Morgunblaðið - 20.01.1957, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.01.1957, Qupperneq 13
MORGVNBLAÐIÐ 13 * Sunnudagur 20. janúar 1957 Bóndi sfórslasast, er bíll hans steypisl í gljúfur IFYRRAKVÖLD komu þrír menn héðan úr Reykjavík þar að sem orðið hafði umferðarslys og einn maður, Hermann Guð- mundsson bóndi og símstöðvarstjóri 6 Eyrarkoti í Kjós, stórslasazt. — Hafði hann ekið vörubíl út af veginum við Kiðafellsárbrú, sem er á mörkum Kjalarness og Kjósar. Bíllinn hafði farið í loftköstum niður snarbrattar klappir, og numið staðar á árbakkanum, 20 m fyrir neðan brúna. Er það talið stórmerkilegt, að Hermann skyldi ekki farast í þessu slysi. Hermann er nú í Landakotsspítalanum og er hann mjög slas,aður m. a. með brotna höfuðkúpu. Reykvíkingarnir þrír, sem voru þeir Sveinbjörn Bjarnason lög- regluþjónn, Einar Gunnar Ein- arsson lögfræðingur og Jón Ingi- mundarson bíistjóri, voru að koma ofan af Akranesi. STÖPULLINN BROTNAÐI Um klukkan 9,20 komu þeir að Kiðafellsárbrú. Tóku þeir þá strax eftir því að endastöpull var brotinn og hafði járn úr hon- um gengið til og lá inn á veginn. Fóru þeir til þess að lagfæra þetta. Þeir tóku einnig eftir því að lágar grindur meðfram síð- asta spölnum að brúnni voru brotnar. EKKERTSÁST Ekki gátu þeir séfð nein för er bent gætU'íil þess hvað þarna hefði raunverulega átt sér stað. Þeir fóru niður af veginum, sem er allhár þarnp, en fyrir neðan snarbratt. Þar sáu þeir ekki neitt. Sveinbjörn Bjarnason var um það bil að snúa upp á veginn aft- ur, er hann brá sér sem snöggv- ast lengra niður. Taldi hann sig þá sjá glampa á eitthvað allmiklu neðar. Hann klöngraðist nú þang- að niður og Einar Gunnar Einars- son með honuin. Fundu þeir þar vörubíl. Var hann stórskemmdur og liurðir báðar opnar. Enginn maður var þar inni en rétt við bilinn fundu þeir mann sem lá meðvitundarlaus. TIOLDUÐU YFIR HINN SLASAÐA Þeim félögum varð strax ljóst að maðurinn var stórslasaður en með lífsmarki þó. Fór nú Jón Ingimundarson á bilnum á næsta bæ og gerði þar lögreglunni í Revkjavík aðvart. Var sendur læknir með sjúkraliði og lög- reglumönnum og voru þeir um eina klukkustund á leiðinni. Á meðan voru þremenningarnii.- yf- ir Hermanni bónda. Bíll frá Akranesi, sem maður að nafni Sverrir Júlíusson var með. kom á slysstaðinn. Var hann með lítið segl í bílnum. Komu þeir því undir hinn slasaða og báru hann síðan upp úr gljúfrinu og var það mjög erfitt og seinfarið. — Flughálka var á klettunum og fara varð mjög gætilega með hinn slasaða. Lögðu þeir Her- mann þar sem sæmilegt skjól var og síðan tjölduðu þeir yfir hann, en það var mjög svalt í veðri og gekk á með hryðjum. Það var ekki vitað hvort Her- mann hafði verið einn í bílnum eða ekki. Lögreglumcnn, sem komu á slysstaðinn með sjúkra- liði, hófu leit meðfram ánni með ljósum, en við eftirgrennslan kom í ljós síðar um nóttina, að Her- mann hafði verið einn er slysið varð. Samkvæmt upplýsingum frá slysavarðstofunni, er Her- mann Guðmundsson mjög slas- aður. Auk höfuðkúpubrots hefur hann beinbrotnað. Hann er þó eigi talinn í lífshættu. Áfengisvarnarráb og Naust hf. Eftirfarandi bréf barst rit- stjórn Mbl. í gær frá Áfengis- varnarráði: Ritstjórn Morgunblaðsins, Reykj avík. Á fundi áfengisvarnarráðs, höldnum í gær, var samþykkt að víta birtingu vissra mynda í sambandi við viðtal Morgun- blaðsins 15. þ.m. við forstjóra veitingahússins Nausts í Reykja- vík. Formanni falið að skrifa rit- stjórn Morgunblaðsins út af mál- inu, með tilvísun til 16. gr. áfeng- islaganna. Væntir áfengisvarn- arráð þess, að þér sjáið um, að slíkur ósmekklegur áróður í aug- lýsingastíl um áfengisveitingar sem hér.var um að ræða, eigi sér ekki stað framvegis í heiðruðu blaði yðar. Virðingarfyllst, Brynleifur Tobíasson (sign). Morgunblaðið telur rétt að birta bréf þetta, en tekur um leið fram, að það telur að tilvitnun í 16. gr. áfengislaganna eigi hér alls ekki við og að engin lagabrot hafi verið framin með viðtali blaðsins við forstjóra Nausts hf Tilkynning frá skattstofunni í Reykjavík Hér með er ítrekuð sú aðvörun, að ef framteljandi tilgreini aðeins nafn atvinnuveitenda á skattframtali sinu en eigi upphæð launa, er framtalið talið ófullnægjandi og tekjur áætlaðar, og einnig hjá þeim er láta útfylla framtöl sín á skattstofunni, ef hlutaðeigendur láta ekki í té fullar upplýsingar um launatekjur sínar. Framtalsaðstoð er veitt á skattstofunni til loka mán- aðarins. Skattstofan í Re.ykjavík. Þannig leit bíllinn út niðri í gljúfrinu. Á þessari mynd sést hvar bíllinn hefir farið út af veginum og hvar hann stanzaði í ánni. (Ljósmyndir R. Vignir.) . o ■" 1 — IJTSALA á skófatnaði Hefjum í fyrramálið stórkostlega útsölu á skófatnaði. Selt verður KVEIMSKÓFATISIAÐtR fjölmargar gerðir. Verð frá kr. 35.00. BARMASKÓFATIMAÐIJR úr leðri. Margar gerðir. Verð kr. 55 og 65 kr. KARLMAIMIMASKÓR úr leðri, randsaumaðir. — Verð frá kr. 100.00. KVENBOMSUR með rennilás, fyrir kvarthæl. Kr. 35.00, — og margt, margt fleira. Skósaían SNORRABRAUX 36. f HAPPDRÆTTI IIÁSKÓLA ÍSLANDS Dregið verður í 1. fEokki á morgun kl. 1 Selt verður til hádegis eftir þvi sem miðar endast

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.