Morgunblaðið - 01.05.1957, Side 3
Miðvikudagur 1. maí 1957
MORGVTSBLAÐIÐ
3
Fjársöfnun til minningar
um Niels Finsen
DANIR eru nú að reyna að utvega 100.000 danskar krónur til að
halda við nafni og minningu kins kunna vísindamanns Niels
Finsens, sem var íslenzkur f aðra sett, eins og kunnugt er, og
stundaði nám við Menntaskólann í Reykjavík (Lærða skólann).
Það er dr. med. Börge Christensen frá Finsen-stofnuninni, sem
er að reyna að útvega fjárhæðina og hefur góða von um, að það
megi takast.
Þessar 100.000 krónur verða
hluti af 250.000 dönskum krón-
um, sem Alþjóðanefndin fyrir
geislarannsóknir er að safna í
þeim tilg. að geta aftur hafið veit
ingu eins eftirsóttasta heiðurs-
merkis í vísindaheiminum —
hins alþjóðlega Niels Finsens-
heiðurspenings.
EIGNIRNAR HURFU
Nefndin er mjög þekkt og
virt vísindaleg stofnun, sem
starfar undir umsjá UNESCO.
Fyrir síðari heimsstyrjöld
veitti hún Niels Finsen-heið
urspeninginn, sem er gullpen-
ingur sem viðurkenningu fyrir
mikilvæg störf á sviði geisla-
rannsókna. Eignir sjóðsins,
sem voru í Þýzkalandi, hurfu
í styrjöldinni. Alls hafa fimm
menn hlotið gullpeninginn,
svo auðsætt er að hér er um
mjög fágæta viðurkenningu að
ræða.
HUNDRAÐ ÁRA
AFMÆLI 1960
Áriff 1960 eru liffin hundraff ár
frá fæffingu Finsens, og standa
vonir til, aff þá megi aftur ut-
hluta hinni merku viffurkenn-
ingu, sem ber nafn hans. Hins
vegar eru engir fjármunir fyrir
hendi. Þess vegna starfa nú tveir
verður safnað í öðrum löndum.
Sjálfur höfuðstóll sjóðsins verð-
ur ekki hreyfður, heldur verður
vöxtum hans einum varið til út-
hlutunar á heiðurspeningnum. —
Honum fylgir engin fjárhæð, en
móttakandinn fær greiddar ferð-
ir sínar og samferðamanns síns
til og frá landinu, þar sem verð-
launum er úthlutað hverju sinni.
EINN MERKASTI VÍSINDA-
MAÐUR NORDURLANDA
Niels Finsen er meff réttu kall-
affur faffir geislalækninganna. —
Hann uppgötvaffi efnafræffileg
áhrif sólarljóssins á líkamann, og
tók upp skipulagða baráttu gegn
dauðanum með aðstoff sólarinn-
ar. Hann var einn atkvæffamesti
vísindamaður sem Norffurlönd
hafa aliff, enda eru Danir mjög
hreyknir af honum, og þaff meg-
um við íslendingar kannske líka
vera, því hér í Reykjavík hlaut
hann þá undirstöffumenntun sem
gerffi honum kleift að leggja út
í læknisfræffina.
Hussein kveður
Rússa vaða reyk
Amman, 30. apríl — Frá Reuter.
UUSSEIN konungur neitaði í dag þeirri fullyrðingu
^ Rússa, að Bandaríkin hefðu hlutazt til um máiefni
Jóradaníu. Sagði hann, að þessar fullyrðingar væru
gripnar úr lausu lofti. Allt sem gerzt hefði í Jórdaníu
væri með vilja þjóðarinnar og ráðstafanirnar sem
gerðar hefðu verið væru henni fyrir beztu. Hann
fullvissaði fréttamenn um, að verstu vandræðunum
væri nú lokið og gaf í skyn, að Jórdanía mundi þyggja
10 milljón dollara efnahagsaðstoð frá Bandaríkjunum,
en það yrði an nokkurra skuldbindinga.
Seint í kvöld tilkynnti bandaríska utanríkisráðu-
neytið, að Jórdanía hefði opinberlega þegið 10 milljón
dollara lánið, en það er ekki í neinum tengslum við
áætlun Eisenhowers um efnahagsaðstoð við löndin
við austanvert Miðjarðarhaf, enda hafði Hussein lýst
því yfir, að hann hefði engan áhuga á för Richards til
Austurlanda. Þetta 10 milljón dollara lán er til við-
bótar öðru 5 milljón dollara láni, sem Jórdanía hefur
þegar fengið í Bandaríkjunum.
