Morgunblaðið - 08.05.1957, Side 2
2
MORCUNBL 4D1Ð
Miðvikudagur 8. maí 1957
Mynd þessi var tekin á flugvellinum í gær við komu Helen Keller
hingað til lands. Er hún vinstra megin en með henni er fylgdar-
kona hennar, Poliy Thompson.
Frumvarpi um sjúkrahúsasjóð
og talnahappdrætti vísað
til ríkisstjórnarinnar
FRUMVARP um sjúkrahúsasjóð
og talnahappdrætti var til 2. um-
rseðu í Efri deild í gær. Alfreð
Gísiason hafði framsögu af hálfu
meirihluta heilbrigðis- og félag-
málanefndar, sem leggur til að
frumvarpinu verði vísað til rikis-
stjórnarinnar. Mælti hann gegn
samþykkt frumvarpsins á þessu
stigi. Taldi formið ekki heppilegt
á happdrættinu, enda væru þrjú
stórhappdrætti fyrir í landinu.
Þetta happdrætti líktist happ-
drætti íþróttahreyfingarinnar,
sem ekki hefði gefizt vel.
Sigurður Ó. Ólafsson talaði af
hálfu minnihlutans. Benti hann á
að happdrætti sem þessi hefðu
gefizt vel í Þýzkalandi. — Taldi
hann ekki rök fyrir frávísun máls
ins að önnur 3 happdrætti væru
fyrir. Það hefði einmitt sýnt sig
að happdrætti væru vænleg fjár-
öflunarleið, sem borið hefði góð-
an árangur þótt þeim hefði fjölg-
að. Benti hann á í því sambandi
að á sl. 3 árum hefði happdrætti
DAS gefið af sér í hreinan ágóða
1% milljón árlega. Ennfremur
kvað hann reynsluna hafa sýnt
að þótt ný happdrætti hefðu ver-
ið stofnsett hefðu þau ekki haft
skaðleg áhrif á rekstur þeirra,
sem fyrir væru, enda væri það
á engan hátt tilætlunin með
þessu happdrætti.
Hins vegar kvað Sigurður
þetta frumvarp hafa borið já-
kvæðan árangur þar sem meiri-
hluti nefndarinnar viðurkenndi
hugmyndina um stöfnun sjúkra-
húsasjóðs, er afli tekna með
ríkisreknu happdrætti, mjög
athyglisverða og væri málinu því
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1.
orðið til að efla framtak. Rússar
haía nú endanlega rekið sig á að
sterk miðstjóm í atvinnumálum
getur orðið dýrt spaug. Er ber.t
á það, að fjölmargar af risaáætl-
unum Stalins hafi runnið út í
sandinn og orðið þjóðinni geysi-
kostnaðarsamar. Sannleikurinn
hafi verið sá, að hvorki Stalin
né aðrir skipuleggjarar í Moskvu
hafi verið nægilega kunnugir
vandamálum atvinnugreinanna í
hinum ýmsu héruðum. Slík
hætta sé ætíð samfara of sterkri
miðstjórn.
Fréttamenn telja að uppsagnir
ú ráðuneytum í Moskvu muni
valda flutningum írá borginni og
út í sveitirnar. Atvinnuleysi muni
aukast í höfuðborginni og fólk
vera tilneytt að flytjast til Sí-
beríu.
í raun og veru fylgjandi, en
minnihlutinn hefði ekki trú á því
að það væri vænlegt málinu til
framdráttar að vísa því til ríkis-
stjórnarinnar og legði því til að
frumvarpið yrði samþykkt ó-
breytt.
Frumvarpinu var vísað til
ríkisstjórnarinnar með 9 atkv.
gegn 4.
Flugskeyti
á Formosa
WASHINGTON, 7. maí —
Ákveðið hefur verið í samráði
við kínversku þjóðernissinna-
stjórnina að staðsetja banda-
rískar hersveitir búnar flug-
skeytum á Formosa. Tilgang-
urinn með þessu, segir banda-
ríska utanríkisráðuneytið, er
að hindra vopnaða árás kin-
verskra kommúnista á eyj-
una.
