Morgunblaðið - 01.05.1957, Síða 13
Miðvikudagur 1. mai 1957
MORCVWBLAÐ1E
13
„Hið kommúníska heims-
veldi á enga erfingja44
Grein þessi er þýdd úr
Kaupmannahafnarblaðinu
Dagens Nyheder og er eft-
ir einn frægasta sérfræð-
ing Dana á sviði alþjóða-
stjórnmála, Eigil Stein-
metz. Fjallar hann hér um
þau vandamál, sem nú
bera aðallega að höndum
valdhafanna í Kreml.
Greinin er örlítið stytt í
þýðingunni.
★—★—★
í „STRIKINU“ í Moskvu,
iA Gorkigötu, sjáum við þá: 16
til 17 ára Rússa í buxum með
þröngum skálmum, jökkum með
amerísku sniði, skræpóttum skyrt
um og einkennilegum támjóum
og sólaþykkum skóm. Þeir standa
fyrir framan litlu veitingahúsin,
hlusta á gömul amerísk ,,swing“-
danslög í einhverju hinna fáu
danshúsa — eða þeir efna til
slagsmála á gangstéttinni. Þetta
eru „Stilyagi", hinir rússnesku,
„Teddy-boys“, eins og þeir eru
kallaðir í London, eða „Asfalt-
cowboys", eins og þeir eru kall-
aðir í New York.
★—★—★
Þessi æska, hugsjónalaus, taum
laus, ber ekki í brjósti neinar
tálvonir — þetta er ekki hin lög-
gilta sovétæska. Þessi æska er
haldin sterkri löngun til þess að
andmæla öllu og ganga í berhögg
við allt, ber í brjósti löngun til
einhvers sem hún gerir sér ekki
grein fyrir — en telur sig finna
í amerískum hálsbindum, jazz-
plötum og gömlum amerískum
Tarzankvikmyndum. Þessi æska
er fulltrúi þeirrar uppreisnar,
sem æska alls heimsins virðist nú
hafa gert — án tillits til allra
landamæra og hugsjóna. í dag
er hún erfiðasta innanríkisvið-
fangsefni valdamannanna í
Kreml.
Staðreyndin er, að æska
þessi, sem alin hefur verið
upp í hinum kommúnisku
kenningum og aldrei horfið úr
sjónvídd lærifeðranna, hefur
ekki tileinkað sér kommún-
isnrann — sem þýðir hvorki
meira né minna en það, að
kommúnisminn hefur misst
æskuna út úr höndunum á sér
— og þar með tapað framtíð-
inni.
★—★—★
Valdhafarnir í Kreml ræða
efnahagsvandamálin — og þau
eru mikil. Nýjar aðferðir eru
reyndar og menn eru fjarlægðir
úr ýmsum embættum, en nýir
koma í staðinn. Hernaðarvanda-
málin eru einnig rædd í Kreml,
og þau eru engu minni. Öll lepp-
ríkin virðast vera að brjótast
undan farginu og endurskoða
verður allar hernaðarlegar grund
vallarhugmyndir. Og í Kreml eru
utanríkismálin rædd — og þar
eru einnig sömu erfiðleikarnir.
Allt, sem unnizt hefur á undan-
förnum árum með friðarhjalinu
og vinarbrosinu, er nú tapað.
Eitt vandamál skyggir þó á
allt, sem áður er talið: Æska
kommúnistalandanna hefur
dregið stríðsfána að húni. Það
var ungversk æska sem gekk
óvopnuð gegn rússnesku skrið
drekunum, og það voru ung-
menni, sem efndu til uppþota
gegn Rússum í Póllandi. Það
er einnig æskulýðurinn í há-
skólum Austur-Þýzkalands,
Bulgaríu, Rúmeníu, Tékkó-
slóvakiu og balknesku lönd-
unum, sem hefur efnt til and-
stöðu við Rússa. Þessarar
sömu andstöðu gætir einnlg í
háskólum Rússlands — langt
út á götur Moskvu. Og hún er
nú orðin það sterk, að vald-
hafarnir í Kreml geta ekki
Þannig sér „Krokodil“ hina
rússnesku „tízkukálfa“.
virt hana lengur að vettugi.