Athugasemd frá formanni
félags rafvirkja
Niels Finsen,
menn aff því aff safna fé í sjóff-
inn, þeir dr. Christensen og hinn
frægi þýzki visindamaður dr.
Rajewsky viff Max Planck-stofn-
unina í Frankfurt.
Dr. Christensen vonast til að
geta safnað 100.000 krónum í Dan
mörku, en því sem eftir er, þ.e.
andvirði 150.000 danskra króna,
Helztu fréttir í gær
★ f fimmta sinn á 12 árum kommúnistastjórnar í Austur-Þýzka
landi hefur þjóffinni veriff tilkynnt, aff ekki verði hægt aff létta
af henni martarskömmtun, enda þótt því hefffi veriff heitiff 1. maí.
Kjöt, feitmeti, mjólk og sykur verffur eftir sem áffur skammtað.
★ Rúmlega 1700 bandarískir sjóliðar og landgönguliðar
hersins gengu á land í Beirut í Líbanon í dag í 4 daga land
gönguleyfi. Hluti af 6. flotanum kom til Beirut í opinbera
heimsókn, en önnur skip hans, þeirra á meðal stærsta flug-
vélamóðurskip veraldar, „Forestal" (60.000 tonn) eru að
æfingum á austanverðu Miðjarðarhafi.
★ Fulltrúar þeirra 15 þjóða, sem mynduðu með sér notenda
samband Súez-skurðarins, hafa að undanförnu setið á ráðstefnu í
London til að ræða hinar nýju tillögur Egypta um Súez-skurðinh.
Er um það rætt, hvort tillögurnar skuli samþykktar til bráða-
birgða eða haldið fast við fyrri stefnu. Endanleg ákvörðun um
málið var ekki tekin, og hefjast umræður aftur á fimmtudag, eftir
að fulltrúarnir hafa gefið stjórnum sínum skýrslu.
★ Þegar neffri málstofa brezka þingsins kom saman í dag eftir
páskaleyfið, stóff Macmillan upp og kvaffst enn vera aff athuga
bréfiff sem hann fékk frá Bulganin á laugardaginn fyrir páska.
Hann hefur sent Búlganin bráðabirgffasvar þar sem hann lætur
í ljós ánægju yfir áhuga Búlganins á því aff bæta sambúff Breta
og Rússa, en fer fram á meiri tíma til aff íhuga hin mikilvægu
vandamál, sem tekin eru til umræffu í bréfi Búlganins. Aff því
er snerti heimsókn til Moskvu, þá kvaffst Macmillan þurfa aff
hugsa máliff betur, því nauffsynlegt sé aff slík heimsókn sé vel
undirbúin og tímabær.
★ Adenauer hefur beðið rússnesku stjórnina að skýra það,
hvers vegna hún veitti enga eftirtekt þeim fullvissunum um
hervæðingu Vestur-Þýzkalands, sem nýlega voru gefnar.
Rússar héldu því fram í orðsendingu sinni, að Vestur-Þjóð-
verjar hefðu í hyggju að búa heri sína kjarnorkuvopnum, og
vöruðu þá við slíkum vígbúnaði, þar sem Rússar kynnu þá
að gera landið að kirkjugarði, ef til styrjaldar kæmi. Tveim-
ur dögum áður en þessi orðsending barst til vestur-þýzku
stjórnarinnar hafði Adenauer tjáð rússneska sendiherranum
í Bonn, að Vestur-Þjóðverjar ættu engin kjarnorkuvopn,
mundu ekki fagna þeim og mundu gera allt sem í þeirra
valdi stæði til að koma á kjarnorku-afvopnun undir ströngu
eftirlit. Hann sagði sendiherranum, að hann vildi fá þessar
fullvissanir sendar beint til rússnesku stjórnarinnar. Hvers
vegna voru þær algerlega virtar að vettugi? spurði hann.
