Morgunblaðið - 16.03.1957, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.03.1957, Qupperneq 10
10 MORCVNBLAÐ1Ð Laugardagur 16. marz 1957 tmfrlðMfr Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavlk framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Ásmundsson. Lesbók: Ami Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Skriðan fró kommúnistum heldur úfrnm nð fullu UTAN UR HEIMI Louis Armstrong ÚRSLIT stjórnarkosningarinnar í bifreiðastjórafélaginu Hreýfli, er enn ein sönnun þess, að skriðan frá kommúnistum heldur áfram að falla í verkalýðsfélögunum. Listi lýðræðissinna í félaginu bætti við nú við sig 71 atkvæði frá því árið áður, og hafði nú 102 atkvæði fram yfir kommún- istalistann. Kommúnistar töp- uðu hins vegar atkvæðum tölu- lega frá því í fyrra. Við kosningu fulltrúa á Alþýðu sambandsþing á sl. hausti, fékk sá framboðslisti, sem kommún- istar studdu, 258 atkv., en listi lýðræðissinna 236 atkv. Vegna þessara úrslita á sl. hausti, gerðu kommúnistar sér miklar vonir um að ná stjórn Hreyfils nú í sínar hendur, en sú von hefir brugðizt. Lýðræðis- sinnar innan samtaka bifreiða- stjóra, hafa myndað með sér öfl- ug samtök, og fyrir þeim hafa kommúnistar orðið að lúta í lægra haldi. í félagi vörubílstjóra „Þrótti“, töpuðu kommúnistar einnig verulega, þegar stjórnar- kosning fór þár fram. . Eru að glata trausti í verkalýðshreyfingunni. Það verður nú engan veginn vefengt að kommúnistar eru að stórtapa trausti og fylgi innan verkalýðshreyfingarinn ar. Fyrir skönrmu töpuðu þeir stjórnarkosningum í Iðju í Reykjavík og Trésmiðafélag- inu Nú sýna úrslit stjórnar- kosninga í Hreyfli stórkostlegt fylgistap þeirra meðal bifreiða stjóra. í öllum þessum félögum hefir hinn lýðræðissinnaði verkalýður staðið saman. Blað Framsóknar- flokksins, Tíminn, hefir að vísu ekki viljað styðja þetta starf lýð- ræðisaflanna. Hann hefir ýmist verið „hlutlaus" gagnvart sam- vinnunni eða hreinlega stutt kommúnistana. Hér er um að ræða furðulegt atferli af hálfu aðalmálgagns Framsóknarflokks ins, ekki sízt þegar á það er litið, að langsamlega flestir Framsókn- armenn innan verkalýðshreyfing- arinnar vilja taka þátt í heiðar- legri samvinnu lýðræðisaflanna i baráttunni gegn kommúnistum og hinu austræna ofbeldi þeirra. Það er nú ljóst orðið, að þar sem lýðræðisöflin standa einhuga saman, bíða kommúnistar ósig- ur. Þess vegna verður að auka og treysta samvinnu allra lýð- ræðissinnaðra manna innan verkalýðssamtakanna, hvar sem þeir standa í flokki. Minni háttar deilumál verða að víkja úr vegi fyrir því, sem mestu máli skipt- ir: Að hinn lýðræðissinnaði hluti verkalýðsins sameinist um að vernda samtök sín fyrir skemmd- arstarfsemi kommúnista. Hvers vegna tapa þeir? Fleiri en ein ástæða liggur til grundvallar ósigrum kommúnista innan verkalýðsfélaganna und- anfarið. Það er fyrst, að fleira og fleira fólk snýr baki við komm únistum, vegna þess, að starfs- hættir þeirra og framkoma í al- þjóðamálum hefir sýnt hið rétta eðli þeirra betur og betur. Blóð- baðið, sem Sovétstjórnin rússn. hefir framkvæmt í Ungverja- landi, hefir fyllt frjálsa menn um heim allan hryllingi. íslenzk- ir kommúnistar hafa ekki getað dulið samúð sína með hinum blóðugu ofbeldisaðgerðum Rússa í Ungverjalandi. Þeir hafa stutt málstað Kadarstjórnarinnar, Kvisling- anna, sem hafa verið handbendi Rússa og unnið fyrir þá hvert óhæfuverkið á fætur öðru á ungversku þjóðinni. íslenzkur verkalýður fyrirlít- ur þetta atferli kommúnista- deildarinnar hér á landi. Hafa svikið öll sín loforð. Þá hefir það og einnig haft rík áhrif á hugi fólksins