Morgunblaðið - 25.04.1957, Side 2
Fimmtudagur 25. apríí 1957
Bandaríkin hlynnt stórveldaráðstefnu
ef Rússar sýna samningsvilja
Washington, 23. apríl.
DULLES utanríkisráðherra Bandaríkjanna hélt í dag fund meS
blaðamönnum. Sagði hann m. a., að Bandaríkjastjórn væri
hlynnt því, að efnt væri til ráðstefnu æðstu manna austurs og
vesturs.
★ ★ ★
Grundvöllur fyrir slíkri ráð-
stefnu yrði þó enginn fyrr en
Rússar sýndu í verki, að þeir
vildu leysa vandamálin í samráði
við Vesturveldin. Nefndi Dulles
í þessu sambandi afvopnunar-
málin, sameiningu Þýzkalands og
framtíðarstöðu leppríkja Rússa.
★ ★ ★
Þá sagði Dulles, að Bandaríkja-
stjórn mundi leggja til, að Súez-
deilan yrði lögð fyrir Öryggisráð-
ið — og mun það sennilega verða
kvatt saman á fimmtudag eða
föstudag. Fulltrúi Bandaríkjanna
í ráðinu, Cabot Lodge, mun þá
Sænsku njósnar-
arnir dæmiiir
Stokkhólmi, 24. apríl.
— Frá Reuter.
SVÍARNIR tveir, sem ákærðir
voru fyrir að gera ólöglcg afrit
af teikningum af kafbátum með
það fyrir augum að selja þau er-
lendum herveidum, hlutu í dag
dóm sinn í Stokkhólmi. Rubert
Folke Damstedt, sem var aðstoð-
arritari hjá kjarnorkunefndinni
sænsku, var dæmdur í 4% árs
þrælkunarvinnu, og Gösta Arnold
Jakobsson var dæmdur í 5 ára
þrælkunarvinnu. Jakobsson hafði
unnlð fyrlr tækninefnd sænska
flotans, þar sem hann hafði að-
gang að teikningunum af kafbát-
unum.
gefa því skýrslu um samninga-
umleitanirnar við Egypta um
framtíðarstöðu skurðarins, en
hingað til hefur árangur þeirra
orðið næsta lítill.
★ ★ ★
Ekki er talið, að Öryggisráðið
fái miklu áorkað til frekari lausn
ar Súez-deilunnar, en Dulles
kvað það sjálfsagt, að ráðið fengi
tækifæri til þess að kynnast
gangi málanna.
Ólafur Jóhannes
son tekur sæti
á þingi
1 GÆR, er sameinað þing kom
saman að loknu páskaleyfi, til-
kynnti forseti þess, Emil Jónsson,
að sér hefði borist bréf þess efnis
að Steingrímur Steinþórsson yrði
að gera hlé á þingstörfum um
nokkurra vikna skeið sökum
heilsubrests.
Sæti hans á þingi tók Ólafur
Jóhannesson prófessor. Kjörbréfa-
nefnd þingsins hafði haft kjörbréf
hans til meðferðar og skýrði fram
sögumaður hennar, Gísli Guð-
mundsson frá því, að hún legði til
að bréfið yrði tekið gilt.
Undirritaði hinn nýi þingmað-
ur síðan eiðstaf þingmanna.
Dagskrá Alþingis
föstudaginn 26. april
Efri deild:
1. Eyðing refa og minka. —
2. umr.
2. Skattfrádráttur sjómanna. —
3. umr.
3. Heilsuverndarlög. — 3. umr.
Neðri deild:
1. Eftirlit með skipum. 3. umr.
2. Fasteignaskattur. Frh. 2. umr.
Fréttir í stuttu máli
★ Stassen fulltrúi Bandarikj-
anna í afvopnunarnefndinni er
kominn til London aftur eftir
nokkurra daga heimsókn til j
Bandaríkjanna þar sem hann
ræddi við Eisenhower forseta.
