Morgunblaðið - 20.01.1957, Síða 11

Morgunblaðið - 20.01.1957, Síða 11
Sunnudagur 20. janöar 1957 MOnCTJNfíl 4 ÐIÐ 11 R($yk]avikurbréf: Laugardagur 19 janúar Veðrahamur - Cerpir - Ólíkt aðhafzt - Fréttaleynd - Fjandskapazt \ið sannleikann - Hver sendi Roekwell? - Sendiráð Bandaríkjanna - Verðhækkanir - Oflátungar - Fækkun sendiherra- embætta - Fulltrúar Framsóknar hjá Sameinuðu þjóðunum - Heimsatburðir 1 sama horfi. Veðrahamur MJÖG hefur verið misviði-asamt að undanförnu og hefur tjón orðið af víðs vegar um landið. Mestu máli skiptir samt, að ekki er kunnugt um mannskaða. Veð- urspádómar eiga eflaust sinn þátt í því. Oft er fundið að því, að Veðurstofunni mistakist í spá- dómum sínum. Hinu má ekki gleyma, hvei-t gagn hún gerir. Vissulega væri erfitt fyrir okk- ur að vera stöðugt á ferð og flugi eins og nú tíðkast, ef við nytum ekki þekkingar veður- fræðinnar. Gerpir SlÐASTL,. miðvikudag kom hinn nýi togari Norðfirðinga, Gerpir, til heámahafnar. Hann er nú stærsta og bezt búna veiðiskip í íslenzka flotanum og verður vonandi byggðarlagi sínu að miklu gagni. Tilkoma halis er táknræn um hið bezta í íslenzku þjóðlífi. Ætíð þegar einhver er staddur í neyð, eru allir boðnir og búnir til hjálpar. Er Norð- firðingar misstu Egil rauða, var sýnt, að mikil vandræði mundu af hljótast fyrir þó, og sjálfir voru þeir alls ómegnugur að afla sér einir nýs skips. Almenn, óflokksbundin samtölr voru þeg- ar mynduð í héraði til að ráða fram úr málinu. Fulltrúar þeirra komu síðan til Reykjavíkur og gengu á fund ríkisstjórnarinn- ar, sem þá var undir forsæti Ólafs Thors. Báru þeir upp beiðni um ríkisábyrgð og aðra fyrir- greiðslu. Ríkisstjórnin vissi að forráðamenn Norðfirðinga voru kommúnistar og eindregnir and- stæðingar hennar. Hún lét það engu ráða um ákvörðun sína, heldur samþykkti umyrðalaust að beita sér fyrir framgangi málsins. Að tillögum hennar s».m þykkti Alþingi fljótlega ríkis- ábyrgð og voru síðan hinir hæf- ustu menn fengnir til að sjá um smíði skipsins. Ólíkt aðhafzt NÚ ER þetta glæsilega skip kom- ið heim og sameinast allir íslend- ingar um að óska því góðs. — Mjög var ólíkt um samvinnu- huginn, er réði kaupum þess, og hótunum ýmissa stjórnarliða nú um, að völdunum skuli beitt til að ganga milli bols og höfuðs á Sjálfstæðisflokknum Aðferð- ki á að vera sú, að níðast á þeim héruðum, félögum og stofnunum, þar sem Sjálfstæðismenn hafa forustuna, I því skyni að almenn- ingur verði að leita skjóls hjá hinum voldugu stjórnarherrum. Ekki er að efa, að þessi ráða- gerð sé samin af mikilli undir- hyggju. En miklu vanmati á eðli íslendingsins lýsir hún. Slíkar aðferðir munu sannarlega leiða tii alls annars en ráðagerðamenn- irnir ætla. Sjálfstæðismenn kvíða ekki þeirra baráttu, sem framundan er og stjórnarliðið nú iðulega skírskotar til. Sjálfstæðismenn vita gerla, að óttinn við þá er það eina, sem heldur stjórnarlið- inu saman. Ef málefni hefðu ver- ið látin ráða, mundi stjórnarsam vinnan nú þegar úr sögunni. En eftir öll svigurmælin telja for- ystumenn stjórnarflokkanna sér þó óbærilega skömm að svo