Morgunblaðið - 16.03.1957, Blaðsíða 2
2
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 16. marz 1957
RÚSSNESKIR HERMENN HORFÐU Á
KADAR HEIÐRA FRELSISHETJU
HERMENN OG FJÖLDI AVÓA, lokuðu í morgun stóru svæði
umhverfis styttuna af Petöfi, þjóðskáldi Ungverja, er féll
í byltingunni 1848. Á svölum húsa í nágrenninu bjuggu Avóar
um sig með vélbyssum og voru þeir svo staðsettir, að þeir gátu
skotið yfir allt hið auða svæði, sem er í nágrenni styttunnar.
Allur þessi viðbúnaður var hafður til þess að ungverskur al-
menningur gæti ekki truflað þann undarlega atburð, að kvisl-
ingurinn Kadar lagði blómsveig að fótstalli styttunnar. Heiðurs-
vörð við athöfnina stóð fylking Avóa.
Brúarfoss er aldursforseti kaupskipaflotans. Á þessu ári verður
hann 30 ára. Eitt sinn var hann mjög eftirsótt farþegaskip í ferðum
milli fslands og meginlandsins. Nú gerist Brúarfoss gamall og
úr sér genginn. Þessi mynd var tekin af honum í fyrradag er
hann var tekinn í slipp hér í Reykjavík til minni háttar viðgerðar,
að vísu. Eimskipafélagið hefur mikinn hug á því að selja þetta
gamla góða skip, sem nú er orðið mjög dýrt í rekstri og stóð
ekki undir eigin útgerðarkostnaði á síðastliðnu ári.
Danskur prófessor vill
að Danir sýni göfuglyndi
Kaupmannahöfn, 15. marz. — Frá Páli Jónssyni:
IDAG skrifar prófessor Einar Thomsen grein um handritamálið
í blaðið Politiken. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að
Danir eigi að sýna ^ofuglyndi og afhenda Islendingum þessi frægu
handrit. Þau séu helgidómur íslands.
í greininni segir meðal annars:
— Handritin eru víðfrægur og
óbrotgjam minnisvarði um hlut-
deild íslendinga í heimsbók-
menntunum. Þau eru því með
réttu helgidómur fslendinga.
Það er ekki nema eðlilegt, að
við varðveittum handritin meðan
íslendingar höfðu ekki aðstöðu
til þess. En hin hámenntaða ís-
lenzka þjóð getur nú sjálf varð-
veitt dýrgripi sína.
Sennilega er það rétt, hélt pró-
fessorinn áfram, að Danmörk
hafi unnið sögulega hefð á hand-
rítunum. En þá er göfuglyndi í
fullkominni andstöðu við hefð-
ina. Göfuglyndi gerir bæði ein-
staklinginn að meiri manni og
þjóð að betri þjóð.
Það er skiljanlegt að okkur
Dönum hafi orðið gramt í geði,
þegar ísland skildi við okkur,
meðan við lágum með bundnar
hendur, en það er ekki göfug-
lyndi af okkar hálfu að halda
þjóðarhelgidómi íslands.
Aðeins lítill hópur vísinda-
manna vísar hér til lagalegs rétt-
ar og sögulegrar hefðar. Væri
haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um
málið, er ég ekki í nokkrum vafa
um, hver niðurstaðan yrði, segir
prófessor Thomsen að lokum.
RUSSAR NÆRSTADDIR
Fámennur hópur kommún-
ista voru einu Ungverjamlr,
sem fengu að minnast afmæl-
is byltingarinnar 1848. Ekkert
var tilkynnt um það fyrirfram,
að Kadar ætlaði að heiðra
minningu byltingarinnar með
nærveru sinni. Öll stræti í ná-
grenninu voru afgirt og rúss-
neskir hermenn voru nær-
staddir á * flutningabilum,
þótt ekkert þyrfti til þeirra
að grípa.
| Örfáir boðsgestir úr hópi hinna
Herinn leitar
lags
DJAKARTA 15. marz: — f dag
var kallaður saman herráðsfund-
ur indónesiska hersins og sátu
hann setuliðsstjórar allra héraða
Indónesíu nema Ahmed Hussein
yfirmaður herliðsins á Mið-Sú-
matra, en hann gerði fyrstur upp
reisn gegn stjórninni í desember
sl. og hófust með því uppreisnir
víða um ríkið. Talið er að her-
foringjarnir hafi rætt um, hvaða
skilyrði heraflinn í heild eigi að
setja forseta Indónesíu, til þess
að hægt sé að styðja ríkisstjórn
landsins. —Reuter.
