Morgunblaðið - 28.05.1957, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.05.1957, Qupperneq 15
Þriðjudagur 28. maí 1957 MORGUNBT AÐIÐ 15 HLUSTAÐ Á ÚTVARP s i SIGURÐUR MAGNÚSSON, full- trúi, flutti erindið Um daginn og veginn mánudaginn 20. þ. m. Sigurður er góður útvarpsmaður, hafa mörg erindi hans verið með ágætum að efni og flutningi. Auk þess er hann óhræddur að segja meiningu sína, hver sem hlut á í máli. Eg veit að fólk hlustar mjög margt á hann. í þetta sinn var ræða Sigurðar heldur með daufara móti. Hann gat um hið margumtalaða gistihúsaleysi. Á- stæðan fyrir því er auðskilin. Menn vilja ekki leggja fé sitt í slíkt. í landi þar sem ekki er, sökum veðráttu, unnt að búast við ferðamönnum lengri tíma en um 3 mánuði, er varla við því að búast að menn geri ráð fyrir miklum hagnaði á gistihúsa- rekstri í stórum stíl. Það er sjálf- sagt ágætt að fá gjaldeyri ferða- manna, en eg er hræddur um að ísland og Grænland verði aldrei veruleg ferðamannalönd vegna veðurfarsins. — Þá drap S. M. á ræðu Jóns Árnasonar banka- stjóra, sérfræðings Framsóknar- manna í fjármálum, um tugi ára. Þóttj, eins og mér, undarleg þögn in um þá skeleggu og röggsam- legu ræðu. Allir vita hver orsök- in er. Jón kom nokkuð illa við kaunin. Sigurður Magnússon gat um úthlutun listamannalauna. Um það mál verður rifizt enda- laust. Tillaga hans var að ríkið launaði vel nokkra helztu lista- menn (líklega með prófessors- launum?) Rússneskt fyrirkomu- lag? — Satt er það að einkenni- legt er, að að dómi flestra, mesti listamaður landsins, Jóhannes Kjarval, skuli settur skör lægra en Ásgrímur Jónsson, ur við alþýðu hæfi. Var erindið um surtarbrandinn, sem myndazt hefur hér eftir mikið hlýinda- tímabil, samkvæmt jurtaleyfum er í surtarbrandinum hafa fund- izt. Um tónverk dr. Hallgríms Helgasonar, sem flutt voru, er eg ekki fær að dæma. En sjálfsagt hefur hinn hálærði og vandvirki tónfræðingur og tónskáld vandað mjög til þessara tónsmíða þótt mér virðist nokkuð erfitt að átta mig á þeim. Á föstudagskvöld var Breið- firðingakvöld. Oscar Clausen flutti endurminningar um ferða- lag til Kaupmannahafnar fyrir 40 árum er hann fór þangað til lækninga. Mér þykir alltaf gam- an að hlusta á Oscar og svo mun s s s s s ) mörgum þykja. Séra Árelíus Níelsson flutti erindi um Staðar- fellsskólann 30 ára, stofnendur hans þau frú Herdísi Benediktsen og Magnús Friðriksson. Ljóð voru lesin eftir Ragnar Jóhann- esson og þær systur Herdísi og Ólínu Andrésdætur, sem vissu- lega voru góð skáld. Svo var söngur. Var kvöldvaka þessi til sóma fyrir Breiðfirðinga, — en hámark hennar var ræða séra Árelíusar, því minning frú Bene- diktsen og Staðarfellshjónanna má ekki gleymast heldur á jafn- an að vera í heiðri höfð. Á laugardag las Steindór Hjör- líklega eina af beztu smásögum þessa skálds. Leikritið Ótrúleg saga, eftir Claude Aveline var vissulega ótrúlegt. Snillingarnir Þorsteinn Ö. Stephensen og Lárus Pálsson fóru ágætlega með þetta yfir- spennta og sálsjúka. Ég efast um að margir hafi hlustað á það sér til ánægju