Morgunblaðið - 01.05.1957, Page 24
I
Rússnesk æska
Sjá bls. 13
96. tbl. — Miðvikudagur 1. maí 1957.
Kommúnistar rjúfa ein-
ingu verkalýðsins 1. maí
Fulttrúar yfirgnœfandi meirihlufa
verkalýðsfélaganna í Reykjavík vara
við þáttföku í útihátíðahöldum
kommúnista
KOMMÚNISTAR tóku þá stefnu, að koma í veg fyrir, að verka-
lýðsfélögin stæðu einhuga um 1. maí, að þau undirrituðu sam-
eiginlegt ávarp í tilefni dagsins og stæðu að öðru leyti saman að
hátíðahöldunum þennan dag.
Félög lýðræðissinna tóku því það ráð að gefa út sérstakt ávarp,
sem undirritað er af fulltrúum yfirgnæfandi meirihluta verkalýðs
í Reykjavík og er það birt á forsíðu blaðsins. Kommúnistar munu
aftur gefa út sitt sérstaka ávarp og hafa þeir, í nafni fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna í Reykjavík, náð undir sig útihátíðarhöldum
í tilefni dagsins.
Meirihluti verkalýðsfélaga í bænum hefur hins vegar netað
þátttöku í hátíðahöldunum og eru annars staðar í blaðinu birtar
yfirlýsingar frá mörgum félögum þess efnis.
Auk þess hefur Bandalag starfsmanna ríkis og bæja neitað að
taka þátt í hátíðahöldunum.
MBL. hefur snúið sér til Berg-
steins Guðjónssonar, formanns
Hreyfils, sem var í þeirri nefnd,
sem semja skyldi sameiginlegt
ávarp 1. maí og spurt hann um
hvernig ágreiningnum milli lýð-
Farm vann Víking
1 GÆRKVÖLDI fór fram leikur
í Reykjavíkurmótinu milli Vík-
ings og Fram. Rigning var og
dimmt mjög og völlurinn blaut-
ur. Lauk þessum leik með því
að alls voru sett 15 mörk og
komu þau öll á mark Víkings-
manna, sem í hálfleik höfðu
fengið á sig níu mörk.
ræðissinna annars vegar og
kommúnista hins vegar, hafi ver-
ið varið. Fer frásögn Bergsteins
hér á eftir:
Kommúnistar hafa nú komið í
veg fyrir að verkalýðurinn og
aðrir launþegar stæðu saman um
hátíðahöldin 1. maí og sameigin-
legt ávarp á þeim degi. Þetta
varð með þeim atburðum, sem
nú skal greina:
Nefnd sú, sem kosin hafði ver-
ið til að semja sameiginlegt
ávarp 1. maí kom saman til
funda fyrir páska. Var þeim Jóni
Sigurðssyni og Edvard Sigurðs-
syni falið að semja uppkast að
ávarpinu. Unnu þeir að því og
við þá uppkastsgerð kom Edvard
fram með þá kröfu að í ávarpinu
yrði tekið svo til orða, að þess
væri krafizt af íslenzkri alþýðu
að samþykkt Alþingis frá 28
marz 1956 um að herinn hverfi úr
landi, verði framfylgt. Var nú
bætt tveim mönnum í nefndina,
ef það mætti verða til að sætta,
en lýðræðissinnar töldu á engan
hátt tímabært að krefjast brott-
farar varnarliðsins, eins og nú
standa sakir. Var rætt um þetta
á ýmsum fundum en engu varð
um þokað. Kommúnistar héldu
fast við, að krafizt væri brott-
farar varnarliðsins og vildu ekki
sætta sig við annað. Lýðræðis-
sinnar fóru fram á að þessu deilu-
atriði yrði sleppt úr ávarpinu og
komu fram með tillögur til orða-
lagsbreytinga, en kommúnistar
sinntu því ekki neinu. Virðist
augljóst, að þeir hafa, frá upp-
hafi, ekki viljað hafa einingu um
daginn úr því, þeir létu máiið
stranda á þann hátt, sem þeir
gerðu. Klausan um brottför varn-
arliðsins varð þeim skálkaskjól
til að rjúfa eininguna um 1. maí.
Rigiiing og dimm-
viön
EFTIR hádegi í gær var mikil
rigning hér í Reykjavík. Súld
hafði verið fram yfir hádegið, en
þá tók að rigna. Var stórrigning
hér öðru hverju og mældist rign-
ing rúmlega 10 millimetrar hér
í gærdag. 1 dag eru horfur á
áframhaldandi súld og rigningu.
