Morgunblaðið - 28.05.1957, Page 20

Morgunblaðið - 28.05.1957, Page 20
20 MORGUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 28. maí 1957 Edens eftir John Steinbeck I 45 [ lag og möguleika. Adam skoðaði þetta ekki sem neitt gróðafyrir- tæki. Hann var kominn til þess að setjast að, stofna heimili, fjöl- skyldu, kannske heilan ættstofn. Adam var í sjöunda himni, er hann ók frá einurn hænum til ann- ars, tók upp moldarhnausa og muldi þá milli fingranna, rahbaði, dreymdi og gerði áætlanir. Fólkinu í dalnum líkaði vel við hann og þótti vænt um að hann skyldi vilja setjast að hjá því, vegna þess að það sá og skildi að hann var dug- andi maður og drenglyndur. Aðeins eitt olli honum áhyggj- um og það varðaði Cathy. Hún var ekki heilbrigð. Hún ók að vísu með honum um dalinn, en hún var dauf og sinnulítil. Einn morgun kvart- aði hún um lasleika og varð eftir á gistihússherberginu í King City, þegar Adam ók af stað. Hann kom aftur um klukkan fimm síðdegis og fann hana þá nærri dauða af blóðmissi. Til allrar hamingju hitti hann svo á að dr. Tilson var heima og gat vitjað sjúklingsins sam- □-----------;----------□ Þýðing Sverrir Haraldsson □----------------------□ stundis. Læknirinn flýtti sér að rannsaka aðstæðurnar, kom svo fyrir kera og sneri sér að Adam. „Það er bezt að þér farið niður og bíðið þar“, sagði hann. „Er þetta hættulegt?“ „Nei, þér fáið að koma upp aft- ur bráðlega“. Adam klappaði Cathy á öxlina og hún brosti upp til hans. Dr. Tilson lokaði dyrunum á eft- ir honum og gekk svo aftur að rúminu. Gremjuroði litaði kinnar hans: „Hvers vegna gerðuð þér þetta?“ spurði hann. Cathy þagði og kreisti saman varirnar. „Veit maðurinn yðar að þér gangið með barni ?“ Hún hristi höfuðið ofur hægt. „Með hverju gerðuð þér þetta?“ Hún starði á hann. Hann litað- ist um í herberginu, gekk svo yfir að kommóðunni og tók upp band- prjón, sem bar lá: „Þarna höfum við þá gamla syndarann — tæki djöfulsins", sagði hann. „Þér eruð heimskingi! Þér voruð nærri búin að murka úr sjálfri yður líftór- una, en barnið losnuðuð þér ekki við. Auðvitað hafið þér reynt önn- ur brögð, tekið inn eitur, kamfóru, hráolíu og rauðan pipar! Guð minn almáttugur! Hvað er það sem konur gera ekki fundið upp á?“ Augu hennar voru köld og hörð eins og glerkúlur. Hann færði stól að rúminu: — „Hvers vegna viljið þér ekki eiga barnið?“, spurði hann hljóðlega. — „Þér eigið góðan mann. Elskið þér hann ekki? Nú, nú, ætlið þér alls ekkert að segja? Segið mér nú hreinskilninslega hvað það er, sem þjáir yður. Liggið ekki þarna eins og liðið lík“. Varir hennar bærðust ekki og augun störðu svipbrigðalaus á hann. „Góða mín“, hélt læknirinn á- fram. — „Hlustið þér nú vel á mig. Þér megið ekki granda lífi. Það er það eina sem gerir, mig hamslausan. Guð veit að oft deyja sjúklingarnir mínir, vegna þess að þekking mín nær of skammt. En ég reyni — ég reyni alltaf. Og svo sé ég morð framið af ráðnum huga, eða a.m.k. tilraun til þess að fremja norð“. Hann var orð- inn óðamála. Hann hræddist hina lamandi þögr á milli setninga sinna. Þessi kvenmaður var hon- um torráðin gáta. Það var eitt- hvað ómann’egt ' fari hennar. -— „Hafið bér kynnzt frú Laurel? Hún grætur og barmar sér vegna þess að hún getur ekki eignazt barn. Hún myndi gefa allt sem hún ætti til þess að eignast bam. Og þér — þér reynið að drepa afkvæmi yðar með band- pijóni. Gott og vel!“, hrópaði hann. — „Þér viljið ekki tala og þér þurfið þess heldur ekki. En eitt skal ég láta yður vita, að skilnaði. Barnið er óskaddað og öruggt. Þér miðuðuð skakkt og barnið skuluð þér fæða. Vitið þér hvað lögin hér í landi segja um fóstureyðingar? Þér þurfið ekki að svara, en þér skuluð íhuga orð mín. Ef þetta kemur fyrir aftur. Ef þér missið þetta fóstur og ég hefi ástæðu til að gruna yður um græsku, þá mun ég kæra yður, þá mun ég bera vitni gegn yður Edison Dictafon með öllu tilheyrandi til sölu mjög ódýrt Fáið hreinni, hvitari tennur og ferskt munnbragð notið COLGATE Chlorophyll Toothpaste Járnsmiðir - Rafsuðumenn Okkur vantar nú þegar járnsmiði og menn vana rafsuðu. VÉLSM. OL. OLSEN, Ytri-Njarðvík. Sumarkápur Dragtir Stuttjakkar Pils í miklu úrvali Bíikrani og bílpressa til leigu í lengri eða skemmri tíma Byggwgafólagið BBÚ h.f. Sími 6298 *;• ♦*. ♦!