Morgunblaðið - 25.04.1957, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 25.04.1957, Qupperneq 11
Fimmtudagwr 25. apríl 1957 MORCUlSBLAÐIh 11 Tveir kálfsskinnssneplar úr handritum veraldarsogunnar ★M “ fyrsta og annars þáttar líður ein öld og tuttugu mínútna hlé! Og öldin heitir Gullöldin okkar. Eins og nafnið ber með sér eru þetta mjög merkilegir tímar, tímar gróða og verald- argengis, sem spanna allt frá gömlu vatnspóstunum og Hlíðarhúsum til atomheila að safna saman ágætu spaugi, græskulausu gamni og bráð- fyndnum hröndurum um merka samtíðarmenn. Fyrri þátturinn gerist í Reykjavík aldamótaáranna, og þar er aðalpersónan Skraffinnur Tobíasson vatnsberi (ekki bróðir Brynleifs) sem Harald- ur sjálfur leikur. Ein hrnkka í viðbót! aldamótaáranna, anno 2000. Skraffinnur vatnsberi. Og innan þessara tveggja timamarka hefur þeim Har- aldi A. Sigurðssyni og Guð- mundi Sigurðssynl, góðskáld- um og óviðjafnanlegum hú- moristum af Guðs náð, tekizt Síðari þátturinn fer fram í einum af viðhafnarmóttöku- sölum Ráðhúss Reykjavikur, á þeim tímum, sem gullöld er gengin í garð og framfarir svo miklar orðnar, að menn skála í kampavínskúlum, því vínið sjálft er löngu orðið gamal- dags. Þessi nýja revía þeirra fé- laga er spéspegill aldarfars- ins, samvizka samtíðarinnar, eins og allar góðar revíur eiga að vera. Og þeir eru líka margir, sem þar fá orð í eyra, einkum stjórnmálamennirnir, enda er það, eins og Haraldur segir, móðgun við stjórnmála- mann, ef hann fær þar ekki sinn skammt ríflega útilátinn. igp FYRRI HLUTINN gerist á þeim árunum, þegar þeir „Her- mann á Blikastöðum" og „Ey- steinn litli í Skildinganesi" eru enn ungir sveinar, og maður, sem á eftir að verða milcill félags- málamaður með þjóðinni, er enn bara kornabarn í vöggu. Þrátt fyr ir það er barnið þó orðið formað- ur i framfarafélagi ungbarnanna í Þingholtunum! Þar koma strax í upphafi ýmsir aðrir þjóðkunnir menn við sögu svo sem Níels Dungal, sem þá er enn á stuttbuxum og er alltaf að stelast til þess að reykja, og Brynleifur Tobíasson, sem ein unga stúlkan elskar ofurheitt, en hinum finnst helzt til „sveitó“. Revía verður alltaf Hka að vera pólitísk, segir Haraldur Á. Sig- in, og það er sú gagnrýni, sem fólkið skilur og metur bezt. Einn brandari er oft miklu meira virði að þessu leyti en heillöng um- Skolbrún Tyrfings, þvottakona og skrifstofumær (Steinunn Bjarna- dóttir). Spæmundur Hólm leynilögreglufulltrúi (Haraldur Á. Sig- urðsson) og Skriffinnur Dúbíusson (Lárus Ingólfsson). urðsson. Alls staðar í veröldinni eru þær þrælpólitískar og stinga helzt á því, sem verst fer aflaga í þjóðfélaginu á hverjum tíma. Háðið er löngum bezta gagnrýn- vöndunar- og ásökunarræða í vandlætingarstíl. Það má segja, að í þessari nýju revíu „Gullöldin okkar“ sé undir- tónninn sá, að sýna fram á hve vandamál mannanna eru lík frá ári til árs, frá öld til aldar. Um aldamótin í Reykjavík eru helztu áhyggjurnar ógn svipaðar þeim, sem helzt kvelja okkur í dag, dýrtíðin, húsnæðisleysið og svo mætti lengi telja. Skraffinnur vatnsberi óskapast mjög yfir því að nú sé brennivínið komið upp í 82 aura líterinn og skonrokið hafi hækkað um 20 aura pundið. Og þá svarar Orðvör Símonar- dóttir, vatnsberi og lifandi frétta- blað, um leið og hún formæl- ir hörmungum og skattpíningu Dana hér á landi: „Já, Skraffinnur minn, við þurfum að fá alíslenzka stjórn, því ekki gæti hún verið svo lúa- leg að níðast á sínum eigin lands- mönnum, og hækka sífellt verð- lagið og skattana." Það var nú í þá tíð mælt.... GULLÖLDIN okkar er fyrsta revían, sem þeir hafa samið í sameiningu Guðmundur og Har- aldur, en báðir hafa þeir samið gamanleiki og revíur við góðan orðstír. Og óhætt er að segja, að að þessu sinni fari saman ágæt gamankvæði og hnyttinn og skemmtilegur texti. í síðari þættinum árið 2000 er formaður alþjóðamenningarsendi nefndarinnar kínversku, að spjalla við Skriffinn Dúbíusson yfirborgarritara. Kínverjinn hef- ur máls og segir: — ísland er orðið stórveldi. — Já, svarar Skriffinnur, við erum eiginlega það eina stórveldi sem eftir er í heiminum. Kínverjinn spyr: — En hvernig stóð á því að Stóra-Bretland varð íslenzk nýlenda? Skriffinnur: — Það var eigin- lega vegna aðgæzluleysis stjórn- arinnar. Hún var alltaf að flytja út landhelgina, svo það endaði með því að England lenti innan hennar. En það gegndi allt öðru máli með Ameríku. Kínverjinn: — Hvernig þá? Skriffinnur: — Jú, við vorum alltaf að fá lán hjá Ameríku- mönnum og þegar skuldirnar voru orðnar svo miklar að við gátum ekki borgað þær, þá tók- Framh. á bls. 17 Á hersamkomunni við vatnspóstinn Þeir félagar Haraldur Á. og Guðmundur Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.