Vegna dimmviðris var Reykja-
víkurflugvöllur lokaður í gær og
tafðist för eins Faxans að utan.
Var hann væntanlegur í gær-
kvöldi, en kemur sennilega
um hádegisbilið í dag.
HM NÝJU VICKERES-VISCOUNTFLÚGVÍLAR
FLUGFÉLAG8 ÍSIWS KOMA í DAG
PRÉTTAMENN áttu í gær viðtal við fulltrúa Flugfélags fslands,
* Svein Sæmundsson. Skýrði hann þeim frá komu hinna tveggja
Vickeres-Viscount-flugvéla Flugfélagsins, sem væntanlega lenda
kl. 4 i dag á Reykjavíkurflugvelli. Eru þetta fyrstu flugvélar þess-
arar gerðar sem keyptar eru hingað til landsins.
Að lokinni lendingu hefst mót-
tökuathöfn við flugskýli nr. 5 á
Reykjavíkurflugvelli, en það
stendur austur af húsi Flugfélags-
ins á vellinum. Athöfnin hefst
með því að Guðmundur Vil-
hjálmsson, formaður stjórnar F.Í.,
flytur ræðu, en síðan talar Éy-
steinn Jónsson, flugmálaráð-
herra. Þá verða báðar flug-
vélarnar skírðar. Lúðrasveií
Reykjavíkur leikur og sveit flug-
skáta stendur heiðursvíirð.
Kommúnistar ætluðu aldrei
að hafa einingu um l.maí
KOMMÚNISTAR rufu einingu um hátíðahöldin 1. maí
vegna þess, að lvðræðissinnar vildu ekki taka kröfu
þeirra um framkvæmd ályktunarinnar frá 28. marz 1956,
um brottflutning varnarliðsins upp í 1. maí ávarp verka-
lýðsfélaganna.
En voru það ekki kommúnistar, sem tóku þátt í því að
semja við Bandaríkjamenn um áframhaldandi dvöl varnar-
tiðsins í landinu? A. m. k. upplýsti „Þjóðviljinn“ það í vetur.
Og hafa þeir ekki einnig átt þátt í því í ríkisstjórninni að
semja við Bandaríkin um hvert dollaralánið á fætur öðru,
sem greiðslu fyrir snarsnúninginn í varnarmálunum? Þeir
hafa meira að segja verið með í því að taka á móti „gjafa-
komi“ frá Ameríku.
Svo koma þessir karlar og krefjast áskorunar á sjálfa
sig um að herinn verði látinn fara, og rjúfa einingu um
hátíðahöld verkalýðsins þegar lýðræðissinnar vilja ekki
taka þátt í skrípaleik þeirra!!
Nei, á kommúnistum getur enginn tekið mark. Þeir snúast
frá degi til dags eins og vindhani á bæjarburst.
FIMM MANNA ÁHÖFN
Fimm manna óhöfn er á vélum
þessum, tveir flugmenn, „navro“
sem gegnir bæði starfi loftsigl-
ingafræðings og loftskeytamanns,
og tvær flugfreyjur. Enskir flug-
stjórar fljúga vélunum heim og
fyrstu ferðirnar eftir að þær hafa
hafið millilandaflug héðan, en
síðan taka við flugstjórarnir Jó-
hannes Snorrason, Hörður Sigur-
jónsson, Anton G. Axelsson,
Gunnar Frederiksen og Sverrir
Jónsson.
SKRIFSTOFUR ERLENDIS
Fyrir síðustu helgi voru opnað
ar tvær nýjar skrifstofur Flug-
félags íslands, í Kaupmannahöfn
og Glasgow. f Kaupmannahöfn í
sama húsi og áður, Vesterbro-
gade 60, en á götuhæð í stað 3.
hæðar og veitir henni forstöðu
Birgir Þórhallsson. f Glasgow er
skrifstofan í 146 St. Vincent
Street og er forstöðumaður henn-
ar Einar Helgason.
Ægir greip landhelgis-
brjót í fyrrinótt
ÞEGAR varðskipið Ægir var á siglingu heim í fyrrakvöld eftir
allanga útivist með fiskifræðinga, sem voru í rannsóknarleið-
angri með skipinu, kom það að brezkum togara að veiðum í land-
helgi og var hann tekinn.
