Morgunblaðið - 25.04.1957, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.1957, Blaðsíða 10
10 MORCVNfíL 4ÐJÐ Fimmtudagur 25. apríl 1957 Á framhaldsaðalfundinum gengu 49 konur í félagið og voru þá mættar á þeim fundi yfir 100 konur. laug Þorgilsson, frú Guðbjörg Kristjánsdóttir og Guðrún Ei- ríksdóttir. Allt frá stofnun Vorboðans hafa fundir verið haldnir reglu- lega og þá eins og að líkum læt- ur margt borið á góma, sem of langt yrði hér upp að telja. Öll starfsemi félagsins allt frá fyrstu tíð hefir þó einkennzt öðru frem- ur að því að efla og styrkja sjálf- stæðisstefnuna í Hafnarfirði. En eins og bæjarbúum er vel kunn- ugt, hefir sú viðleitni Vorboða- kvenna borið ríkulegan ávöxt. Fyrir allar kosningar á því tíma- bili, sem félagið hefir starfað, hafa konurnar lagt sig mjög fram til að gera veg Sjálfstæðis- flokksins sem mestan, og eiga að öðrum ólöstuðum, einna stærstan Stjórn Vorboðans. Sitjandi frá vinstri: Helga Níelsdóttir, María Ólafsdóttir, Jakobína Mathiesen form., hé^ Hafnarlrði^áTeinni^Sum! Soffía Sigurðardóttir, Friðrikka Eyjólfsdóttir. Standandi f. v.: Elín Jósefsdóttir, Hulda Sigurjónsdóttir, En ekki verður skilið svo við Ragnheiður Magnúsdóttir, Ingibjörg ögmundsdóttir, Sólveig Sveinbjarnardóttir og Herdís Guðmunds- þetta stutta afmælisrabb, að ekki dóttir — Ljósm. Gunnar Rúnar. sé minnzt lítillega á félagsstarfið í 20 ór hoía Vorboðahonur sfuðið truustun vörð um sjúlfstæðisstefnunu Næst elzta Sjálfstæ&iskvennafélagið HAFNARFIRBI ÞEGAR þess var getið hér í blaðinu fyrir nokkru, að Hvöt í Reykjavík, elzta Sjálf- stæðiskvennafélag landsins, væri orðið 20 ára, rifjaðíst upp fyrir mér að afmæli Vorboðans, fél. Sjálfstæðiskvenna hér í Hafnar- firði, væri ekki langt undan, því að einhvern tíman hafði ég heyrt því fleygt að það félag hefði ver- ið stofnað skömmu á eftir Hvöt. Og það reyndist líka rétt. Vor- boðinn var stofnaður um tveim- ur mánuðum seinna og er næst elzta Sjálfstæðiskvennafélag landsins. 1 þessu tilefni hitti ég fyrir nokkru tvær af forvígiskon- um Vorboðans, þær frú Jakobínu Mathiesen, sem verið hefir for- maður í 15 ár, og frú Soffíu Sig- urðardóttur, en hún hefir haft ritarastarfið á hendi í 19 ár, og bað þær um stutt viðtal í tilefni af hinum merku tímamótum. Það var 23. apríl 1937, sem fé- lagið var stofnað að tilhlutan nokkurra áhugasamra Sjálfstæð- iskvenna hér í Firðinum og kvenna úr hinu þá nýstofnaða Hvöt í Reykjavík. Átti hin dug- andi Sjálfstæðiskona, frú Guðrún Jónasson, þáverandi form. Hvat- ar, ekki hvað minnstan þátt í hún jafnframt drög að tillögum stofnun Vorboðans, en einnig aðr- ar konur úr stjórninni. Og á næstu árum studdi hún og aðrar Hvatarkonur hið nýja félag með ráðum og dáð, sem seint verður fullþakkað að verðleikum. Hinar hafnfirzku konur, sem stóðu að stofnun félagsins verða ekki upptaldar hér, en þess skal getið, að flestar þeirra starfa enn í dag í Vorboðanum og eru meðal þeirra, er mest hafa af mörk- um lagt félaginu til vaxtar og eflingar. Stofnfundurinn var haldinn að Hótel Birninum, sem þá var eitt af aðal samkomuhúsum bæjarins og stjórnað af hinni mætu konu, Guðrúnu Eiríksdóttur, en það var einmitt hún er valdi félaginu hið fagra nafn, Vorboði. — Fyrsta fundinn setti og stjórnaði núver- andi formaður Vorboðans, frú Jakobína Mathiesen, og samdi HINN ARLEGI BAZAR Kvenfélags Lágafellssóknar verður í Hlégarði n.k. sunnudag. Margir eigulegir munir. Kaffisala til fjáröfl- unar fyrir orgel í Lágafellskirkju, verður á staðnum. Húsið opnað kl. 3,30 e.h. Bazarnefndin. Fiskbúð Helmingseign í góðri fiskbúð í sjálfseignarhúsnæði *r U1 sölu. — Upplýsingar gefur Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9, sími 4400 og 5147. Get úivegað þessar tegundir Orgela: Harmonium, allar venjulegar gerðir Harmonium, ný þýzk gerð, rafknúin, 6 mism. verk. Rafmagnsorgel, fyrir heimahús, kirkjur, skóla o.fl. Lagfæri