í verka- lýðsfélögunum, að síðan komm- únistar komust til valda í ríkis- stjórn og höfðu aðstöðu til þess að framkvæma eitthvað af hinum mörgu loforðum sínum, hafa þeir svikið svo að segja allt, sem þeir lofuðu. Þeir lofuðu því t. d. að leysa vandamál efnahagslífsins, án þess að leggja nokkrar nýjar byrðar á almenning í land- inu. Þetta loforð hafa þeir efnt þannig, að leggja 250—300 milljón króna nýja skatta og tolla á almenning. Nýjar leið- ir og úrræði hafa þeir engin getað bent á. Stærsta loforð kommúnistanna var þó það, að unna sér engrar hvíldar fyrr, en herinn væri rekinn_ úr landinu og ísland gert varnarlaust. Einnig þetta loforð hafa þeir algerlega svikið. Ráð- herrar þeirra hafa haldið áfram að sitja í ríkisstjórn eftir að sam- ið hefir verið um áframhaldandi dvöl varnarliðsins um óákveðinn tíma. Kommúnistaráðherrarnir bera því fulla ábyrgð á þessari ráðstöfun. Allt sýnir þetta þjóðinni, að kommúnistar hafa ekkert meint með stóryrðum sínum og land- ráðabrigzlum. Þeir láta loforð sín eins og vind um eyrun þjóta og streytast við það eitt að sitja í ráðherrastólum sínum, þótt það kosti þá að svíkja alla fortíð sína og kyngja öllum sínum gíf- uryrðum. Fólkið í verkalýðshreyfing- unni sér nú að kommúnistar standa uppi afhjúpaðir. Þeir hafa aðeins getað úthúðað andstæðingum sínum meðan þeir fóru með völd. En þegar til á að taka og þeir sjálfir komast í stjórn, standa þeir uppi úrræðalausir og ger- brjóta öll gefin loforð við það fólk, sem þeir hafa sífellt þótzt hafa verið hinir einu sönnu fulltrúar fyrir. Þetta er ástæðan til þess, að kom múnistar eru að stórtapa í verka lýðshreyfingunni, og munu halda áfram að glata þar trausti og áhrifum. „Jazzinn er eins og spínat“ — sagði frægur erlendur rithöfundur fyrir skemmstu. Og það er eitt, sem víst er, að skoð- anir manna á jazzinum eru skipt- ar. Mörgum finnst hann vera „eins og spínat“, en sennilega eru fleiri þeirrar skoðunar, að hann sé ekki „eins og spínat“. Um jazzinn er deilt síknt og heilagt. Þeir, sem harðastir eru í dómum, telja jazz- unnendur hálfgerða villimenn í innsta eðli. Og aðrir segja ef til vill, að afrík- anskir halanegrar hafi með jazzinum glapið æsku hins menntaða heims sýn og séu að leiða hana til frumstæðra og ó- sæmilegra skemmt- ana. —Kommúnistar (sem hafa óbeit á jazzinum), kenna Bandaríkjunum allt og eru hreyknir, því að aldrei dansar Krú sjeff annað en úkra- inska þjóðdansa. — Þannig mætti lengi telja. Hinn hópurinn er aftur stærri, sem finn ur jazzinum ekkert til foróttu — og legg- ur við hlustirnar, nýtt lag eða nýr hljómlistar- maður kemur fram á sjónar- sviðið. f þeim hópi er rætt um hin ýmsu tilbrigði og tegundir jazzins, svo og fræga jazzleik- ara. E nginn dómur skal hér lagður á gæði eða gildi jazzins. Hins vegar er óhætt að fullyrða, að flestir geta vanizt jazzinum eins og hverju öðru — og fleiri gætu lært að njóta hans, ef vilj- inn væri fyrir hendi. Eðli sumra er samt þannig, að þeir for- dæma allt nýtt, sem er „of mik- ið“ frábrugðið því gamla. iXJtlunin var samt ekki sú, að ræða við ykkur um jazz heldur um jazzleikara. Þannig er mál með vexti, að fyrir skemmstu fór fram víðtæk skoð- anakönnun í Bandaríkjunum á því þverjir væru vinsælustu jazzleikararnir í dag. Þetta er svo sem ekkert nýtt, því að slíkar kannanir munu vera dag- legt brauð þar vestra. Þessi var Louis Armstrong er alltaf jafnhýr. þó frábrugðin öllum fyrri að því leyti, að aldrei áður höfðu á þess- um vettvangi verið kannaðar skoðanir jafnmargra í einu, því að þátttakendur voru hvorki fleiri né færri en 430.000 manns. Við skulum