skyndilegum samvinnuslitum. Enda óttast þeir algeran sigur Sjálfstæðismanna, ef gengið yrði til kosninga í náinni framtíð. Fréttaleynd FJANDSKAPURINN við sannan fréttaflutning ex merkilegt fyrir- bæri. Öll þekkjum við sögurnar af fornum höfðingjum, er brugð- ust reiðir við, ef þeir fengu slæm ar freonir og létu þá höggva eða limlesta þann, er flutti fréttina. Vera má, að eitthvað af slíku sé tii í okkur öllum. Víst er það, að menn vilja ógjarnan verða fyrstir til þess að flytja illar fréttir. Sannleikurinn er þó sá, að því verri sem fréttin er, því meira ríður á, að aðilar fái sem fyrst vitneskju um hana, til að geta áttað sig á því, sem gera þarf hennar vegna. Á timum tækninnar berast stórfréttir á augabragði um allan heim. Svo var t. d. þegar Andrea Doria og Stockholm rákust á í sumar, svo að eitt dæmi sé nefnt. Við fslendingar lútum vitanlega sömu lögmálum í þessu og aðrir, hvort sem okkur þykir ljúft eða leitt. Um leið og voveiflegur atburður er orðinn, má búast við, að hann fréttist eftir óteljandi leiðum. Prestur vestur á fjörðum fylgdist t. d. allra manna bezt með Goðaness-strandinu á dög- unum með því að hlusta á skeyta sendingar milli skipa. I>ess vegna er það mikilsvert hlutverk forsjármanna fyrir- tækja að láta aðstandendur vita sem allra skjótast ef slys hefur borið að höndum, svo að vitneskj an berist þeim ekki af tilviljun og með meiri ónærgætni en vera þyrfti. Slíkar fregnir snerta viðkvæma strengi og er vissulega vandamál, hvernig með á að fara. En vandamál, sem bezt er að ræða af hreinskilni, því að þá er líklegast, að farsæl lausn finn- ist. Fjandskapazt við sannleikann ALLT annars eðlis er viðleitni sumra aðila til að reyna að dylja fyrir mönnum, hvað raunveru- lega er að gerast í almennum málum. Þetta hefur verið mjög áberandi hér á landi síðasta hálfa árið. Stjórnarliðar hafa talið það Morgunblaðinu til ávirðingar, að það hefur sagt frá ýmsum fregn- um og ummælum um ísland úti í heimi. Hefur þá verið þrástag- azt á því, að þessar fregnir væru sprottnar héðan frá íslandi, verið talað um ófrægingarstrið og ann- að þvílíkt. f>ær ásakanir eru þó á sandi reistar, því að einmitt þau ummælin, sem sumir íslenzk ir valdamenn hafa talið sér óþægilegust, eru eftir erlenda menn, sem sjálfir hafa dvalið hér á landi og kveðið hafa upp dóm sinn eftir eigw atbugun á öUum málavöxtum. Svo var t. d. um lýsingu Porter McKeevers á Her- manni Jónassyni forsætisráð- herra og fregnir Belaire’s, frétta- ritara New York Times af samn- ingum Bandai’íkj amanna og ís- lenzkra stjórnvalda í nóvember. Síðasta dæmið um þetta er birting Morgunblaðsins fyrir skemmstu á grein eftir Banda- ríkjamanninn Rockwell. Maður þessi dvaldi hér árum saman og var í hópi þeirra Bandaríkja- manna, sem mesta stund lögðu á að kynnast íslenzkum málefn- um. Hann var t. d. einn örfárra vamarliðsmanna, sem lærði ís- lenzka tungu. Hann var í innsta hring fyrirmanna á Keflavíkur- flugvelli og nákunnugur í banda- ríska sendiráðinu hér í bæ. Hver sendi Rockwell? NÚ HEFUR maður þessi skrifað grein um sambúð Bandaríkja- manna