biluð Orgel ELIAS BJARNASON Sími 4155. Bezt að auglýsa i Morgunblaðinu þeim, sem félagið skyldi starfa eftir, en þær eru einkum fólgnar í þessu: „Fundurinn samþykki að stofna félag Sjálfstæðiskvenna í Hafnar- firði, er hafi á stefnuskrá sinni að vinna að eflingu Sjálfstæðis- flokksins á grundvelli einstakl- ingsframtaksins til aukinnar vel- megunar og velferð fyrir allan landslýð. Auk þess beini félagið starfi sínu að því að heilbrigði og heilsuvernd þjóðarinnar verði aukin, og uppeldismálin tekin til rækilegrar rannsóknar og þau færð til þess horfs að einstaklings eðli og sjálfstæð hugsun barna og unglinga nái að þroskast sem bezt. Og enn fremur að glæða ættjarðarást þeirra og virðingu fyrir þjóðlegri menningu á öll- um sviðum.“ Fyrsta stjórn Vorboðans var skipuð eftirtöldum konum: Frú Rannveig Vigfúsdóttir form., frú Sólveig Eyjólfsdóttir ritari, ung- frú María Ólafsdóttir gjaldkeri, frú Jakobína Mathiesen vara- form., meðstjórnendur: frú Geir- Danskt, útskorið SÓFASETT sófaborð, stofuskápur og bókahilla, til sölu á Heiðar- gerði 16. Stúlka í fastri vinnu óskar eftir 1 stofu og eld- húsi (eða eldunarplássi), í góð ' húsi, helzt innui Hring brautar. Tilboð sendist af- greiðslu Mbl., me kt: „Júní — 2623“. Sveitavinna Karlmaður óskast til sveita starfa. Kaup eftir samkomu lagi. — Upplýsingar í síma 80036. — KEFLAVÍK 3ja herb. íbúð til leigu um mánaðamóf maí—júní. Ein- hver fyrirframgreiðsla æski leg. Tilb. sendist afgr. Mbl. í Keflavík fyrir 1. maí — merkt: „1118“. Frú Jakobína Mathiesen, núverandi formaður. almennt, en það hefir eins og áður segir ávallt auðkennzt af áhuga miklum og dugnaði. Vor- boðakonur hafa beitt sér fyrir ýmsum mannúðarmálum hér í Hafnarfirði. Þær hafa t. d. haldið almenn saumanámskeið fyrir hafnfirzkar konur, sem hafa ver- ið vel sótt og notið vinsælda jafnt af félagskonum sem öðrum. Ýms- um umbótamálum hafa þær bar- Frú Rannveig Vigfúsdóttir, fyrsti formaður Vorboðans izt fyrir hér í Firðinum, og hafa sum þeirra náð fram að ganga en önnur ekki, eins og gengur og gerist. Þá eru Vorboðakonur aðili að Landssambandi Sjálf- stæðisflokksins og senda fulltrúa á sambandsfundi. Bindindisstarf- semi hafa þær látið sig mjög skipta, og á félagið fulltrúa í á- fengisvarnarnefnd. Einnig hefir verið ákveðið að ganga í Kven- félagasamband Islands. Ýmislegt hefir félagið látið að sér kveða til eflingar starfsemi sinni, svo sem haldið bazar árlega, sem gefizt hefir vel, enda hafa kon- urnar lagt mikla vinnu í hann. En fyrst og síðast hafa Vorboða- konur unnið Sjálfstæðisflokknum ómetanlegt gagn, sem seint verð- ur fullþakkað. Á þessum tímamótum verður ekki komizt hjá því að minnast á hið ánægjulega og góða sam- starf, sem ávallt hefir ríkt innan félagsins, svo að hvergi hefir bor- ið skugga á. Og í því sambandi má benda á það, að þrjár konur hafa setið nær alla tíð í stjórn, en það eru þær María Ólafsdótt- ir, sem verið hefir gjaldkeri allt frá stofnun, Soffía Sigurðardótt- ir ritari í 19 ár og Jakobína Mat- hiesen formaður í 15 ár. Hefir formaðurinn beðið mig að færa félagskonum og öðrum velunnur- um félagsins kærar þakkir frá sér fyrir ánægjulegt samstarf og stuðning á liðnum árum. Geta skal þess að lokum, að ekki voru tök á að minnast af- mælisins hátíðlega að þessu sinni, en ákveðið hefir verið að gera það í haust. G. E. Frá saumakvöldi. — Ljósm. Herdís Guðmundsdóttir. Fyrirtæki til sölu í fullum gangi með mikla framtíðarmöguleika. — Þeir, sem hefðu áhuga á þessu leggi nöfn sín og heimilisföng í lokuðu umslagi inn á afgr. Mbl. fyrir hádegi á laugar- dag, merkt: „Framtíðarfyrirtæki — 5499“. íbuð til leigu Góð íbúð á fallegum stað á hitaveitusvæðinu er tl! lelgu nú þegar. íbúðin er 4 herbergi, eldhús og bað, 130 ferm. stór, með sérhita. Tilb. merkt: „Austurbær — 5488“ send- ist blaðinu fyrir 29. apríl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.