Morgunblaðið - 15.05.1957, Side 2
2
MORGVNBT.4ZHÐ
Mið-vrkudagur 15. maf 1957
Miklar nmræður í Neðri deild
um lux- og silungsveiði
Opnuð hefur verið rakarastofa að Hraunteig 9, sú fyrsta í Laugar-
neshverfi. Eigandi stofunnar er Hans Uólm, rakarameistari, sem
áður var i Hafnarstræti 18.
Einasti kvennakór Rvíkur
heldur mikla söngskemmlun
Slysavarnakonur stofnuðu kór fyrir 4 árum
hér í borginni.
í gærdag bauð Kvennadeildin
blaðamönnum til kaffidrykkju
í fundarsal SVFÍ í Grófinni 1.
Þar var mætt stjóm kórsins, en
formaður er frú Gróa Pétursdótt-
Það hefur ekki tíðkazt að halda
lífinu í kvennakórum hér í bæn-
um ,sagði frú Gróa Pétursdóttir,
en við höfum von um að kór
okkar sé kominn yfir erfiðasta
hjallann. Hann er nú orðinn 4ra
ára. Konurnar hafa sýnt mikinn
dugnað, því þær eru allar bundn
ar við heimilisstörf, og hafa kom-
ið á æfingar þegar þær hafa ver-
ið búnar að koma börnum sínum
í háttinn og sinna öðrum kvöld-
verkum á heimilum sínum, en
þær hafa líka haft af þessu mikla
ánægju.
Kór Kvennadeildar Slysavarna
félags íslands var stofnaður fyr-
ir tæpum 4 árum. Söngstjóri
hans hefir verið frá upphafi Jón
ísleifsson, þar til í vetur að Jón
dvaldist nokkra mánuði í Dan-
mörku en frk. Guðrún Þorsteins
dóttir þjálfaði og stýrði kórnum
í fjarveru hans. Hefir kórinn
sungið á afmælis- og skemmti-
fundum kvennadeildarinnar og
ennfremur á hinum árlega sjó-
mannadegi.
Allur ágóði af hljómleikum
þessum mun renna til Kvenna-
deildar Slysavarnafélags íslands
í Reykjavík.
Þessir fyrstu hljómleikar kórs-
ins verða sem fyrr segir með
nokkuð öðrum hætti en tíðkazt
hefur. Kórinn mun hafa sér til
aðstoðar kunnar listakonur, en
þær eru frú Jórunn Viðar, píanó
leikari, frú Hanna Bjarnadóttir,
söngkona og ennfremur þær frk.
Guðrún Þorsteinsdóttir og frk.
Helga Magnúsdóttir, sem munu
syngja tvísöng. Ennfremur munu
píanóleikararnir Gísli Magnús-
son og Fritz Weisshappel aðstoða
með undirleik. Sjálfur mun kór-
inn syngja 4 lög.
Athugasemd frá
rússneska sendi-
ráðinu hér
Herra ritstjóri.
í MORGUNBLAÐINU í dag er
birt ljósmynd af húsinu í Tún-
götu 9 í Reykjavík, og þar undir
er sagt, að sendiráð Ráðstjómar-
ríkjanna hér í bæ hafi ekki haft
fána við hún á afmælisdegi for-
seta íslands hinn 13. þ. m. Af
þessu tilefni vill sendiráð Ráð-
stjórnarríkjanna enn að nýju
minna yður á það, sem er raunar
alkunnugt, að sendiráðið er flutt
frá Túngötu 9, sem nú er aðeins
sendiráðherrabústaður, í Garða-
stræti 33, en frá þessu skýrði
Morgunblaðið sjálft seint á síð-
astliðnu ári. En að því er varðar
húsið Garðastræti 33, þá var þar
dreginn fáni að hún á afmælis-
degi forsetans.
Virðingarfyllst,
Sendiráð Ráðstjórnarríkjanna
í Reykjavík
Garðastræti 33.