Þeir geta ekki leynt henni.
★—★—★
„Komsomolskaja Pravda", blað
sem tileinkað er rússneskri æsku,
greindi nýlega frá því í langri
grein, að umræður við Lenin-
háskólann hefðu farið út fyrir
sett takmörk. Annað tíma_
rit, „Medizinski Rabotnik", mál-
gagn rússneska heilbrigðismála-
ráðuneytisins, skýrði einnig frá
því, að yfirmönnum flokksskjala-
safnsins hefði verið vikið úr
starfi vegna þess, að þeir hefðu
ekki skilið „hina nýju strauma
meðal læknastúdenta". Lomon-
ossov-háskólinn í Moskvu var
fyrir nokkru lokaður í 24 stund-
ir vegna uppreisnaranda í skól-
anum. Rektor skólans hefur stað
fest, að þriðja hluta stúdentanna,
eða jafnvel fleirum, hafi verið
bannað að sækja skólann frá 1.
september til 1. desember „vegna
agabrots".
Eitt af þessum „agabrot-
um“ var, að hópur stúdenta
samdi ávarp þar sem þess var
krafizt, að þing Ráðstjórnar-
ríkjanna yrði lagt niður í nú-
verandi mynd, en við tæki
þing, sem skipað yrði fulltrú-
um kjörnum af þjóðinni í
frjálsum kosningum. Einnig
kröfðust stúdentar aukins
akademisks frelsis, svo og
fullkomins prent- og mál-
frelsis. Var ávarp þetta fest
upp á tilkynningatöflu skól-
ans, en það var fjarlægt nær
samstundis af yfirvöldunum.
Engu að síður voru hundruð
afrita af ávarpinu fest upp
víðs vegar á veggi skólans
dagana á eftir.
★—★—★
Margsinnis hefur það borið við,
að fulltrúar flokksins hafa á
mannamótum verið krafðir um
nákvæmar og sannar fregnir af
atburðunum í Póllandi og Ung-
verjalandi — og þegar fulltrú-
arnir hafa reynt að snúa sig út
úr því með því að fara að ræða
um „persónudýrkun“, hafa stór-
ir hópar stúdenta gengið út í
mótmælaskyni.
Á einum æskulýðsfundi —
þar sem Krúsjeff hugðist
halda ræðu fyrir skömmu —
gat hann ekkl hafið máls
vegna þess að honum var
„fagnað“ með svo háværu
lófaklappi og látum, að ekki
heyrðist mannsins mál. Linnti
hávaðanum ekki fyrr en hann
Þessi mynd er elnnig úr „Krokodil" — og undir henni stóð: Einu
sinni fyrir löngu klifraði hasrn upp á herðar föður síns — og hann
fór aldrei niður aftur.
var farinn úr ræðustólnum.
Enginn gat sagt neitt við
„hrifningunni", sem unga fólk
ið sýndi.