og ísiendinga í mjög víð- lesið tímarit í Bandaríkjunum. Greinin er skrifuð af alvöru og kunnugleik, þó að auðsæir öfgar spilli málflutningi greinarhöf- undar. Bn hvað sem uin það er, þá var maðurinn í slíkri trún- aðarstöðu hjá Bandaríkjamönh- um hér að enginn sem nær „hin- um æðstu valdamönnum“ þeirra, stendur, hefur áður látið til sín heyra um þessi mál opinberl. Þess vegna er óvenju athyglisvert, hvað hann skrifar, hvort sem okkur íslendingum eða einhverj- um öðrum líkar vel eða iUa við það, sem hann segir. En þegar Morgunblaðið birti grein hans hófu öll stjórnarblöð- in harða árás — ekki út af grein- inni sjálfri, heldur út af því, að Morgunblaðið skyldi gefa íslend- ingum kost á að kynnast henni. Ásökunarefnið var það, að blaðið, sem greinin birtist í fyrir vestan, styðji McCarhy. Sá, sem þetta ritar, verður að játa, að hann veit ekki, hvort svo er. En hverju máli skiptir það? Er ekki fróðlegt fyrir fslendinga, að kynnast. því hvað slíkur maður segir. þó að ritið, sem hann skrifaði í, birti stund- um annarlegar kenningar? Og ef maðurinn er McCarthyisti, af hverju var hann þá af Banda- ríkjastjórn valinn í sérstaka trún aðarstöðu hér á landi? Sendiráð Bandaríkjanna TÍMINN ber það blákalt fram, að Morgunblaðið hafi birt grein Rockwells til að hefna sín á sendiráði Bandaríkjanna. Morg- unblaðið á engar sakir við það sendiráð, svo að skrif „Tímans" eru þegar af þeirri ástæðu út í hött. En illkvitnin lýsir sér í því, að vitanlega er aUt það starfsfólk, sem Rockwell víkur að, nú fyrir löngu farið héðan af landi, svo að á engan hátt er sveigt að núverandi starfsmönn- um sendiráðsins eins og Tíminn pefur í skyn. En látum það vera. Hitt er íhugunarefni, hvort íslenzk blöð eiga að haga fréttaflutningi sín- um svo, að erlend sendiráð geti aldrei móðgazt af. Tilefnislausar árásir á erlend sendiráð eru for- dæmanlegar. En ekki er hægt að þegja um erlendar fregnir, ein- ungis vegna þess, að þær kunni að koma einhverjum útlending- um, þó að sendiráðsmenn séu, illa. AUra sizt gat slíkt komið til mála hér, þegar einn úr hópi Bandaríkjamanna sjálfra tekur sig til og skrifar um íslenzk mál- efni og landa sína í leiðinni. í Bandaríkjunum er ritfrelsi, en ef menn vilja sakast við ein- hvern annan en manninn sjálf- an út af þvi, sem hann hefur sagt, verður að ásaka stjórnar- völd Bandaríkjanna, sem létu manninn dveljast hér og njóta «érstaks trúnaðar. Hitt er frá- leitt, að áfellast þá fslendinga, sem gegna þeirri skyldu að kynna mönnum hér hvað um þjóðina er sagt á erlendum vet- vangi. Um þetta mál er fjölyrt svo hér vegna þess, að það er gott dæmi um vissan veikleika í okk- ar þjóðlífi. Menn láta sér oft í léttu rúmi liggja þótt eitthvað fordæmanlegt sé framið, aðeins ef það er ekki haft í hámæli. Svo mjög er fjargviðrazt yfir frásögninni af illum atburðum, að þeir sjálfir virðast stundum gleymast. V erðhækkanir ÞESSI hugsunarháttur kom t. d. fram í skrifum Þjóðviljans út af frásögn Morgunblaðsins, ekki alls fyrir löngu, um hækkun á nokkrum innlendum iðnaðarvör- um, eftir að þær höfðu ekki