Berast fregnir um það frá
meginlandi Kína, að kommún-
istar hafi eflt vopnabúnað
sinn á ströndinni andspænis
Formosa. —Reuter.
iíðasfa „Tónaregn-
ið” í kvöld
„TÓNAREGN" SÍBS hefur nú
verið sýnt 10 sinnum, ávallt fyr-
ir fullu húsi og við mikinn fögn-
uði áheyrenda. Þeim Crombie og
félögum hans hefur verið tekið
sérlega vel — og dæmi eru til
þess, að fólk hafi sótt hljómleik-
ana oftar en einu sinni. Nærri
lætur, að hátt á áttunda þúsund
manns hafi nú séð — og heyrt
„Tónaregn", en í kvöld kl. 11,15
verður síðasta „Tónaregnið“ í
Austurbæjarbíói þar eð Crombie
og hljómsveit eru samnings-
bundnir annars staðar og geta
ekki dvalizt lengur hérlendis.
Júgóslavar
flýja land
NÚRNBERG 7. maí: — Þýzka
flóttamannastofnunin tilkynnti í
dag, að 56 Júgóslavar hefðu í
einu óskað eftir hæli í Þýzka-
landi, sem pólitískir flóttamenn.
Stofnunin skýrir frá því, að Jú-
góslavar þessir hafi komið til
Þýzkalands sem gestir á vöru-
sýninguna í Hannover, en ætlun
þeirra var fyrst og fremst að flýja
stjórn kommúnismans í Júgóslav-
iu. — Reuter.
Dönsk blöð fagna
komu ,Hrímfaxa6
FYRSTA koma „Hrímfaxa", annarrar hinna nýju Viscount flug-
véla Flugfélags íslands, til Kaupmannahafnar vakti mikla at-
hygli og var um hana skrifað í flestum, ef ekki öllum, Kupmanna-
hafnar-blöðunum. Á því var vakin athygli, að „Hrímfaxi" væri
fyrsta Viscount-vélin sem hefði áætlunarflug til Hafnar, og að hún
væri mun fullkomnari en vélar þær, sem nú eru í förum frá Kaup-
mannahöfn til Parísar og London, að því er „Poletiken" segir.
Blaðamönnum var boðið í
klukkustundar flugferð með
„Hrímfaxa" yfir Danmörku og
Svíþjóð sunnanverða, og þótti
hún takast með ágætum. Eink-
anlega voru þægindi vélarinnar
rómuð, og svo hitt að farþega-
klefarnir eru svo vel einangrað-
ir, að þangað heyrist naumast
hljóðið úr hreyflunum.
NÁNARI TENGSL
„Berlingske Tidende“ birtir
mynd af „Hrímfaxa“ hjá danska
og íslenzka fánanum á Kastrup-
flugvelli og af forráðamönnum
Flugfélagsins, sem fóru út með
flugvélinni, þeim Bergi G. Gísla-
syni og Jakobi Frímannssyni
ásamt Birgi Þórhallssyn^ sem
veitir skrifstofu Flugfélagsins í
Höfn forstöðu. Yfirleitt er það
mál dönsku blaðanna, að þessi
bót á samgöngum milli íslands
og Norðurlanda eigi eftir að
tengja íslendinga enn nánar við
bræðraþjóðirnar austan hafs.