★—★—★
Skömmu fyrir nýjár viður-
kenndi Moskvu-útvarpið, að
ekki væri allt með felldu með
al æskunnar: „Nokkrir hóp-
ar stúdenta eru haldnir óheil-
brigðum tilhneigingum", —
sagði þar — „og öðru hverju ]
komast þeir undir áhrif hug- 1
mynda, sem eru föðurlandi
þeirra ókunnar.“ Vegna þessa :
var flokksráðið í Moskvu
kallað saman til þess að reyna
að finna aðferðir til þess að
vinna gegn „þessum óheil-
brigðu tilhneigingum.“
★—★—★
En andúðarinnar í garð vald-
hafanna í Kreml verður ekki ein-
ungis vart í háskólunum og á
götum úti. f innstu hringjum
æskulýðshreyfingarinnar og með
al rússnesku yfirstéttarinnar
sjást þegar merki um uppreisn-
artilhneigingu æskulýðsins. Það
vakti t.d. mikla athygli fyrir
hálfu ári, er „Pravda“ skýrði frá
því, að dætur og synir margra
af valdamönnum landsins væru
flækt í þjófnaðarmál. Voru þetta
fyrstu merkin um virka andstöðu
leiðtoganna við þá nýju hreyf-
ingu, sem var að skapast meðal
æskunnar. Erlene Kuznetsova, 22
ára dóttir yfirhershöfðingja og
kennara við herskólann, Alla
Maksimova, 19 ára dóttir hátt
setts foringja í NKVD (leynilög-
reglan), og Tanya Andreeva, 18
ára dóttir herforingja í flughern
um, voru allar dæmdar í eins
árs fangelsi fundnar sekar um
að hafa rænt svallbræður sína,
en ránsfenginn notuðu þær til
þess að kaupa sér „kjóla, skart-
gripi og drykkjarföng“. Meðseka
þeim nefndi „Pravda" tvo unga
menn, sem voru framarlega í
æskulýðshreyfingu kommúnista-
flokksins. Voru piltar þessir
Mikhali Kabanov, sonur utanrík-
isverzlunarmálaráðherrans, og
Sergei Petukhov, sonur ráðherra
þess, sem hefur umsjón með
þungaiðnaðinum.
★—★—★
Fréttin vakti mikið uppnám
um gervallt landið — og varð
tilefni til mikilla umræðna í
blöðum og á mannamótum.
Slíkt sem þetta var orðið það
algengt, að á allra vitorði var.
Dómur „Pravda“ opnaði þess I
vegna allar flóðgáttir — og
fólk þurfti ekki að ræða þessi
mál lengur í laumi. Æskulýðs
fylking kommúnista skipu-
lagði sérstök „æskulýðsher-
fylki“, sem einkennd voru
með sérstökum armböndum.
„Herfylki“ þessi voru síðan
send út í bæjum og borgum
til þess að aðstoða lögregluna
við að „hreinsa til“ á götunum
er kvölda tók. í mörgum bæj-
um var meira að segja sett á
útgöngubann fyrir unglinga
18 ára og yngri — eftir kl.
10 á kvöldin. Hins vegar munu
ekki allir unglingar hafa tek-
ið bann þetta alvarlega.
★—★—★
Ljóst er, að valdhafarnir í
Kreml líta uppreisnartilhneig-
ingu æskunnar hornauga — og
eru kvíðafullir. Það er unga fólk-
ið: stúdentar, verkamenn og her-
menn, sem stóðu fyrir uppreisn-
inni í Ungverjalandi, það eru
stúdentar, sem réðust á rúss-
neska sendiráðið í Stettin og
hafa efnt til mótmæla um allt
Pólland gegn yfirráðum Rússa
þar. Það eru einnig stúdentar,
sem hafa —- samkvæmt skýrslu
aðalritara lithauiska kommún-
istaflokksins — „útbreytt fram-
andi sjónarmið og afvegaleiðandi
hugmyndir" — og það voru
stúdentar í Sofíu í Búlgaríu,
sem stóðu að ólöglegum útvarps-
stöðvum — og stúdentar í Búka-
Mynd þessi birtist ekki alls fyrir
löngu í rússneska blaðinu „Kroko
dil“ — og er ádeila á spillingu
rússnesku æskunnar. Undir þess-
ari mynd stóð:
„Mamma, ég er trúIofuð“.
„Og hverjum — leyfist mér að
spyrja?“
„Hann er svaríhærður.“
rest voru handteknir hundruðum
saman vegna þess að þeir höfðu
mótmælt harðlega á opinberum
vettvangi lögboðinni kennslu
„kenninga Marx og Lenins".