★ Sænski sendiherrann Gunnar V. Jarrings, sem sendur var til
Kasmír á vegum Sameinuðu þjóðanna til að rannsaka deilu Ind-
verja og Pakistansbúa, gaf Öryggisráðinu skýrslu sína í dag og
gagði, að Kasmír-deilan virtist óleysanleg eins og sakir stæðu,
•nda þótt báðir aðilar væru fúsir að finna lausn á málinu. En
þeir geta ekki komið sér saman um lausnina. Það sem annar
samþykkir fellir hinn.
EFTIRFARANDI athugasemd
barst Morgunblaðinu í gær:
„Hr. ritstjóri!
Vegna fréttar í blaði yðar í
dag, varðandi fund um uþpsögn
samninga í „Rafvirkjafélaginu“,
leyfi ég undirritaður mér hér með
að fara fram á, að þér birtið
eftirfarandi athugasemd í blaði
yðar: .
1 umræddri frétt er svo að orði
komizt, að „tillaga þess efnis“ að
segja upp samningum, hafi verið
felld á fundinum með 6 atkv.
meiri hluta. Hið rétta er, að til-
laga kom fram á fundinum um
að segja upp samningum og „hafa
þá lausa“. Þessi tillaga var af-
greidd með rökstuddri dagskrá,
sem samþykkt var með öllum
þorra atkvæða gegn 8.
Þá segir ennfremur í nefndri
frétt: „formaður félagsins, Ósk-
ar Hallgrímsson, neitaði að við-
hafa leynilega atkvæðagreiðslu“
o. s. frv. Hér er enn hallað réttu
máli. A umræddum fundi notaði
ég mér heimild félagslaga og skip
aði Óskar Guðmundsson fundar-
stjóra. Það kom því í hans hlut,
að stjórna umræðum og atkvæða
greiðslum á fundinum, og það var
að sjálfsögðu hann, sem fundar-
stjóri, sem kvað upp þann úr-
skurð, að atkvæðagreiðsla skyldi
fara fram með handauppréttingu.
Rökstuddi fundarstjóri þann úr-
skurð sinn, með skýlausum á-
kvæðum fundarskapa félagsins,
hvað þetta atriði • snerti.
Reykjavík, 30. apríl 1957,
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna.
Virðingarfyllst,
Óskar Hallgrimsson,
form. Fél. ísl. rafvirkja".
Sjálfsagt er að birta þessa at-
hugasemd formanns Félags ísl.
rafvirkja. Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem blaðið verður að
telja öruggar, er það rétt, að til-
lögu um að segja upp samning-
um var vísað frá með rökstuddri
dagskrá, enda var talið, að á
henni væru formgallar. En hitt
er ekki nefnt í athugasemd for-
mannsins, sem er aðalatriðið, að
aðeins 32 félagsmanna greiddu at-
kvæði með tillögu meirihluta
stjórnarinnar um að segja ekki
upp samningum, en 26 greiddu
•tkvæði á móti tillögunni og
margir sátu hjá. Var atkvæða-
munurinn því aðeins 6 atkvæði
eins og Mbl. skýrði frá í gær.
Varðandi það, að fundarstjóri
neitaði að viðhafa leynilega at-
kvæðagreiðslu, er því haldið
fram af mörgum félagsmönnum,
að engin stoð sé fyrir þeim úr-
skurði í félagslögunum og hafi
því fundarstjóra borið að fara að
almennum fundarsköpum og
leyfa leynilega atkvæðagreiðslu.
Fjölmargir fundarmanna óskuðu
hennar og því hafi fundarstjóri
beitt ólýðræðislegum aðferðum,
er hann neitaði þeim áskorunum.
Cagnstœðar skoðanir á
hœttunni af geislun
Hcettan er
hverfandi lítil
FRA ÞVÍ var skýrt í blaðinu á
sunnudaginn, að bandaríski vís-
indamaðurinn dr. W. F. Libby,
sem er meðlimur kjarnorkunefnd
ar Bandaríkjanna, hefði lýst því
yfir að hættan af kjarnorku-
sprengingum væri hverfandi lít-
il. í bréfi sem dr. Libby sendi dr.
Alb. Schweitzer á laugard. sagði
hann m.a., að hættan við kjarn-
orkusprengingar væri „mjög lítil
borin saman við áhættuna, sem
menn lifa við alls staðar og er
eðlilegur liður í tilveru þeirra".