MYNDIN frá sendiráðherra-
bústaðnum rússneska var ekki
birt sem nein árás á sendi-
ráðið, heldur sem mynd
af óheppilegu atviki á þess-
um degi. En vegna þess-
arar athugasemdar frá sendi-
ráðinu, þá skal þess getið, að
ambassador Breta hér á landi,
sem býr að Laufásvegi 33, og
ambassador Frakklands, sem
býr að Skálholtsstíg G, höfðu
þjóðfána uppi við bústaði sína
auk þess sem þeir flögguðu í
tilefni af afmæli forsetans á
skrifstofubyggingunum. Geta
má þess að ambassadorar Nor-
egs og V-Þýzkal. voru ekki
heima á afmælisdaginn og þar
af leiðandi var ekki flaggað
á heimilum þeirra, þó flaggað
væri á skrifstofubyggingum
þeirra.
SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
DRAGIi) ekkl að gera skil fyrir
þá miða sem yður hafa vcrið
sendir.
Einkum er áriðandi að þeir
miðar sem ekki seljast berist af-
greiðslu happdrættisins sem allra
fyrst.
Skilagrein verður sótt tfl
þeirra sem þess óska.
Afgreiðsla happdrættisins i
Sjálfstæðishúsinu er opin til kl.
6 daglega, sími 7100.
Júgóslavar gefast upp
á samyrkjubúskap
ALLMIKLAR umræður urðu í
gær í Neðri deild um frumvarp
um lax- og silungsveiði, er það
kom til 2. umræðu.
Gunnar Jóhannsson hafði fram
sögu af hálfu meirihluta land-
búnaðarnefndar og skýrði ein-
stök atriði frumvarpsins.
Jón Pálmason kvaðst ekki
hafa átt samleið með meirihluta
nefndarinnar í þessu stóra og
viðkvæma deilumáli. Kvað hann
með frumvarpi þessu enn meir
gengið á eignarrétt manna en
nauðsyn bæri til. Haldið væri
fram að hér væri um aukna frið-
un að ræða, en það værí hin
mesta blekking. Síðan las hann
upp mótmælabréf gegn frum-
varpinu eða einstökum ákvæð-
um þess frá nokkrum félagasam-
tökum. Þá skýrði Jón breytinga-
tillögur, sem hann leggur fram
við frumvarpið, en þær eru í 22
liðum. Hann kvað það skoðun
sína að frumvarpinu ætti í heild
að fresta, að minnsta kosti eitt
ár í viðbót, en væri þess ekki
kostur vildi hann freista þess
að koma fram nokkrum breyt-
ingum á því. í heild kvað hann
erfitt að setja allsherjarlög um
þetta efni, þar sem aðstæður
væru svo ólíkar eftir því hvar
væri á landinu. Fremur bæri að
setja rúm heildarlög, en ákveðn-
ari reglur fyrir hvert vatnasvæði
um sig.
Helztu breytingatillögur Jóns
Pálmasonar voru þessar:
Við 1. gr.:
su Bkýring orðsins „kvísl“
verði þannig:
Hluti af straumvatni, sem fell-
ur ekki í einu lagi, heldur skipt-
ist um kletta, hólma eða sand-
eyrar, sem eru upp úr, þegar
vatnsborð er lægst að staðaldri.
b. Á eftir „kvísl“ bætist:
Leirur: Þau svæði meðfram
ám og vötnum, sem eru þurr um
stórstraumsfjöru, en sjór eða vatn
gengur yfir um stórstraumsflóð,
og ógróin svæði við stöðuvötn,
sem vötn og ár ganga yfir í flóð-
um, en eru þurr eða með grunn-
um vöðlum, þegar vötn eru lítil.
c. Skýring orðanna „ós í sjó“
verði þannig:
Sá staður, þar sem straumur ár
hverfur í sjó um stórstraums-
fjöru.
d. Orðið „ósasvæði" ásamt
skýringu falli burt.
e. Á eftir orðunum „Ósalt
vatn“ í skýringu orðsins „stöðu-
vatn“ bætist: ofan ósa.
Við 5. gr.:
Greinin orðist þannig:
Þar sem sveitafélög eða upp-
rekstrarfélög hafa keypt afréttar-
lönd, hafa þau ein heimiid til
allrar veiði í vötnum þeirra af-
rétta, enda hafi veiðiréttur eigi
Dagskrá Alþingis
SAMEINAÐ ALÞINGI:
1. Fyrirspurn:
Sérleyfi til fólksflutninga
með bifreiðum. — Ein umr.
