Morgunblaðið - 08.05.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.05.1957, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 8. maí 1957 ie SA ustan i Edens eftir John Steinbeck 28 i = I _ J tók Cathy stillilega. — „Ég fer aldrei í skólann. framar“. Móðirin starði á hana, nærri orðlaus af undrun: „Hvað mein- arðu eiginlega?“ „Aldrei!“ endui-tók Cathy og hélt áfram að stara upp í loftið. „Gott og vel. Við sjáum nú hvað faðir þinn segir um það. — Eftir allt það erfiði sem við höfum lagt á okkur og allan þann kostnað og tveimur árum áður en þú færð prófskírteini þitt“. Svo gekk hún nær rúmi dóttur sinnar og sagði lágt: — „Þú ert þó líklega ekki farin að hugsa um giftingu?“ „Nei“. „Hvaða bók ertu að fela þarna?“ „Héma! Ég er ekki að fela hana“. „Oh! Aliee í Undralandi! Þú ert orðin alltof stór til að lesa svo- leiðis bækur“. Cathy sagði: „Ég get gert mig svo Iitla, að þú sjáir mig ekki einu sinni“. „Hvað ertu eiginlega að tala tmi, barn?“ „Það getur enginn fundið mig". Móðir hennar sagði gremjulega: □- -□ Þýðing Sverrir Haraldsson □---------------------□ „Hættu þessu bjánalega masi. Ég veit ekki hvað þú ert að hugsa um. Hvað er það eiginlega sem þú villt?“ „Ég veit það varla ennþá“, sagði Cathy. „Ég held að ég vilji helzt fara eitthvað í burtu“. „Jæja, þú gerir svo vel og verð ur kyrr í rúminu, þangað til pabbi þinn kemur heim og þá segir hann áreiðanlega nokkur vel valin orð við þig“. Cathy sneri höfðinu mjög hægt og leit á móður sína. Augun í henni voru köld og svipbrigðalaus. Og skyndilega varð frú Ames hrædd við dóttur sína. Hún gekk hljóðlega út úr herberginu og lok- aði á eftir sér. Frammi í eldhús- inu settist hún með spenntar greip ar í kjöltu sér og starði út um gluggann, á veðrað vagnskýlið. Dóttir hennar var orðin henni framandi. Hún fann, eins og flest- ir foreldrar finna einhvem tíma, að hún var búin að missa valdið og ráðin úr höndum sér. Hún vissi ekki, að raunverulega hafði hún aldrei haft neitt vald yfir Cathy. Hún hafði alltaf gert það sem Cathy vildi. Að stundarkomi liðnu setti frú Ames hatt á höfuðið og hélt til sútunarhússins. Hún vildi tala við mann sinn utan heimilisins. Um kvöldið hélt hr. Ames þung- orða áminningarræðu yfir dóttur sinni. Hann talaði um skyldur hennar og ábyrgð og þá ást og undirgefni, sem henni bæri að sýna foreldrunum. Er prédikuninni var að ljúka, varð hann þess var að hún hlustaði alls ekki á orð hans. Við þetta blossaði reiðin upp í hon um og hann fór að hafa í hótun- um. Hann talaði um það vald, sem guð hefði gefið honum yfir bami sínu og þær uppeldisskyldur, sem ríkið legði honum á herðar. Og nú hlustaði hún á orð hans. Hún starði beint í augu hans. Örlítið bros lék um varir hennar og hún virtist ekki einu sinni depla aug- unum. Loks neyddist hann til að líta undan og það jók reiði hans um allan helming. Hann skipaði henni að hætta öllum kenjum og hótaði miskunnarlausri húðstrýk- ingu, ef hún óhlýðnaðist boðum hans. „Ég vil að þú lofir því að fara í skólann á morgun“, sagði hann að lokum, „og hættir öllum heimskupörum". Andlit hennar var svipbreyt- ingarlaust með öllu og varimar samanherptar: „Þá það“, sagði hún. Seinna um kvöldið sagði hr. Ames við konu sína: „Það þarf bara að beita ofurlítilli hörku, skil urðu. Kannske höfum við ekki verið alveg nógu ströng við hana. En hún hefur verið gott bam. Sennilega hefur hún gleymt því, hver er húsbóndi hér á heimilinu. Dálítill strangleiki skaðar eng- engan“. Um morguninn var hún farin. Ferðatakskan var einnig farin og öll beztu fötin hennar. Herbergið var ópersónulegt — ekkert sem benti til þess að þar hefði ung stúlka verið og vaxið innan veggja. Þar voru engar myndir, engir minjamunir, engin leilcföng. Cathy hafði aldrei leikið sér að brúðum. — Herbergið bar í engu svipmót hennar. Hr. Ames var á sína vísu hygg- inn maður. Hann setti upp svarta hattinn sinn og hélt rakleitt til járnbrautarstöðvarinnar. Stöðvar- vörðurinn var ekki í neinum vafa. Cathy hafði tekið sér far með fyrstu morgunlestinni. Hún hafði keypt farseðil til Boston. Hann hjálpaði hr. Ames með að senda lögreglunni í Boston símskeyti. Svo keypti hr. Ames farseðil og fór með lestinni kl. 9,50 til Boston. Seint þetta sama kvöld sat frú Ames í eldhúsinu. Hún var náföl I í framan og hún kreppti báðar Keramiksýningin í Regnbogasalnum Bankastræti Handunnir listmunir frá Funa. — Opið daglega frá kl. 