og því síður gagns. Veit satt að segja ekki hvað fyrir höfundi hefur vakað að semja slíkt leikrit né fyrir þeim er það þýddi og þeim er réði flutningi þess í útvarp hér. Erlendis er nokkuð víða gert allmikið til þess að flytja æsandi efni í útvarpi, en eg held að enginn hafi gott af slíku. Á bænadag þjóðkirkjunnar, sunnudag 26. maí, var útvarpað messu frá dómkirkjunni. Prédik- aði dómprófasturinn séra Jón Auðuns og lagði út af orðun- um: „Þegar stoðirnar bresta, leifsson allgóða smásögu, Á skiln- hvað megna þá hinir réttlátu.“ aðarstund, eftir Stefán Jónsson,' Að mínu viti var ræðan afburða góð. Talaði hann um hve skaðlegt það hlyti að vera fyrir einstök heimili og heilar þjóðir er fornar dygðir væru fyrir borð bornar. Að vísu væri hin mikla vélvæð- ing framför á sinn hátt, en vinn- an gæfi minni gleði er hún væri vélræn orðin og einhæf. Hann gat þess hversu tízkan (eg vil refna það múgsefjun) færi oft með fólk í gönur og heimilin spilltust við alls kyns glingur og klæðaburður yrði afkáralegur, músik hávaðasamt glamur. Forn- helgar kirkjur væru rifnar niður í mestu menningarlöndum, til þess að á lóðum þeirra væru byggðar hallir gróðafélaga. En skýjakljúfar nútímans gætu aldrei komið í stað kirknanna. — Eg vil aðeins óska þess að sem állra flestir hafi hlustað með athygli á þessa i-æðu dómprófasts ins, því það sem eg hef hér drep- ið á er aðeins örlítið bergmál af sumu af því er hann sagði. Þorsteinn Jónsson. Jón Jóhonnesson Ytia-Shöiðugili Minningororð að vísu er ágætur málari, og þeir Kristmann og Hagalín á sama bekk og Ólafur Jóhann Sigurðsson! Er það næsta hlá- legt. Þá gat ræðumaður um skíða- gönguna miklu í vetur og nor- rænu sundkeppnina nú og fór háðulegum orðum um þessa kappleiki. Ekki finnst mér megi líkja saman skíðaíþrótt og sundi. Sundið verður jafnan hin þarf- legasta íþrótt á allan hátt, hin göfugasta íþrótt allra. Bjargar vafalaust fjölda mannslífa ár bvert. Um skíðaíþrótt er ekkert nema gott að Segja en kemst á engan hátt til jafns við sundið, -— og skíðagangan mikla var dá- lítið skopleg, því verður ekki neitað. Á þriðjudag flutti dr. Matthías Jónasson erindi er hann nefndi Æska í hættu — hættuleg æska. Var það frá þingi er haldið var i Hamborg, þar sem fjöldi upp- eldisfræðinga var saman kom- inn, þar á meðal dr. Matthías og ráðguðust um hið mikla vanda- mál allra tíma: Hvernig á að koma afvegaleiddri æsku til hjálp ar, og beina lífsferli þessa unga fólks inn á réttar og heilnæmar brautir. Einkum varð ræðu- manni tíðrætt um tillögur eins hollenzks uppeldisfræðings, sem virðist nýjung og mjög viturleg. En það er að einangra ekki þessa unglinga frá fjölskyldum þeirra nema sem allra minnzt, loka þessi börn ekki inni á afskekktum hæl- nm, heldur leyfa þeim samgang við annað fólk, við lífið, en leið- beina þeim með kærleika og vin- semd. Telur hann að með þessu verði meinið bætt frá rótum mjög oft, en ekki aðeins á ytra borði, með ströngum aga. Erindi dr. Matthíasar var mjög athygl- isvert. Hákon Guðmundsson, hæsta- réttarritari, flutti