2. Efnaiðnaðarverksmiðja í
Hveragerði. — Hvernig ræða
skuli.
3. Áfengis- og tóbakseinkasala.
— Hvernig ræða skuli.
4. Landsbókasafn og Háskóla-
bókasafn, o. fl. — Hvemig
ræða skuli.
5. Biskupsstóll í Skálholti. —
— Hvernig ræða skuli.
•. Fræðslustofnun launþega. —
Hvernig ræða skuli.
7. Jarðgöng og yfirbyggingar á
fjallvegum. — Síðari umr.
8. Áðstoð vegna fjárskipta í
Dala- og Strandasýslu. —
Frh. einnar umr.
9. Alþjóðasamþykkt varðandi
atvinnuleysi. — Ein umr.
10. Lífeyrissjóður fyrir sjómenn
o. fl. — Ein umr.
11. Sumarstörf ungmenna á fiski
skipum. — Ein umr.
12 Forgangsréttur sjómanna til
fastlaunaðra starfa. — Ein
umr.
verið undanskilinn við sölu. Eng-
um er heimil veiði á slíkum af-
réttum nema með leyfi hlutað-
eigandi sveitarstjórnar, eða
sveitastjórna, ef fleiri hreppar
en einn eru aðilar. Þar sem ein-
staklingar eiga afréttarlönd, fylg-
ír þeim á sama hátt allur veiði-
réttur. Ef fiskiræktarfélag eða
veiðifélag er stofnað, þar sem
veiðiréttur á afréttum kemur til
greina, þá fara oddvitar þeirra
sveitafélaga, sem hlut eiga að
máli, með atkvæðisrétt, en ella
eigendur, ef um einkaeign er að
ræða.
Við 16. gr.:
2. málsgr. orðist þannig:
Eigi má stunda neina veiði í
árósi í á eða árósi í stöðuvatni
og eigi 100 metra upp frá slík-
um ósum eða 250 metra niður frá
þeim. Eigi má heldur veiða fisk
í árósi úr stöðuvatni, er lax eða
göngusilungur fer um, né 100
metra upp eða niður frá slíkum
ósi.
Við 19. gr.:
1. málsgr. orðist þannig:
Á veiðitíma þeim, er um getur
í 18. gr., skal lax og göngusil-
ungur vera friðaður gegn allri
veiði 60 stundir á viku hverri,
frá föstudagskvöldi kl. 9 til
mánudagsmorguns kl. 9. Ádrátt
má aldrei hafa frá kl. 9 síðdegis
til kl. 9 árdegis og aldrei nema
tvo daga í viku.
Við 108. gr.:
Upphaf 1. málsgr. orðist svo:
Nú hefur eigandi veiðijarðar,
er átti veiðirétt, áður en lög
Frh. á bls. 15.
WASHINGTON, 14. maí. — Nán-
ari fregnir af viðtali Krúsjeffs
við fréttaritara New York Times
fyrir helgi herma, að hann hafi
m. a. sagt, að fjórveldafundur
„gæti tekið hundrað ár“, áður en
búast mætti við árangri. — Dul-
les, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, gerði viðtalið að um-
talsefni í dag og sagði, að Krú-
sjeff hefði í raun og veru engan
áhuga á því, að slíkur fundur
yrði haldinn. Hann væri ekki
Þorsteinn Jónsson
rith. ritar útvarps-
gagnrýni Mbl.
HINN KUNNI rithöfundur Þor-
steinn Jónsson hefur síðustu vik-
ur ritað útvarpsgagnrýni Mbl. Er
blaðinu að sjálfsögðu mikill feng
ur að því að njóta starfskrafta
hans við þennan þátt starfsemi
sinnar.
Rithöfundurinn óskar að taka
það fram, að þær skoðanir, sem
fram koma í gagnrýni hans séu
fyrst og fremst persónulegar
skoðanir hans sjálfs, sem hann
sé ábyrgur fyrir.
