Morgunblaðið - 16.03.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.03.1957, Blaðsíða 16
1« MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 16. marz 1957 GULA herbefffgð eftir MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 76 lengra burtu, úti í sveitinni. En hér það næsta eru ekki nema sum- arbústaðir. Hvað er langt siðan, Tim? — Svo sem tíu mínútur. Ég sá ekki, hver þetta var. Ég heyrði, að hann hrasaði. — Bíddu hérna. Ég æt]a að skreppa upp eftir. Það þýðir hvort sem er ekki að reyna að sofa. Það var satt: gatan var óslétt. Dane hafði enga sérstaka ástæðu til þess að klifrá upp eftir henni. Það gátu verið hundrað eðiilegar orsakir til þess, að einhver væri þarna á ferðinni klukkan eitt um nótt, en hann hafði ekki nema gott af að hreyfa sig dálítið eftir alla setuna í flugvélinni. Hann hélt áfram, án þess að hafa neinn vara á sér, og var í góðu skapi af því, að nú var fóturinn greinilega betri aftur. Þegar hann kom að næstu gatnamótum, sneri hann til vinstri, algjörlega ósjálfrátt. Þarna var yfirgefna húsið, hálf- sokkið í alls konar gróður, svo að óljóst markaði fyrir því í stjörnu- birtunni. En hann hafði engan óhuga á þessu húsi. Það hafði lok- ið hlutverki sínu. Og hann var búinn að ganga nógu langt. En þegar hann sneri við til þess að ganga til baka, sá hann Ijós, rétt við hesthúsið, en lágt niðri og á hægri hreyfingu. Það sveiflaðist til og frá, eins og í smáhringum, líkast því sem verið væri að leita að einhverju á jörðinni. Hann horfði á það um stund, áður en hann lagði af stað í áttina að því. E.i hann var ekki heppilega klædd ar til þess að ganga gegnum há- vaxinn undirskóginn. Buxurnar kræktust fastar í runna og skórn- ir voru lítt til þess fallnir að skýla fótum hans og öklum, sem voru berir. En nú kom það sér vel að hafa æfingu á þessu sviði. Hann átti aðeins eftir svo sem fimmtíu fet til mannsins, þegar grein festist í ermi hans og brotn- aði með smelli. Hann heyrði aldrei skotið. En eitthvað hitti hann í höfuðið og hann fann, að hann datt. Hann missti meðvitundina samstundis. Carol vaknaði um miðja nótt við símann, sem var við rúmið hennar. Hún hafði verið alveg árvinda og því sofið fast. Hún leit á sjálflýsandi klukkuskífuna við rúmið og sá, að klultkan var tvö, og rödd hennar var loðin er hún svaraði í símann. Þetta var Harrison læknir. — Röddin var hálf-afsakandi. — Er þetta þú, Carol? Mér fannst rétt- ara að hringja í þig. Hér hefur orðið eitt slysið enn, ef annars er rétt að kalla það því nafni. Vertu samt ekki hrædd, flýtti hann sér að bæta við, — en Dane majór hefur orðið fyrir slysi. Henni fannst herbergið hring- snúast, og það var mikið átak að stilla röddina, er hún svaraði: — Er það mikið? — Nei, ekki mjög alvarlegt, en hann er meðvitundarlaus ennþá. Við erum að taka myndir af hon- um, en það virðist ekki vera um brot að ræða. Honum er áreiðan- lega óhætt, en mér fannst rétt að láta þig vita af því. Hún var nú farin að skjálfa. — Hvað kom fyrir hann? Segið mér ekki, að það sé eitt. .... Röddin bilaði. — Réðst einhver á hann? Var það ekki? — Það var skotið á hann. Það gerði nú ekki nema rétt að snerta höfuðið, en hins vegar munaði það ekki nema litlu. Líklega hefur hann fallið þungt til jarðar og það hefur vitanlega ekki bætt úr skák. Hún var nú komin fram úr rúm inu með heyrnartólið í hendinni. — Ég kem, sagði hún. — Ég verð komin eftir stundarfjórðung. Hún heyrði hann segja, að hún skyldi vera kyrr innanhúss, þar eð svo virtist sem enginn væri ör- uggur úti við. En hún lagði frá sér símann, áður en hann hafði talað út, og klæddi sig í mesta snatri, enda þótt hún fyndi, að réttara væri að fara varlega. Hún leitaði að Tim í húsinu, en hann var ekki í herberginu sínu. En þegar hún kom í sjúkrahúsið, var hann þar, og stikaði fram og aft- ur um ganginn, eins og ljón í búri. — Já, andskotinn hafi það; ég lofaði honum sjálfur að fara þarna upp í brekkuna! Ég, Tim Murphy! En þá sá hann Carol og reyndi að stilla sig. — Honum er óhætt, ungfrú Carol. Hann hefir komizt í hann krappari en þetta. Það eru fleiri líf í honum en í ketti. Munið þér það! Hún settist niður, enda treysti hún varla hnjánum. 