þáttinn um Hæstaréttarmál, sem er vinsæll og fróðlegur. Rétt er að halda þeim þætti áfram. Á miðvikudag hlustaði eg ekki á útvarp. Erindi Jóhannesar Ás- kelssonar um Náttúru íslands er hann nefndi Getið í eyður og flutt var á fimmtudag, var mjög fróðlegt. Fór þar saman mikill lærdómur og vandaður frágang- HINN 27. janúar sl., andaðist í Sjúkrahúsi Akureyrar Jón bóndi Jóhanness. frá Ytra-Skörðugili í Skagafirði. Jón hafði að mestu legið rúmfastur frá því í októ- ber í haust. — Fyrst í Landspít- alanum í Reykjavík, síðan um stuttan tíma heima og síðustu mánuðina á Akureyri. — En sjúk dómsins mun hann hafa kennt nokkur síðustu ár. Jón var fæddur á Völlum í Seyluhreppi, 27. maí 1893. —Éor- eldrar hans voru Jóhannes Kon- ráðsson og kona hans Ingibjörg Jönsdóttir, er þá bjuggu þar um fá ár. Eigi verður ætt þeirra rak- in hér, en látið nægja að greina sem fr;j ag þau voru þægi af góðum bændaættum í Skagafirði. Er Jón var 3ja ára gamall, andaðist móðir hans. Faðir hans brá þá búi, en kom sonum sínum í fóstur, eldri sonurinn hét Hannes, er hann dáinn fyrir mörgum árum. — Jón fór í fóst- ur til móðursystur sinnar, Mar- grétar, er var húsfreyja í Víkur- koti í Blönduhlíð. En þar var fóstrið stutt, því Margrét and- aðist innan þriggja ára. Þá kom faðir hans honum í fóstur að Kollgröf. Þá bjuggu þar sæmdarhj ónin Björn Þorláksson og Jóhanna Jóhannsdóttir, þar entist Jóni fóstrið til fullorðins ára. Björn var mjög farsæll bú- höldur. Eg er eigi í vafa um að Jón hefir mótazt um búskaparhætti og framsýni af búhöldinum Birni í Kollgröf, ásamt meðfæddum Skörðugilshjóna og ætíð notið ánægju af samræðu við hina skemmtilegu húsbændur. Tvö börn eignuðust þau hjón- in: Unnur Oddfríður og Björn Jóhannes. Bæði hafa þau gengið í skóla og Unnur stundað kennslustörf undanfarna vetur. Björn hefir nær lokið námi í Háskólanum, aðallega í málfræði, en hefir eigi getað stundað nám að verulegu leyti í vetur, vegna breyttrar aðstöðu heima. Bæði eru þau systkin mjög efnileg. Eigi leikur það á tveim tung- um, að Seyluhreppur hefir með Jóni misst einn sinn traustasta og efnaðasta bónda. Hann var jarðsettur að Glaumbæ 8. febr., fylgdu flestir bændur hrepps- ins honum síðasta spölinn til grafar. Vottuðu þeir honum þar með virðingu sína, fyrir vel unn- in störf í sveitarinnar þágu. Eg votta svo konu hins látna og börnum þeirra samúð mína og óska þeim alls velfarnaðár í framtíðinni. Eg kveð svo þig látni vinur og þakka þér persónuleg kynni og samstarf. Nú mun hans starfandi andi yrkja nýja jörð á landinu, þar sem sólin gengur aldrei til viðar. Hjörtur Kr. Benediktsson. eiginleikum. Um tvítugsaldur fór Jón til náms einn vetur að Hvítárbakka, og síðan um næstu tvo vetur — 1914—1916 — var hann í Hvann- eyrarskóla. Að loknu þessu skólanámi kom hann aftur norður í átthagana, var hann svo lausamaður næstu ár. Árið 1922 hóf hann búskap í Glaumbæ, kvæntist hann sama ár heitmey sinni, Agnesi Guð- finnsdóttur, er hún ættuð úr Dalasýslu. — Bróðir hennar var hinn bráðgáfaði málfræðingur, Björn Guðfinnsson. Mun