Kappakstur
barmaður
á Ítalíu
RÓMABORG, 14. maí. í dag
var ákveðið að banna bif-
reiða- og mótorhjóla-kappakst
ur á Ítalíu. Bannið nær til ára-
móta. Það er afleiðing slyss
bess, sem varð um helgina,
pegar 13 menn létu lífið í bif-
reiðakappakstri á Ítalíu. Með-
al þeirra voru fimm börn, sem
tiorfðu á kappaksturinn.
IVETUR hafa um 30 konur,
flestar húsmæður, komið sam-
an, stundum þrjú kvöld í viku, til
þess að syngja. Konur þessar eru
allar í þeim eina kvennakór,
sem starfar í Reykjavík, en að
honum stendur Kvennadeild S.V.
F.l. Á föstudagskvöldið ætlar
kórinn að halda fyrstu hljóm-
leika sína hér í bænum í Gamla
Bíói, en þeir verða með nokkuð
öðrum hætti, en tíðkazt hefur um
söngskemmtanir kóra tíl þessa
trúaður á neirm árangur, eins og
fyrrnefnd ummæli hans sýndu
ljóslega. Dulles bætti því við, að
Bandaríkjastjórn hefði ekki held-
ur neinn áhuga á stórveldafundi,
eins og sakir standa.
íhaldsflokkuiinn
klofnor
LONDON 13. maí. — Átta þing-
menn íhaldsflokksins brezka
hafa mótmælt hinni nýju stefnu
Macmillan í Súez-deiiunni og
telja sig ekki geta stutt flokk-
inn í máli þessu. Hafa þeir til-
kynnt að þeir óskuðu eftir þvi,
að vera taldir óháðir þingmenn
flokksins og hafa óbundnar hend
ur í atkvæðagreiðslum, einkum
um utanrikismáL í yfirlýsingu
þeirra segir að linkind brezku
stjórnarinnar við Nasser muni að
lokum leiða til ósigurs.
Egypti nauðlendir
þotu í Vín
VÍNARBORG, 14. mai. - Egypzk-
ur flugmaður nauðlenti flugvél
sinni á Schwechwacht-flugvelli
við Vínarborg í dag. — Flugvél-
in var af gerðinni MIG, orrustu-
þota, smiðuð í Tékkóslóvakiu. —
Flugmaðurinn skýrði frá því, að
hann hefði verið á æfingaflugi
yfir Tékkóslóvakiu, þar sem
bækistöðvar hans cru, en villzt.
MIG-þotan var vel vopnuð.
Ástæðan til þess, að Egyptinn
varð að nauðlenda henni, var sú,
að vélin var orðin eldsneytislaus.
Loks má geta þess, að Egypt-
inn bað austurrísk stjórnarvöld
um leyfi til að fljúga aftur til
bækistöðva sinna i Tékkósló-
vakíu.
ÞING Júgóslavíu hefur sam-
þykkt álytkunartillögu, sem á-
kveður meginþætti í þróun land-
búnaðarins á næstu árum. Þar
er lögð áherzla á það að nú sé
sýnt, að samyrkjubúskapurinn
hafi mistekizt og beri að hverfa
frá honum. Er tekið fram í álykt-
uninni að samyrkjutilraunirnar í
Júgóslavíu hafi misheppnazt, ár-
angur af þeim öllum hafi orðið
neikvæður, framleiðslan hafi
minnkað og áhugí samyrkju-
bænda horfið.
í stað samyrkjubúskapar er
rætt um það í ályktuninni, að
nýtizku vélanotkun henti bezt ef
bændur hafi frjálst samstarf um
hana. Hefur nú verið gerð áæti-
un, þar sem gert er ráð fyrir að
vekja upp áhuga bænda fyrir
aukinni ræktun og vonast menn
til að á næstu fimm árum auk-
ist framleiðsla landbúnaðaraf.
urða um 35%. Einkum er lögð
áherzla á kjötframleiðslu og feit-
metis, en stórfelldur skortur hef
ur verið á þeim fæðutegundum I
landinu.
Umræður um þetta mál stóða
þrjá daga í júgóslavneska þing-
inu.
A fundum í „hundrað ár“