1 sjúkrahús- inu voru allir vakandi, og nú kom aðstoðarlæknir út úr herbergi með .Ijósmyndaplötu í hendinni Hann kinkaði kolli til Carol. — Þetta virðist ætla að verða allt í lagi, sagði hann. — En vit- anlega hefur þetta verið fjandans mikið högg. Tim hljóp til hans. — Við þurf- um að tala við hann, sagði hann ákafur. — Ég vil vita, hver skaut á hann, og svo ætla ég út og ganga frá þessum. .. Það, sem hann sagði meira, er ekki prenthæft, en það var hermannamál, sem ekki er notað meðal kurteiss fólks, auk þess sem hann bjó til sjálfur jafnharðan. Aðstoðarlæknirinn brosti. Hon- um þótti bæði útgangurinn á Tim og orðbragð hans heldur svaka- fengið. — Það er víst ekkert því til fyrirstöðu, að þér farið inn til hans. Læknirinn bíður eftir ung- frú Spencer, hvort sem er. Aðeins vil ég biðja yður að tala út hérna frammi, áður en þér farið inn. Þó að ég þoli það, er ekki víst að Dane þoli það. Þau fóru nú upp með honum í lyftunni. Tim bálvondur en þög- ull og Carol gat engu orði upp komið. Harrison læknir var í gang inum uppi og var að athuga plöt- urnar við lampa hjúkrunarkon- unnar. Nú leit hann upp með á- nægjusvip. — Hann er ekkert brotinn, þetta er ekki nema grunnt sár, sagði hann ánægjulegur á svipinn. — Hann verður ekki lengi að ná sér eftir þetta. Tim fór ofurlítið að stillast. Hvað Carol snerti, þá dró hún nú fyrst andann eðlilega, síðan hún heyrði fyrst um atburðinn, og Tim sagði sögu sína. Hann sagði frá því, þegar Dane kom til hans á verðinum og tók síðan upp á því að ganga upp eftir brautinni, og skömmu síðar heyrði hann skotið. Þegar Dane kom ekki til baka, þaut hann upp eftir brekkunni, en sá engan og heyrði ekkert. Hann hafði vasaljós, en gróðurinn þarna gerði manni ómögulegt að sjá nokkum hlut, sagð, hann. Hann var enn að leita, þegar hann heyrði í bíl Floyds, sem hafði stanzað rétt hjá honum. Floyd og Mason stigu út og Floyd miðaði á hann skammbyssu. — Hann var næstum búinn að hræða út mér líftóruna, sagði Tim. — Hélt, að ég hefði skotið ein- hvern. Vildi vita, hvað ég væri að gera þarna og hvar maðurinn væri, sem drepinn var. Ég var næstum farinn að grenja. — Ég er að leita að Dane majór, sagði ég. — Hann gekk hingað upp eftir og hefur ekki komið aftur. En Floyd trúði mér ekki ennþá. Hann skoðaði byssuna mína og sá, að ekki hafði verið hleypt úr henni. Svo fór hann á undan að hesthús- inu. Carol var að burðast við að fá samhengi í þessa sögu. — En hvemig vissi Floyd um þetta? sagði hún. — Það var hringt til hans og sagt, að einhver lægi dauður rétt hjá hesthúsinu þarna uppi á hæð- inni. Hvað finnst yður? Hversu margt fólk er búið að vera þarna uppfrá i nótt? Það leið nokkur stund áður en þeim var hleypt inn til Dane. En hann var ekki einn. Alex stóð þarna eins og bálvondur vemdar- engill við fótagaflinn. Enginn sagði neitt. Dane lá með lokuð Bœndurl Getum útvegaB yður FAHR fracfora fyrir vorið ef samið er strax RÆSIR H.F. Sími 82550 REYKJAVÍK Pilsa-filt 18 litir. — Breidd 1.83 Dömu- og Herrabóðin Laugavegi 55 — Sími 81890 Prentari (handsetjari) getur fengið atvinnu — Vaktavinna Umsóknir sendist afgr. Mbl. merktar: Handsetjari — 7756. (JTVARPIÐ Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 16,30 Veðui'- fregnir. — Enduitekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur barna og ungl- inga (Jón Pálsson). 18,30 Útvarps saga bamanna: „Steini í Ásdal“ eftir Jón Bjöi'nsson; IV. (Kx-istján Gimnarsson yfirkennari). 18,55 Tónleikar (plötur). 20,30 Upplest- ur: Þórunn Elfa Magnúsdóttir les frumsaminn sögukafla. 20,55 Tón- leikar (plötur). 21,25 Leikrit: „Hálsmenið"; Walter Hackett samdi upp úr smásögu eftir Guy de Maupassant. — Ueikstjóri og þýðandi: Hildur Kalman. 22,10 Passíusálmur (18). 22,20 Danslög (plötur). — 24,00 Dagskrárlok. MARKtJS Eftir Ed Dodd WHATEVEH. X THY TO SA'* ANDX X KNOW jjB^yOLI WOULDN'Ty UNDERSTAND WHV T'M M giving you yjfon to JACK -1 LUC*EE/ 'X THIED TO BUY you BACK, J| ANDV BUT X DIDN'T UAVE^ ENOUGH MONEY...BUT X KNOW AGAIN TIME, ANDV LOOK... X WANT YOU TO SO WITH 1) — Hvað sem ég segði, mynd ir þú ekki skilja, að ég verð að láta þig í hendur Láka. 2) — Þó ég reyndi að kaupa þig aftur, þá hefði ég ekki nóga peninga til þess, en ég veit að ég mun sjá þig aftur einhvern tíma, einhvers staðar. Eg veit það. 3) — Andi, ég vil að þú farir með Láka. Skilurðu það. Farðu með honum. 4) Svo fer Láki á brott með bezta vin Mai'kúsar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.