★ ★ ★
NORÐUR YFIR HEIM-
SKAUTSBAUG
Frá Kaupmannahöfn fór „Hrím
faxi“ síðdegis á laugardag til
Glasgow og Reykjavíkur. Far-
þegar í þessari fyrstu ferð, sem
fæstir höfðu flogið áður í sams
konar flugvél, voru hrifnir af
öllum aðbúnaði og af því, hve
fljótt ferðin gekk. Á sunnudag-
inn flaug „Hrímfaxi" til Akur-
eyrar og lenti á flugvellinum þar
að undangengnu flugi norður yfir
Grímsey. Flugstjórinn lét þess
Dulles sagði m. a.:
— Fundurinn var óformlegur
í sniði og voru umræðurnar víð-
tækar, en sýndu óvenjulega mik-
inn samstarfsvilja. ♦
Mikið var rætt á fundinum
um hótanir Rússa, en einróma
álit allra fundarmanna var, að
slíkar hótanir myndu ekki hvetja
þjóðir Vestur-Evrópu til að
draga úr styrkleika sínum. Við
íslandsglíman
í fösludaginn
getið, að sennilega væri það í
fyrsta sinn sem Viscount-flug-
vél flygi norður fyrir heimskauts-
baug.
ÚTSÝN ÚR 14.000 FETA HÆB
Flugfélag fslands bauð gest
um með í þessa ferð. Rómuðu
þeir hinn góða aðbúnað í vél-
inni. Bjart var yfir norður-
landi og naut fólkið útsýnis úr
14.000 feta hæð. Fjöldi fólks
var saman kominn á Akur-
eyrar-flugvelli og skoðaði
flugvélina meðan staðið
var við. Þetta er í fyrsta sinn
sem Viscount-flugvél lendir
hér á landi utan Reykjavíkur
og Keflavíkur. Tókst bæði
flugtak og lending með ágæt-
vorum allir þeirrar skoðunar,
sagði Dulles, að þjóð sem sjálf
er sek um útþenslu með hernað-
arársáum, og sem nýlega réðst
á Ungverja, væri ekki til þess
bær, að segja öðrum þjóðum
fyrir um, hvernig þær skyldu
haga landvarnarstefnu sinnL
um.
DuIJes ánæffður með
Nato-iundinn í Bonn
Washington, 7. maí. Einkaskeyti frá Reuter.
DULLES utanríkisráðherra hefur lýst fundi NATO-ráðsins sem
haldinn var í Bonn í síðustu viku svo: — Hann var að mörgu
leyti bezti NATO-fundur, sem ég hef setið. Sagði hann þetta á
blaðamannafundi í dag, nýkominn frá Evrópu.
~S>heuti florsetaná
* til
JleLJCJL
NEW YORK, 7. maí — Þegar
Helen Keller var að leggja af
stað frá New York s. 1. nótt í
vináttuför sína til Norðurlanda
og Svisslands barst henni í
skeyti persónuleg kveðja frá
Eisenhower forseta. f skeytinu
óskar forsetinn henni góðrar
ferðar. Kveðst hann dást að þeim
anda, sem hafi verið leiðarstjarna
hennar og hrífast af vilja henn-
ar til að styðja þá sem eru
bæklaðir eða skortir heyrn og
sjón, hvar sem þeir búa. Kveðst
hann vona að för Helen Keller
geti orðið til að hugga og hug-
hreysta þá sem eiga við sömu
örðugleika að stríða. —Reuter.
Njósnarar dæmdir
AÞENA, 7. maí: — Þrír félagar
í hinum ólöglega gríska komm-
únistaflokki voru í dag dæmdir
til dauða af herrétti. Voru þeir
sakaðir um njósnir og skemmdar
starfsemi. Lögreglan handtók þá
um miðjan desember, þar sem
þeir höfðu i fórum sínum loft-
skeytasendistöð. Tveir aðrir voru
dæmdir í 10 ára fangelsi, en
fjórir af átta ákærðum voru
sýknaðir. —Reuter.
Dagskrá Alk>ingis
Sameinað Alþingi.
1. Lífeyrissjóður fyrir sjómenn
og fleira.
2. Sumarstörf ungmenna á fiski-
skipum.
3. Forgangsréttur sjómanna til
fastlaunaðra starfa.