WASHINGTON, 15. marz. — Inn
anríkisráðuneyti Bandaríkjanna
hefur fengið til ráðstöfunar einn-
ar milljón dollara fjárveitingu,
sem verður varið til rannsókna
á hagkvæmum leiðum til að
eyða salti úr sjó og nota vatnið
til áveitu. Engin ódýr aðferð
hefur til þessa fundizt, en ef
það tækist myndi það valda stór
kostlegri byltingu í ræktunarmál-
um heimsins. —Reuter.
æðstu kommúnista fengu að vera
viðstaddir. Vestrænir blaðamenn
fengu ekki að koma nálægt at-
höfninni, sem sagt er að hafi far-
ið þannig fram að lesið var kvæði
eftir Petöfi og síðan flutti Kad-
ar ræðu og lagði blómsveig að
fótstallinum.
Frídagur var í skólum landsins
í dag, en almennur vinnudagur.
Hvergi hafa heyrzt neinar frétt-
ir um fjöldasamkomur í Ung-
verjalandi, enda voru þær bann-
aðar og mikill viðbúnaður að
hindra þær. Tugþúsundir manna
höfðu verið handteknar síðustu
daga.
Sáez-skurðurinn
opnaður 10. apríl
KAIRO, 15. marz: — Raymond
Wheeler yfirmaður ruðnings-
sveita S.Þ. hefur tilkynnt að
Súez-skurðurinn verði opinn öll-
um skipum þann 10. apríl n.k.
Sveitir S.Þ. vinna nú að því að
hreinsa brott flakið af franska
dráttarbátnum Edgar Bonnet,
sem Egyptar sökktu í skurðinum.
— Reuter.
Tónleikar í Kristskirkju
á sunnudagskvöld
SUNNUDAGSKVÖLD 17. þ. m. verða tónleikar í Kristskirkju í
Landakoti. Tónleikar þessir eru haldnir á vegum Félags ísl.
organleikara — Musica sacra.
Organleikari kirkjunnar, dr. Victor Urbancic, mun leika á hið
vandaða orgél, sern byggt var af Frobeniusi nú fyrir nokkrum
árum og er eitt stærsta hljóðfæri sinnar tegundar hér á landi.
Þá mun og sex manna lúðra-
flokkur leika ýmis andleg verk
með eða án orgels. Samleikur
orgels og blásturshljóðfæra er
mjög vinsæll erlendis og mikið
iðkaður, en lítt þekktur hér. Með
al verkefna verða leikin þrjú
sálmalög eftir Karl O. Runólfs-
son í útsetningu fyrir orgel
trompett, horn og básúnu, leik-
in þannig í fyrsta sinni.
Miðdepill tónleikanna verður
þó nýtt verk eftir Þórarinn Jóns-
son, orgelsónata, samin 1956.
Allt verkið er byggt yfir gamalt j
íslenzkt sálmalag: Upp á fjallið
Jesúa vendi (frá 1747). Sálmur-
inn er um fjallræðuna, sem tón-
skáldið leitast við að skýra á
sinn hátt, en í miðjunni stendur
„Faðir vor“. Þórarinn Jónsson
Samband bindindisfélaga
í skólum 25 ára í dag
I
Colda falaði
við Lawson
JERÚSALEM, 15. marz: —
ikömmu áður en Golda Meir
agði af stað frá ísrael, ræddi hún
lokkra stund við Edward Law-
on, sendiherra Bandaríkjanna í
srael. Er það álit manna, að
íún hafi þar borið fram óskir
im að fá viðtal við háttsetta full
trúa bandaríska utanríkisráðu
reytisins, strax og hún kemur
restur um haf. —Reuter.