þá snúa okkur að úrslitunum. Þar kennir margra grasa — og hafa þeir, sem ekki hafa keypt jazzplötur í fjölda ára, sennilega gaman að sjá það, að gömlu „stjörnurnar“ njóta enn óskiptra vinsælda. f trompetleikurum hlaut Louis gamli Armstrong flest atkvæði — og er það ekki í fyrsta sinn, sem hann ber sig- ur úr býtum í skoðanakönnun sem þessari. Margir furða sig á því hvað hann ætlar að halda út — og sumir segja, að hann muni leika fram á grafarbakk- ann. Næstur honum kom Chet Baker, sem er ungur maður — gengur í augun á ungmeyjunum, segja þeir, sem til þekkja. Þriðji varð Dizzy Gillespie. Af búsúnuleikurum er J. J. Johnson vinsælastur. Þá kemur lærisveinn hans, Kai Winding, sem er af dönskum ættum. Paul Desmond er efstur á lista altsaxófónleikara, en hann leik- ur í kvartet Dave Brúbecks, vin- sælum kvartet að sögn þeirra, er til þekkja. Bud Shank er ann- ar — og .Johnny Hodges þriðji. Sumum finnst þetta óréttlát úr- slit — og segja að Shank þessi mundi glaður binda skóþveng Hodges ef hann fengi það. Stan Getz er vinsælastur tenor saxófónleikara, en langt að baki hans standa Charlie Ventura og Lester Young. Og þá kemur röðin að barytonsaxofóninum. Gerry Mulligan er þar í sérflokki — og varla gat heitið, að nokkrum öðrum væri greitt atkvæði. Hljómlistargagnrýnendur segja að Mulligan sé frábær hljóm- listarmaður — en við seljum það ekki dýrara en það var keypt. Enn er Benny Goodman vin- sælastur klarinetleikara. Hann ber höfuð og herðar yfir Buddy De Franko, sem gengur honum er enn vinsælastur næstur. Þriðji í röðinni er Jimmy Guiffre, sem sagður er hugmyndaríkari en hvað hann er leikinn. Af píanóleikurum, sem lagt hafa jazz fyrir sig, er Dave Brubeck vinsælastur. Errol Garner er annar í röðinni, en hann þekkjum við vel frá dvöl hans hér um árið. George Shear- ing er þriðji og alltaf jafnvin- sæll. Hljómsveit hans nýtur mikillar hylli nú sem fyrr. Undra verð er sú leikni, sem þessi blindi maður býr yfir. Barney Kessel er vinsælastur gítarleikara. Sal Salvador og Bo Diddiley ganga honum næstir. Nú er gamli gítarinn ekki leng- ur hlutgengur í hljómsveitum, sem vilja eitthvað láta að sér kveða. Rafmagnsgítarinn virðist alveg vera búinn að ryðja hon- um úr vegi — og fallegir hljóm- ar ná ekki lengur eyrum áheyr- enda. Nú spreytir gítarleikar- inn sig allt hvað af tekur á ein- um stréng. B assaleikararnir Ray Brown, Oscar Pettiford og Ed Safranski njóta að því er virðist svipaðra vinsælda. Annars hafa skoðanakannanir yfirleitt leitt Í>að í ljós, að vinsældir bassa- eikaranna fara ekki eingöngu eftir leikni þeirra. Miklu fremur eftir því hvaða -hljómsveit þeir leika með. Að síðustu komum við að trommunum. Shelley Manne er þar fremstur í flokki. Þá kemur Gene Krupa, sem nú hefur feng- ið vöðvahnúta í hægra læri eftir Ljósmyndari Mbl. tók mynd þessa af Stan Kenton, er hann var hér á ferff. 20 ára barsmíð við stóru tromm- una. Buddy Rich skipar þriðja sætið — og kennari hans, Granz að nafni, er sagður hafa fengið magasár, er hann frétti, að Rich næði ekki efsta sætinu. Af einstökum hljóm- sveitum er hljómsveit Stan Kenton lang vinsælust. Kenton hefur unnið sér það helzt til frægðar hér fyrir utan hljómsveit arstjórn, að hann hafði nokkurra stunda viðdvöl á íslandi — eitt sinn, er hann og félagar hans flugu yfir Atlantshafið. Næst kemur hljómsveit Basie — og þá Louis Armstrong og hans menn. Athyglisvert er það, að engin af hinum nafntoguðu „rock and roll“-hljómsveitum kemst í hláfkvisti við þá „gömlu góðu“ — hvað vinsældir snertir. Gerry Mulligan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.