4. Jöfn laun karla og kvenna.
5. Nauðungarvinna.
6. Alþjóðasamþykkt varðandi at
vinnuleysi
Á FÖSTUDAGINN kemur ve-ð-
ur Íslandsglíman háð hér í
Reykjavík. Búist er við góðri
þátttöku glímumanna úr Ár-
manni og Ungmennafél. Reykja-
víkur, en aðeins þessi tvö félög
senda menn til keppninnar. —
Þarna verður keppt um titiiinn
glímukappi fslands og um hið
fræga Grettisbelti, sem nú verð-
ur glímt um í 47. skipti.
Meðal keppenda eru núver-
andi handhafi Grettisbeltisins,
Ármann J. Lárusson, UMf'R, og
Trausti Ólafsson, Ármanni, sem
er handhafi glímuskjaldar Ár-
manns. Þarna munu eigast við
þessir glímukappar ásamt 14
öðrum ungum glímumönnum
og eru þeirra á meðal nokkrir
glímumenn, sem nú taka í fyrsta
sinn þátt í Íslandsglímunni. —
Glímt_ verður að Hálogalandi í
húsi ÍBR og hefst keppnin kl.
8,30 og er talið fullvíst að keppn-
in verði hörð og áhorfendur
margir.
Frá aðalfitndi lyfja-
fræðingafél. Islands
AÐALFUNDUR Lyfjafræð-
ingafélags fslands var haldinn í
Háskólanum þ. 13. apríl s.l. Á
dagskrá voru venjuleg aðalfund-
arstörf svo og lagabreytingar.
Formaður flutti skýrslu stjórnar-
innar og gat þess m.a., að s.l. sum-
ar hefði félagið boðið hingað til
lands rektor danska lyöafræð-
ingaháskólans, dr. phil. Carl Faur
holt og konu hans. Hefðu þau
hjónin dvalizt hér í hálfan mánuð
og ferðazt um landið i boði félags-
ins. Hann gat þess og að á árinu
hefði tekið til starfa „Lífeyris-
sjóður apótekara og lyfjafræð-
inga“ sem verða myndi til mikilla
hagsbóta fyrir félagsmenn. Stjórn
félagsins var endurkosin en hana
skipa lyfjafræðingarnir Kjartan
Gunnarsson form., Steinarr
Björnsson ritari og Ásgeir Ás-
geirsson gjaldkeri. Félagar eru nú
um 50 talsins. Félagið verður 25
ára í haust.
Tvær vasaorðabækur
Útgáfufyrirtæki hér í b», er
nefnir sig „Orð'abókarútgáfan“
vinnur nú að því, að gefa út vasa
orðabækur fyrir tungumál ná-
grannaþjóða okkar. Eru þær
samdar af Arnold R. Taylor há-
skólakennara í Leeds. Fyrir
nokkrum mánuðum kom út ís-
lenzk-ensk orðabók og nú í fyrra
dag var að koma út ensk-íslenzk
orðabók.
Arnold R. Taylor.
Hvor þessara bóka inniheldur
orðalista með rúmlega 5000 orð-
um. Getur það komið að mjög
góðu gagni í samræðum og er
stærð bókanna hentug til að hafa
þær í vasa, ætíð nálægar, þegar
á þarf að halda. Þess er og að
vænta, að bækur þessar séu eink-
ar gagnlegar fyrir enskumælandi
sem hingað koma og langar til að
reyna svolitið að gera sig skilj-
anlega á hinu erfiða tungumáli
okkar. Höfundurinn tekur þó
fram að nauðsynlegt sé fyrir
fólk jafnhliða að afla sér nokk-
urrar þekkingar á málfræðiatrið.
um.
Aðalútsala á þessum bókum er
í Bókaverzlun Snæbjarnar Jóns-
sonar. Hefur Orðabókarútgáfan
næst í hyggju að gefa út þýzkar
og danskar orðabækur.