Dr. Libby var að svara þeirri
aðvörun, sem dr. Schweitzer
sendi frá sér í síðustu viku, þar
sem hann kallaði kjarnageislun-
ina „stórslys fyrir mannkynið".
Libby hrósar í bréfi sinu mann-
úð og sannfæringarkrafti Schwei
tzers en lætur í ljós efa um, að
hann hafi haft aðgang að nýj-
ustu upplýsingum.
Stöðva verður
tilraunir strax
Kj arnorkuvísindamennirnir
Frederic Juliot-Curie frá Frakk-
landi og Cecil F. Powell frá Eng-
landi, sem báðir hafa hlotið Nó-
belsverðlaunin, hafa sent út á-
skorun þess efnis, að kjarnorku-
sprengingum verði hætt þegar í
stað. Þeir sendu þessa áskorun
á vegum Alheimssambands vís-
indamanna, en Juliot-Curie er
forseti þess, en Powell formaður
stjórnarinnar.
Vísindamennirnir tveir lýstu
yfir því, að geislavirkt Strontium
og önnur efni stofni mannkyn-
inu í hættu og ógni óbornum
kynslóðum, þar sem geislunin í
heiminum fari vaxandi ár frá ári.
Þeir hétu á vísindamenn að birta
„skýrar og nákvæmar upplýsing-
ar“, sem geri öllum almenningi
ljósa hina miklu hættu, sem
kjarnorkutilraunir hafa í för
með sér.
Eden af sjúkrahúsi
BOSTON, 29. apríl—Sir Anthony
Eden, fyrrum forsætisráðherra
Bretlands, fór í dag af sjúkra-
húsi, en þar var hann skorinn
upp vegna gallsteina fyrir 16
dögum. Heldur Eden til Kanada
ásamt konu sinni. Verða þau þar
gestir brezka landsstjórans.
Hammarskjöld
á fund páfa
Hammarskjöld átti langar
viðræður við páfann í dag, en
ekki var gefin nein opinber
tilkynning að þeim loknum.
Síðar í dag flaug Hammar-
skjöld til Genfar, þar sem
hann mun sitja þing Efnahags-
nefndar Evrópu.
Fréttir í stuttu máli
30. april — Frá Reuter.
★ Tass-fréttastofan skýrffi frá
því í dag, aff rússneski fulltrúinn
í afvopnunarnefnd fimmveldanna
sem situr á rökstólum í London,
muni leggja fram nýjar tillögur
um afvopnun af hálfu rússnesku
ríkisstjórnarinnar. Þykir þaff tíff-
indum sæta sem von er.
★ Útvarpið í Peking tiikynnti
í dag, aff affvörunin, sem útvarp-
aff var á dögunum til Kinverja,
um aff gæta varúffar í sambandi
viff kjarnorkusprengingar Rússa
í Síberíu, hefði ekki komiff frá
Peking, heldur frá einhverri
Ieynilegri útvarpsstöff í Kina effa
nágrannalöndunum sem oft út-
varpaffi á sömu bylgjulengd og
Pekingútvarpiff. Voru Kínverjar
m.a. beðnir aff þvo grænmeti sitt,
birgja brunna og gera affrar var-
úffarráffstafanir gegn geislavirku
ryki frá Síberiu.
★ Wheeler hershöfðingi lok-
aði í dag aðalstöðvum björgunar-
flota Sameinuðu þjóðanna í Is-
mailia og fór til Kaíró. Þaðan
flýgur hann til New York á laug-
ardag.
★ Bandaríkin hafa tilkynnt
aff þau muni greiffa 40% af kostn-
aðinum við öryggissveitir Sam-
einuffu þjóðanna í löndunum fyr-
ir botni Miffjarffarhafs.
★ Hungursneyð vofir nú yfir
litla fjallaríkinu Nepal á norður-
landamærum Indlands, ef ekki.
verður að gert. Er talið að um
2 milljónir marina séu í lífsbáska
af þessum sökum.
★ Tilkynnt var í dag, aff svar
H.C. Hansens til Búlganins yrffi
birt í nótt, afffaranótt 1. maí, en
Rússar hafa hins vegar tilkynnt
aff þeir muni ekki birta þaff af
„tæknilegum ástæffum“ fyrr en
4. mai. Bréf Búlganins barst Han.
sen 28. f. m.