Morgunblaðið - 25.04.1957, Blaðsíða 1
24 siður
Tanner vann
með 1 atkvæði
Helsinki, 24. apríl.
Á ÞINGI finnska jafnaðar-
mannaflokksins í dag, var
Vainö Tanner, fyrrverandi for-
sætisráðherra, kjörinn formað-
ur fiokksins með eins atkvæð-
is meirihluta. Fékk hann 95
atkvæði, en Karl August Fag-
erholm forsætisráðherra 94 at-
kvæði. Var úrslitanna beðið
með mikilli eftirvæntingu í
Finnlandi.
Nagy dreginn fyrir herrétt
London, 24. april. Frá Reuter.
ANNA KETHLY, hin einarða forustukona ungverskra sósíal-
demókrata, sagði fréttamönnum í London í dag, að leppstjórn
Kadars hefði áætlanir um að draga Imre Nagy, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, fyrir rétt á næstunni. Kvaðst hún hafa þetta eftir örugg-
um heimildum. Nagy, sem var fluttur úr landi af Rússum, verður
dreginn fyrir sérstakan herrétt, og þar verður honum gert að játa
samvinnu við Vesturveldin árið 1953, en þá varð hann forsætis-
ráðherra Ungverjaiands og kom á ýmsum frjálslegri stjórnarháttum.
„Wall Street Journal" fullyrbir að
kommiínistar í íslenzkum verkalýðssamtökum hafi
lofað flokksbræðrum sínum í ríkisstjórn ú reyna
ekki að þvinga fram kauphækkanir á þessu ári
B
ANDARÍSKA blaðið „The Wall Street Journal" birti 17. apríl
s.l. forsíðugrein undir fyrirsögninni: Gremja á íslandi; Aðstoð
Bandaríkjanna eykur verðbólgu eyjunnar, hrekur vini burt, en
hjálpin mun halda áfram. Greinin er skrifuð af George Williamson
sem var hér á landi í erindum blaðsins, og eru helztu kaflar hennar
hér í lauslegri þýðingu:
„Aðstoð Bandaríkjanna við aðr
ar þjóðir eflir efnahagslegt jafn-
vægi, stemmir stigu við komm-
únima, vinnur okkur vini?
Ef þetta er hugmyndin, þá
hefur hún ekki orðið að veruleik
hér á þessu gráa fjarlæga eylandi
í Norður-Atlantshafi þar sem
Bandaríkin hafa lagt fram um
40 milljónir dollara til styrkja og
lána á tæpum áratug, og þar sem
Kethly sagði að réttarhöldin,
sem eru undirbúin af ungversku
og rússnesku leynilögreglunni,
verði „örugg“, þ. e. a. s. þannig
verður um hnútana búið að sak-
borningurinn játi á sig allar sak-
argiftir, enda hafi hann áður
fengið tilheyrandi „uppfræðslu",
sem stundum er nefnd „heila-
þvottur". Mun þá útkoman á
réttarhöldunum yfir Nagy verða
hin sama og á réttarhöldunum
yfir Mindszenty kardínála.
FULLTRÚI
FRJÁLSRA UNGVERJA
Anna Kethly var innanríkis-
ráðherra í hinni skammlífu stjórn
Nagys í nóvember s.l., en fór
síðan til New York til að tala
máli Ungverjalands fyrir Sam-
einuðu þjóðunum. Hún sagði
fréttamönnunum jafnframt, að
hún væri að stofna til félags-
skapar, sem verða mundi fulltrúi
hins frjálsa Ungverjalands er-
lendis, og mundi hann halda lífi
í loga frelsisins og andspyrnunn-
ar í Ungverjalandi sjálfu og
hjálpa flóttamönnum sem þaðan
kæmu.
Hussein öruggari en
nokkru sinni fyrr
i
Amman, 24. apríl. Frá Reuter:
DAG hefur komið til mótmælafunda og kröfugangna um alla
Jórdaníu gegn stjórn Khalidis. í Amman eru hersveitir stjórn-
arinnar á verði við alla mikilvæga staði í borginni og gæta jafnframt
þjóðveganna til að koma í veg fyrir að flóttamenn frá Palestínu
komi til borgarinnar. Flestar búðir voru lokaðar og vinna lá að
mestu niðri.
í morgun komu hópar unglinga
saman fyrir framan stjórnarbygg
ingar og heimtuðu tafarlausa af-
sögn Khalidis og stjórnar hans.
Þeir köstuðu grjóti að hermönn-
unum, sem klæddir voru stál-
hjálmum og báru skildi til að
verjast grjóthríðinni. Árekstr-
arnir voru ekki alvarlegir, en
samt særðust allmargir.
Bréfaskriftir, sem hljótt
var um
LONDON, 23. april: — í morgun
voru birt bréf, er fóru á
milli Bulganins annars vegar og
Edens og Mollet hins vegar —
skömmu fyrir innrás Breta og
Frakka í Egyptaland.
Talsmaður brezku stjórnarinn-
ar kvað stjórnina hafa haft veð-
ur af því, að Rússar ætluðu að
birta bréfin svo að Bretar tóku
sama ráð.
átt stóran hluta í skurðinum.
Skurðurinn væri lífæð V-Evrópu
og því varðaði það Frakka ekki
svo litlu, að einræðisherra hefði-
nú með ofbeldi tekið stjórn skurð
arins í sinar hendur.
í bréfi Bulganins til Edens
Framh. á bls. 3.
