Morgunblaðið - 08.05.1957, Side 1
20 síðuv
44. árgangur
101. tbl. — Miðvikudagur 8. maí 1957
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
20 ráðuneyti í Moskvu lögb
niður skv. tillögu Krúsjeffs
Hörð árás á
hina
sligandi skriffinnsku
í Sovétríkjunum
Moskva, 7. maí. Einkaskeyti frá Reuter.
KOMMÚNISTAFORINGINN Krúsjeff talaði í dag á auka-
samkomu Æðstaráðs Sovétríkjanna. í ræðunni bar hann
fram tillögur um stórfelldar breytingar á skipulagi iðnaðar-
mála Rússlands. Meginefni tiilagnanna er að dreifa yfir-
stjórn iðnaðarins, leysa upp ráðuneytisskrifstofur í Moskvu
og flytja þær til iðnaðarsvæðanna.
SKRIFFINNSKAN
Krúsjeff flutti snarpa árásar-
ræðu gegn hinni ægilegu skrif-
finnsku Ráðstjórnarríkjanna. —
Eftirlit og skriffinnska ætlaði
að sliga allt. Kom hann með það
Hin hamingjusömu hjón koma til New York.
Egypfum og Sýrlendingum
hefir farizf illa við Jórdani
Beirut, 7. maí. Einkaskeyti frá Reuter.
AL L A R líkur benda til þess að Egyptar og Sýrlendingar
segi upp samningnum sem þeir gerðu í janúar síðast-
liðnum um efnahagsstuðning við Jórdaníu. — Efnahags-
stuðningur þessi skyldi koma í stað stuðnings frá Bretum
og var Saudi Arabía einnig aðili að honum. En svo hefur
farið að hvorki Sýrland né Egyptaland hafa borgað grænan
eyri til Jórdaníu. Aðeins Saudi Arabía hefur staðið við
skuldbindingar sínar.
ConnoUy og brúður hnns komin
heim eftir lnngn ferð
Nýlega ákváðu Bandaríkja-
menn að veita Jórdaníu 10 millj.
dollara efnahagsaðstoð til að rétta
fjárhaginn við að nýju. Heyrist
orðrómur um það frá Egypta-
landi og Sýrlandi, að þeir Nasser
og Kuwatly telji þessi fjárfram-
lög frá Bandaríltjunum brjóta í
bága við samninginn um efna-
hagsaðstoð, þar sem það hafi ver-
ið sett að skilyrði að Jórdanía
yrði óháð öðrum ríkjum. Hafa
þeir boðað Hussein konung til
fundar og ætla að segja samn-
ingnum upp.
í dag réðust ýmis blöð Líban-
ons harðlega á stjórnir Sýrlands
og Egyptalands fyrir framkomu
þeirra í garð Jórdaníu. Benda
blöðin á það, að þessi tvö lönd
hafi heitið Jórdaníu fjárhagsleg-
um styrk. Síðan hafi þau svikið
Ifali fellur í Túnis
TÚNIS 7. maí. — Vopnaðir árás-
armenn felldu síðastliðna nótt
þrítugan ítalskan mann, er dvald-
ist sem gestur á frönskum bú-
garði skammt frá borginni
Sbeitla í Túnis. Talið er árásar-
mennirnir hafi verið skæruliðar
frá Alsír, en staður þessi er
skammt frá landamærum Alsír.
—Reuter.
loforð sín svo að efnahagur
Jórdaníu hafi verið að hruni kom
inn. Á sama tíma stunduðu
Egyptar óhæfilegan stjórnmála-
áróður í Jórdaníu. Blöðin segja
að stjórnarstefna Sýrlands og
Egyptalands skapi stórfellda
hættu fyrir nágrannaþjóðir
þeirra.
★ NEW YORK. — Nýlega
komu hamingjusöm nýgift
hjón siglandi inn í höfnina í
New York. Var þeim fagnað af
manngrúa. Þetta voru banda-
ríski sleggjukastarinn Conolly
og tékkneska íþróttakonan
Oiga, áður Fikotova.
★ Þegar þau stigu á land a
Manhattan, sögðust þau bæði
vera mjög hamingjusöm. En
nú eigum við aðeins 35 cent,
um 7 krónur, eftir, sagði Con-
olly. — Ég hafði að vísu keypt
farseðil fram og til baka fyrir
sjálfan mig. En þegar við vor-
um gift, þá áttum við enga
peninga til að borga farseðil
fyrir Olgu. Svo að ég sendi
aftur til Danmerkur sleggju,
sem ég hafði keypt þar og var
fyrirtækið reiðubúið að greiða
kaupverðið, 40 dollara, aftur
út. Og með þeim peningum
komumst við áfram.