feng- izt í búðum um sinn. Umsögn Morgunblaðsins af þessu vnr eft- ir beztu heimildum og hafðr ekki í sér fólginn neinn dóm, hvorki á gerðum framleiðenda né verð- lagsyfirvalda. Þjóðviljinn full- yrti aftur á móti, að frásögnin af atburðinum hefði verið gerð til þess að egna menn til þving- unarráðstafana gegn verðlags- yfirvöldunum. Aðrir sögðu, að frásögnin miðaði að því að gera verðlagsyfirvöldunum erfiðara fyrir um að leyía sams konar hækkanir í framtíðinni. Þannig er misjafnlega dæmt um atburð- ina, eftir því hver dæmir, og hvaða forsendur eru hafðar í huga. Menn gæta ekki þess, sem eitt skiptir máli, að almenningur á rétt á að fá að vita hið sanna og rétta jafnt um þessi efni sem önnur. Áreiðanlegur og hlutlaus fréttaflutningur er undirstaða skynsamlegra umræðna um vandamálin. Þeirra er þörf en ekki rógs eða persónulegs skæt- ings. Staðreyndimar kunna að vera bölvaðar, eins og Vilmund- ur landlæknir sagði forðum. En þær verða ekki umflúnar. Á þeim verður að byggja. Örlög oflátunga Skipið er nýtt en skerið hró, skal því undan láta. Svo kvað Staðarhóls-Páll forð- um með þeim afleiðingum að hann braut skip sitt og aðrir urðu að bjarga hohum r.f skerinu. Örlög oflátunga er virt hafa staðreyndirnar að vettugi. hafa löngum reynzt þessi. Þrálátur orðrómur gengur nú um það, að ríkisstjómin sé að reyna að losa sig við einn ráð- herra sinn, Hannibal Valdimars- son. Frammistaða hans á Alþingi og í meðferð rnála, hefur reynzt slík, að í stjórnarherbúðunum er talinn að því mikill léttir, ef hægt væri að losna við hann. Mun að því stefnt, að Finnbogi Rút- ur, bróðir hans, komi í hans stað. Sérstaklega er talið að Finnbogi Rútur muni liklegur til að finna ,,millileið“ í varnarmál- unum, en þar hefur Hannibal orðið helzt til margsaga. Ekki munu þessi bræðraskipti þó full- ráðin enn og ennþá síður hvað við Hannibal verður gert ,ef hann hverfur bráðlega úr rik- isstjóm. Sagnir eru um, að hon- um sé ætlað annalítið en hátt- sett embætti. Heldur er þó ó- sennilegt að Hannibal láti hafa sig burtu með slíku, því að hvað sem um hann verður annars sagt, er hann ekki líklegur til að una iðjuleysi, þótt í vel launaðri stöðu sé. Fækkun sendiherraembætta FRÓÐIR menn þykjast þess full- vissir, að annar fyrrverandi for- maður Alþýðuflokksins, Harald- ur Guðmundsson, hafi valið sér það hlutskipti, að hverfa til sendi herraembættis í Osló. Enginn ís- lendingur óskar Haraldi annars en góðs. Einmitt þess vegna hefðu margir kosið, að brottför hans úr íslenzkum stjórnmálum yrði með öðrum hætti en nú eru horfur á. Slík ráðstöfun sendiherraemb- ættisins í Osló er þeim mun furðulegri, þar sem flestir af nú- verandi forystumönnum stjórn- arliðsins hafa látið uppi, að þeir teldu rétt að sameina sendi- herraembættin á Norðurlöndum í eitt. Nú stendur svo á, að embættið í Osló er laust og sendiherraembættið í Kaup- mannahöfn verður laust á þessu ári. Ef sparnaðargarparnir hefðu eitthvað meint með að draga þyrfti úr kostnaði utanríkisþjón- ustunnar og ríkisrekstursins yfir- Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.