda“. Það er sjálfsfyrir- litning og vanmat á sjálfum sér, sem undir agaleysi býr og andúð á aga. Sá sem ljósa grein gerir sér fyrir möguleikunum, sem hann býr yfir, beitir sig sjálfs- aga og þekkist aga sinna upp- alenda til þess að hann megi ná hinu setta marki. Og það er í raun og veru aginn, sem er undir- staða siðgæðisins. Engin dul er dregin á hinar lokkandi freist- ingar heimsins, en hinum unga manni ráðlagt að láta ekki glepj- ast. í níu fyrstu köflum Orðskvið- anna er efnið með nokkuð öðrum hætti en í meginkafla ritsins og gerist í spekiritum þessarar teg- undar. Spekin er hér í raun og veru í mynd persónu: „Heyr, spekin kallar“, — „Spekin kallar á strætunum, lætur rödd sina gjalla á torgunum“. Og spekin talar: „Drottinn skóp mig í upp- hafi vega sinna......Frá eilífð var ég sett til valda, frá upphafi, áður en jörðin var til“. Spekin er hér hugsuð sem eins konar persónugervingur anda Guðs, lífs reglunnar, lífslögmálsins. í þess- um köflum finnur maðurinn því ekki spekina. Hún finnur mann- inn. „Sjá ég læt anda minn streyma yfir yður“, segir spekin. Manninum er ekki fær hinn far- sæli vegur lífsins, nema Guð birti honum hann, opinberi honum lífssannindin: „Ótti’ Drottins er upphaf vizkunnar og að þekkja hinn heilaga eru hyggingdi“. Sið- gæðið sprettur því af trúnni. Hér hefur hinn forni arfur spekirita nágrannalandanna, sem var öllum sameiginlegur, skírzt í eldi þess djúpsæis, sem er eink- unn ísraels hins forna, er sér dýpra yfirborðinu og er glögg- skyggn á binar hinztu gátur ails lífs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.