LEIÐTOGAR VINSTRI
FLOKKANNA
Leiðtogar vinstri flokkanna töl-
uðu til fólksfjöldans hvar sem
hann safnaðist saman. Þeir réð-
ust ekki á Hussein konung sjálf-
an í ræð'um sínum, heldur á
,leynimakkara í konungshöllinni'
og samsærismenn. Þeir réðust
ekki heldur á Bretland, en þeim
mun öfiugri voru árásir þeirra á
Bandaríkin og Eisenhower-kenn-
inguna. Mannfjöldinn fagnaði
ræðum þeirra og hrópaði vígorð,
sem beint var gegn Vesturveld-
unum. Síðan dreifði fólkið sér
án alvarlegra átaka, og kveðst
stjórnin nú hafa komið á ró í
landinu.
NABULSI SEGIR AF SÉR?
Síðustu fréttir herma það, eftir
áreiðanlegum heimildum, að Sul-
eiman Nabulsi utanríkisráðherra
hafi boðizt til að segja af sér
samkvæmt beiðni flokks síns,
Frh. á bls. 3
nýjar lánveitingar eru til athug-
unar. Þetta er talsverð eyðsla í
landi sem hefur svipaða íbúatölu
og Evansville í Indiana, og banda-
ríska stjórnin getur sagt með
nokkrum rétti að höfuðtilgang-
inum með þessum útgjöldum hafi
verið náð: Bandarísku flugmenn-
irnir hafa ekki enn verið reknir
burt af flugvelli Atlantshafs-
bandalagsins á suðvestur-odda
hinnar stormasömu eyju. Hins
vegar er hægt að fyrirgefa banda-
ríska skattgreiðandanum það,
þótt hann sé í nokkrum vanda
þegar gera skal grein fyrir öðr-
um árangri af aðstoð Bandaríkj-
anna við ísland.
INNRÁS DOLLARA:
VERÐBÓLGA
Dæmi: Hamslaus verðbólga
hefur gert það að verkum, að
kauplag og verðlag hefur stór-
hækkað og verðgildi íslenzku
krónunnar lækkað um 10% á ári
síðan 1947. Ein ástæða
samkvæmt leynilegri skýrslu
sem hagfræðingar Bandaríkja-
stjórnar gáfu nýlega, er alltof ör
fjárfesting i iðnaði, sem byggð
er á „erlendum lánum“, einkum
frá Bandaríkjunum. Allir eru
sammála um, að önnur orsök
verðbólgunnar á tslandi sé sú
12—15 milljón dollara eyðsla,
sem stafar af framkvæmdum á
flugvellinum.
Dæmi: Samsteypustjórn, þai
sem íhaldsmenn réðu mestu, hef-
ur vikið fyrir samsteypu bænda-,
verkamanna- og kommúnista-
flokkanna, og þannig hafa skráð-
ir meðlimir kommúnistaflokksins
komizt í áhrifastöður innan
stjórnarinnar.
Dæmi: Ameríka verður í æ
ríkara mæli skotspónn látlausrar
gagnrýni frá næstum öllum póli-
tískum flokkum. „Þið eruð að
blása að eldi verðbólgunnar“, er
hið venjulega kvörtunarefni
reiðs hagfræðings — hann trúir
á sósíalisma — við einn af hinum
þjóðnýttu bönkum íslands. Einn
af leiðtogum íhaldsflokksins, sem
missti völdin, er alveg jafn gram-
Frarnh. á bls. 3.
Búizt við köldum svörum
Macmillans til Búlganins
London, 24. apríl. Frá Reuter:
HPALIÐ ER í Lundúnum, að Macmillan forsætisráðherra
muni senda Búlganin forsætisráðherra Rússa svar við
löngu persónulegu bréfi, sem hann sendi Macmillan yfir
páskana. Hins vegar er talið sennilegt, að bréf Mac-
millans verði bæði stutt og heldur kuldalegt. Ástæðan
til þess er sú, að bréfið var birt opinberlega í Moskvu,
áður en Macmillan hafði tíma til að svara því. Bréfið
var fengið í hendur Macmillan af rússneska sendiherr-
anum í London, Josep Malik, á laugardag og birt opin-
berlega í Moskvu fjórum dögum síðar, eða seint í gær-
kvöldi. Talið er að þetta muni hafa áhrif á svar Mac-
millans.
Það þykir nokkurn veginn öruggt, að Rússar ætli að
nota bréf Búlganins fyrst og fremst sem áróðursplagg,
og má í því sambandi minna á, að þeir birtu ekki öll
bréfin sem fóru milli Búlganins og Edens um Súez-málið,
ien frá þeim er sagt í annarri frétt hér í blaðinu.
★—•—★
í bréfinu til Mollet sagði Bulg-
anin, að Frakkar drægju saman
lið til árásar á Egypta. Rússar
mundu ekki sitja hjá, ef svo færi.
Minnti Bulganin Mollet á styrj-
öldina í Indó-Kína. Sagði hann,
að hún hefði orðið Frökkum dýr.
Styrjöld fyrir botni Miðjarðar-
hafsins mundi ekki verða þeim
ódýrari.
í svarbréfi sagði Mollet, að
Nasser hefði lagt undir sig Súez-
skurðinn, sem ekki væri einung-
is alþjóðleg siglingaleið, heldur
hefðu franskir einstaklingar og
Svona liugsar danskur skopteiknari sér viðræðurnar í afvopnunarnefndinni, þar sem m.a. er rætt um bann við kjarnorkusprengingum.