margt mjög vel gefið fólk vera í þeirri ætt. Agnes er prýðilega vel greind kona. Fáar konur hefi eg þekkt, er lesið hafa jafnmikið sem hún. enda er hún fjölfróð. Nú mætti skilja orð mín svo, að hún hefði slegið slöku við búskapinn, en því fer fjarri, hún hefir stundað hann með dugnaði, ásamt manni sínum. En hún hefir kunnað að nota frístundirnar, til að auðga anda sinn, en eigi er mér grun- laust að svefntíminn hafi stund- um liðið við það. Eftir 5 ára búskap í Glaumbæ, keypti Jón Ytra-Skörðugil og fiutti þangað vorið 1927. Skörðu- gil var þá kotbýli, með litlu, þýfðu túni og þýfðum mýrar- slægjum, ásamt lélegum torfbæ. Verkefnin vóru næg framundan fyrir hin ungu hjón, enda var eigi dregið að hefja umbæturnar, sem húsbóndinn starfaði að með- an dagur entist. — Nú myndi enginn þekkja Skörðugil fyrir sömu jörð og hún var fyrir 30 árum. Nú gefur að líta sléttar lendur, margfaldar að stærð við hið gamla tún, enda allur mýrar- flákinn orðinn rennsléttur flöt- ur, með skurðum til framræslu. Snoturt íbúðarhús úr stein- steypu reisti Jón fyrir mörgum árum, nýl. hafði hann lokið við að steypa fjárhús yfir 240 fjár, ásamt hlöðu, er tekur að minnsta kosti 1000 hesta. Kot er lá sam- liggjandi að nokkru leyti, Skörðu gilslandi, keypti Jón, fyrir nokkr um árum og fékk þar góðan land- auka. Nú er óhætt að telja Skörðu- gil með beztu býlum Seylu- hrepps. Þannig getur atorkan, samfara góðum efnum, breytt órækt í frjósama jörð. Aldrei varð Jón í heyskorti í búskap sínum, heldur þvert á móti átti hann fyrningar manna mest, seldi hann þó hin síðari ár, töluvert mikið árlega af heyi. Mörgum opinberumstörfumvarð Jón að sinna, á síðari árum. — Hreppsnefndarmaður og fjall- skilastjóri, sóknarnefndarmaður, — féhirðir. — Þá er eftir að telja það sem tímafrekast var, en hann var féhirðir Sjúkrasamlags Seylu hrepps frá stofnun þess. öll fyrr nefnd störf hafði hann á hendi til dánardægurs, og rækti hann störf sín með sérstakri reglu- semi. Eg sem línur þessar rita, var samstarfsmaður Jóns um nokk- urt árabil í sóknarnefnd. Ætíð var hann ákveðinn, en þó mjög samvinnulipur, öll var reiknings- færsla hans hin ágætasta. Aldrei stóð á Jóni að vinna sinn hlut af þeim störfum, er honum voru á hendur falin. Hann var ætíð sami atorkumaðurinn, hvar í fylking sem hann stóð. Jón var prýðisvel greindur og vel máli farinn, gat hann oft verið þéttur fyrir, en það sem hann lagði til mála, var ætíð byggt á hyggindum og fram- sýni. Oft hefi eg verið gestur þeirra Hafnarfjörður Verzlunarmannafélag Hafnarfjarðar Aðalfundiur félagsins verður haldinn finuntudaginn 30. maí nk. kl. 2 e. h. í Alþýðuhúsinu. Fundarefni: Yenjuleg aðalfundarstörf. — Önnur mál. Stjórnin. Stór og góð 3ja herbergja íbúð í Laugarásnum til leigu. Sér hiti. Fyrirframgreiðsla. Aðeins reglusamt fólk kemur til greina. Tilboð merkt: „1. júní“ —5786, leggist inn á afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld. Saumið siúlfar plisseiuð . pils Margar gerðir af plisseruðum efnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.