Talið er að hann hafi meðferðis
nýjar tillögur um afvopnunar-
mál.
★ í dag sigldi fyrsta banda-
ríska skipið inn í Súez-skurð síð-
an Egyptar lokuðu honum. Er
skipið á leið norður frá Pakist-
an og hefur 12 farþega innan-
borðs.
★ Stjómin í Súdan hefur sent
Richards, sérstökum sendimanni
Eisenhowers til landanna við aust
anvert Miðjarðarhaf, orðsendingu
þar sem segir, að Súdan-búar
þiggi gjarna bandaríska hjáip,
en aðeins með þeim skilmáium,
að landið fái áfram að reka hlut-
leysisstefnu og þiggja hjálp hvað
an sem það vill — einnig frá
Rússum.
jc Páfinn hefur sent út áskor-
un til mannkynsins um að nota
kjarnorkuna í þágu friðar og
framfara og hætta að gera til-
raunir með kjarnorku- og vetnis-
sprengjur.
★ Forstjóri flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna hefur
heitið á allar þjóðir að koma
flóttamönnum til hjálpar og opna
þeim lönd sín. Sagði hann, að nú
væru 38.000 ungverskir flótta-
menn í Austurríki og 16.000 í
Júgóslavíu, sem biðu eftir því að
komast til annarra landa. Auk
þess væru enn um 200.000 flótta-
menn í búðum í Evrópu, og hefðu
margir þeirra verið þar yfir 10
ár án nokkurrar vonar um að
finna ný heimkynni.
★ ísrael hefur kært það fyrir
Öryggisráðinu, að Egyptar hafa
sett sérstakan foringja yfir
hryðjuverkasveitir á Gaza-skik-
anum með það fyrir augum að
halda áfram árásum inn í ísrael
að næturlagi.
Fjöldi bæjarbúa var við messu í kirkjum bæjarins á páskadags-
morgun. Þessi mynd er L d. tekin suður á Fríkirkjuvegi, þar
sem bílar kirkjugesta stóðu tugum saman meðfram gangstéttinni
beggja vegna. (Ljósm. H. Dan )
Ungur sjómoður
drukknar
NOKKRU fyrir miðnætti, að
kvöldi miðvikudagsins fyrir
páska, vildi það sviplega slys til
um borð í togaranum Norðlend-
ingi, að 19 ára piltur Rögnvaldur
Axelsson, féll fyrir borð og
drukknaði. Það tókst ekki að
finna lík hins látna. Þetta gerðist
út af Garðskaga. Um aðdraganda
slyss þessa eru fregnir ekki fyrir-
liggjandi, sem m. a. stafar af því,
að togarinn hefur ekki komið til
hafnar, en er væntanlegur til Ól-
afsfjarðar á föstudaginn og munu
þá fara fram próf í málinu.
Rögnvaldur heitinn var einasti
hásetinn á togaranum sem heima
átti í Ólafsfirði, aðrir hásetar eru
Færeyingar.
Rögnvaldur var sonur hjón-
anna Axels Péturssonar, sjó-
manns og konu hans Petreu Rögn
valdsdóttur, og var Rögnvaldur
næst elztur þriggja sona þeirra.
★ ★ ★
Á tæpri viku hafa því drukkn-
að þrír íslendingar.
Sridgekeppni
PATREKSFIRÐI, 24. apríl —
Nýlega er lokið sveitarkeppni í
bridge hér á Patreksfirði. Er það
annar veturinn sem sú keppni fer
fram. í keppninni tóku þátt 9
sveitir, þar af ein sveit kvenna.
Sigurvegarar í keppni þessari
varð sveit Ágústar H. Péturs-
sonar, en auk hans eru í sveit-
inni þeir Hannes Finnbogason,
Tómas Guðmundsson og Stein-
grímur Sigfússon. Hlaut sveitin
1 stig.