★—★—★
Um öll kommúnistaríkin er
nú mikil ólga — og á nokkr-
um stöðum hefur þegar soð-
ið upp úr. Og hvarvetna eru
það æskumennirnir sem for-
ystuna hafa. 35 ára einræði
og takmarkanir alls frelsis
hafa ekki megnað að kæfa
löngun æsku kommúnismans
Framh. á bls. 23
STAK8TEINAR
Andstaða Tímans
við Alþýðublaðið
Stjórnarblöðin gera hina nýju
samninga Iðju við iðnrekendur
að umræðuefni. Alþýðublaðið
segir í aðalfrétt sinni í gær hlut-
laust frá og virðist síður en svo
nokkuð hafa út á samningsgerð-
ina að setja, enda eiga flokks-
menn þess sinn þátt í henni.
Tíminn ber hins vegar fram
beinar hótanir og segir:
„Gegn verðhækkunum á iðn-
aðarvörum verður að sjálfsögðu
staðið fast, enda gerði það að
engu þær kjarabætur, sem nú
hafa verið veittar“.
Vonbrigði Þjóðviljans
Ekki ber Þjóðviljinn sig betur.
Þess er naumast von, því að það,
sem nú hefur gerzt, er, að bætt
var úr ósamræmi og hirðuleysi,
sem var að kenna forystumönn-
um kommúnista á meðan þeir
réðu Iðju og hugsuðu um það
eitt að nota sér félagið í þágu
sinna einka- og flokkshagsmuna.
Af tilefni þeirra kjarabóta, sem
aflað var, segir Þjóðviljinn sl.
sunnudag:
„Væntanlega verður það næsta
ráðstöfun iðnrekenda að lækka
framleiðsluvörur sínar í verði
svo að allur almenningur njótl
góðs af hinum bætta hag; — að
minnsta kosti er gott til þess að
vita að ekki kemur til þess á
næstunni að iðnrekendur farl
fram á það við verðlagsyfirvöld-
in að fá að hækka verð á varn-
ingi sínum“.
Olíugróðinn og kaup-
íiækkun. S.Í.S.
Af ummælum Tímans og
Þjóðviljans mætti ætla, að ríkis-
stjórnin hafi hingað til látið all-
ar kauphækkanir bitna á atvinnu
rekendum.
En hvað segja staðreyndirnar
um það?
Fyrsta kauphækkunin var sú,
sem S.Í.S. gerði fyrir áramótin,
8% á flesta launaflokka. Um
svipað leyti var samningurinn
frægi gerður um Hamrafellið, þar
sem eigendum þess voru að á-
stæðulausu fengar h.u.b. 15 millj.
króna í hreinan ágóða. Má segja,
að ekki væri nema sanngjarnt,
að starfsmenn fyrirtækjanna
nytu nokkurs góðs af þessum gíf-
urlega gróða.
Ekki „staðið fast“
Allir vita, að útsöluverð blaða
hækkaði eftir kauphækkunina í
desember.
Þá er nógsamlega kunnugt, að
sú „15—18% kauphækkun“, sem
sjómenn fengu um áramótin, var
ekki tekin af útgerðarmönnum
heldur var hún hluti af þeim
250—300 millj. króna álögum,
sem fólust í jólagjöf ríkisstjórn-
arinnar. M. a. s. er fullyrt, að
ætlunin hafi verið að veita einn-
ig útgerðarmönnum „kjarabæt-
ur“ af því fé, sem þá var aflað.
Nokkur misbrestur mun þó hafa
orðið á efnd þeirra loforða, en
traustið til þeirra entist samt til
að veita hækkanirnar á Akranesi
og í Grindavík.
Þá veitti ríkisstjórnin 5% farm
gjaldahækkun skömmu eftir
lausn farmannadeilunnar, og 7
aura viðbótarpiðurgreiðslan á
mjólkurlítra er m. a. rökstudd
með auknum rekstrarkostnaði._
Gjaldeyrisfríðindi flugmanna
skerða að sama skapi gjaldeyri
annarra.
Ríkisstjórnin hefur því þe-,ar
henni hentaði greitt fyrir kaup-
hækkunum með hækkun verð-
lags. Hótanirnar nú segja þvi
sína sögu.