♦ </• ♦>♦!♦ ♦!* ♦!♦ A ♦!♦ *!♦ MARKUS *•* ♦♦• *!♦ *!♦ *!♦ ♦•' *Z**Z**Z* !> ♦!♦ ♦!* *!♦ ♦!♦ ♦!♦ •!♦ *!♦ ♦!* Eftir Ed Dodd 1) — Peta hlýtur að vera orðin meir en lítið skotin í Mark- úsi. Það var næstum ótrúlegt, hvernig hún hégðaði sér í sam- bandi við þenr.an hund. 2) — Hún skal samt ekki fá að elska hann. Við vitum ekki hvers konar maður þetta er. Hann gæti verið strokufangi, sem lögreglan er að elta. 3) — Jæja, Markús. Hvernig ertu þá orðinn til heilsunnar. — Bærilegur, þakka þér fyrir. 4) — Pabbi, við ætlum að fara til Jóa Indíána til að bólu- setja börnin hans. og sjá til þess að yður verði refs- að. Jæja, ég vona nú að þér séuð nægilega skynsöm til að trúa orð- um mínum, vegna þess að mér er fyllsta alvara". Cathy vætti varirnar með tungu broddinum. Allur kuldi var horf- inn úr augum hennar og máttvana hryggð lýsti sér í svipnum. „Mig tekur þetta sárt“, sagði hún. —• „Mig tekur þetta svo sárt. En þér skiljið mig ekki“. „Hvers vegna segið þér mér þá ekki eins og er?“ Öll reiði hvarf honum samstundis. — „Segið mér það, kæra barn“. „Það er svo erfitt. Adam er svo góður, svo sterkur. Ég er — já ég er fyrir fram dæmd. — Floga- veiki!“ „Þér? Nei, það getur ekki átt sér stað“. „Nei, en afi minn og faðir — og bróðir minn“. Hún huldi augun með hendinni. — „Ég get ekki valdið manninum mínum slíku böli“. „Vesalings barnið", sagði hann. — „Vesalings barnið mitt. Missið samt ekki kjarkinn. Það er meira en líklegt að barnið yðar verði hraust og heilbrigt. Viljið þér lofa mér því, að grípa aldrei framar til slíkra örþrifaráða?" „Já“. „Jæja, þá er allt í bezta lagi. Ég skal ekki segja manninum yðar neitt frá þessu. Leggizt nú útaf, svo að ég geti athugað hvort blæð ingin sé stönzuð". Að nokkrum mínútum liðnum lokaði hann tösku sinni og stakk bandprjóninurr í vasann: — „Ég lít svo inn til yðar í fyrramálið, sagði hann vingjarnlega. Adam flýtti sér upp í stigann á móti lækninum og lét spurningun- um rigna yfir hann: — „Hvernig líður henni? Er hún úr allri hættu? Hvernig stóð á þessu? Má ég fara upp til hennar?" „Svona, svona! Stillið yður nú góði maður! Stillið yður! „Dr. Tilson notaði sitt gamla, sígilda ráð. —■ „Konan yðar er veik“. „Læknir. . . .! „Konan yðar á von á barni“. Hann ruddist framhjá Adam, sem stóð agndofa og starði á eftir hon um. Þrír menn er sátu umhverfis arininn brostu að honum og einn þeirra sagði þurrlega: — „Væri ég í hans sporum, myndi ég bjóða nokkrum, ja segjum þremur, kunn- ingjum að skála við mig“. En þessi bending hans bar eng- an árangur. Adam var þegar horf inn upp á pallskörina. Louis ók vagninum bak við skýl- ið og Adam hjálpaði honum við að leysa hestana frá og tjóðra þá í skugganum. — „Hann meinti þetta sem hann sagði um flöskuna iHÍItvarpiö Þriðjudagur 28. maí: Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Hús í smíðum; XI: Stein- steypa til húsagerðar (Marteinn Björnsson verkfræðingur). 19,00 Þingfréttir. 19,30 Þjóðlög frá ýms um löndum (plötur). 20,15 Útvarp frá Alþingi: — Almennar stjórn- málaumræður (eldhúsdagsumræð- ur), síðara kvöld — Dagskrárlok um kl. 24,00. Miðvikudagur 29. maí. Fastir liðir eins og venjulega. 12.50—14.00 Við vinnuna: Tónleik ar af plötum. 19,.30 Óperulög (plöt ur). 20,30 Erindi: Frá Norður- Afríku (Jón Magnússon frétta- stjóri). 20.55 Einsöngur: Kirsten Flagstad syngur lög úr óperum eftir Wagner. 21.16 Þýtt og end- ursagt: Úr endurminningum konu Dostojevskís; fyrri hluti (Arn- heiður Sigurðardóttir flytur). 21. 40 Tónleikar: Tvær stuttar sónöt- ur eftir Bach (plötur). 22.10 íþróttir (Sigurður Sigurðsson), 22.30 Frá úrslitum í danslaga- keppni Félags íslenzkra dægur- lagahöfunda (Hljóðritað í Þórs- café í fyrra mánuði). J.H.-kvint- ettinn og KK.-sextettinn leika. — Söngvarar: Sigrún Jónsdóttir, Ragnar Bjarnason og Sigurður Clafsson. 23.30 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.