DAG eru liðin 25 ár frá því
að hér í Reykjavík var stofn-
að Samband bindindisfélaga í
skólum, en að því standa bind-
indisfélög nemenda í framhalds-
skólum bæjarins. Hefur sam-
bandið frá öndverðu barizt fyrir
reglusemi meðal skólaæskunnar,
og á síðari árum hefur bindindis-
starfsemin beinzt meira inn á
þær brautir að vekja skólafólk
til umhugsunar um skaðsemi
tóbaksreykinga. Er í ráði að hefja
um land allt baráttu gegn tóbaks-
nautn æskufólks með stofnun
landssambands.
Stjóm Samb. bindindisfélaga í
skólum hélt í gær fund með blaða
mönnum og gerði þar nokkra
grein fyrir starfi sínu, en fyrsta
skólabindindisfélagið var stofnað
í Menntaskólanum hér í Reykja-
vík og var fyrsti formaður sam-
bandsins Helgi Scheving frá
Vestmannaeyjum, sem látinn er.
Síðan hafa formenn þess verið 17
talsins, og er Hörður Gunnarsson
nemandi í Verzlunarskóla íslands
núverandi formaður.
í ræðum, sem Hörður og Ás-
geir Sigurjónsson fram'cv.stj.
fluttu. sögðu þeir að fyrstu 10
árin hafi verið nær því sam-
felld sigurganga fyrir þessi sam-
tök, með stofnun bindindisfélaga
í skólum um land allt. Næstu ár-
in á eftir færðist deyfð yfir starf-
semina. en nú sé S.B.F.S. vaknað
á ný til starfs og hefur mjög
látið til sín taka. Hefur nú kom-
izt á lífrænt samstarf milli bind-
indisfélaganna í skólunum og
sambandsstjórnarinnar. Þannig
hefur t. d. Vilhjálmur Einarsson
íþróttakappi ferðazt milli skól-
anna í Borgarfirði, á Akureyri og
eins á Austfjörðum, og er í ráði
að hann heimsæki skóla hér á
Suð-Vesturlandinu, á Vestfjörð-
unum, Skagafirði og á Suður-
nesjum nú í vor.
REYKINGAR AUKAST
Hér í- Reykjavík hefur Sam-
bandið fengið lækna til fyrir-
lestrahalds í gagnfræðaskólun-
um, en þar hafa þeir aðallega
talað um skaðsemi tóbaksreyk-
inga, en skólastjórar þessara
skóla hér í Reykjavík, telja brýna
nauðsyn bera til þess að reyna
að hamla gegn vaxandi tóbaks-
nautn í skólunum.
Og sem liður í aukinni bar-
áttu gegn tóbaksnautniimi er nú
í undirbúningi stofnun landssam-
bands til baráttu gegn tóbaks-
nautn meðal æskufóiks í skólum
landsins. Standa vonir til þes3
að úr þessu verði nú í vor.
Þá upplýstu stjómarmenn
SBFS. að nú væri leitað ráða til
þess að reyna að koma í veg
fyrir að ungt fólk ,sem ekki hef-
ur aldur til, (21 árs) fái veitt
vín í þeim samkomuhúsum, sem
vínveitingaleyfi hafa, en á því
hefur verið nokkur misbrestur,
upplýstu stjórnarmenn. Kváðust
þeir ekki vera að veitast að veit-
ingamönnum, því oft væri erfitt
að segja fyrir um aldur ungs
fólks.