önnur í keppninni var sveit
Ólafs G. Ólafssonar með 12 stig
og þriðja sveit Gunnars Waage
með 11 stig.
Keppt var um fagran bikar sem
gefinn var af þátttakendum. Er
það farandbikar er keppa skal um
árlega.
Laugard. 6. apríl fór einnig
fram tvímenningskeppni í
Bridge. Þátt tóku í þeirri keppni
16 pör. Sigurvegarar voru þeir
Árni G. Þorsteinsson og Ari
Kristinsson með 131 stigi. Aðrir
voru Traust' Árnason og Guðjón
Guðjónsson með 121 stig og þriðju
þeir Gunnar og Ólafur Sveinsson
með 119 stig. —Karl.
Hún er horfin úr TjarnargötuimL
Báðir neituðu
SEYÐISFIRÐI — Þrátt fyrir
eindregna neitun beggja brezku
skipstjóranna, sem Þór tók í land
helgi fyrir páska, voru báðir sak-
felldir í lögreglurétti Seyðisfjarð-
ar. Hlutu þeir hvor um sig 74 þús.
kr. sekt, þar eð sannað þótti eftir
framburði varðskipsmanna og
mælingum þeirra, að togararnir
hefðu verið að veiðum innan hins
friðlýsta svæðis út af Hvítung-
um.
Annar togararanna, Kingstone
Andaluzitez frá Hull, var með
afla að verðmæti 30 þús. kr. og
veiðarfæri togarans, voru metin
á kr. 59,200, en aflinn og veiðar-
færin voru með dómnum »gerð
upptæk. Hinn togarinn, Wellard
frá Grimsby, en afli hans og veið-
arfæri voru og gerð upptæk, var
með ísvarinn fisk fyrir um kr.
22,800 og veiðarfærin voru met-
in á kr. 52 þús.
Brezku skipstjórarnir áfrýjuðu
báðir dómum í málum sínum til
Hæstaréttar. — B.
Ekið á mannlausa
bíla
ANNAN páskadag kl. 5,30 var
ekið á bílinn R-7600 í Höfðaborg,
en bíllinn stóð vestan megin á
veginum sem liggur frá Borgar-
túni og niður í „Defensorstöð-
ina“. — Urðu á honum nokkr.ar
skemmdir aftur á. Þá var ekið
á bílinn R-2400 á bílastæðinu
við Kalkofnsveg milli kl. 1—5
síðd. Varð hann einnig fyrir
nokkrum skemmdum. Er bíll
þessi „Fíat 1100“. Ef einhverjir
væru, sem uppl. gætu gefið í
málum þessum, eru þeir beðnir
að hafa samband við rannsóknar-
lögregluna hið fyrsta. Einnig er
að sjálfsögðu skorað á bílstjóra
þá, sem hér eiga hlut að máli,
að þeir gefi sig fram. Báðir hafa
eigendur fyrrnefndra bíla orðið
fyrir tilfinnanlegu tjóni.
/jársöfnun til eflingar björgunarskútusjóði
Breiðfirðinga í Snæfellsneshöfnum
STYKKISHÓLMI, 24. apríl. —
Á morgun, síðasta vetrardag, fer
fram á Snæfellsnesi allsherjar
fjársöfnun til eflingar Björgun-
arskútusjóði Breiðfirðmga, en
hann var sem kunnugt er stofn-
aður fyrir þremur árum með 50
þúsund kr. framlagi Þorbjarnar
Jónssonar í Reykjavík og konu
hans.
Fjársöfnun fer fram í öllum
verstöðvum á Snæfellsnesi og
einnig verður þeim fjarstöddu
Breiðfirðingum, sem vilja styrkja
þetta málefni gefinn kostur á að
vera með um söfnunina. Geta
þeir komið framlögum sínum til
einhvers í stjórn fjáröflunarnefnd
ar, sem kjörin hefur verið úr öll-
um verstöðvum á Snæfellsnesi.