9—6. — Aðgangur ókeypis. Sftúlka með verzlunarskóla- eða hliðstæða menntun ósk- ast nú þegar eða síðar til skrifstofustarfa hjá stóru fyrirtæki. — Tilboð er greini aldur og menntun sendist afgr. Mbl. fyrr 10. maí merkt: Góð atvinna. kápur \Jor~ ocj SJumartizIan MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 — Laugavegi 100 MARKÚS Eftir Ed Dodd UNKNCWN TO MAEKt, THE BEOKEN TIP OP A POECUPINE QUILL HAS BEEN LEPT IN HIS LE®, AND A SEeiOUS INPECTION HAS SET IN * SETTINS WOESE...FEEL AWFUL...MAYBE I BETTES TEV TO MOVE... ESTTE8. THAN JUST STAYINS 1) Markús visi ekki að einn broddur frá broddgeltinum fest- ist í fóstleggnum, og veldur það nú blóðeitrun. 2) Mér versnar stöðugt. Ég ætti samt heldur að reyna að ganga áfram, heldur en að sitja hérna bjargarlaus. 3) Ég skal segja þér ,pabbi hversvegna ég held áfram hjúkr- unarstarfinu. Það er vegna þess að mér fellur starfið og ég erein- manna.... 4) . .alveg eins og þú rekur veðurathugunarstöðina þér til afþreyingar. hendur um borðbrúnina, til þess að stilla skjálftann. Þótt dymar væru lokaðar, þá bárust samt hljóðin greinilega til eyrna henni — fyrst höggin og svo snöktið og sársaukaóp. Hr. Ames fórst húðstrýkingin heldur óhönduglega, vegna þess að hann var alveg óvanur sliku verki. Hann danglaði í fótleggina á Cathy með mjórri svipuól og þeg- ar hún stóð bara hin rólegasta og starði á hann með kuldalega ró í augum, rann honum í skap. Fyrstu höggin voru hikandi og máttlaus, en þegar hún kveinkaði sér ekki hið minnsta, lét hann högg in dynja á síðum hennar og herð- um. Svipuóiin marði hörundið og risti. í reiði sinni sló hann mörg vindhögg, eða kom of nálægt, svo að ólin varfðist utan nm grannan líkama stúlkunnar. Cathy var fljót að læra. Hún sá föður sinn út og skildi skapgerð hans út í æsar. Þess vegna byrjaði hún að hljóða, engjast sundur og saman, gráta og hiðja og sér til mikillar sigurgleði fann hún brátt að höggin urðu léttari og aflminni. Hr. Ames skelfdist sína eigin grimmd og hörku. Hann hætti barsmíðunum og lét svipuna síga, en Cathy hörfaði aftur á bak og hné snöktandi út af í rúmið. Og ef faðir hennar hefði gáð betur að, þá hefði hann uppgötvað að engin tár sáust í augum hennar og að munnurinn var samanbitinn, aug- un köld og svipurinn höikulegur og þrár. Hann sagði: „Jæja, ætlarðu svo nokkurn tíma að gera þetta aft- ur?“ „Nei, oh, nei! Fyrirgefðj mér", sagði Cathy, en sneri sér um leið til veggjar, svo að faðir hennar sæi ekki þrjózkufullan kuldasvip- inn á andliti hennar. „Mundu svo eftirleiðis hver þú ert og gleymdu ekki hver ég er“. Cathy gerði sér upp ákafan grátekka. „Nei, ég gleymi ekki", sagði hún. 1 eldhúsinu sat frú Ames og neri saman höndum í örvæntingu. Maður hennar lagði hönd sína á öxl henni: „Mér féll það þungt að gera þetta", sagði hann. „En ég mátti til. Og ég held að hún hafi haft gott af því. Hún er alveg eins og, allt önnur stúlka. Kannske höf- um við ekki beitt vendinum sem skyldi, fram til þessa. Kannske höfum við breytt rangt“. Og hann vissi að enda þótt konan hans hefði krafizt húðstrýkingar — enda þótt hún hefði neytt hann til þess að refsa Cathy, þá hataði hún hann nú fyrir að hafa gert það. Honum fannst hann vera ham- ingjulaus og hjáfparvana. 31tltvarpiö Míðvikudagur 8. maí: 12,50—14,00 Við vinnuna: Tóhleik ar af plötum. 18,45 Fiskimál: Jón Axel Pétursson framkvæmdastjóri talar um vertíðina og togarana- 19,00 Þingfréttir. 19,30 óperulög (plötur). 20,30 Erindi: Egypta- land; I: Pýramídarnir (Bannveig Tómasdóttir). 21,00 Tónleikar (plötnr). 21,20 Upplestur: Gunnar Hall les úr bók sinni „Sjálfstæði Islendinga". 21,45 Tónleikar (plöt ur). 22,10 Þýtt og endursagt: Is- aldarhellarnir á Spáni; I: Landið umhverfis Altamira (Málfríður Einarsdóttir). 22,25 Létt lög (plötur). 23,00 Dagslcrárlok. Fimmtudagur 9. maí: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50—14,00 „Á frívaktinni", sjó- mannaþáttur (Guðrún Erlends- dóttir). 19,00 Þingfréttir. 19,30 Harmonikulög (plötur). 20,30 Nátt úra Islands; IV. erindi: Hafís (Jón Eyþórsson veðurfr.). 20,55 Tvísöngvar úr óperum (plötur). 21,30 Útvarpssagan: „Synir trú- boðanna" eftir Pearl S. Buck; XVII. (Séra Sveinn Víkingur), 22,10 Þýtt og endursagt: Isaldar- hellamir á Spáni; II: Myndir ís- aldarmannsins (Málfríður Einars- dóttir). 22,25 Sinfónískir tónleik- ar (plötur). 23,10 Dagekrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.