FÖR VILHJÁLMS
Vilhjálmur Einarsson erind-
reki sagði frá árangri af ferðum
sínum í skólana. Hann kvað það
vera samdóma álit þeirra skóla-
stjóra, er hann talaði við, að
reglusemi væri meðal skólafólks-
ins og færi vaxandi. Kvaðst Vil-
hjálmur í þessum ferðum sínum
og fyrirlestrum I skólunum hafa
á það bent, að íþróttaiðkanir og
hollt félagslíf væri vænlegast til
árangurs í baráttunni, hvort
heldur er gegn áfengis- eða tó-
baksnautn.
Það, sem staðið hefur Samb.
bindindisfélaga í skólum fyrir
þrifum, er að fram til siðasta
árs hafði félagið lítið sem ekkert
fé handa í milli, en nú hefur
það fengið styrk frá áfengisvama
ráði, og er það starfsemi sam-
bandsins ómetanlegt.
STJÓRN OG STARFSMENN
í stjóm eiga nú sæti þeir Hörð-
ur Gunnarsson, sem er formaður,
Einar Már Jónsson, Gagnfræða-
skóla Austurbæjar, Messiana
Jónsdóttir, Kvennaskólanum, Jón
Gunnlaugsson, Kennaraskólanum
og Birna Bjömsdóttir, Kvenna-
skólanum. Ásgeir Sigurgeirsson
kennari, er framkvæmdastjóri
þess. Þá hefur Þorvaldur Örn-
ólfsson kennari verið eftirlits-
maður saunbandsins og tengiliður
milli stjórnar og félaganna í skól-
unum, og loks er svo Vilhjálmur
Einarsson erindreki þess.
hefir hlotið verðskuldaða hylli
fyrir tónsmíðar sínar, svo sem
hinar snilldarlegu fúgur fyrir
einleiksfiðlu, sönglagið Fjóluna
og fleira. Mönnum mun því
nokkur forvitni á að heyra þessa
nýju tónsmíði hans.
Síðast á efnisskrá tónleikanna
er þáttur úr' orgelkonsert eftir
Handel þar sem hornin munu
leika hlutverk strengjasveitar-
innar.
Tónleikarnir standa í klukku-
stund og er öllum heimill ókeyp-
is aðgangur meðan húsrúm leyf-
ir. Þeir hefjast stundvíslega kl.
9 síðdegis.
— Höfuðborg
Frh. af bls. 1.
um, þar sem hin gamla höfuð-
borg, Berlín er innilokuð á allar
hliðar af rússneska hernáms-
svæðinu.
En fyrir nokkru ítrekaði sam-
bandsþingið, að það teldi Berlin
eina höfuðborg Þýzkalands. Lét
það heldur ekki sitja við orðin
tóm, heldur samþykkti það rausn
arlega fjárveitingu til að hefja
byggingu stjórnarhverfisins.
Á BYGGINGASÝNINGU
Byggingarframkvæmdum verð
ur mjög hraðað og eiga þær að
vera þáttur í alþjóðlegu bygg-
ingasýningunni, sem opnuð verð-
ur í Vestur-Berlín 6. júlí í sum-
ar. Er þess vænzt, að þá þegar
verði helmingur húsanna kom-
inn undir þak og byrjað verði á
þeim öllum. Er ætlun Þjóðverja
að láta þessar byggingar túlka á
áhrifamikinn hátt þann hraða,
sem þýzkur byggingariðnaður
ræður yfir. En gestum á bygg-
ingasýningunni verður gefinn
kostur á að fylgjast með fram-
kvæmdum á þessu svæði, meðan
á þeim stendur.
ÞRÓTTMIKIL
UPPBYGGING
Endurreisn Vestur-Berlínar
hefur gengið ákaflega hratt á
síðustu árum. — Meðan i
Austur-Berlin hefur lítið ann-
að verið byggt en fáein skraut-
hýsi að rússneskum hætti
meðfram Stalin Allee, hafa
glæsilegar nýtizku byggingar
sprottið upp út um alla Vest-
ur-Berlin. Frá því að einangr-
un Berlínar lauk 1949 hafa
100 þúsund ný hús verið
byggð þar, mörg þeirra stór
f jölbýlishús. Á árinu 1956 einu
voru byggðar um 30 þúsund
íbúðir.