í fjáröflunarnefndinni eiga
sæti Ottó Árnason í Ólafsvík,
Ágúst Pálsson, Stykkishólmi,
Danilíus Sigurðsson, Hellissandi
og Þorkell Runólfsson í Grafar-
nesi.
Fyrir forgöngu Sigurðar Ágústs
sonar, alþingismanns og Lúðvíks
Kristjánssonar ritstjóra ,fór fram
allsherjar fjársöfnun í Höfnum á
Snæfellsnesi fyrir tveimur árum
og bar hún ágætan árangur, enda
mikill áhugi ríkjandi fyrir þessu
máli hér á Snæfellsnesi.
— Fréttaritari.
St. Helgafell
Fundur verður annað kvöld
klukkan 7.
Hún setti svip á
TjarnarJífið
IFYRRASUMAR var gæsapar
á Tjörninni, sem undi þar
hag sínum vel. En svo kom á
miðju sumri slys fyrir. Gæsa-
karlinn varð fyrir bíl og dó. Var
nú sár harmur kveðinn að gæsa-
kerlingunni og syrgði hún maka
sinn allt sumarið. I einstæðings-
skap sínum tók gæsamamma að
spekjast og leita til mannanna.
Kona Sveins Sæmundssonar yfir-
lögregluþjóns, frú Geira Óladótt-
ir, Tjarnargötu 10B, tók að gefa
gæsinni brauðmola. Upp úr þessu
tók gæsin mikla tryggð við hús
Sveins og konu hans. Gæsin
heimtaði daglega sinn skammt og
engar refjar. Hafði hún í frammi
hávaða ef ekki var matur er hana
bar að garði. Hún gaf sig aldrei
að öðrum fuglum. Hún var á
Tjörninni fram eftir vetri, en
hvarf þá skyndilega. Var jafnvel
talið sennilegt, að hún hefði orðið
fyrir slysi. — En um páskana
birtist sú gamla allt í einu, horuð
og hrakin. Hún lét sér ekki nægja
að koma að tröppum húss vina
sinna, heldur kom nú alveg inn
í gang, til þess að gera viðvart
um endurkomu sína. Minna má
á það, að í fyrrasumar kom hér
í blaðinu „samtal“ við þessa
skemmtilegu gæs.
í fyrradag fór hún sömu leið
og karlinn hennar fór í fyrra-
sumar. Kjartan Ólafsson bruna-
vörður skýrði blaðinu svo frá í
gær, að hún hefði orðið undir
bíl á Tjarnargötunni. Þar með er
hún horfin grágæsin merkilega,
sem setti svip sinn á Tjarnarlífið
í fyrrasumar.
Vaxandi farþcga-
flutningur
með Fðxunom
Á FYRSTU þrem mánuðum þessa
árs fluttu flugvélar Flugfélags
íslands 1545 farþega milli landa,
en 1131 á sama tíma I fyrra. Læt-
ur því nærri að tala farþega í
millilandafluginu hafi aukist um
þriðjung á þessum tíma miðað
við sl. ár.
Vörufluttningar milli landa
jan- febr-marz 1957 námu 57339
kg. en 37500 á sama tíma í fyrra.
Póstur fluttur milli landa á þessu
tímabili nam 7100 kg., en 5930 kg.
sl. ár.
í innanlandsfluginu urðu far-
þegar nokkru færri fyrstu þrjá
mánuðina í ár, vegna verkfalls á
flugflotanum.
Farþegar fyrstu þrjá mánuðina
í ár voru í innanlandsfluginu
6140, en 6738 í fyrra. Vörur flutt-
ar innanlands voru í ár 210 þús.
kg. en 240 þús. kg. á sama tíma
í fyrra.
Hinsvegar jókst póstflutningur
í lofti nokkuð. Var fyrstu þrjá
mánuðina 1957 53012 kg. en á
sama tíma 1956 var hann 45344
kg.