Gerðist þetta um miðnætti í
fyrrinótt. Togarinn, sem heitir
Howard og er frá Hull, var að
veiðum innan fiskveiðitakmark-
anna við Geirfugladrang. — Mun
togarinn hafa verið kringum IV2
sjóm. fyrir innan, er hann sást í
ratsjá varðskipsins. Hann togaði
út frá landi. Var togaranum gefið
stöðvunarmerki og skotið að hon.
um þrem lausum skotum en þá
nam hann staðar. Var hann þá
um hólfa mílu fyrir innan línuna.
f gærmorgun kom Ægir með
togarann hingað til Reykjavíkur,
og hófst nokkru eftir hádegi í
gær rannsókn í málinu. Togar-
inn var búinn að vera stutt á
veiðum.
Háseti sá sem var við stýri tog-
arans, einn varðskipsmanna, fékk
hvorki vott né þurrt alla leiðina,
en það tíðkast þó jafnan að
Fi •ansk-íslenzkiir
viðskiptasamii-
ingur
HINN 10. apríl s. 1. var undirrit-
aður í París samningur um við ■
skipti milli fslands og Frakk-
lands fyrir tímabilið frá 1. apríl
1957 til 31. marz 1958.
í samningnum er gert ráð fyr-
ir útflutningi til Frakklands aðal
lega á fiski og fiskaðfurðum og
innflutningi á frönskum iðnáð-
arvörum til fslands á svipuðum
grundvelli og verið hefur.
Samninginn undirritaði fyrir
fslands hönd Agnar Kl. Jónsson
sendiherra og fyrir hönd Frakk-
lands M. Louet, aðstoðarforstjóri
í viðskiptadeild franska utan-
ríkisráðuneytisins.
(Frá Utanríkisráðuneytinu).
hressa varðskipsmenn, sem eru
við stýrið, á heitum sopa á leið
til hafnar.
Búizt er við dómi í máli Ho-
wards árdegis í dag.
Réttarrannsókn
í Vestmannaeyjum
1 VESTMANNAEYJABLAÐ-
INU Fylki, sem út kom hinn 27.
apríl, er frá því skýrt að fram
muni fara réttarrannsókn út af
því að í ljós hefur komið að um
peningavanskil er að ræða hjá
starfsmanni rafveitunnar þar. —•
Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
nemur fjárhæðin kr. 411.984,04.
Manni þessum var af bæjar-
stjórn Vestmannaeyja veittur 14
daga frestur hinn 14. marz síðastl.
til þess að standa rafveitunni skil
á þessu fé, en honum var ekki
unnt að gera það. f aprílbyrjun
varð rafveitunefndin þar í bænum
sammála um að leggja það til við
bæjarstjórn að láta fram fara
réttarrannsókn og það samþykkti
bæjarstjórn síðan á fundi sínum.
Helen Keller
væntanleg hingaS
BANDARÍSKI rithöfundurlnn
heimskunni Helen Keller kemur
hingað til lands 7. maí n.k. Eina
og kunnugt er, er Helen Keller
blind, og daufdumb. Sjálfsævi-
saga hennar hefir komið út á ís-
lenzku.
Hún kemur hingað á vegum
samtaka málleysingja og blindra
og hefir í hyggju að kynnast hög-
um þeirra.
Þessi félög neitn oð tnho þótt
í hótíðahöldunum í dng
Bakarasveinafélag íslands,
Bifreiðastjórafélagið Hreyfill,
Félag blikksmiða,
Félag ísl. atvinnuflugmanna,
Félag ísl. nuddkvenna,
Félag ísl. rafvirkja,
Félag rakarasveina,
Félag sýningarmanna 1 kvik-
myndahúsum,
Flugfreyjwfélag íslands,
Hið íslenzka prentarafélag,
Iðja, félag verksmiðjufólks,
Þróttur, félag vörubílstjóra,
Svona líta Faxarnir nýju út
Múrarafélag Reykjavíkur,
Prentmyndasmiðafélag íslands,
Féiag matreiðslumanna,
Félag framreiðslumanna,
Matsveinafélag S.M.F.,
Sjómannafélag Reykjavíkur,
Starfsstúlknafélaglð Sókn,
Sveinafélag pipulagningamanna,
Trésmiðafélag Reykjavíkur,
Verkakvennafélagið Framsókn,
Verzlunarmannafél. Reykjavíkur
Bandalag starfsm. ríkis og bæja.
Þessi launþegasamtök telja
rúmiega 12 þús. meðliml, en þau
samtök, sem standa a* bakl
kommúnista hafa aðeins um 5
þúsund félaga.