★ Ein ferðataska brúðhjón-
anna var mjög þung. í henni
voru læknisfræðibækur. Olga
hefur verið nemandi í læknis-
fræði og ætlar að halda
náminu áfram í Bandaríkj-
unnim.
★ Wagner borgarstjóri tók á
móti hinum frægu brúðhjón-
um. Þegar þau óku aftur frá
ráðhúsi borgarinnar, bað Conn
olly bílstjórann um að taka
krók á sig svo að Olga gæti
séð verzlunarhverfin miklu
við fimmta breiðstræti og þótti
brúðinni mikið til þeirra
koma.
dæmi, að meðan einn maður væri
að sníða hálsbindi stæðu tveir
eftirlitsmenn áð baki honum.
Hann lagði til að meira en 20
ráðuneytisskrifstofur iðnaðarins
í Moskvu yrðu lagðar niður. —
Skriffinnarnir í Sovétríkjunum,
sagði Krúsjeff, — eru 850 þúsund
og kosta ríkið árlega 10 mill-
jarða rúblna. Kvaðst hann vona,
að niðurlagning ráðuneytanna
yrði til að spara mikið fé.
92 NÝJAR
HÉRAÐASKRIFSTOFUR
Samtímis gat hann þess þó, að
ætlunin væri að stofna 92 nýjar
stjórnarskrifstofur víðs vegar úti
um landið. Átta ráðuneytisskrif-
stofur munu starfa áfram í
Moskvu; það eru ráðuneyti eftir-
taldra greina: flugiðnaðar, skipa-
smíða, radíó-iðnaðar, efnaiðnað-
ar, léttiðnaðar, vega- og járn-
brautargerðar, vígbúnaðar og
raforkumála.
STERK MIÐSTJÓRN
KOSTNAÐARSÖM
Það er álit erlendra frétta-
manna í Moskvu, að þessar til-
lögur Krúsjeffs muni ekki hafa
mikinn sparnað í för með sér,
því dreifing iðnaðarstjórnarinn-
ar, þýðir að fleira starfsfólk
þarf. Hins vegar eru margir
þeirrar skoðunar, að þetta geti
Framh. á bls. 2
Helen Keller er heimskunnur rithöfundur.
Helen Keller heimsækir Málleys
ingjaskélcann i dag
<s>-
Einstætt salarþrek hennar
yfirvann aifa erfiðleSka
HINGAÐ kom í gær bandaríska konan víðkunna, Helen Keller.
Hún er blind og heyrnarlaus frá barnæsku, svo sem kunnugt
er, en með einstæðu sálarþreki hefir henni tekizt að yfirvinna svo
Iíkamsgalla sína, að með eindæmum er og með starfi sínu í þágu
blindra og mállausra um heim allan, hefur hún gefið þeim kjark
og þrek til þess að sigrast á erfiðleikum sínum. Hingað er Helen
Keller komin til þess að hvetja blinda og mállausa og styrkja og
örva þá í starfi þeirra og mennt.
FYRIRLESTUR FYRIR
ALMENNING
Helen Keller er hingað komin
í boði Málleysingjaskólans,
Blindravinafélagsins og Blindra-
félagsins. I dag mun hún heim-
sækja Málleysingjaskólann og
flytja þar ávarp, og munu verða
þar viðstaddir um 50 málleys-
ingjar og allmargt blinds fólks.
Þá mun hún á föstudagskvöldið
kl. 8,30 flytja fyrirlestur fyrir al-
menning í hátíðarsal Háskólans
um starf sitt og líf.
NAUT AFBURÐA KENNARA
Brandur Jónsson skólastjóri
Málleysingj askólans kynnti Hel-
en Keller fyrir blaðamönnum í
gær og Miss Polly Thompson vin-
og lagskonu hennar. Skýrði hann
svo frá, að eins árs gömul hefði
Frh. á bls. 3.
Kadar heldur
affökum áfram
BÚDAPEST, 7. mai. — Kadar
stjórnin tilkynnir, að þrí
meðlimir í skæruliðaflokk
gagnbyltingarmanna hafi
dag verið dæmdir til dauðí
í leynilegu dómþingi. — Si
fjórði fékk mildari dóm.
— Reuter
Stúdentor í Madrid óúnægðir
Madrid, 7. maí. Einkaskeyti frá Reuter.
nPVÖ ÞÚSUND stúdentar við tækniháskólann í Madrid fóru í dag
í hópgöngu um borgina til að mótamæla nýrri skólareglugerð,
sem léttir inntökupróf í tækniháskólann og gerir ráð fyrir stofnun
nýrra tæknideilda í honum.
Stúdentarnir mótmæltu þessum breytingum, vegna þess að þeir
óttast að stéttin yfirfyllist og valdi það atvinnubresti.